Morgunblaðið - 04.10.2022, Síða 6

Morgunblaðið - 04.10.2022, Síða 6
6 FRÉTTIR Innlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 4. OKTÓBER 2022 Helgi Bjarnason helgi@mbl.is „Það er jákvætt fyrir okkur að geta notað orku úr heimabyggð og jafnframt gleðilegt að stór hluti orkunnar sem þessi flotta virkjun framleiðir er nýttur til framleiðslu á íslensku grænmeti,“ segir Knút- ur Rafn Ármann, garðyrkjubóndi í Friðheimum í Reykholtshverfi í Biskupstungum. Þegar öll ljós eru kveikt í gróðurhúsunum nota Frið- heimar orku sem svarar til 2,5 megavatta í uppsettu afli sem er fjórðungur af afli hinnar nýju Brú- arvirkjunar í efri hluta Tungu- fljóts. HS Orka rekur Brúarvirkjun. Ef litið er til allra viðskiptavina HS Orku í garðyrkjunni í upp- sveitum Árnessýslu og víðar sést að þeir taka orku sem svarar til um 9 MW í uppsettu afli, það er að segja þegar öll ljós eru kveikt í gróðurhúsunum. Þess ber að geta að oftast er slökkt á lýsingunni í nokkra klukkutíma á sólarhring. Kom þetta fram við formlega vígslu virkjunarinnar sem hóf framleiðslu fyrir rúmum tveimur árum. Sérstaða í orkumálum Vegna virkjunarinnar var lagður jarðstrengur frá bænum Brú og niður í Reykholt. Knútur segir að það nýtist Friðheimum, sem eru með mikla ferðaþjónustu, að geta sagt gestum að notuð sé raforka úr heimabyggð. Skjal þess efnis frá HS Orku hangir uppi á vegg í veitingahúsinu. „Við erum alla daga að segja er- lendum gestum okkar frá því hvernig við nýtum náttúruna til að framleiða hollan og góðan mat. Við erum sannarlega með græn gróð- urhús,“ segir Knútur. Hann segir að sérstaða íslenskrar garðyrkju komi vel fram í ástandinu sem nú ríkir í Evrópu vegna innrásar Rússa í Úkraínu, verðbólgu og orkukreppu. Garðyrkjan í mörg- um löndum Evrópu sé mest keyrð með brennslu á gasi eða olíu á meðan íslenskir garðyrkjubændur noti endurnýjanlega orkugjafa. „Við heyrum skelfilegar sögur þegar við ræðum við starfs- bræður okkar erlendis. Það er verið að slökkva ljósin víða í garð- yrkjustöðvum. Verður áhugavert að sjá hver þróunin verður í vet- ur. Ég á von á því að mun minna framboð verði af grænmeti en verið hefur. Við ættum að vera stolt af okkar einstæðu að- stæðum til grænmetisfram- leiðslu,“ segir Knútur. 200 þúsund gestir í ár Ef áætlanir ganga eftir fyrir síðustu þrjá mánuði ársins munu 200 þúsund gestir hafa heimsótt Friðheima í lok ársins. Er það meira en áður hefur þekkst á þeim stað. Það gerist þrátt fyrir að árið hafi farið hægt af stað vegna samkomutakmarkana í lok kórónuveirufaraldursins. Knútur segir að útlitið sé gott fyrir næsta ár, þegar sé byrjað að bóka. Hann tekur þó fram að dökk ský séu yfir Evrópu vegna Úkra- ínustríðsins, verðbólga og hátt orkuverð. Það hafi áhrif á kaup- getu fólks en enn sé of snemmt að átta sig á því hvaða áhrif það muni hafa á ferðalög fólks, meðal annars hingað til lands. Garðyrkjan nýtir meginhluta orkunnar - Friðheimar taka fjórðung orkunnar frá Brúarvirkjun - Metár í gestafjölda Morgunblaðið/Árni Sæberg Tómatar Þegar Knútur Rafn Ármann er með kveikt á öllum ljósum í gróðurhúsunum notar stöðin orku sem svarar til 2,5 megavatta í uppsettu afli. Ragnheiður Birgisdóttir ragnheidurb@mbl.is Ísland og Svíþjóð hafa algera sér- stöðu meðal ríkja OECD þegar kem- ur að lokunum skóla í Covid-19-far- aldrinum. Þau eru einu ríkin þar sem kennsla féll aldrei alveg niður á ungl- ingastigi skólaárið 2019-2020. Þetta kemur fram í árlegri menntaskýrslu OECD, Education at Glance, þar sem í ár er að finna sér- stakan kafla sem helgaður er áhrif- um Covid-faraldursins á mennta- kerfi aðildarríkjanna. Til samanburðar voru skólar á unglingastigi lokaðir í meira en 45 daga í helmingi þeirra OECD-ríkja sem þátt tóku í könnuninni. Mestar voru lokanir á unglingastigi í Costa Ríka, þar sem skólar voru alveg lok- aðir í 175 daga samtals. Ekki var heldur skellt í lás á öðr- um skólastigum en unglingastigi á Íslandi þetta fyrsta Covid-skólaár. Í helmingi ríkjanna voru leikskólar hins vegar lokaðir í að minnsta kosti 35 daga og framhaldsskólar í 50 daga hið minnsta skólaárið 2019-2020. Skólastarf hér skert í 33 daga Þess er þó getið að í skólum í þeim löndum þar sem aldrei voru algjörar lokanir hafi skólastarf verið skert að einhverju leyti. Með því er átt við að skólarnir hafi verið opnir sumum bekkjum eða árgöngum en ekki öðr- um eða að hluta nemenda hafi verið gert að fylgjast með kennslu heiman frá sér til þess að fækka í nemenda- hópum í kennslustofum. Það á einmitt við um Ísland. Skólastarf hér var að einhverju leyti skert í 33 daga á öllum skólastigum á Íslandi skólaárið 2019-2020. Til sam- anburðar voru 125 slíkir dagar í Kól- umbíu. Þá er tekið fram að í mörgum ríkjum hafi suma daga verið lokað með öllu og skólastarf skert að hluta aðra daga. Skólaárið 2020-2021 voru tveir dagar þar sem algjörar lokanir voru á öllum skólastigum á Íslandi. Auk þess var skólastarf skert í 55 skóla- daga á framhaldsskóla- og háskóla- stigi. Í Chile þar sem lokanir voru mest- ar í heildina á unglingastigi var skólastarf skert í 259 daga, þar af lokað alveg í 147 daga. Þess skal getið að í þessum tölum eru lokanir á hátíðisdögum, sumar- leyfum og hefðbundnum starfsdög- um ekki taldar með. Færni nemenda beðið hnekki Í kjölfar Covid-faraldursins bætt- ist verulega í þann hóp ríkja sem halda samræmd próf til þess að meta hvernig nemendur standa námslega. Af úrslitum þeirra má sjá að í mikl- um meirihluta ríkjanna hefur færni nemenda bæði í lestri og stærðfræði beðið hnekki í faraldrinum. Þau ríki sem nýta lokapróf til þess að meta hvort nemendur hafi staðist námsárið þurftu flest að breyta því hvernig þessum prófum var háttað skólaárið 2019-2020. Í 18 af 29 lönd- um var prófum frestað en í öðrum voru þau felld niður og gripið til ann- arra leiða til þess að meta kunnáttu nemenda. Þegar skólarnir voru opnaðir á ný og kennsla fór að fara fram með hefðbundnu sniði gerðu öll löndin einhverjar ráðstafanir til þess að auka öryggi nemenda og kennara. Handþvottur og grímur voru algeng- ustu ráðstafanirnar en skólakerfi sumra ríkja kröfðust Covid-prófa og bólusetninga. Íslenskir og sænskir skólar þeir einu sem ekki var lokað - Ný skýrsla OECD - Lítil skerðing á skólastarfi í Covid miðað við önnur ríki Morgunblaðið/Eggert Kennsla Í Chile þar sem lokanir voru mestar í Covid-faraldrinum var skólastarf skert á unglingastigi í 259 daga. Tryggingafélögunum TM og Sjóvá höfðu í gær samtals borist á níunda tug tilkynninga um tjón sem tengja má óveðrinu sem reið yfir landið fyr- ir rúmri viku, 24. til 26. september. Björk Viðarsdóttir, framkvæmda- stjóri tjónaþjónustu hjá TM, sagði félaginu hafa borist á fjórða tug til- kynninga en samkvæmt upplýs- ingum frá Sjóvá hafa þangað borist rúmlega fimmtíu tilkynningar. Jó- hann Þórsson hjá Sjóvá segir kostn- aðinn hlaupa á tugum milljóna og því sé þessi fyrsta haustlægð „ágætlega stór atburður“. Tilkynningarnar sem borist hafa TM og Sjóvá snúa að foktjóni sem orðið hefur bæði á fasteignum, s.s. húsþökum, hurðum og gluggarúð- um, og bifreiðum. Þá nefndi Björk að einnig hefðu borist tilkynningar um tjón á bátum sem slitnuðu frá bryggju sem og tjón á ýmsum lausa- munum og búnaði sem skemmdist. Björk segir að enn sé viðbúið að frekari tilkynningar berist TM á næstu dögum og jafnvel vikum. Því sé ekki tímabært að leggja mat heildarumfangið. Hún bendir einnig á að hluti tilkynninga berist Nátt- úruhamfaratryggingum Íslands. Morgunblaðið/Þorgeir Baldursson Tjón Helst hefur verið tilkynnt um foktjón á fasteignum en einnig bílum. Á níunda tug tjóna eftir óveðrið - Búist við enn fleiri tilkynningum

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.