Morgunblaðið - 12.08.2022, Síða 22

Morgunblaðið - 12.08.2022, Síða 22
22 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 12. ÁGÚST 2022 Rað- og smáauglýsingar Nauðungarsala Uppboð Einnig birt á www.naudungarsolur.is. Framhald uppboðs á eftirfarandi eignum verður háð á þeim sjálfum, sem hér segir: Hólkot, Hörgársveit, fnr. 215-7374 , þingl. eig. Bernharð Arnarson, gerðarbeiðandi Steinbock-þjónustan ehf., þriðjudaginn 16. ágúst nk. kl. 11:45. Dalsgerði 4C, Akureyri, fnr. 214-5588 , þingl. eig. Brynjar Pálsson og Eva Dögg Pálsdóttir, gerðarbeiðandi Akureyrarbær, þriðjudaginn 16. ágúst nk. kl. 10:45. Fjallsgerði, Þingeyjarsveit, fnr. 229-7102 , þingl. eig. Ketill Indriðason, gerðarbeiðandi Söfnunarsjóður lífeyrisréttinda, miðvikudaginn 17. ágúst nk. kl. 11:30. Eiðsvallagata 20, Akureyri, 50% ehl., fnr. 214-5765 , þingl. eig. Klara Sólrún Hvannberg Hjartard, gerðarbeiðandi Sella tannlæknar ehf, þriðjudaginn 16. ágúst nk. kl. 10:15. Fannagil 6, Akureyri, fnr. 227-8530 , þingl. eig. Björn Berg Gunnars- son, gerðarbeiðendur ÍL-sjóður og Íslandsbanki hf. og Akureyrarbær og Sjóvá-Almennar tryggingar hf., þriðjudaginn 16. ágúst nk. kl. 10:30. Tjarnarholt 1, Norðurþing, fnr. 216-7144 , þingl. eig. Ingmar Eertink, gerðarbeiðandi Landsbankinn hf., miðvikudaginn 17. ágúst nk. kl. 10:00. Karlsbraut 5, Dalvíkurbyggð, 50 % eignarhluti, fnr. 215-4969 , þingl. eig. Páll Jóhannesson, gerðarbeiðandi Sýslumaðurinn á Norðurlandi vestra, miðvikudaginn 17. ágúst nk. kl. 14:15. Hvammur lóð, Hörgársveit, 11.1112 % eignarhluti, fnr. 233-8893, þingl. eig. Friðrik Arnarson, gerðarbeiðandi Sýslumaðurinn á Norðurlandi vestra, þriðjudaginn 16. ágúst nk. kl. 11:15. Skíðabraut 4, Dalvíkurbyggð, fnr. 215-5176 , þingl. eig. Artur Michal Szubert, gerðarbeiðendur Landsbankinn hf. og Vátryggingafélag Íslands hf., miðvikudaginn 17. ágúst nk. kl. 14:30. Sýslumaðurinn á Norðurlandi eystra 11. ágúst 2022 Uppboð Einnig birt á www.naudungarsolur.is. Eftirtaldir munir verða boðnir upp að Óseyrarbraut 12 í aðstöðu Stólpa, Óseyrarbraut 12, Hafnarfirði, föstudaginn 19. ágúst og byrjar uppboðið kl. 10:00. Boðnir verða upp munir úr tveimur gámum, í gámunum er m.a.: Efni til innrömmunar (rammaefni) ásamt handverkfærum og vélum til starfans. Einnig ýmsir lausafjármunir s.s. húsgögn, hring- hurð og innréttingar. Greiðsla við hamarshögg, ávísanir ekki teknar gildar sem greiðsla einungis debetkort eða peningar. Sýslumaðurinn á höfuðborgarsvæðinu 11. ágúst 2022 Tilkynningar Umhverfismat framkvæmda Umhverfismatsskýrsla í kynningu Efnistaka á Mýrdalssandi EP Power Minerals hefur lagt fram umhverfismatsskýrslu vegna umhverfismats fyrir efnistöku á Mýrdalssandi. Kynning á umhverfismatsskýrslu: Tillaga að ofangreindri framkvæmd og umhverfismatsskýrsla liggur frammi til kynningar á skrifstofu Mýrdals- hrepps, hjá skipulagsfulltrúa Sveitarfélagsins Ölfuss og á Skipulags- stofnun frá 13. ágúst til 26. september 2022. Umhverfismatsskýrslan er aðgengileg á vefsíðu stofnunarinnar: www.skipulag.is. Umsagnarfrestur: Allir geta kynnt sér umhverfismatsskýrsluna og lagt fram umsögn. Umsagnir skulu vera skriflegar og berast eigi síðar en 26. september 2022 til Skipulagsstofnunar, Borgartúni 7b, 105 Reykjavík eða með tölvupósti á skipulag@skipulag.is. Félagsstarf eldri borgara Árskógum 4 Smíðastofa með leiðbeinanda kl. 9-16. Kaffispjall kl. 11. Hádegismatur kl. 11.30-12.30. Kaffisala kl. 14:45-15.30. Allir velkomnir. Sími: 411-2600. Félagsmiðstöðin Hæðargarði 31 Kaffisopi og spjall kl. 8:30-11:00. Opin Listasmiðja kl. 9:00-12:00. Hádegismatur kl. 11:30-12:30. Bíósýning kvikmyndaklúbbs Hæðargarðs kl. 13:00. Opin Listasmiðja kl. 13:00-15:45. Síðdegiskaffi kl. 14:30-15:30. Garðabær 9.00 Pool-hópur í Jónshúsi 10.00 Gönguhópur frá Jónshúsi Gerðuberg Opin vinnustofa í Búkollulaut frá kl. 8:30, heitt á könnunni. Gönguhópur (leikfimi og ganga) frá kl. 10:00 . Prjónakaffi frá kl. 10:00 -12:00. Jafnvægisæfingar 11:00 – 12:00. Allir velkomnir Hvassaleiti 56-58 Morgunkaffi og spjall frá 8:30-10:30. Handavinna - opin vinnustofa frá kl. 10:00. Bridge kl. 13:00. Hádegismatur kl. 11:30 – 12:30, panta þarf fyrir hádegi deginum áður. Korpúlfar Borgum Pílukast í Borgum kl. 09:30. Gönguhópar frá Borgum og inni í Egilshöll.Tveir styrkleikaflokkar svo að allir finna göngu við sitt hæfi kl. 10:00. Hannyrðahópur kl. 12:30. . Opið frá kl. 08:00 til 15:00 og heitt á könnunni frá kl.08:30. Hittumst í sumarskapi og góða helgi. Seltjarnarnes Kaffi í króknum frá kl. 9:00. Stuttur göngutúr kl. 13:30. Sumarhús Sumarhús – Gestahús – Breytingar .Framleiðum stórglæsileg sumarhús í ýmsum stærðum. .Tökum að okkur stækkun og breytingar á eldri húsum. .Smíðum gestahús – margar útfærslur. .Sjáum um almennt viðhald á sumarhúsum og sólpöllum. .Setjum niður heita potta og smíðum palla og skjólveggi. Áratugareynsla – endilega kynnið ykkur málið. Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn, sími 892-3742 og 483-3693, www.tresmidjan.is Málarar MÁLARAR Tökum að okkur alla almenna málningarvinnu. Unnið af fagmönnum með áratuga reynslu, sanngjarnir í verði. Upplýsingar í síma 782 4540 og loggildurmalari@gmail.com Vantar þig fagmann? FINNA.is 200 mílur Þá hefur elsku Björg frænka lokið ferðalagi sínu í kringum sólina. Ég á margar góðar og ljúfar minningar um frænku mína. Hún var sjálfstæð, bros- mild og sterk, með hjarta úr gulli. Hún umvafði mig hlýju og væntumþykju í hvert skipti sem við hittumst. Hvíl í friði elsku frænka mín, takk fyrir samveruna í þessum heimi. Þín verður sárt saknað en ég er viss um að þú ert núna að njóta í björtu sumarlandinu, með öllu okkar uppáhaldsfólki sem við elskum svo heitt. Elsku Helgi, Paul, María, Ragnar, Kira og Natalía, kær- leiks- og samúðarkveðjur til ykkar. Hanna Rut. Í dag kveðjum við kæra æskuvinkonu, Björgu Helga- dóttur, og þökkum langa og góða vináttu. Við vorum flestar samferða í barna- og gagn- fræðaskóla og ákváðum 14 ára gamlar að stofna saumaklúbb sem nú, rúmlega 60 árum síðar, er enn virkur og veitir okkur alltaf jafnmikla ánægju. Nú er- um við í annað skipti á örfáum árum að kveðja vinkonu úr klúbbnum en Kristín hafði áður kvatt okkur. Það minnir á hvað lífið er dýrmætt og hversu mik- ilvægt er að viðhalda vináttu með því að hittast og gleðjast saman. Björg tók sannarlega þátt í því. Daginn áður en hún lést spurði hún eina okkar hve- nær næsti saumaklúbbur yrði. Hún lét ekki slæma heilsu aftra sér frá því að mæta. Björg giftist ung Jóhanni D. Jónssyni og eignuðust þau tvö Björg Helgadóttir ✝ Björg Helga- dóttir fæddist 15. febrúar 1947. Hún lést 18. júlí 2022. Útför hennar fór fram 11. ágúst 2022. börn, Helga og Maríu Margréti. Hún var ákaflega stolt af börnum sínum og barna- börnum og lét okk- ur fylgjast með lífi þeirra með mynd- um og frásögnum en það er einn af kostum þess að hittast reglulega að við fáum að fylgj- ast með lífi barna og barna- barna okkur til mikillar ánægju. Við höfum jafnan ferðast saman til útlanda í tilefni stó- rafmæla og var Björg alltaf með í ferð. Hún er minnisstæð ferðin í tilefni 40 ára afmæla en þá fórum við til London að heimsækja Björgu en þau hjón- in bjuggu þar í nokkur ár. Henni líkaði vel í stórborginni og fór víða með okkur. Heimili Bjargar hefur alltaf verið bæði fallegt og hlaðið fal- legum myndum enda var hún mjög listræn og málaði fallegar myndir sjálf og hélt stundum einkasýningar fyrir okkur vin- konurnar. Heilsuleysi hefur þó síðustu árin aftrað henni frá bæði málaralist og golfi sem hún stundaði um árabil. Að leiðarlokum sendum við fjölskyldu Bjargar innilegar samúðarkveðjur. Bergþóra, Brynja, Ebba, Erna, María og Sigríður. Ég hitti Björgu fyrst í janúar 1997 þegar ég kom aftur til starfa á áætlanadeild Vegagerð- arinnar eftir barnsburðarleyfi. Hún hafði tekið við starfi ritara vegamálastjóra haustið áður. Það tókust strax góð kynni með okkur Björgu og bar aldrei skugga á í þau átján ár sem við unnum á sama gangi. Björg var róleg, yfirveguð og mjög sam- viskusöm. Hún gat verið föst fyrir ef á þurfti að halda og vildi hafa hlutina í lagi. Í litlu kaffistofunni á fjórðu hæð í Borgartúni 7 sköpuðust gjarnan líflegar umræður og tók Björg virkan þátt í þeim. Oft var rætt um málefni sem tengdust Vegagerðinni, en einn- ig margt fleira eins og t.d. bridge og golf en Björg stund- aði hvort tveggja. Í þessari of- urlitlu kaffistofu voru sem bet- ur fer engar gardínur fyrir glugganum því útsýnið var ekki af verri endanum. Það var ósjaldan sem við Björg dáðumst að Engey, Akrafjallinu og Snæ- fellsjökli svo ekki sé minnst á regnbogann. Fyrir utan daglegu samskipt- in á ganginum á ég margar góð- ar minningar um Björgu. Ég nefni sérstaklega leikfimitímana í Mótorskála, sem samstarfs- kona okkar Jóhanna Þorgils- dóttir sá um, og gönguferð starfsmannafélagsins um Leggjabrjót. Í aðdraganda flutnings höfuðstöðva Vega- gerðarinnar úr Borgartúninu í Suðurhraun í Garðabæ á síðasta ári var umfangsmikil tiltekt óumflýjanleg. Þá kom upp í hendurnar á mér mynd sem Ólafur Þór Gunnarsson tók af okkur Kristínu Sigurbjörnsdótt- ur, Auði Eyvinds og Björgu í sumarblíðu á Höfn í Hornafirði á Jónsmessu 2005 en þar vorum við ásamt mörgum fleirum í til- efni af vígslu Almannaskarðs- ganga. Tvær þær síðarnefndu eru horfnar á braut, blessuð sé minning þeirra beggja, en mikið þykir mér vænt um þessa mynd. Björg var stolt af börnunum sínum og það var gaman að samgleðjast henni þegar barna- börnin fæddust. Eftir að Björg hætti störfum snemma árs 2015 hitti ég hana því miður allt of sjaldan. Ég saknaði hennar í kaffisamsæt- inu sem Vegagerðin hélt fyrir fyrrverandi starfsmenn í vor og hugsaði með mér að ég ætti að hringja í hana og heyra í henni hljóðið. Því miður varð ekkert af því. Góð kona er gengin. Ég votta fjölskyldu Bjargar innilega samúð. Auður Þóra Árnadóttir. ✝ Eftirfarandi minning- argreinar áttu að birtast í blaðinu í gær. Morg- unblaðið biðst vel- virðingar á mis- tökunum. Sumarliði Sig- urður Gunnarsson fæddist á Borg- arfelli í Skaft- ártungu V-Skafta- fellssýslu 11. ágúst 1927. Hann lést 8. júlí 2022. Foreldrar hans voru Gunn- ar Sæmundsson, f. 23. sept. 1886, d. 4. sept. 1971, og Sumarliða og Grímu eru: 1) Gunnar Þorsteinn, f. 13. des. 1958, giftur Birnu Þórðar- dóttur. 2) Ingibjörg, f. 15. jan. 1961, gift Jarle Larsen. 3) Kristín, f. 29. júní 1963, sambýlismaður hennar er Edward Roy Arris. 4) Ragn- hildur, f. 16. des. 1965, sam- býlismaður hennar er Magn- ús Geirsson. 5) Ásthildur, f. 1965. Fyrir átti Gríma þrjá drengi: 1) Kristján Valdi- marsson, f. 16. júní 1947, d. 21. júlí 2006. 2) Bolli Th. Valdimarsson, f. 10. sept. 1950, giftur Helgu Herborgu Guðjónsdóttur. 3) Þorvaldur Emil Valdimarsson, f. 6. okt. 1954, d. 22. jan. 1986. Útförin fór fram frá Keflavíkurkirkju 11. ágúst 2022. Meira á www.mbl.is/andlat Kristín Sigurðar- dóttir, f. 8. júlí 1892, d. 24. apríl 1967. Systkini hans eru Jón, f. 1922, d. 2012, Oddný Sig- urrós, f. 1924, d. 2019, Krist- mundur, f. 1925, d. 1991, og Jón Elimar, f. 1930. Sumarliði giftist Grímu Thoroddsen í mars 1959. Foreldrar hennar voru Ingibjörg Tómasdóttir, f. 1905, d. 1962, og Bolli Thor- oddsen, f. 1901, d. 1974. Börn Nú er elsku pabbi búinn að kveðja, farinn inn í aðra vídd eða kominn heim í heiðardalinn eins og mamma hefði sagt. Pabbi var einstakur, margt var honum til gæfu gefið. Hann kynnist mömmu í Vík í Mýrdal, gegnum leikfélagið þar sem hann lék lækni og hún sjúklinginn. Hófu þau búskap í Víkinni þaðan sem við eigum óendanlega góðar minningar úr Sumarliðabæ (Varmahlíð). Eftir að þau fluttu til Keflavíkur var farið öll sumur austur í Víkina með fullan bíl af börnum, farangri og heimilis- hundi. Þar var oft glatt á hjalla, sungið, kveðnar vísur og veiddur fýll, lundi og fiskur. Pabbi var mörgum hæfileikum gæddur, duglegur, handlaginn, vandvirkur hvort sem var að gera við bíla/sprauta, byggja, bæta eða laga. Hann skildi eftir sig margar vísur og kvæði, var þrjóskur, ein- staklega nýtinn og safnari af Guðs náð. Fékk það hlutverk að sjá um stóran barnahóp, stóð alltaf tein- réttur þótt aðstæður væru ekki alltaf eins og hann vildi. Hann hafði stundum á orði „þetta hefur sinn gang og verður allt í lagi“. Pabbi var góður í gömlu dönsun- um og stigum við dansinn oft með honum. Hann var dýravinur, átti það til að koma óvænt heim með heimilislaus dýr í kassa okkur til mikillar gleði. Eignaðist ungur vörubíl sem hann ók á um allar sveitir, lærði vélvirkjann, sótti sjóinn, rak sitt eigið bílaverk- stæði, vann hjá Varnarliðinu í 30 ár eða til 70 ára aldurs. Ekki má gleyma niðursuðu á sjólaxi, hrognum og því ævintýri með Sverri Matthíassyni vini sínum. Síðustu árin dvaldi hann á Hlé- vangi í Reykjanesbæ við góða umönnun. Þú kvaddir 8. júlí sl., á afmæl- isdegi móður þinnar, alveg þinn stíll, fórst beint í fögnuðinn í Sum- arlandinu góða. Minning þín lifir áfram í hjarta okkar elsku pabbi. Við látum hér ljóð fylgja eftir Ká- in, sem þú hafðir miklar mætur á. Minning þín er mér ei gleymd mína sál þú gladdir, innst í hjarta hún er geymd, þú heilsaðir mér og kvaddir. Bestu kveðjur frá okkur börn- unum. Gunnar, Ingibjörg, Kristín, Ragnhildur og Ásthildur. Sumarliði Sigurður Gunnarsson

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.