Morgunblaðið - 12.08.2022, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 12.08.2022, Blaðsíða 18
18 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 12. ÁGÚST 2022 ✝ Guðjón Guðna- son fæddist í Háa-Rima í Þykkvabæ 29. október 1945. Hann lést á sjúkra- húsinu á Selfossi 1. ágúst 2022. Foreldrar hans voru Guðni Sig- urðsson frá Þúfu í Landeyjum og Pál- ína Kristín Jóns- dóttir frá Unhól í Þykkvabæ. Systkini Guðjóns eru Jóna Katrín, Guðrún, Sigríður Fann- ey og Sigurður, látinn. Eiginkona Guðjóns var Magnea Ingibjörg Gestsdóttir, f. 3. maí 1947, d. 12. febrúar 2021. Börn Guðjóns og Magneu eru: 1) Gestur, eiginkona Þór- hófu saman blandaðan búskap árið 1964 í félagsbúi með for- eldrum Guðjóns og bróður. Seinna sneru þau sér alfarið að kartöflurækt sem varð þeirra ævistarf. Fyrstu árin vann hann ýmis störf með búskapn- um, meðal annars á vertíðum í Þorlákshöfn og á ýtu og gröfu fyrir Búnaðarfélag Djúpár- hrepps. Einnig vann hann í 36 ár í sláturtíð í sláturhúsi Þykkvabæjar, lengst af sem kjötmatsmaður. Hann vann mikið við smíðar í sinni sveit og var ætíð tilbúinn að aðstoða sveitunga sína sem og aðra. Guðjón sat í hreppsnefnd Djúp- árhrepps í 12 ár. Hann kom að stofnun kartöfluverksmiðj- unnar í Þykkvabæ og sat lengi í stjórn hennar. Hann var vin- margur og virkur í félags- störfum. Útför Guðjóns fer fram frá Þykkvabæjarkirkju í dag, 12. ágúst 2022, klukkan 14. unn Ósk Sigbjörns- dóttir. Börn þeirra eru Selma Rut, Rannveig og Gylfi. Sonur Gests er Hrannar Máni. 2) Pálína Kristín. 3) Berglind Ester, eiginmaður Marcus Pettersson, synir þeirra eru Stefán og Róbert. 4) Guðni Þór, eig- inkona Lilja Guðnadóttir, börn þeirra eru Guðjón Logi, Guð- rún og Gísli. Langafabörnin eru sex. Guðjón ólst upp í Háa-Rima við almenn sveitastörf og var það heimili hans alla tíð. Hann gekk í barnaskóla Djúpár- hrepps og lauk þar hefðbund- inni skólagöngu. Þau Magnea Pabbi fæddist í Háa-Rima og bjó þar alla tíð. Hann undi hag sínum vel í heimahögum við sveitastörfin og var manna dug- legastur, aldrei féll honum verk úr hendi og vinnudagurinn var oft mjög langur. Það lék allt í hönd- um hans, hvort sem það voru smíðar með tré og járn eða við- gerðir á vélum. Hann var víðles- inn og fróður um menn og málefni og lá aldrei á skoðunum sínum. Hann var hlýr og ráðagóður pabbi, var vinur vina sinna og stoltur af öllum afkomendum sín- um. Pabbi hafði gaman af að leggja bæði þrautir og gátur fyrir barnabörnin og spilið mylla var oft lagt á eldhúsborðið þar sem nokkur spil voru tekin. Hann var léttlyndur og stutt í húmorinn og hann sá oft spaugilegar hliðar lífs- ins. Hann kunni ótalmörg ljóð og kvæði og hafði gaman af að varpa þeim fram á góðri stundu. Haustið 2019 fékk pabbi okkar stórt og erfitt verkefni þegar hann greindist með bráðahvít- blæði. Hann tókst á við þann vá- gest með miklu æðruleysi og dugnaði, var ætíð jákvæður í bar- áttunni. Hann vann þá orrustu en náði aldrei fyrri styrk. Pabbi fékk eitt og hálft ár við ágæta heilsu þar til meinið tók sig upp aftur í vor og ekkert varð við ráðið. Þegar raunir þjaka mig þróttur andans dvínar þegar ég á aðeins þig einn með sorgir mínar. Gef mér kærleik, gef mér trú, gef mér skilning hér og nú. Ljúfi drottinn lýstu mér, svo lífsins veg ég finni láttu ætíð ljós frá þér ljóma í sálu minni. (Gísli á Uppsölum) Elsku pabbi, minning þín lifir og hjartans þökk fyrir allt. Sofðu rótt. Gestur, Pálína Kristín, Berglind Ester og Guðni Þór. Elsku afi, það er svo sárt að kveðja þig. Eftir standa allar minningarnar sem við eigum. Við vorum öll svo heppin að fá að vera í Háa-Rima hjá ykkur ömmu brot úr sumri þegar við ól- umst upp. Það var alltaf stutt í hláturinn hjá þér sem var svo innilegur. Þú hafðir mikið dálæti á alls konar gátum og lagðir þær gjarnan fyrir okkur þegar við komum í heimsókn. Þú hafðir líka gaman af góðlátlegu gríni og minnumst við þess sérstaklega þegar þú ákvaðst að halda með KR því þeir voru einir helstu and- stæðingar okkar liðs í fótboltan- um, Fylkis, á þeim tíma. Það gekk svo langt að þú keyptir þér KR- bolla og þegar þú varst að mála hlöðuna fór fyrsta umferðin í að mála stafina KR með risastórum stöfum yfir allt hlöðuþakið. Þú varst svo fróður og okkur fannst eins og þú hlytir að vita allt. Þú hafðir alla tíð á hreinu hvað við systkinin vorum að að- hafast hverju sinni, hvort sem það voru áhugamál, skóli eða vinna, og sýndir því alltaf einlægan áhuga. Þú varst góður sögumaður og nutum við þess að hlusta á þig segja okkur frá ýmsu sem þú hafðir upplifað og hafði átt sér stað í sveitinni. Þú kunnir svo mikið á alls konar vélar og eydd- um við ófáum klukkutímum sitj- andi með þér í traktor. Þú kennd- ir okkur til alls konar verka í sveitinni, hvort sem það sneri að vélum, dýrum og auðvitað kart- öflurækt. Skemmtilegasti tími ársins þótti þér kartöfluupptekt á haustin og þá var alltaf jafn gam- an að koma og hjálpa til og njóta samverunnar þrátt fyrir að vinnu- dagarnir væru oft langir. Þú veigraðir þér aldrei við löngum dögum og erfiðri vinnu og þótti þér best að leggjast á koddann þreyttur eftir afkastamikinn vinnudag. Hvíldu í friði elsku afi. Selma Rut, Rannveig og Gylfi. Hann var úr Vestur-Landeyj- um og Þykkvabæ, Rangárþingi að langfeðratali. Ól allan sinn ald- ur í Háarima í Þykkvabæ. Þaðan að sjá er fjallahringur víðastur á Íslandi. Barnæska Guðjóns mót- aðist af því að kartöflurækt varð aðalbúgrein í sveitinni. Þykkvibær er frá fornu fari umflotinn vötnum og búskapur þar erfiður. Var þá mikið heyjað í hinni votu og fengsælu Safamýri. Tíma tók að fara með hesta þang- að til heyskapar og hafðist fólkið því við þar í tjöldum meðan það heyjaði. Nesta varð sig vel í slíka útilegu með nægum mat og heimalöguðu góðgæti, svo sem soðkökum og hrossaskræðum. Í mýrinni þurfti víða að flytja heyið á þurrkvelli er upp úr stóðu. Að frumkvæði Friðriks Frið- riksson kaupmanns í Miðkoti hófst nýtt tímabil í Þykkvabæn- um 1937. Kom hann að máli við nokkra bændur, m.a. Ólaf í Vest- urholtum og Jón í Nýjabæ, og bað þá hefja kartöflurækt til sölu á markaði í Reykjavík. Voru þá í fyrsta sinn plægðir í Þykkvabæ stærri garðar til ræktunar kart- aflna. Verkfærin voru hesta- plógar, gafflar og rekur. Áður en langt um leið komu svo traktorar sem drógu vélar er veltu við kart- öfluhryggjunum. Varð fólkið þá að ganga á eftir, bogra og tína kartöflurnar í fötur. Erfið vinna var það sem ég kynntist haustið 1961 í Ystakoti í Vestur-Landeyj- um. Bylting verður í ræktuninni 1958 er ný upptökuvél af gerðinni Amason kemur í Þykkvabæ. Nú komu kartöflurnar á færibandi upp á vélina. Fólkið stóð við færi- bandið og tíndi burt kartöflu- mæður og moldarköggla. Við enda bandsins runnu kartöflurn- ar svo í strigapoka (ca 50 kg). Starfaði ég við þetta þar á haustin í nær 30 ár. Var þá oft líf og fjör. Við mína fyrstu komu í Þykkvabæ 1970 voru flest bú þar með sauðfjárrækt og sumir með kýr. Nokkru síðar kemur ný upp- tökuvél af gerðinni Grimm og varð þá kartöflurækt fljótlega ráðandi búgrein í sveitinni. Um 1985 var farið að setja gálga á Grimmvélarnar. Kartöflurnar runnu nú í 500 kg plastsekki sem hægt var að hífa yfir á vörubíls- pall. Æviskeið Guðjóns spannar alla þessa þróun kartöfluræktarinnar. Ýmis vandamál varð að leysa með nýjum vélum og tækjum, en hann var einstaklega laginn og útsjón- arsamur við að finna lausnir. Er Guðjón gott dæmi um íslenska bóndann sem gat gert flesta hluti sjálfur. Gæfumaður var hann í sínu lífi, fékk góða konu sér við hlið og eignuðust þau fjögur börn. Bóndinn í Háarima hefur nú skilað sínu drjúga dagsverki. Hann plægði akur sinn vel og sáði. Uppskera hans verður því vafalaust góð í næsta lífi. Ég sakna Guðjóns og sagna hans. Engan mann hef ég hitt eins fróð- an um sögu kartöfluræktarinnar. Vonast ég til endurfunda er ferju- maðurinn kemur að vitja mín. Þá verður gaman að hitta góðan vin á ný og aðstoða hann í uppsker- unni. Börnum Guðjóns, systrum og öðrum aðstandendum votta ég innilega samúð. Helgi Theódór Hauksson, Haugasundi. Kynni okkar Guðjóns hófust 1973 þegar ég bjó um skeið í Þykkvabænum ásamt fjölskyldu minni. Árið 1974 gekk ég til liðs við Lionsklúbbinn Skyggni, en þar var Guðjón stofnfélagi ef ég man rétt. Klúbburinn brallaði margt á þeim árum og allar götur síðan. Guðjón var einn af ötulustu meðlimum Skyggnis og gegndi öllum trúnaðarstörfum innan klúbbsins, m.a. var hann formað- ur um tíma, ákaflega virkur í Lionshreyfingunni lengst af. Seinna þegar ég gerðist slátur- hússtjóri í Þykkvabæ var hann mín hægri hönd um árabil. Hann var öllum hnútum kunnugur í sláturbransanum og var með ráð undir rifi hverju þegar kom að því að leysa vandamál sem ósjaldan komu upp. Hann var líka hrókur alls fagnaðar og óspar á að halda uppi góðum húmor á vinnustaðn- um. Ég minnist m.a. nokkurra ferða fram á fjörur að vinnudegi loknum þar sem þekking Guðjóns á aðstæðum og sögu svæðisins heillaði okkur hin sem þekktum minna til. Þá fylgdu gjarnan skop- og skemmtisögur af mönn- um og málefnum frá fyrri tíð. Okkar samskipti minnkuðu tals- vert seinni árin eftir að Guðjón greindist með alvarlegan sjúk- dóm. En ég vil þakka honum sam- fylgdina og sendi öllum aðstand- endum samúðarkveðjur. Óli Már Aronsson. Guðjón Guðnason ✝ Ásta Kröyer fæddist í Reykjavík 17. des- ember 1946. Hún lést 16. júlí 2022. Foreldrar henn- ar voru Díana Karlsdóttir Kröyer, f. 26.11. 1916, d. 27.11. 1997, og Sigfús Kröyer, f. 3.8. 1908, d. 28.9. 1974. Systkini Ástu eru Guðný dóttur, f. 1977, dóttir þeirra Ásta Rún, f. 1996, unnusti hennar Joshua Graham, f. 1995. 2) Erlendur, f. 1980, kvæntur Sunnevu Svav- arsdóttur, f. 1991, börn þeirra a) Jón Ingi, f. 2012, b) Svavar, f. 2015, c) Hrafnhildur Fjóla, f. 2018. Ásta var alin upp í Laug- arnesinu og Hlíðunum og gekk í Laugarnesskóla. Ásta fór í skátana og var fyrst ljósálfur og síðan skáti. Eftir skóla- göngu fór hún að vinna og kom víða við, svo sem í fiski, mjólkurbúð og Liverpool. Ásta vann á skrifstofu Happdrættis Háskóla Íslands á árunum 1964 til 1977. Einnig starfaði hún sem sætavísa í Þjóðleikhúsinu frá 1964 til 1972. Eftir það starfaði hún sem dagmóðir í tæp 30 ár. Ásta og Höskuldur voru bæði liðtæk í skátahreyfing- unni á sínum yngri árum. Þau áttu alla tíð sumarbústaði sem hafa verið þeirra sameiginlega áhugamál. Fyrst voru þau með sumarhús við Elliðavatn og eft- ir að byggð kom þar reistu þau sér nýjan bústað í Borgarfirði. Útförin fer fram frá Guðríð- arkirkju í Grafarholti í dag, 12. ágúst 2022, klukkan 13. Kröyer, f. 15.9. 1935, Elín Guðlaug Kröyer, f. 7.4. 1937, og Þorvaldur Kröyer, f. 7.1. 1957. Ásta giftist 6.7. 1968 Höskuldi Er- lendssyni, f. 6.7. 1943, d. 17.6. 2021. Synir Ástu og Höskuldar eru: 1) Hilmar, f. 1976, kvæntur Ástrós Guðlaugs- Í dag kveð ég yndislega tengda- móður mína Ástu Kröyer. Þegar ég kynntist henni var mér strax tekið opnum örmum með hennar blíða og ljúfa viðmóti. Ekki skemmdi fyrir að mér fylgdi dóttir sem vildi svo til að ber sama nafn og hún og eignaðist hún þar með nöfnu. Þar sem þau hjónin áttu bara drengi var hún alsæl með að eignast tengdadóttur sem hafði svipuð áhugamál. Með okkur Ástu tókst mjög mikil vinátta og ein- kenndist samband okkar miklu meira af vináttu en nokkurn tím- ann að ég væri tengdadóttir. Þegar ég gekk í gegnum mikil veikindi þá var hún einn af klett- unum í lífi mínu og var alveg sama hvers konar aðstoð ég þurfti, alltaf var hún til staðar fyrir mig. Skipti engu hvort það fólst í því að vera mér til samlætis á daginn eða fara með mér í göngutúra. Ásta var mjög mikil handverkskona og voru ófá samtölin sem við áttum um hannyrðir og ýmsa handa- vinnu og gat ég ávallt leitað til hennar um ráðleggingar og kem ég til með að búa alla tíð að þeirri vitneskju sem hún deildi með mér. Það var magnað að fylgjast með henni taka upp munstur í ýmissi handavinnu, skipti engu hvort það var prjón, hekl eða útsaumur. Eins þegar ég fór út í að forrækta grænmeti þá var hún uppfull af visku um hvernig best væri að standa að því. Ekki stóð svo á því að setja gróðurkassa í sumarbú- staðinn sem þau hjónin sáu um að hlúa að fyrir mig yfir sumarið þess á milli sem ég kom sjálf til þess. Þær voru ófáar ferðirnar sem við Hilmar fórum til þeirra Ástu og Höskuldar í sumarbústaðinn og var mikið brallað, hlegið og spjallað í þeim ferðum. Eigum við fullt af góðum minningum frá þeim samverustundum. Á kveðju- stundu er margs að minnast og er mér efst í huga þakklæti fyrir að hafa kynnst Ástu og fyrir þann tíma sem við áttum saman. Ég ylja mér og hugga með öllum þeim góðu minningum sem við náðum að skapa saman og eru þær ófáar. Hvíldu í friði mín kæra vinkona og tengdamamma. Ástrós Guðlaugsdóttir. Það var ekki langt á milli þeirra hjóna Ástu og Höskuldar, rúmt ár, enda samrýnd með eindæmum; ef annað var nefnt var talað um þau sem eitt. Veikindi einkenndu líf þeirra sl. ár og hafa þau sjálfsagt orðið hvíldinni fegin. Mínar fyrstu minningar af frænku er þegar hún var sætavísa í Þjóðleikhúsinu, ég fékk að koma á allar barnasýningar til hennar. Seinna fór hún að vinna á skrif- stofu HHÍ hjá Palla H. og þar var oft litið inn ef skroppið var í bæ- inn. Ásta var dagmamma til fjölda ára og eru þau mörg börnin sem dvöldu í Hofgörðum hjá henni. Þegar horft er til fyrri tíðar kemur sumarbústaðurinn sterkt fram í hugann. Þar undu þau sér vel í öllum sínum frítíma enda stutt að fara, hann stóð við Elliða- vatn. Þau hjónin endurbyggðu gamla bústaðinn sem Ásta og Er- lendur foreldrar Höskuldar áttu og var það listavel gert. Seinna meir þurftu þau að láta bústaðinn vegna skipulagsbreyt- inga á svæðinu, ég veit að það var sárt fyrir þau. En þau héldu ótrauð áfram og komu sér upp bú- stað í Fossatúni í Borgarfirði og undu sér vel þar meðan heilsan leyfði. Við stórfjölskyldan, mamma mín (Elín) og börn hennar og Kristins, vorum stödd í Fossatúni í lok júlí og héldum þar minning- arstund um Ástu frænku. Í huga okkar flestra komu upp hand- saumuðu jólakortin og fallegu skírnarstrengirnir sem börnin okkar fengu, mínir hanga við rúm mitt og börnin orðin 35 og 27 ára. Ásta frænka var myndarleg húsmóðir, mikil handavinnukona og skipulögð í öllu sem hún tók sér fyrir hendur. Þau hjónin komu mér til að kaupa mína fyrstu íbúð, á þeim tíma bjó ég í Vesturbænum og kom mikið til þeirra. Þau voru með íbúð sem Kjartan heitinn bróðir Hösk- uldar hafði átt en hann lést er Sandey 11 hvolfdi við Engey. Þessi íbúð var í skrítnum hlutföllum fyrir unga stúlku; 28 fm íbúð og 40 fm bílskúr, en þarna undi ég mér vel. Afkomendur ömmu og afa í Stigahlíðinni hittust í maí sl. Mikið var gaman að Ásta kom og átti með okkur notalega stund, og tekin var mynd af þeim systkinum saman sem gott er að ylja sér við, og fjöl- skyldumyndir teknar af henni og fjölskyldu hennar. Ég heyrði í frænku í lok júní til að bjóða henni í 60 ára afmælið mitt, hún var hissa á að litla frænka væri orðin svona gömul. Því miður treysti hún sér ekki enda orðin meira veik en ég gerði mér grein fyrir. Elsku frænka, nú hefur verið höggvið stórt skarð hjá strákunum ykkar Höskuldar, Hilmari og Ella, tengdadætrum og barnabörnum. Mamma og pabbi farin í sumar- landið. Ég vona að ég og annað frænd- fólk verðum dugleg að styðja við börnin ykkar Höskuldar. Guð geymi þig elsku frænka. Þín systurdóttir, Lára. Núna hrannast upp góðu minningarnar um Ástu og þá sér- staklega frá því ég var barn. Man svo vel þegar hún og Höskuldur voru að kynnast og hvað þau voru ástfangin hvort af öðru og hvað amma og afi voru ánægð með nýja tengdasoninn. Og Ásta, þessi fyrirmyndar- húsmóðir sem allt var svo hreint hjá og allt í röð og reglu. Hún fékk mig einu sinni fyrir jól til að taka allt baðherbergið í gegn og ég endurraðaði handklæðum þar í skápnum; mín röðun hafði henni aldrei dottið í hug og hún gaf mér stórt hrós fyrir það og gerði eins eftir það. Mér þótti voða vænt um að fá svona stórt hrós frá henni því allt var til fyrirmyndar á hennar heimili og matar- og kaffiboðin hjá henni slógu oft út boðin hjá ömmu í Stigahlíð. Eins man ég vel gleðina þegar hún átti loksins von á barni og Hilmar fæddist og aftur þegar Erlendur kom því Ásta frænka mín var mikil barnakerling og elskaði að vera með börn í kring- um sig. Já það er margs að minnast frá því í „denn“ þegar samgang- urinn var svo mikill á milli okkar sem eldri erum núna. Núna er góð frænka gengin og elsku Ásta mín takk fyrir allar góðu minningarnar sem ég á um þig. Guð geymi þig. Samúðarkveðja til strákanna þinna og fjölskyldu. Þín systurdóttir, Díana. Ásta vinkona mín er fallin frá eftir langt og erfitt veikindastríð. Ástu kynntist ég þegar við Jó- hannes rugluðum saman reytum okkar, hún var gift Höskuldi Er- lendssyni, æskuvini Jóhannesar úr Skjólunum. Aðal Ástu var snyrtimennska og fegurð, heimili hennar bar því vitni. Alltaf var gott að setjast í eldhúskrókinn og ræða málin. Gjarnan fóru þeir vinirnir aftur í Skjólin í huganum og rifjuðu upp gömul bellibrek. Þau hjón voru ævinlega samhent og það ríkti verkaskipting á heimilinu. Ásta sá um allt innanstokks og hún þreif bílinn, sem bar af öðrum bílum í götunni. Höskuldur var í bílskúrn- um eftir vinnu og gerði þar meist- aralega upp gömul húsgögn. Oftar en ekki rétti Ásta honum hjálp- arhönd við smíðavinnuna. Hún var ansi glögg á tegundir og með- höndlun á hinum ýmsu viðum. Ásta var mikil hannyrðakona, hóf að „bródera“ jólakort í febrúar sem skyldu send fjölmennum hópi vina og vandamanna á komandi jólum. Prjón vafðist ekki fyrir henni frekar en fatasaumur. Í eld- húsinu bjó hún til ýmsa veislurétti og ef atburðir voru í vændum hjá vinum var hún meira en fús til að leggjast á eitt með undirbúning. Brauðterturnar hennar Ásta voru auðþekktar fyrir gæði og útlit. Unaðsreitur þeirra Ástu og Höskuldar var sumarbústaðurinn við Elliðavatn, Birkihlíð. Þar undu þau löngum við hefðbundin störf. Að koma þar var sem að ganga inn í ævintýraland. Þegar þau misstu landið við Elliðavatn fluttu þau sig í Borgarfjörðinn og reistu nýjan bústað í landi Fossatúns. Ekki var síðra að koma til þeirra þar. Nú er Ásta farin til stefnumóts við eiginmann sinn en Höskuldur lést 17. júní 2021. Stórt skarð er höggvið í vinahópinn en minning um góða vini lifir. Við Jóhannes sendum sonum Ástu, Hilmari og Erlendi, og fjöl- skyldum þeirra okkar innilegustu samúðarkveðjur svo og systkinum Ástu. Anna Hallgrímsdóttir. Ásta Kröyer

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.