Morgunblaðið - 12.08.2022, Page 24
24 DÆGRADVÖL
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 12. ÁGÚST 2022
fyrir heimilið
Sendum
um
land
allt
Tjarnargötu 2 | 230 Reykjanesbæ | Sími 421 3377 | bustod@bustod.is | www.bustod.is
Fallegar vörur
50 cm langur - Verð 13.500 kr.
95 cm langur - Verð 15.900 kr.
140 cm langur - Verð 19.400 kr.
Glory bekkur
í mörgum litum
Pantaðu
þér bekk
í vefverslun
Bústoð
50 ÁRA Kristín er Reykvíkingur, ólst upp
í Fossvogi en býr í Grafarvorgi. Hún er
hárgreiðslumeistari að mennt og vinnur hjá
EFLU. Áhugamál Kristínar eru líkams-
rækt og útivist. „Ég hjóla mikið, bæði inn-
anbæjar og úti á landi.“
Eiginmaður Kristínar er Bogi Guð-
mundur Árnason, f. 1966, innkaupastjóri
hjá N1. Börn þeirra eru Steinunn Margrét,
f. 1997, og Róbert Andri, f. 2001. Foreldrar
Kristínar: Dóra Sigþrúður Hlíðberg, f.
1936, d. 2004, síðsat ritari í Öskjuhlíðar-
skóla, og Rafn Sigurðsson, f. 1927, járn-
smiður og fv. kennari í Iðnskólanum, bú-
settur í Reykjavík.
Kristín Hlíðberg Rafnsdóttir
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl ,
Hrútur Þú ert að reyna að gleyma
óþægilegum aðstæðum en hver einasta
hugsun og reynsla er rituð í frumurnar.
Haltu þínu striki.
20. apríl - 20. maí +
Naut Með hjálp góðra vina tekst þér að
sigla þínum málum í höfn. Vertu jafn-
framt varkár og eyddu ekki of miklu fé í
skemmtanir og rómantík.
21. maí - 20. júní 6
Tvíburar Þú hefur margt til brunns að
bera og átt auðvelt með að létta öðrum
lífið og gefa af sjálfum þér. Forðastu
samræður um alvarleg efni, það er ein-
hver pirringur í loftinu núna.
21. júní - 22. júlí 4
Krabbi Já, já, þú ert ekki að eyða deg-
inum í það sem þig langar til. En að
láta drauma rætast styrkir sambandið.
23. júlí - 22. ágúst Z
Ljón Ef þú flýtir þér of hratt glatarðu
augnablikinu. Hinir hæfileikaríku, áköfu
og skrýtnu í vinahópnum þínum hafa
góð áhrif á þig núna.
23. ágúst - 22. sept. l
Meyja Þú hefur tækifæri til að bæta
fjárhaginn. Gættu þess að missa ekki
sjónar á þeim þótt verkefnum ljúki.
23. sept. - 22. okt. k
Vog Það er ekki þinn máti að gefast
upp við fyrsta mótbyr. Hafðu ekki
áhyggjur af öðrum þegar þessi þörf
kemur yfir þig.
23. okt. - 21. nóv. j
Sporðdreki Eitthvað verður til þess að
setja allt á annan endann hjá þér í dag.
Hlutirnir ganga vel og fólk hugsar já-
kvætt um þig.
22. nóv. - 21. des. h
Bogmaður Það er sjálfsagt að hlaupa
undir bagga með öðrum þegar tóm er
til. Frumkvæði þitt hefur jákvæð áhrif á
fólkið í kringum þig svo nýttu þér það.
22. des. - 19. janúar @
Steingeit Fálæti gæti gert gæfumuninn
þegar á að koma á jafnvægi í sambandi.
Notaðu daginn og talaðu við foreldri
eða mikilvæga manneskju í þínu lífi.
20. jan. - 18. febr. ?
Vatnsberi Þú þarft ekki að hafa hátt til
þess að koma málum þínum á fram-
færi. Allt er öfugsnúið og allt er tor-
tryggilegt.
19. feb. - 20. mars =
Fiskar Of margar reglur kæfa listfengið
og ástin er listsköpun. Ef þú ferð ekki
vel með þig nýtist þú engum.
sjó. Þarna ertu í miðri hringiðu nátt-
úrunnar og síðast en ekki síst við-
heldur sjómennskan hreyfifærn-
inni.“ Karl hefur einnig skrifað
greinar í blöð um auðlinda- og áfeng-
ismál.
Árni Johnsen lék sálmana á gítar.
Karl hefur löngum stundað sjó-
mennsku á sumrin. „Það gekk
þokkalega á strandveiðunum í sum-
ar, ég er sáttur, en sumir veiddu
meira. Það er magnað að vera úti á
K
arl Valgarður Matthías-
son fæddist 12. ágúst
1952 á Akureyri, en
ólst upp í Kópavogi og
á Húsavík. „Ég var í
fjögur sumur í sveit í Svæði ofan við
Dalvík. Þar hafði langamma mín,
Ingibjörg Sigurðardóttir, búið, en
dóttir hennar, Unnur Sigurðardóttir,
og tengdasonur, Guðjón Sigurðsson,
höfðu tekið við búinu, og var
langamma hjá þeim háöldruð.“
Karl gekk í Barnaskóla Kópavogs,
Barna- og gagnfræðaskóla Húsavík-
ur, Gagnfræðaskóla Austurbæjar,
varð stúdent frá Menntaskólanum í
Reykjavík 1974 og guðfræðingur frá
Háskóla Íslands 1987.
Karl stundaði sjómennsku og
verkamannastörf á námsárunum.
Hann kenndi við Barnaskólann í
Ólafsvík einn vetur, Laugargerðis-
skóla á Snæfellsnesi annan vetur og
Grunnskóla Eyrarsveitar í tvo vetur.
Hann þjónaði sem sóknarprestur á
Vestfjörðum í tæplega tíu ár, í Súg-
andafirði, á Ísafirði og á Tálknafirði.
Eftir það var hann sóknarprestur í
Grundarfirði í fimm ár. Hann var
alþingismaður Vestfjarðakjördæmis
2001-2003 og Norðvesturkjördæmis
2007-2009. Hann var síðan prestur á
sviði áfengis- og vímuvarnarmála í
fjögur ár og framkvæmdastjóri Sam-
hjálpar. „Þar lærði ég mikið, en við
vorum með meðferð í Hlaðgerð-
arkoti, fjögur áfangaheimili, Gisti-
skýlið og Kaffistofu Samhjálpar.“
Karl hefur verið sóknarprestur í
Guðríðarkirkju í Grafarholti frá 2013
en lætur nú af störfum. „Þessi störf,
þingmennskan og prestskapurinn,
snúast gríðarlega mikið um mannleg
samskipti og í prestskapnum kynnist
maður öllu litrófi mannlífsins.“
Karl sat í stjórn Tryggingastofn-
unar Íslands og Byggðastofnunar.
Hann var formaður Vestnorræna
ráðsins og formaður Umferðarráðs.
„Það er mjög eftirminnilegt þegar ég
var í Vestnorræna ráðinu og við vor-
um í heimsókn í smábæ í firði á
Grænlandi, inn af Nuuk. Þar var fal-
leg kirkja og fyrst prestur var kom-
inn á svæðið, var drifið í því að halda
messu eftir mikla hvatningu Fær-
eyinganna. Fór messan fram á ís-
lensku, grænlensku og færeysku.“
Áhugamál Karls eru skák, tónlist,
knattspyrna og ferðalög. „Ég tefli
mikið á netinu, en hef bara einu sinni
tekið þátt á skákmóti, það var í gagn-
fræðaskóla Húsavíkur og ég náði
þeim gagnmerka áfanga að vinna
önnur verðlaun. Ég fékk bókina
Svona á ekki að tefla í verðlaun. Ég
hlusta á alla tónlist, klassík og popp,
og fylgist með Breiðabliki og Liver-
pool í boltanum. Við hjónin erum að
fara að heimsækja son okkar og
tengdadóttur í Bandaríkjunum, en
þau eiga von á sínu öðru barni, von-
andi í dag.
Ég er mjög þakklátur þegar ég lít
yfir farinn veg. Auðvitað hefur mað-
ur mætt sorg og sút og lent í ýmsu,
bæði í starfi og einkalífi. En niður-
staðan er þakklæti.“
Fjölskylda
Eiginkona Karls er Sesselía Björk
Guðmundsdóttir, f. 30.4. 1959, leik-
skólakennari. Þau eru búsett í Graf-
arholti í Reykjavík. Foreldrar Sess-
elíu: Hjónin Guðmundur Þórðarson,
f. 4.10. 1928, d. 16.10. 2016, bóndi á
Miðhrauni II í Miklaholtshreppi, og
Anna Sesselía Þórðardóttir, f. 20.5.
1931, organisti og bóndi á Miðhrauni.
Karl V. Matthíasson, sóknarprestur, trillukarl, fv. alþingismaður og kennari – 70 ára
Hjónin Sesselía og Karl stödd í Pittsburgh, í „aldingarði rósa“.
Niðurstaðan er þakklæti
Börnin Fjóla, Arnar Valur og Pétur.
Við messu Karl og þingkonan
Aleqa Hammond í Nuukfirði. Sjómaðurinn Karl undir Jökli.
Til hamingju með daginn
Anna Karlsdóttir og Erlendur Erlendsson
eiga í dag 50 ára brúðkaupsafmæli. Þau
giftu sig í Háteigskirkju 12. ágúst 1972.
Gullbrúðkaup