Morgunblaðið - 05.09.2022, Qupperneq 4

Morgunblaðið - 05.09.2022, Qupperneq 4
4 FRÉTTIR Innlent MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 5. SEPTEMBER 2022 Bi rt m eð fy rir va ra um pr en tv ill ur .H ei m sf er ði rá sk ilj a sé rr ét tt il le ið ré tti ng a á sl ík u. At h. að ve rð ge tu rb re ys tá n fy rir va ra . 31. október nætur 595 1000 www.heimsferdir.is g y yAgadír Marokkó 159.900 Flug & hótel frá Fyrir 2 á mann Alls sóttu um fimm til sex þúsund manns hátíðina Októ- berfest sem Stúdentaráð Háskóla Íslands stendur fyrir ár hvert. Hátíðinni lauk á laugardaginn en hún stóð yfir í þrjá daga. Síðustu tvö ár hefur hún ekki verið haldin vegna heimsfaraldursins Covid-19. Skipuleggj- andi segir hátíðarhöld hafa heppnast vel, en aldrei hafa jafnmargir sótt hátíðina. „Það gekk ótrúlega vel. Hún hefur aldrei verið stærri og aldrei gengið betur. Fólk mætti snemma á svæðið og hátíðinni lauk fyrr en vana- lega. Það virðist vera ánægja með það meðal hátíðar- gesta og vonandi nágranna líka,“ segir Rebekka Karls- dóttir, forseti Stúdentaráðs, í samtali við mbl.is. Bætir hún við að Stúdentaráð hafi fengið fáar hávaðakvart- anir frá nágrönnum í ár. Morgunblaðið/Ari Páll Háskólanemar fjölmenntu á Októberfest Atli Steinn Guðmundsson atlisteinn@mbl.is „Liðið hefur æft mjög mikið fyrir þetta og hafa æfingar farið fram í Reykjavík, á Akureyri og Hvolsvelli,“ segir Jóhannes Geir Númason, for- ingi landsliðs kjötiðnaðarmanna, í samtali við Morgunblaðið, en liðið er nú statt á heimsmeistarakeppninni í kjötskurði, World Butchers Chal- lenge, í Sacramento í Kaliforníu. Keppni lauk á laugardaginn og voru úrslit tilkynnt í nótt að íslenskum tíma eftir að blaðið fór í prentun. „Við erum enn að átta okkur á að það er loksins komið að þessu,“ segir Jóhannes. „Landslið kjötiðnaðar- manna var stofnað haustið 2018 þannig að ferlið hjá okkur hefur verið fjögur ár,“ heldur hann áfram en keppnin sem til stóð að halda árið 2020 féll vitaskuld niður vegna heims- faraldursins. Heimildarmynd væntanleg „Þetta er frábær hópur, vel sam- stilltur og umfram allt skemmtilegur og ekki má gleyma því að fyrirtækin í bransansum hafa stutt vel við bakið á okkur,“ segir liðsforinginn og kveður undirbúningsferlið hafa verið „langt og strangt hjá liðinu og okkur sem störfum í kringum það“, bætir hann við og segir enn fremur frá því að heimildarmynd um ævintýri þeirra kjötskurðarmanna sé í deiglunni. Með þeim vestanhafs eru bræðurnir Franz Ágúst og Brynjar Snær Jó- hannessynir sem koma að gerð myndarinnar. „Þeir hafa fylgt liðinu gegnum æfingaferlið og eins hér úti í keppninni,“ útskýrir Jóhannes. Vefsíðan veitingageirinn.is hefur fjallað um heimsmeistarakeppnina og kemur þar fram að af þrettán þátt- tökuþjóðum sé Ísland eina Norður- landið sem sendir lið til Kaliforníu. Játaði Jóhannes í spjalli á síðunni að honum hefði ekki litist á blikuna að lenda á bandarískum flugvelli með fullar töskur af hnífum og hand- sögum auk þess sem öxi er einnig hluti af búnaði liðsins. Íhugaði gervilimi „Ég mun pottþétt svitna í lófunum í tollinum þegar þeir fara að skoða í töskurnar okkar,“ sagði Jóhannes við veitingageirasíðuna auk þess sem landkynning er að sjálfsögðu hluti af ferðalaginu. Grípum hér niður í frá- sögn liðsforingjans: „Hver keppandi fer út með sína hnífa. Við munum fara út með okkar bakka til að setja vörurnar í, maríner- ingar og krydd. Einnig tökum við með okkur út hraun af Suðurnesj- unum fyrir eldgosaþemað okkar. Ég er að spá í að setja gervilimi í tösk- urnar til að reyna að létta stemm- inguna ef ég verð stoppaður í toll- inum þarna úti. Ég myndi giska á að við ferðumst með nokkur hundruð kíló af áhöldum og keppnisbúnaði,“ lét Jóhannes hafa eftir sér. Er þetta í fyrsta skipti sem íslensk- ir kjötiðnaðarmenn senda lið á heims- meistarakeppnina sem fór þannig fram að öll þrettán liðin fengu hálft naut, hálft svín, heilt lamb og fimm kjúklinga til að vinna með. „Við eigum svo að vinna þessa skrokka á þremur og hálfum tíma til að búa til fjölbreyttar vörur, girnileg- ar vörur og auðvitað góðar vörur. Við erum sannfærðir um að við séum flottir og samkeppnishæfir á þessu heimsmeistaramóti. Öll liðin fá sömu eða svipaða þyngdir af skrokkum,“ útskýrir Jóhannes. Skipan liðsins er eftirfarandi: Friðrik Þór Erlingsson frá Kjöt- húsinu er fyrirliði, Jón Gísli Jónsson frá Kjötkompaníinu er úrbeinari, Ró- bert Ragnar Skarphéðinsson frá Norðlenska á Húsavík er úrbeinari, Bjarki Freyr Sigurjónsson frá Slát- urfélagi Suðurlands er pylsugerð- armaður, Jóhann Sigurbjarnarson frá Kjötkompaníinu annast fyllingar og skreytingar og Kristján Hallur Leifsson frá Kjötkompaníinu er út- litshönnuður kjötborðs. Með fullar töskur af eggvopnum - Landslið kjötiðnaðarmanna keppti á HM í kjötskurði í Kaliforníu um helgina Ljósmynd/Aðsend Kjötmeistarar leggjast í víking Landsliðið í Flugstöð Leifs Eiríkssonar fyrir brottför. Frá vinstri: Róbert, Jóhann, Jón Gísli, Friðrik, Kristján og Bjarki en full nöfn og hlutverk í liðinu má sjá aftast í meginmáli hér fyrir neðan. Ljósmynd/Aðsend Allsnægtir Jóhann Sigurbjarnarson stillir borði íslenska liðsins upp. Lögreglan á Akureyri handtók mann á laugardag eftir að hann otaði hnífi að viðskiptavinum og starfsfólki veitingastaðar um miðjan dag. Í tilkynn- ingu frá lögreglunni á Norðurlandi eystra kemur fram að hann hafi einnig gerst sekur um hótanir, rán og vopnalagabrot. Hann var í annarlegu ástandi og var látinn gista í fangageymslu aðfaranótt sunnudags. Hann var látinn laus í gær eftir yfirheyrslu. Nokkur hiti var í mannskapnum aðfaranótt sunnudags á Akureyri og þurfti lögregla að aka nokkrum ölvuðum einstaklingum heim sem kunnu ekki fótum sínum forráð eftir næturlíf bæjarins. Fjórir gistu fanga- geymslu, þrír vegna ölvunar og hegðunar sem ekki er til eftirbreytni og einn vegna hótana, ráns og brota gegn lyfjalögum og vopnalögum. hms@mbl.is Otaði hnífi að fólki um miðjan dag

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.