Morgunblaðið - 04.10.2022, Page 12

Morgunblaðið - 04.10.2022, Page 12
12 FRÉTTIR Viðskipti | Atvinnulíf MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 4. OKTÓBER 2022 Hreint loft –betri heilsa Honeywell gæða lofthreinsitæki Láttu þér og þínum líða vel - innandyra Loftmengun er hættuleg heilsu og lífsgæðum. Honeywell lofthreinsitæki eru góð viðmyglugróum, bakteríum, frjókornum, svifryki, lykt og fjarlægir allt að 99,97% af ofnæmisvaldandi efnum. HFD323E Air Genius 5. Hægt að þvo síuna. Verð kr. 39.420 HPA830 Round Air Purifier. Mjög hljóðlát. Verð kr. 29.960 S. 555 3100 · donna.is Baldur Arnarson baldura@mbl.is Viðmælendur Morgunblaðsins á fjármálamarkaði reikna með því að Seðlabankinn hækki vexti á morgun. Ingólfur Bender, aðalhagfræðing- ur Samtaka iðnaðarins, telur að það verði mildari tónn í vaxtaákvörðun peningastefnunefndar en í síðustu ákvörðunum. Það muni að líkindum birtast í 25 til 50 punkta hækkun en Seðlabankinn hækkaði vexti um 100 punkta í júní og um 75 punkta í ágúst. Meginvextir eru nú 5,5% en voru 2% í byrjun ársins. Máli sínu til stuðnings segir Ing- ólfur vaxtahækkanir Seðlabankans í ár þegar hafa haft tilætluð áhrif og dregið úr verðbólgu, með því meðal annars að kæla íbúðamarkaðinn. „Ég myndi halda að ef Seðlabank- inn heldur fyrri dampi í hækkunum sé hann að mislesa stöðuna og fara of grimmt í hækkanir, sem getur þá komið niður á hagvexti. Hann þarf að gæta sín að bremsa ekki hagkerf- ið af í þeirri baráttu sem hann er réttilega í gagnvart verðbólgunni,“ segir Ingólfur og bendir á að líklega muni hægja á hagvexti þegar kemur fram á næsta ár. Vaxtamunurinn minnkað Daði Kristjánsson, framkvæmda- stjóri fjármálafyrirtækisins Visku Digital Assets, reiknar með vaxta- hækkun á morgun. „Ég yrði ekki hissa ef vextir yrðu hækkaðir um 50 punkta. Það sem hefur gerst frá síðasta fundi pen- ingastefnunefndar er að vextir í Bandaríkjunum, Bretlandi og á öðrum stöðum hafa hækkað á skuldabréfamarkaði. Bæði hafa stýrivextir hækkað, sem og vextir á markaði, og fyrir vikið hefur dregið úr vaxtamun við útlönd. Það færir Seðlabankanum rök fyrir frekari vaxtahækkunum. Verðbólga hér er enn há þótt hún sé minni en Seðla- bankinn spáði í síðustu verðbólgu- spá. Sú spá var í hærra lagi og virðist bankinn hafa ofmetið verðbólguna til skemmri tíma litið,“ segir Daði. Yngvi Harðarson, framkvæmda- stjóri Analytica, telur að vaxtahækk- unin verði ekki undir 50 punktum. „Ásgeir [Jónsson seðlabanka- stjóri] gaf afdráttarlaust til kynna við síðustu vaxtaákvörðun [24. ágúst] að vextir kynnu að hækka frekar. Síðan hafa birst skýrari teikn um að fasteignamarkaðurinn sé að kólna en á móti kemur veruleg óvissa vegna kjarasamninga. Ég myndi því ætla að Seðlabankinn vilji fara inn í haustið með mikið aðhald [á pen- ingastefnunni] en slaka þá frekar á klónni ef innstæða er fyrir,“ segir Yngvi og vísar til kjarasamninga. Þá sé mikil óvissa um framvindu efnahagsmála, ekki aðeins á Íslandi heldur um heim allan. Ógn við fjármálastöðugleika Má í því efni benda á að Seðla- bankinn vakti fyrir helgi athygli á að Evrópska kerfisáhætturáðið hefði gefið út viðvörun um aukna áhættu í fjármálakerfi Evrópu sem gæti ógn- að fjármálastöðugleika. Ráðið hvetji til þess að viðbúnaður í fjármálakerf- inu verði tryggður eða aukinn þann- ig að það geti áfram stutt við heimili og fyrirtæki ef áhættan raungerist. Vegna mikilla þrenginga í efna- hagslífi Evrópu er rætt um að fjár- festingarbankar geti jafnvel fallið. Reikna með frekari vaxtahækkun - Sérfræðingar á fjármálamarkaði reikna með að Seðlabankinn hækki vexti enn frekar á morgun - Vaxandi kerfisáhætta í evrópsku fjármálakerfi sögð áhyggjuefni - Rætt um að bankar geti fallið Vextir frá maí 2021 6% 4% 2% 0% 2021 2022 Heimild: Seðlabankinn 19.5. 25.8. 6.10. 17.11. 9.2. 4.5. 22.6. 24.8. 5,5% 2,75% 1% Baldur Arnarson baldura@mbl.is Tæplega þriðji hver nýr fólksbíll sem selst hefur á Íslandi í ár er raf- bíll og er hlutfallið nánast það sama og í fyrra. Hins vegar hafa þegar selst fleiri rafknúnir fólksbílar en alla mánuði ársins í fyrra. Þetta má lesa úr tölfræði Sam- göngustofu yfir nýskráningar öku- tækja og er hluti hennar endur- gerður á grafinu hér til hliðar. Alls hafa verið skráðir 3.632 raf- knúnir fólksbílar í ár – það er hrein- ir rafbílar – og alls 13.125 fólksbílar. Er hlutfall rafbílanna því 27,7%. Athygli vekur að hlutfallið er næstum það sama allt árið í fyrra. Þá voru skráðir 3.565 nýir rafknún- ir fólksbílar og alls 12.791 nýr fólks- bíll. Var hlutfall hreinna rafbíla því 27,8%, eða nánast það sama og í ár. Hins vegar eykst bílasalan tölu- vert milli ára og er hún þegar orðin meiri en allt árið í fyrra. Athygli vakti hversu margir raf- bílar seldust í síðari hluta septem- ber, í kjölfar umræðu um vænt- anlegar skattahækkanir á rafbíla. Nánar tiltekið áform um að fella niður afslátt að hámarki 1.320 þúsund þegar 20 þúsundasti nýi rafbíllinn hefur verið skráður á Íslandi. Kom svo fram í samtali við Guðlaug Þór Þórðarsson, ráð- herra loftslagsmála, í Morgun- blaðinu að umrædd áform verði endurskoðuð. Við nánari skoðun reyndist send- ing af Tesla-rafbifreiðum eiga þátt í miklum fjölda nýskráninga rafbíla í nýliðnum september og má merkja sömu áhrif vegna Tesla-bifreiða í september 2020 og 2021. Margir á biðlista Erna Gísladóttir, forstjóri BL, segir marga á biðlista eftir rafbílum hjá umboðinu. Þá segir hún aðspurð að fyrirspurnum um rafbíla hafi fjölgað hjá umboðinu, í kjölfar um- ræðu um fyrirhugaða niðurfellingu afsláttar á nýja rafbíla á næsta ári. „Það birtist þannig að fólk sem átti von á að fá bíl eftir áramót hafði áhyggjur og spurði hvort það væri hægt að flýta afhendingu. Það eru langir biðlistar á mörgum stöð- um. Við höfum selt yfir þúsund bíla sem eru á leið til landsins og er helmingurinn sennilega rafbílar. Það er mikil skömmtun enda hefur framleiðsla á rafgeymum gengið mjög hægt. Þá sérstaklega eftir stríðið í Úkraínu.“ Metsala nýrra rafbíla á Íslandi - Fyrstu níu mánuði ársins seldust fleiri rafbílar en seldust allt árið í fyrra Orkugjafar nýskráðra fólksbíla Nýskráningar eftir orkugjöfum 2013-2022 Rafbílar, tvinn- og tengiltvinnbílar 2013-2022 Heimild: Samgöngustofa 100% 80% 60% 40% 20% 0% 30% 20% 10% 0% '13 '14 '15 '16 '17 '18 '19 '20 '21 '22 '13 '14 '15 '16 '17 '18 '19 '20 '21 '22 '16 '17 '18 '19 '20 '21 '22 178 344 461 715 1.753 2.359 3.632 71% 29% 28% 24% 19% Bensín og díselbílar samtals Rafbílar, tvinn- og tengiltvinnbílar samtals Hreinir rafbílar Tvinnbílar alls* Tengiltvinnbílar alls* *Bæði bensín og dísel Fjöldi nýskráðra hreinna rafbíla fyrstu níumánuði ársins 2016-2022 Erna Gísladóttir Gera má ráð fyrir því að flugfélagið Play skili rekstrarhagnaði á þriðja fjórðungi þessa árs en að tap af rekstri þessa árs verði í heild um 28,9 milljónir bandaríkjadala. Þetta kemur fram í nýju verð- mati Jakobsson Capital, sem metur félagið á 21,4 kr. á hlut, sem er 36% yfir gengi félagsins við lok mark- aða í gær, 15,8 kr. á hlut. Gengi fé- lagsins hefur lækkað síðustu daga, en það var 16,6 kr. á hlut þegar verðmatið var framkvæmt. Play tapaði um 14,3 milljónum bandaríkjadala á öðrum fjórðungi þessa árs og samanlagt tap á fyrri helmingi ársins nemur því tæpum 26 milljónum dala, eða um 3,5 millj- örðum króna á meðalgengi tíma- bilsins. Í verðmati Jakobsson Capi- tal kemur fram að tap á hvern flugsætiskílómetra hafi dregist saman milli fyrsta ársfjórðungs og annars ársfjórðungs, en að heildar- tap félagsins megi rekja til þess að flugframboð þess hafi aukist tölu- vert. Þá er horft til þess að verð þotueldsneytis hefur lækkað um 14% að meðaltali frá öðrum árs- fjórðungi. Að auki hefur nýting aukist um 10 til 15%. „Út frá þróun eldsneytisverðs og betri nýtingu er ekki óvarlegt að áætla að eldsneytisliðurinn muni snúast úr einu senti í mínus í eitt sent í plús milli annars og þriðja ársfjórðungs. Líklegt er að tekju- áhrifin verði svipuð milli annars og þriðja ársfjórðungs líkt og á milli fyrsta og annars ársfjórðungs,“ segir í verðmatinu. Þar er þó fjallað um ýmsa óvissu- þætti, t.d. að Play hafi gert ráð fyr- ir örari vexti en raun ber vitni, að mikil óvissa sé framundan í Evrópu og að flugframboð, eða öllu heldur koma ferðamanna, geti ekki aukist umfram það sem innviðir landsins bjóði upp á. Þá er einnig settur fyrirvari um eldsneytisverð. Spáir betri afkomu hjá Play - Verðmetur Play á 36% yfir núverandi markaðsgengi 4. október 2022 Gjaldmiðill Gengi Dollari 144.55 Sterlingspund 159.43 Kanadadalur 105.15 Dönsk króna 18.947 Norsk króna 13.318 Sænsk króna 12.928 Svissn. franki 147.37 Japanskt jen 0.9991 SDR 184.94 Evra 140.9 Meðalgengi/Viðskiptavog þröng 172.9817

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.