Morgunblaðið - 12.08.2022, Side 29

Morgunblaðið - 12.08.2022, Side 29
MENNING 29 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 12. ÁGÚST 2022 CHRIS HEMSWORTH CHRISTIAN BALE TESSA THOMPSON TAIKA WAITITI RUSSELL WITH CROWE NATALIE AND PORTMAN Nánari upplýsingar um sýningartíma á sambio.is TRYGGÐU ÞÉR MIÐA INNÁ chicaco sun times New york times Rolling stone empire Myndbandsverk frá alþjóðlegum samtökum listakvenna, FemLink – Art, eru sýnd í Listasafni Árnes- inga á Blómstrandi dögum, sem hófust í gær og standa til sunnu- dags. „FemLink – Art (FL’Art) var stofnað 2005 af myndlistarkonunni Veronique Sapin frá Frakklandi og margmiðlunarlistakonunni C.M. Judge frá Bandaríkjunum, með það að markmiði að sýna myndbands- verk listakvenna í alþjóðlegu sam- hengi. 145 listakonur frá 64 löndum taka þátt í FemLink og hafa þær unnið verk fyrir 12 þematískar vídeósamsetningar sem innihalda 24 – 34 myndbönd, hvert þema,“ segir í tilkynningu frá safninu. Á vefsíðu FemLink segir: „Í sögulegu samhengi hafa konur átt erfitt uppdráttar í listaheiminum og list kvenna var kölluð „kvenna- list“ í lítillækkandi tilgangi. Enn í dag eru listakonur útskúfaðar í of mörgum löndum heims. Það er meginmarkmið FL’Art að þær fái viðurkenningu sem listamenn. Á þessari sýningu er það þemað „Vital“ sem varð fyrir valinu. Það inniheldur 24 myndbönd eftir 24 listakonur frá 24 löndum.“ Meðal þeirra sem sýna eru Sima Zureikat frá Jórdaníu, Aki Naka- zawa frá Japan, Véronique Sapin frá Frakklandi, Carolina Saquel frá Síle, Christie Widiarto frá Ástralíu, Raya Mazigi frá Líbanon og Sigrún Harðardóttir frá Íslandi. Brýnt Lífsnauðsynlegt er þema sýning- arinnar sem stendur til sunnudags. FemLink – Art í Listasafni Árnesinga Tímamót nefnist plata sem Jóna Margrét Guðmunds- dóttir sendir frá sér í dag. Á plötunni eru níu lög sem Jóna Margrét segir að séu ólík og fjölbreytt, allt frá ballöðum yfir í poppdans. Segir hún plötuna hafa verið í bígerð síðustu tvö árin. „Þetta ferðalag er búið að vera toppurinn á öllu því sem ég hef tekið mér fyrir hendur. Þegar ég er spurð út í söguna á bak við plöt- una frýs ég alltaf og veit ekki hverju ég á að svara. Því í hvert sinn sem ég hlusta á lögin fæ ég alltaf nýja til- finningu og ný túlkun myndast sem átti sér enga stoð í raunveruleikanum þegar ég hóf þetta ferðalag,“ segir Jóna Margrét. Jóna Margrét með Tímamót Jóna Margrét Guðmundsdóttir Ragnheiður Birgisdóttir ragnheidurb@mbl.is Minningarsjóður um Jean-Pierre Jacquillat, fyrrverandi aðalstjórn- anda Sinfóníuhljómsveitar Íslands, hefur opnað fyrir umsóknir. Sjóð- urinn veitir árlega efnilegu tónlist- arfólki styrk til framhaldsnáms í tónlist erlendis. Veittur er einn veglegur styrkur hverju sinni og er hann að upphæð 1.500.000 kr. fyrir skólaárið 2022-2023. Minningarsjóður Jean-Pierres Jacquillats var stofnaður í apríl 1987, innan við ári eftir að Jacquil- lat lést af slysförum. Fyrsti styrk- urinn var veittur árið 1992, fimm árum eftir stofnun sjóðsins. Hlut- verk sjóðsins hefur frá upphafi ver- ið að úthluta íslensku tónlistarfólki styrkjum til að afla sér aukinnar menntunar, halda nafni Íslandsvin- arins og hljómsveitarstjórans Jacq- uillats á lofti og efla um leið menn- ingarsamskipti Íslands og Frakk- lands. Umsóknir, með upplýsingum um námsferil og framtíðaráform, send- ist fyrir 4. september. Nánari upp- lýsingar um umsóknarferlið má finna á heimasíðu sjóðsins, minningarsjodur-jpj.is. Fjölbreytt verkefni styrkþega Vegna heimsfaraldursins fóru styrkveitingar síðustu tveggja ára ekki hátt en nú, þegar opnað hefur verið fyrir umsóknir á ný, gefst tækifæri til að segja deili á styrk- þegunum. Sópransöngkonan Álfheiður Erla Guðmundsdóttir hlaut styrkinn fyrir tveimur árum, árið 2020, og Hjörtur Páll Eggerts- son hlaut styrk í fyrra, árið 2021, til náms í sellóleik og hljómsveitar- stjórn. Álfheiður Erla stundaði söngnám í Söngskóla Sigurðar Demetz og í Hanns Eisler-tónlistarháskólanum í Berlín, en þaðan lauk hún bakka- lár- og meistaranámi. Hún þreytti frumraun sína í Staatsoper Berlin árið 2019 í hlutverki Mjallhvítar í óperunni Schneewittchen eftir Wolfgang Mitterer. Þá var henni boðið að taka þátt í SongStudio, meistaranámskeiði í Carnegie Hall í New York sama ár. Hún hefur tekið þátt í ýmsum keppnum og hreppti meðal annars tvenn verð- laun í alþjóðlegu Haydn-söng- keppninni í Austurríki. Álfheiður Erla vakti athygli á Aðventutónleikum Sinfóníuhljóm- sveitar Íslands í desember 2020 í beinni sjónvarpsútsendingu á RÚV. Hún hlaut Íslensku tónlistarverð- launin árið 2021 fyrir söng sinn. Þá tók Álfheiður Erla þátt í frumflutningi óperunnar Der Het- zer eftir Bernhard Lang í óperu- húsinu í Dortmund. Hún hefur ver- ið fastráðin við Theater Basel í Sviss frá haustinu 2021. Þar hefur hún farið með ýmis hlutverk, meðal annars í verkum eftir Bach, Philip Glass og Verdi. Hún hefur sinnt fjölbreyttum verkefnum, t.d. framleitt tónleika- kvikmyndina Homescapes árið 2020, séð um listræna stjórn og söng á viðburðinum Apparition í Eldborgarsal Hörpu og starfað sem ljósmyndari. Hjörtur Páll lauk framhaldsprófi frá Tónlistarskólanum í Reykjavík vorið 2017 og hélt síðan til Kaup- mannahafnar í framhaldsnám við Det Kongelige Danske Musikkon- servatorium, þar sem hann lauk nýlega meistaranámi. Hjörtur lék einleik með Sinfón- íuhljómsveit Íslands sem einn af sigurvegurum Ungra einleikara. Hann er einnig virkur í flutningi kammertónlistar og hlaut meðal annars Nótuna árið 2014 ásamt strengjakvartetti sínum. Síðan þá hefur hann komið fram á ýmsum kammerhátíðum í Evrópu. Þá er hann meðlimur Kammersveitar- innar Elju og Det Danske Ung- domsensemble, ásamt því að hafa leikið sem aukamaður með Sinfóníuhljómsveit Íslands og Copenhagen Phil. Auk sellóleiks hefur Hjörtur lagt stund á hljómsveitarstjórn. Hann hefur frá haustinu 2020, samhliða sellónáminu, stundað stjórnenda- nám við Malko-akademíuna í sam- starfi við Dönsku útvarpshljóm- sveitina og stefnir á frekara nám í hljómsveitarstjórn. Ljósmynd/Hjördís Jónsdóttir Sópran Álfheiður Erla hefur vakið athygli á óperusviðum Evrópu. Styrkja efnilega tón- listarmenn til náms - Opnað fyrir umsóknir hjá Minningarsjóði J.P. Jacquillats Ljósmynd/Antje Taiga Jandrig Fjölhæfur Sellóleikarinn Hjörtur leggur stund á hljómsveitarstjórn. Afgangsdraumar nefnist einkasýn- ing Aðalsteins Þórssonar sem opn- uð verður í Einkasafninu Eyjafjarð- arsveit í dag, föstudag, kl. 17. Aðalsteinn hefur búið til innsetn- ingu eða jafnvel útstillingu á plast- munum úr safneigninni umhverfis Einkasafnið og innan þess. Jafn- framt er telft fram fleiri efnum, líf- rænum og ólífrænum, til einstakrar fagurfræðilegrar upplifunar,“ seg- ir í tilkynningu. Þar kemur fram að Aðalsteinn er safnstjóri Einka- safnsins. „Í verkefni mínu í Einka- safninu geng ég út frá því að afgangar neyslu minnar séu menn- ingarverðmæti, á svipaðan hátt og litið er á hefðbundna sköpun, afganga hugans sem menningar- verðmæti. Ég leitast við að halda til haga öllu því sem af gengur af minni daglegu neyslu,“ segir Aðalsteinn. Sýningin er opin helg- arnar 13.-14. og 20.-21. ágúst milli kl. 14 og 17. Allar nánari upplýs- ingar má finna á vefnum steini.art. Afgangsdraumar í Einkasafninu Tré Eitt verka Aðalsteins í Einkasafninu.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.