Morgunblaðið - 12.08.2022, Qupperneq 4

Morgunblaðið - 12.08.2022, Qupperneq 4
4 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 12. ÁGÚST 2022 Kvikustrókar eldgossins í Meradöl- um hafa verið að hækka og gígrim- ar um miðbik sprungunnar að stækka. Annars hefur virknin hald- ist nokkuð stöðug, að því sem fram kemur í tilkynningu frá eld- fjallafræði- og náttúruvárhópi Há- skóla Íslands. Hraunflæði til norð- urs í vel afmörkuðum rásum er ráðandi. Búist er við suðvestan- og vestanátt vinds í dag. Eru því líkur á að gasmengun berist til austurs og norðausturs. Gasmengunar gæti því orðið vart í Ölfusi og á höfuðborgarsvæðinu. Við gosstöðvarnar getur gas- mengun alltaf farið yfir hættumörk. Mengunin leggst undan vindi og því er öruggast að horfa til eldgossins með vindinn í bakið. Almannavarnir vara við því að í hægviðri geti gas safnast fyrir í lægðum. Þá stjórnast vindafar af landslagi og gas getur verið yfir hættumörkum langt upp í hlíðar. Þá þurfa áhorfendur að færa sig upp á fjöll og hryggi. Tvær vikur versta sviðsmyndin Magnús Tumi Guðmundsson jarðeðlisfræðingur segir erfitt að setja fram tímasetningar um hve- nær hraunið úr eldgosinu geti kom- ist að Suðurstrandarvegi. Um fjórir kílómetrar eru frá skarðinu í Eystri-Meradölum og að veginum. „Hægt er að setja upp sviðs- myndir og það er eðlilegt að skoða þær til þess að vera við því búinn en það er ekki þar með sagt að það raungerist varðandi tíma. Það hefur verið nefnt að það gætu þess vegna verið tvær vikur þar til hraun berst að Suðurstrand- arvegi, þá er það versta sviðs- myndin.“ Engu að síður telur hann líklegra að það muni taka lengri tíma. „En það er ekki hægt að fullyrða neitt,“ segir Magnús. Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Eldgos Það svíkur engan, sjónarspilið í Meradölum sem er orðið rúmlega viku gamalt. Virkni gossins hefur haldist nokkuð stöðug og hraunflæði til norðurs í vel afmörkuðum rásum er ráðandi. Betra að standa með vindinn í bakið - Eldgosið heldur ótrautt áfram og mögulegt að hraun nái að Suðurstrandarvegi á tveimur vikum - Gasmengunar gæti orðið vart á höfuðborgarsvæðinu og í Ölfusi í dag vegna vindáttar Brekkan Það var þjóðhátíðarstemning í brekkunni við eldgosið í gær. Grill Það er ekki seinna vænna að einhver nýti varmann til gagns. Leið sem hraun gæti runnið til suðurs G ru n n ko rt /L o ft m yn d ir eh f. Fagradals- fjall Stóri- Hrútur Sandfell Höfði La ng ih ry gg ur Le gg ja br jó ts hr au n Nátthaga- kriki N át th ag i Geldingadalir Meradalir Suður strandarvegur Gossprungan í Meradölum Gönguleiðin að Meradölum Leið sem hraun úr Meradölum gæti runnið til suðurs Veronika Steinunn Magnúsdóttir veronika@mbl.is Bannað er að fljúga fisflugvélum yfir eldgosið í Meradölum, sam- kvæmt fyrirmælum frá Samgöngu- stofu. Þetta segir Grettir Gautason, staðgengill upplýsingafulltrúa Isavia. Ekki stendur til að setja flugi yfir gosinu frekari takmarkanir, að sögn Sigfús Þórs Sigmundssonar, stað- gengils samskiptastjóra Samgöngu- stofu. Flug á vegum stjórnvalda nýtur forgangs þar sem það er í þágu al- mannavarna og vísinda, að sögn Sig- fúsar. „Vegna eldgossins má búast við reglubundnu rannsóknarflugi flug- véla og þyrlna á vegum stjórnvalda við eldstöðina,“ segir Sigfús. Þá verða svæði yfir gosstöðvunum skilgreind sem hættu- eða hafta- svæði fyrir starfrækslu flugvéla og þyrlna eftir þörfum hverju sinni. Þá verður bannað að fljúga drón- um yfir gosið á ákveðnum svæðum. Samhliða því verði skilgreint á meðan rannsóknarflug fer fram, ef þörf krefur. „Okkur hafa ekki borist ábend- ingar um brot á þessum reglum síð- an þessi herferð fór af stað og ger- um ekki ráð fyrir að grípa þurfi til verulegra takmarkana eða banns við drónaflugi við eldstöðina. Við munum þó áfram fylgjast grannt með gangi mála,“ segir Sigfús í lok- in. Bannað að fljúga fisvélum yfir gosinu - Stendur ekki til að leggja frekari bönn ELDGOS Í MERADÖLUM

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.