Morgunblaðið - 05.09.2022, Síða 15

Morgunblaðið - 05.09.2022, Síða 15
15 MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 5. SEPTEMBER 2022 Á landsleiknum „Upp með sokkana, Þórólfur“ var eitt sinn hrópað á gamla Melavellinum. Guðni forseti er vel að sér í íþróttasögunni og hlýddi því kallinu á landsleiknum um helgina. Eggert Full ástæða er til þess að leggja vel við hlustir þegar ekki einungis fulltrúar at- vinnulífsins kvarta sáran undan sífellt meira íþyngjandi regluverki frá Evr- ópusambandinu í gegnum aðild Ís- lands að samn- ingnum um Evr- ópska efnahagssvæðið (EES). Það eitt og sér ætti að vera nægt tilefni til þess að staldra við og íhuga á hvaða leið við séum með aðildinni að samningnum. Sama á við um fulltrúa stjórnsýslunnar. Fjallað var til að mynda um mál- ið á Innherja á Vísir.is í lok síðasta árs þar sem rætt var við Unni Gunnarsdóttur, varaseðlabanka- stjóra Fjármálaeftirlits Seðla- banka Íslands. Sagði hún meðal annars að regluverkið í kringum fjármálakerfið hér á landi væri lík- lega orðið flóknara en góðu hófi gegndi og vísaði í þeim efnum fyrst og fremst til þess regluverks sem borizt hefur til landsins í gegnum EES-samninginn. Hliðstæð gagnrýni kom fram í máli Lilju Bjarkar Einarsdóttur, bankastjóra Landsbankans, í Dag- málum á mbl.is á dög- unum. Hún sagði þar að eftirlitskröfur, sem rekja mætti til reglu- verks frá Evrópusam- bandinu, þýddu að sí- fellt meiri vinna færi í skriffinnsku. Virkt eft- irlit væri mikilvægt en að það mætti hins veg- ar ekki verða svo íþyngjandi að starfsfólk horfði aðallega í bak- sýnisspegilinn. Ógerningur að ímynda sér flækjustigið Fulltrúar atvinnulífsins og stjórnsýslunnar hafa þannig verið ágætlega samstíga í gagnrýni sinni í þessum efnum. Unnur benti með- al annars á það að umstangið í kringum innleiðingu á regluverki frá Evrópusambandinu kæmi niður á getu Fjármálaeftirlitsins til þess að sinna mikilvægum eftirlits- störfum: „Þegar regluverkið er komið út í öfgar er hætta á því að það þjóni ekki þeim markmiðum sem að er stefnt.“ Mikil vinna færi þannig í það hjá Fjármálaeftirlitinu að aðstoða stjórnvöld við að semja lagafrum- vörp vegna innleiðingar á reglu- verki frá Evrópusambandinu sem og að veita upplýsingar til annarra eftirlitsstofnana innan Evrópska efnahagssvæðisins um ýmis mál sem ættu misjafnlega vel við hér á landi. Í seinni tíð hefði stór hluti af starfsemi stofnunarinnar farið í að innleiða regluverk frá sambandinu. „Ég held að það sé ógerningur fyrir fólk sem vinnur ekki við þetta að gera sér í hugarlund hversu umfangsmikið og flókið regluverkið er orðið,“ er enn frem- ur haft eftir Unni. Tilefni viðtals- ins var hliðstæð gagnrýni forstjóra Fjármálaeftirlits Noregs og Dan- merkur í Financial Times skömmu áður. Regluverkið væri einfaldlega orðið of flókið og þungt í fram- kvæmd og kæmi niður á eftirlits- hlutverki stofnananna. Magn og gæði fara ekki saman Haft var eftir Jesper Berg, for- stjóra danska jármálaeftirlitsins, að regluverk Evrópusambandsins væri einfaldlega orðið of viðamikið. Fyrir vikið væri hætta á því að týnast í smáatriðum í stað þess að leggja áherzlu á þá áhættuþætti sem fyrir hendi væru. Þrátt fyrir hundruð starfsmanna gæti stofn- unin ekki bæði haft umsjón með innleiðingu á flóknu regluverki og staðið fullnægjandi vörð um fjármálakerfið. Vert er að hafa í huga í þessu sambandi að enginn skortur var á umfangsmiklu regluverki um fjár- málalífið þegar bankakerfið féll haustið 2008 enda kom það í flest- um tilfellum frá Evrópusamband- inu í gegnum EES-samninginn. Líkt og komið hefur verið inn á getur regluverk hins vegar hæg- lega orðið svo flókið og íþyngjandi að það geri illt verra við slíkar að- stæður. Magn og gæði fara þar einfaldlega ekki saman. Fyrirkomulagið hér á landi verður vart verra ef undan er skil- in innganga í Evrópusambandið. Þannig er óheimilt, samkvæmt EES-samningnum, að innleiða það regluverk sem berst í gegnum hann á minna íþyngjandi hátt hér á landi en fullt svigrúm er í raun til þess að innleiða það á meira íþyngjandi hátt. Utan EES væri í það minnsta mögulegt að setja minna íþyngjandi reglur í stað regluverks sambandsins eða alls engar reglur. Mikil útþensla hins opinbera Með inngöngu í Evrópusam- bandið yrði farið úr öskunni í eld- inn þegar kemur að umfangi stjórnsýslunnar hér á landi og íþyngjandi regluverki, líkt og á ófáum öðrum sviðum. Þannig segir til að mynda í gögnum frá sam- bandinu sjálfu, í tengslum við mis- heppnaða umsókn vinstri stjórnar- innar um inngöngu í það á sínum tíma, að stjórnsýslan hér á landi sé lítil og að innganga kallaði á um- fangsmikla útþenslu hins opinbera. Við Íslendingar erum sífellt að taka upp stærri hluta regluverks Evrópusambandsins, í gegnum að- ildina að EES-samningnum, þó enn séum við langt frá því að gangast alfarið undir það, líkt og fylgdi inngöngu í sambandið. Bilið þar á milli hefur hins vegar farið minnkandi. Einkum þar sem sviðið sem samningurinn nær til, innri markaður Evrópusambandsins, bæði dýpkar sífellt og þenst út til fleiri málaflokka. Hins vegar er leið út úr þessum aðstæðum. Leið sem ríki heimsins kjósa alla jafna að fara þegar þau semja um milliríkjaviðskipti og þar á meðal stærstu efnahagsveldin með sína umfangsmiklu viðskipta- hagsmuni. Þar með talið Evrópu- sambandið. Víðtækur fríverzl- unarsamningur. Leið sem, ólíkt EES-samningnum, felur ekki í sér einhliða upptöku íþyngjandi reglu- verks og vaxandi framsal valds yf- ir eigin málum. Eftir Hjört J. Guðmundsson »Með inngöngu í Evrópusambandið yrði farið úr öskunni í eldinn. Hjörtur J. Guðmundsson Höfundur er sagnfræðingur og alþjóðastjórnmálafræðingur (MA í alþjóðasamskiptum með áherzlu á Evrópufræði og öryggis- og varnar- mál). hjortur@civis.is Stjórnsýslan kvartar undan flóknu regluverki

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.