Morgunblaðið - 12.08.2022, Page 25
DÆGRADVÖL 25
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 12. ÁGÚST 2022
FRIGG útiljós
Íslensk
fram
leiðsla
Börn Karls og Sesselíu eru 1)
Arnar Valur, f. 9.10. 1987. Börn hans
eru Kolbrún Eva, f. 2010, og Matt-
hías Bjartur, f. 2013. Fósturbörn
hans eru Elías Máni, f. 2006 og Sara
Kristel, f. 2010; 2) Pétur, f. 20.5. 1994,
starfar við fasteignaviðskipti, búsett-
ur í Doylestown í Pennsylvaníu,
Bandaríkjunum. Eiginkona hans er
Abigail Karlsson. Dóttir þeirra er
Loa Amelia, f. 2019; 3) Fjóla, f. 6.9.
1996, sérhæfður sjúkraflutninga-
maður og slökkviliðsmaður í slökkvi-
liði Fjarðabyggðar, búsett á Eski-
firði.
Systkini Karls eru Steingrímur, f.
27.8. 1951, yfirvélstjóri í Garðabæ;
Oddný Soffía, f. 6.7. 1954, skurð-
hjúkrunarfræðingur í Kópavogi;
Einar Pálmi, f. 27.12. 1955, húsa-
smíðameistari í Reykjavík; Guðjón, f.
26.9. 1961, d. 2.1. 1969; Inga Nína, f.
15.7. 1968, framkvæmdastjóri og eig-
andi NOZ í Reykjavík; Stefán Heim-
ir, f. 15.7. 1969, trésmíðameistari og
sóknarnefndarmaður í Álasundi í
Noregi.
Foreldrar Karls: Hjónin Matthías
Björnsson, f. 9.12. 1921, d. 8.12. 2010,
loftskeytamaður, kennari og skóla-
stjóri, og Fjóla Guðjónsdóttir, f. 3.5.
1933, húsfreyja og handavinnukenn-
ari, búsett í Mosfellsbæ. Hún sá um
rekstur ferðaþjónustu á Gíslabæ á
Hellnum undir Jökli, þar sem þau
bjuggu á sumrin.
Karl
Valgarður
Matthíasson
Guðlaug Jónsdóttir
vinnukona og síðast ráðskona í
Stóru-Býlu í Innri-Akraneshreppi,
f. í Hestþingum, Borgarfirði
Brynjólfur Teitsson
bóndi í Bráðræði á Akranesi, f. á
Kúludalsá í Innri-Akraneshreppi
Guðlaug Brynjólfsdóttir
húsfreyja í Reykjavík
Guðjón Guðjónsson
trésmíðameistari í
Völundi í Reykjavík
Fjóla Guðjónsdóttir
húsfreyja og
handavinnukennari,
búsett í Mosfellsbæ
Ingibjörg Sigurðardóttir
húskona í Miðsamtúni, síðar
húsfreyja á Svæði á Upsaströnd,
f. í Árgerði í Svarfaðardal
Guðjón Jóhannsson
sjómaður og húsmaður í Miðsamtúni
í Kræklingahlíð, f. í Svarfaðardal
Þóra Jakobína Níelsdóttir
húsfreyja í Austur-Skálanesi, f. á Eskifirði
Carl Pétur LIlliendahl
útvegsbóndi og hafnsögumaður í Austur-
Skálanesi í Vopnafirði, f. á Eskifirði
Vilborg Soffía
Lilliendahl
húsfreyja á Akureyri
og í Reykjavík
Björn Grímsson
verslunarmaður og rak Pöntunarfélag
verkalýðsins á Akureyri, síðast bús. í Reykjavík
Ásta Gísladóttir
húsfreyja á Helgustöðum og Möðruvöllum,
f. á Hrauni í Tungusveit, Skag.
Grímur Björnsson
bóndi á Helgustöðum í Fljótum og Möðruvöllum
í Héðinsfirði, f. í Stóraholti í Fljótum
Ætt Karls V. Matthíassonar
Matthías Björnsson
loftskeytamaður,
kennari og skólastjóri
í Reykjavík
„HANN ER EKKI EKKI SEKUR.“ „EKKI HENDA MIÐASTUBBUNUM! ÞÚ GÆTIR
LENT Í ERFIÐLEIKUM MEÐ AÐ KOMAST
AFTUR ÚT MEÐ KRAKKANN.“
Ferdinand
Hrólfur hræðilegi
Grettir
... að muna þetta kvöld
– alltaf.
Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim UngerHermann
ÉG ELSKA
MEGRUN HANS JÓNS!
VÁ! HVERS VEGNA GEFURÐU
ÞETTA EKKI Í GÓÐA
VÍKINGAHIRÐINN?
GÓÐ HUGMYND… ÞESSI GAMLI
VOPNASKÁPUR ER MÉR AÐ ENGU
GAGNI!
Á Boðnarmiði yrkir Guðmundur
Arnfinnsson og kallar „Svífur
að haustið“:
Daginn styttir, deyja blóm,
dimmir fyrr á kvöldin,
hret og stormar hækka róm,
haustið tekur völdin.
Halldór Halldórsson skrifar:
„Hríslan mín í Eyrarholtinu er ekki
sátt við tíðina og finnst eiginlega
kominn september!“
Blæs af sunnan regn og rok,
rífur tré og bramlar;
nálgast óðum ágústlok,
áfram haustið svamlar!
Þórunn Hafstein kvað:
Rok er og það rignir,
rýkur glatt úr gosi.
Ei oss sólin signir,
sveigur er í brosi.
Maðurinn með hattinn er með
„Viðvörun“:
Þar er úði og þoka dimm,
þar er illt að vera.
Erfið för og afar grimm
er upp að dölum Mera.
Fólk vill þangað fara á stjá
í feikna vindi svölum.
Ekki rassgat er að sjá
uppi í Meradölum.
Til baka megið snarast snú,
snögg þið hlýða skulið;
Ekkert sést til eldsins nú,
allt er þoku hulið.
Jón Jens Kristjánsson yrkir:
Mannfátt er um Meradali
meðan að drýpur úðinn svali
fólki sem engu tekur tali
tókst samt þangað upp að ná
í afleitu skyggni og ekkert sá.
Um lokanir þó löggan hjali
og leiðin gerist þyngri
túristum með tólf ára börn og yngri.
Til öryggis skal bregða böndum
berst hingað fólk úr öðrum löndum
sem naut í flagi nösum þöndum
náttúruundur til að sjá.
Fagurt galaði fuglinn sá
sem bannar göngu og baðar höndum
þó björgun fáir launi
svo leyfist engum að leggja frítt í
Hrauni.
Ólafur Stefánsson kveður:
Gosið gefur oss arð,
geymslu- þurfum við hólf,
þótt þokan byrgi hvert barð
og bannað sé innan tólf
Hrólfur Sveinsson kvað um sjálf-
an sig og kallaði „Ég, Hrólfur
Sveinsson“:
Æ, ég er bannsettur bjálfi
sem bruðlað hef eigin sjálfi
„Í hvað gast þú eytt
því sem aldrei var neitt?“
spyr frændi minn Helgi Hálfi.
Halldór Blöndal
halldorblondal@simnet.is
Vísnahorn
Gangan í Meradali