Morgunblaðið - 12.08.2022, Page 8
8 FRÉTTIR
Innlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 12. ÁGÚST 2022
Femarelle fæst í apótekum, heilsubúðum og heilsuhillum verslana.
“Ég byrjaði að nota Femarelle vegna þ
skerti svefninn. Ég vildi finna náttúrule
fann fljótt mun ámér , svitakófin hurfu
taka femarelle eftir breytingaskeiðið o
gera það áfram. Ég mæli með Femare y
Stefanía Emma Ragnarsdóttir
Unstoppable
lle f rir allar konur.
Femarelle Unstoppable er hannað fyrir
konur sem eru komnar yfir breytingaskeiðið
og vilja viðhalda kraftmiklum lífsstíl og
vernda beinin þegar árin færast yfir.
Innihald í Femarelle Unstoppable:
• DT56a (efnasamband unnið úr sojabaunum)
• B2-vítamín
• Bíótín (B7-vítamín)
• D3-vítamín
• Kalk
Elskaðu. Lifðu. Njóttu.
Lilja Björk Einarsdóttir, banka-
stjóri Landsbankans, sagði í
samtali við Dagmál Morgunblaðsins
að eftirlitskröfur, sem ættu rætur að
rekja til Evrópu, yllu því að æ fleiri
handtök innan banka-
kerfisins færu í að
fylla út skýrslur og
svara erindum frá
eftirlitsstofnunum.
Hún sagði bankann
þurfa að senda frá
sér að jafnaði tvær
slíkar skýrslur á dag,
alla virka daga árs-
ins. Og hún benti á að
þessu, eins og öllu
regluverki og eftirliti,
fylgdi kostnaður.
Hann fellur vitaskuld
til innan bankakerf-
isins og – ef einhver
les skýrslurnar – þá
fellur hann líka til hjá
ríkinu.
- - -
Benedikt Gíslason, bankastjóri
Arion banka, hafði sömu sögu
að segja við Markaðinn á Hring-
braut. Hann sagði regluverk um
starfsemi banka meira íþyngjandi
hér en í nágrannalöndunum og að
fjármálafyrirtæki hérlendis bæru
þyngstu skatta í Evrópu.
- - -
Benedikt sagði evrópsku regl-
urnar í einhverjum tilvikum
hafa verið innleiddar hér með sér-
stakri „Íslandsútfærslu sem er meira
íþyngjandi.“ Hann sagðist telja að
létta ætti á regluverkinu.
- - -
Getur verið að of langt sé gengið
hér í eftirliti með fjármálafyr-
irtækjum og skattlagningu? Sé of
langt gengið eru það neytendur sem
á endanum borga brúsann.
- - -
Enn er bent á séríslenska innleið-
ingu EES-reglna. Er ekki kom-
inn tími til að Alþingi og ríkisstjórn
taki slíkar ábendingar alvarlega?
Lilja Björk
Einarsdóttir
Séríslenskar
ofurreglur?
STAKSTEINAR
Benedikt
Gíslason
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
Svandís Svavarsdóttir matvæla-
ráðherra hefur sett reglugerð um
eftirlit við hvalveiðar. Í reglugerð-
inni er Matvælastofnun falið að hafa
reglubundið eftirlit með að farið sé
að lögum um velferð dýra við hval-
veiðar.
Eftirlitið hefst samstundis. Sam-
kvæmt upplýsingum frá matvæla-
ráðuneytinu mun Fiskistofa sjá um
framkvæmd eftirlitsins samkvæmt
fyrirliggjandi samstarfssamningi
milli stofnananna tveggja.
Fiskistofa mun m.a. sjá um eft-
irlitsferðir við veiðar, myndbands-
upptökur veiðiaðferða og skráningu
þeirra. Veiðieftirlitsmenn verða um
borð í veiðiferðum og verður öllum
gögnum komið til eftirlitsdýralækn-
is í lok hverrar athugunar.
Fiskistofa hefur einnig eftirlit
með því að þau skilyrði sem fram
koma í veiðileyfi varðandi veiðibún-
að og veiðar séu uppfyllt.
Í tilkynningu er haft eftir Svan-
dísi að gögnin sem safnast muni
geta skorið úr um það hvort fram-
kvæmd hvalveiða sé lögum sam-
kvæmt.
Hvalur hf. hóf veiðar á langreyði í
júlí. Samkvæmt upplýsingum frá
Fiskistofnu í gær hafa hvalbátarnir
tveir, Hvalur 8 og Hvalur 9, veitt 71
langreyði það sem af er.
Reglubundið eftirlit með hvalveiðum
- Ráðherra felur Matvælastofnun
og Fiskistofu að sjá um eftirlitið
Morgunblaðið/Eggert
Hvalveiðar Langreyður á vinnslu-
svæði Hvals hf. fyrr í sumar.
Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadótt-
ir utanríkisráðherra kynnti í gær til-
lögu að verkefni um þjálfun í
sprengjuleit og sprengjueyðingu í
Úkraínu. Utanríkisráðherra kynnti
þessa tillögu á ráðstefnu í Kaup-
mannahöfn um stuðning við öryggi
og varnir í Úkraínu.
Fram kemur í frétt utanríkis-
ráðherra um málið að Ísland standi
ásamt hinum norrænu ríkjunum fyr-
ir verkefninu og líklegt sé að fleiri
muni taka þátt í því þegar fram í
sækir.
Tillaga Þórdísar Kolbrúnar felur
„annars vegar í sér að veita úkra-
ínskum sprengjusérfræðingum þjálf-
un á þessu sviði og hins vegar að sjá
þeim fyrir nauðsynlegum búnaði. Öll
norrænu ríkin hafa lýst yfir áhuga á
að taka þátt í verkefninu sem er í
samræmi við þarfir Úkraínu á þessu
sviði,“ segir í frétt ráðuneytisins.
Markmið ráðstefnunnar sem fram
fór í gær var að styrkja samstarf og
samráð um hvernig best megi styðja
Úkraínu í stríðinu gegn Rússlandi.
Lögð er áhersla á viðbótarstuðning
til lengri tíma litið, einkum framlög
sem styðja við hernaðarlega getu
úkraínsku þjóðarinnar til varnar inn-
rás Rússa, fjárframlög, þjálfun her-
manna og sprengjueyðingu.
„Ég tel ákaflega mikilvægt að Ís-
land haldi áfram að leita allra leiða til
þess að styðja við úkraínsku þjóð-
ina,“ er haft eftir Þórdísi Kolbrúnu.
Landhelgisgæslan hefur tekið þátt
í viðræðum og undirbúningi verkefn-
isins og kemur fram að sprengju-
sérfræðingar á hennar vegum hafa á
undanförnum árum sinnt verkefnum
á vegum NATO á sviði þjálfunar
sprengjusérfræðinga, m.a. í Írak og
Jórdaníu. Volodimír Selenskí forseti
Úkraínu ávarpaði ráðstefnuna í gær.
Þjálfun í eyðingu
sprengna í Úkraínu
- Utanríkisráðherra
kynnti tillögu á ráð-
stefnu um öryggi
AFP
Samstarf Markmiðið var að styrkja
samstarf um stuðning við Úkraínu.