Fréttablaðið - 13.12.2022, Blaðsíða 26

Fréttablaðið - 13.12.2022, Blaðsíða 26
LEIKHÚS Hið ósagða eftir Sigurð Ámundason Tjarnarbíó Leikstjórn, handrit og framleiðsla: Sigurður Ámundason Leikendur: Árni Vilhjálms, Kolfinna Nikulásdóttir, Kolbeinn Gauti Friðriksson, Melkorka Gunborg Briansdóttir, Ólafur Ásgeirsson og Sigurður Ámundason Hljóðvinnsla: Sigurður Ámundason, Óskar Þór Ámundason og Andri Björgvinsson Sigríður Jónsdóttir Þrír vinir, Guðmundur, Sif og Hálf- dán (Dáni), hittast í drykk og mál- tíð á TGI Friday’s í Smáralind. Guð- mundur hefur nýlega slegið í gegn með grein í The Atlantic og vinirnir vilja nýta tækifærið til að samgleðj- ast. En Sif og Dáni hafa fleiri fyrir- ætlanir í pokahorninu og kvöldið tekur óvænta stefnu. Hið ósagða var frumsýnt í Tjarnarbíói í byrjun mánaðar og sýningartíminn er mjög knappur. Myndlistarmaðurinn Sigurður Ámundason vinnur með fjölbreytta miðla í sinni listsköpun. Hið ósagða er hrærigrautur af hugmyndum og listformum. Hann skrifar hér hand- ritið, leikstýrir og leikur lítið lykil- hlutverk. Frá fyrstu augnablikunum verður ljóst að hér er ekki á ferðinni klassískt kvöldverðardrama heldur eitthvað annað, einkennilegra og óþægilegra. Kómík og tragík Leikmyndin er með einfaldara móti: borð fyrir máltíðina, lítill bar fyrir afgreiðsluna og stórt tjald baka til. Áhorfendum er síðan kastað beint inn í ameríska ofgnótt neyslusam- félagsins með myndskeiði sem er varpað á tjaldið. Fagurfræði mynd- brotanna minnir óneitanlega á tilraunaþríleik Godfrey Reggio og Philip Glass, Koyaanisquatsi, Powaqqatsi og Naqoyqatsi. Líf úr jafnvægi, tæknivæðing neyslunnar og borgaralegt of beldi. Aftenging persónanna og firring er síðan undirstrikuð með textanum sem er fyrir fram tekinn upp og leikar- arnir endursegja með látbragðsleik. Leiktextinn er undir greinilegum áhrifum frá bandarískum sjón- varpsþáttum á borð við Seinfeld og Arrested Development, þar sem sjálfið er ofar öllu og úlfaldar gerðir úr mýflugum. Útkoman er oftar en ekki kómísk en að sama skapi trag- ísk. Sigurður gerir afskaplega vel á köflum, samtölin snúast í hringi og fara hvergi en hér eru orðin vopn og status skiptir öllu. Ungt fólk á uppleið Guðmundur, Sif og Dáni, leikin af Ólafi Ásgeirssyni, Kolfinnu Niku- lásdóttur og Árna Vilhjálms, eru ungt fólk á uppleið og gera fátt í ein- lægni, eins og virðist vera móðins um þessar mundir. Þau fara á TGI Friday’s í kaldhæðni, panta mat í kaldhæðni og tala saman af kald- hæðni. Þau eru ofurmeðvituð um sinn stað í samfélaginu og sig sjálf. Samskipti þrenningarinnar ein- kennast af míkróof beldi og glensi á kostnað annarra. Verkefnið leysa leikararnir alla jafna vel af hendi, finna tengingu sín á milli og skerpa þagnir til að þær skeri djúpt. Raunverulega kaldhæðnin er sú að þegar öllu er á botninn hvolft skiptir þessi eina grein afskaplega litlu máli í stóra samhenginu, en samfélagsradíusinn nær einungis nokkra millimetra út fyrir naf la þeirra. Inn á þeirra sporbaug sveima síðan táknmyndir í mannslíki: ameríski einfeldningurinn, einlægi háskólaneminn og bugaði fastagest- urinn, leikinn af Sigurði, Melkorku Gunborgu Briansdóttur og Kolbeini Gauta Friðrikssyni. Öll eiga þau sín eftirminnilegu augnablik en gaman hefði verið að kynnast þeim örlítið betur. En allt snýst um Guðmund, Sif og Dána, sem eru tilbúin til að gera sér upp tilfinningar og grafa undan öðrum, frekar en að byggja brýr. Forvitnileg og fersk Hið ósagða er eftirtektarverð til- raunasýning um ákveðinn sam- félagshóp, metorðagjörn merkikerti, en samtímis baneitruð samskipti samtímans. Ofgnóttin er alls staðar og í stjórnlausum heimi er freistandi að snúa vörn í sókn, taka stjórn á því litla sem við getum og ná sér niðri á einhverjum, bara einhverjum. Sig- urður málar sig svolítið út í horn á lokametrunum og endirinn er þar af leiðandi frekar kraftlaus, en eftir stendur samt sem áður forvitnileg og fersk leiksýning. n NIÐURSTAÐA: Hið ósagða flettir ofan af óbærilegum samskiptum og stéttaskiptingu með beittum texta. Uppskafningar í sýndarveruleikanum Leikararnir Árni Vilhjálms, Ólafur Ásgeirsson og Kolfinna Nikulásdóttir fara með aðalhlutverkin í leikritinu Hið ósagða eftir Sigurð Ámundason sem er sýnt í Tjarnarbíói um þessar mundir. MYND/BRIAN FITZGIBBON Sigurður Ámundason skrifaði, leik- stýrði og fer með hlutverk í verkinu Hið ósagða. MYND/BRIAN FITZGIBBON VERÖLD HVÍLDAR BETRA BAK – LEGGUR GRUNN AÐ GÓÐUM DEGI www.betrabak.is Chandon er ný og glæsileg lína frá Serta þar sem hugsað er fyrir hverju smáatriði. Chandon heilsurúmið er einnig hægt að fá með stillanlegum botnum og heilli yfirdýnu. Einnig fáanlegt í gráum lit. Einstaklega falleg hönnun þar sem þægindi og stuðningur veita þér þann svefn sem þú átt skilið. Stærð Verð með botni Verð m/stillanlegum botni 160 x 200 cm 449.900 kr. 649.900 kr. 180 x 200 cm 484.900 kr. 679.900 kr. 180 x 210 cm 509.900 kr. 689.900 kr. 200x200 cm 524.900 kr. 739.900 kr. SERTA CHANDON HEILSURÚM (dýna, botn, gafl og lappir) A F S L ÁT T U R A F B A Ð S L O P P U M 20% A F S L ÁT T U R A F S Æ N G U R F Ö T U M 20% Ve rð o g vö ru up pl ýs in ga r í a ug lý si ng un ni e ru b ir ta r m eð f yr ir va ra u m p re nt vi llu r. Nú 36.720 kr. SAMSØ DÚNSÆNG 140x200 cm. vönduð dúnsæng. Moskusdúnn. Verð 45.900 kr. 20% VENO DÚNSÆNG 140x200 cm. 700g. 50% smáfiður, 50% hreinn andadúnn. Verð 22.900 kr. Nú 18.320 kr. 20% FAXAFENI 5 Reykjavík 588 8477 DALSBRAUT 1 Akureyri 588 1100 SKEIÐI 1 Ísafirði 456 4566 FRÉTTIR, FÓLK & MENNING á Hringbraut 18 Menning 13. desember 2022 ÞRIÐJUDAGURFRÉTTABLAÐIÐMENNING FRÉTTABLAÐIÐ 13. desember 2022 ÞRIÐJUDAGUR

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.