Morgunblaðið - 12.08.2022, Síða 1
F Ö S T U D A G U R 1 2. Á G Ú S T 2 0 2 2
.Stofnað 1913 . 187. tölublað . 110. árgangur .
VÍKINGAR GRÁT-
LEGA NÁLÆGT
Í PÓLLANDI
HLJÓÐFÆRIN OG HAND-
VERKIÐ Í FORGRUNNI
ENDURVINNA
HEYRÚLLUR Í
GIRÐINGARSTAURA
STRENGJAKVARTETTINN SPÚTTNIK 28 PURE NORTH 11EVRÓPUKEPPNI 26
Við sólarupprás sést hraunið hér skríða áfram í Meradölum,
óþreytt eftir nóttina. Sjónarspil þetta var fangað á filmu með
aðstoð dróna. Hraunflæði til norðurs í vel afmörkuðum rásum
er ráðandi um þessar mundir. Samfara því hefur dregið niður
í flóðinu í austanverðum Meradölum. Lögreglustjórinn á
Suðurnesjum tók á dögunum ákvörðun um að meina börnum
yngri en tólf ára aðgang að gosstöðvunum af öryggis-
ástæðum. Hefur þessi ákvörðun hlotið gagnrýni fyrir það að
skerða tækifæri þeirra til lærdóms og upplifunar. »4
Stórfenglegt sjónarspil náttúruaflanna býður góðan dag
Ljósmynd/Roar Aagestad
Skatturinn hefur afgreitt 10.679 um-
sóknir um endurgreiðslu á virðis-
aukaskatti vegna vinnu í tengslum
við átakið Allir vinna það sem af er
ári. Úrræðið rennur út um næstu
mánaðamót. Þetta er mikil fækkun
frá því í fyrra þegar ríflega 58 þús-
und umsóknir voru afgreiddar.
Um 1,8 milljarðar króna hafa verið
endurgreiddir það sem af er ári en
tæplega ellefu milljarðar voru
greiddir út í fyrra. Mest hefur verið
greitt út til einstaklinga vegna íbúð-
arhúsnæðis. »2
Mikil fækk-
un umsókna
í Allir vinna
Morgunblaðið/Eggert
Framkvæmdir Færri sækja nú um
endurgreiðslu virðisaukaskatts.
„McKinsey-skýrslan dregur upp
mjög dramatíska mynd af stöðu vís-
inda á Landspítalanum. Við höfum
farið úr því að vera besta háskóla-
sjúkrahúsið í vísindum samanborið
við hinar Norðurlandaþjóðirnar í
kringum 2002 yfir í það að fara al-
gjörlega niður á botninn. Það er ein
af grunnstoðunum í okkar starfi að
stunda vísindi og rannsóknir og
þegar tækifærin til þess eru hverf-
andi er það mjög fælandi fyrir fólk,“
segir Steinunn Þórðardóttir, öldr-
unarlæknir og formaður Lækna-
félags Íslands, um mögulegar
ástæður þess að rúmlega þriðjung-
ur nýútskrifaðra íslenskra sérfræð-
inga skilar sér ekki heim úr námi.
Skortur á samningsvilja lýsandi
Steinunn segir þá staðreynd að
ekki hafi verið samið við sérfræð-
inga á stofum ekki bæta ástandið.
„Maður upplifir sig ekkert mjög
velkominn í þetta umhverfi sem ný-
útskrifaður læknir.“ Hún bendir
líka á að þessi skortur á samnings-
vilja hafi í reynd skilað sér í tvö-
földu heilbrigðiskerfi, þar sem þeir
efnameiri kaupa sér þjónustu sem
hinir efnaminni hafa ekki efni á og
nefnir sem dæmi langa biðlista í lið-
skiptaaðgerðir og að ekki sé samið
við Klíníkina. „Það er ekkert grín
að bíða með svona verki, kannski
árum saman, og mikil skerðing á
lífsgæðum.“
Þriðjungur lækna
snýr ekki heim
- Stenst Ísland ekki samkeppnina við erlend sjúkrahús?
Álag Mikið álag er á læknastéttinni og betur þarf að skilgreina hámarksálag.
MStór hluti lækna … »6
„Mér finnst eins og það sé verið að
fresta ákveðnum þroska hjá krökk-
unum með því að fresta þessu sí og
æ,“ segir Sævar Helgi Bragason,
foreldri 19 mánaða drengs sem lofað
var leikskólavist í haust. Útlit er nú
fyrir að barnið fái ekki vist fyrr en í
nóvember.
„Það er skandall að það sé verið
að setja foreldra í þessa stöðu. Þetta
á bara að vera í lagi.“
Foreldrar barna sem ekki hafa
fengið dagvistunarpláss, þrátt fyrir
loforð um slíkt, mótmæltu í Ráðhúsi
Reykjavíkur í gærmorgun. »10
Morgunblaðið/Eggert
Leikskóli Foreldrar mótmæltu
ástandinu í Ráðhúsinu í gær.
Félagsþroska
ungbarna
frestað