Fréttablaðið - 13.12.2022, Blaðsíða 1

Fréttablaðið - 13.12.2022, Blaðsíða 1
2 7 0 . T Ö L U B L A Ð 2 2 . Á R G A N G U R f rettab lad id . i s Þ R I Ð J U D A G U R 1 3 . D E S E M B E R 2 0 2 2 Stúkan og utan vallar á HM Hvað er næst hjá Harry og Meghan Íþróttir ➤ 10 Lífið ➤ 20 Laugavegi 174, 105 Rvk. www.hekla.is/idBuzz Nýr rafmagnaður CARGO Samtök atvinnulífsins og VR skrifuðu undir nýja kjara- samninga í gær eftir viðræður undanfarinna vikna. Fram- kvæmdastjóri SA segir það þrekvirki að hafa náð sam- komulagi í tæka tíð. kristinnpall@frettabladid.is KJARAMÁL „Við náðum samkomu- lagi sem nær til afskaplega stórs hóps í VR, LÍV og samflots iðnaðar- og tæknifólks. Með því höfum við lokið kjaraviðræðum við 80 þúsund launamenn og það var því vel tilefni til að fagna með vöfflum,“ segir Hall- dór Benjamín Þorbergsson, fram- kvæmdastjóri Samtaka atvinnu- lífsins, spurður hvernig tilfinningin hafi verið að ganga frá kjarasamn- ingum hjá ríkissáttasemjara. Ekki náðist í Ragnar Þór Ingólfs- son, formann VR, við vinnslu frétt- arinnar og vildi hann ekki ræða við fjölmiðla eftir undirritun í gær. Með samningnum er búið að tryggja umtalsverðar kjarabætur fyrir félagsmenn. Mánaðarlaun hækka um 6,75 prósent, afturvirkt til 1. nóvember síðastliðins, en hækkunin er bundin því að fara ekki yfir 66 þúsund krónur á mánuði. „Við fundum fyrir því að það var skýrt ákall frá fólkinu í landinu að ganga frá samningunum hratt og örugglega og það var ánægjulegt að ná því. Þetta var gríðarlega erfið samningalota og stóð um tíma mjög tæpt. Um tíma gat ég ekki útilokað að þessar viðræður myndu fara út um þúfur en útkoman er ánægju- leg. Ég vil hrósa viðsemjendum okkar og ríkissáttasemjara því það unnu allir aðilar málsins þrekvirki undir erfiðum kringumstæðum,“ segir Halldór. „Ég tel að þetta séu mjög skyn- samir samningar. Þeir styðja við verðbólgumarkmið Seðlabanka Íslands, enda er það sameiginlegt markmið okkar að skapa skilyrði fyrir lækkandi verðbólgu til lengri tíma.“ SJÁ SÍÐU 4 Fundu fyrir ákalli fólksins í landinu SJÁVARÚTVEGUR Formaður Sjó- mannasambandsins, Valmundur Valmundsson, segir fordóma og gamaldags viðhorf hjá útgerðinni gagnvart andlegri líðan sjómanna. Tal um andlega heilsu sjómanna sé feimnismál. „Geðheilsumál sjómanna hafa ekki fengið mikið pláss í umræð- unni, sem eflaust eru leifar af gamalli tíð. Sjómaður á bara að vera harð- jaxl, taka brimskaflinn á brjóstið og þegja,“ segir Valmundur meðal annars og bætir við að það þurfi að koma því inn í hausinn á útgerðinni að sjómönnum geti liðið illa þótt þeir séu hörku naglar í vinnu. SJÁ SÍÐU 6 Sjómönnum geti líka liðið illa Ég tel að þetta séu mjög skynsamir samn- ingar. Halldór Benjamín Þorbergsson, framkvæmda- stjóri SA Hussein Hussein, hælisleitandi frá Írak, og fjölskylda hans eru komin aftur til Íslands. Voru þau þreytt en glöð þegar Fréttablaðið hitti þau í Lágmúla. Fjölskyldan var á leið í Hafnarfjörð þar sem hún ætlaði að halla höfði sínu í nótt. Héraðsdómur Reykjavíkur komst í gær að þeirri niðurstöðu að brottvísun þeirra frá Íslandi til Grikklands hefði ekki verið lögleg. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR ARI

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.