Morgunblaðið - 04.10.2022, Qupperneq 21
MINNINGAR 21
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 4. OKTÓBER 2022
✝
Marsibil Jóns-
dóttir fæddist
19. mars 1938 í
Reykjavík. Hún
lést á líknardeild-
inni í Kópavogi 20.
september 2022.
Foreldrar henn-
ar voru hjónin
Jónína Jóhannes-
dóttir, f. 1907, d.
1996, og Jón Frið-
rik Matthíasson
loftskeytamaður, f. 1901, d.
1988. Systkini hennar eru Jó-
hannes Helgi, f. 1926, d. 2001,
Björg Sigríður, f. 1929, Helga
Elsa, f. 1931, d. 2020, Hrönn, f.
1933, d. 2017, Matthildur, f.
1936, Ólafur, f. 1940, Ingibjörg
Kristín, f. 1942, Elín, f. 1944,
og Matthías, f. 1945.
Maki er Ferdinand Þórir
Ferdinandsson, f. 17. ágúst
1936. Þau kynntust í desember
1964 og gengu í hjónaband í
Noregi þann 8. febrúar 1965.
Börn þeirra eru: 1) Jón Frið-
rik, f. 3.1. 1966, giftur Halisu
Mekonan, f. 1978. Sonur Jóns
er Inacio Ferdinand, f. 1999.
Börn Jóns og Halisu eru Marsi-
bil, f. 2008, og Elisabet Mere-
tech, 2012. 2) Magnea Guðný,
f. 31.1. 1967. Börn hennar eru
Guðmundur Freyr, f. 1987, og
Bella var í sveit á Hvallátrum
við Látraströnd á sumrin frá
10-13 ára og í framhaldi af því
þrjú sumur hjá Björgu systur
sinni og Jóni Guðmundssyni á
Hvítárbakka. Átján ára fór
hún í Hússtjórnarskólann í
Reykjavík. Eftir það sinnti hún
ýmsum störfum, m.a. við skrif-
stofustörf hjá Ásbirni Ólafs-
syni heildsala og hjá Thors-
urunum.
Hún hóf tvítug hússtjórn-
arkennaranám í Húsmæðra-
skóla Íslands á Laugarvatni og
útskrifaðist tveimur árum síð-
ar, árið 1960. Bella kenndi
bæði á Hallormsstað og á
Varmalandi. Árið 1964 starfaði
hún sem yfirmaður í eldhúsi á
Farsóttarheimilinu í Reykja-
vík. Í desember 1964 kynntist
hún Ferdinandi Þóri Ferdin-
andssyni. Þau bjuggu lengst af
á Lykkju 2 Kjalarnesi. Hún
vann á Móum, tók að sér að
stýra eldhúsi í veiðihúsi á
Vatnsdalshólum og einnig
starfaði hún í eldhúsi í sum-
arbúðunum á Vestmannsvatni.
Þá rak hún eigið ræstingarfyr-
irtæki í rúm tíu ár í Arnarholti
og starfaði í eldhúsinu þar.
Fjölskyldan var æðsta gildi
Bellu og lagði hún alla sína al-
úð og hjarta í hana.
Útförin fór fram í kyrrþey,
að ósk hinnar látnu, frá Braut-
arholtskirkju þann 30. sept-
ember 2022.
sambýliskona hans
Diljá Marín Jóns-
dóttir, f. 1990.
Börn þeirra eru
Ingibjörg Elva, f.
2012, Axel Freyr,
f. 2017. Guðbergur
Þór (Bubbi), f.
1992, Ferdinand
Brynjar, f. 1994,
Bergþór Gylfi, f.
1999, og Ingibjörg
Ósk, f. 2001. 3) Ró-
bert Örvar, f. 30.6. 1972, giftur
Guðrúnu Finnborgu Þórð-
ardóttur, f. 1978. Börn þeirra
eru Matthías Ingvi, f. 2008,
Tinna Salome, f. 2011, Arn-
hildur Rúna, f. 2016, og Matt-
hildur Bella, f. 2016. 4) Guð-
mundur, f. 24.8. 1973, d. 25.8.
1973. 5) Ingibjörg Kristín, f.
24.9. 1974, maki Gauti Laxdal,
f. 1966. Synir þeirra eru Haf-
steinn Hugi, f. 2001, og Róbert
Orri, f. 1998 og sambýliskona
hans er Helga María Gísladótt-
ir, f. 2000. Dóttir Gauta er
Edda Laufey, f. 1990 sambýlis-
maður hennar er Emil Gunnar
Gunnarsson, f. 1990.
Marsibil (Bella) fæddist í
Reykjavík og bjó á Bárugötu
23 til sex ára aldurs. Hún flutti
þá með fjölskyldunni á Hring-
brautina og bjó þar til 16 ára.
Elsku Bella. Þið Ferdinand
komuð eins og stormsveipur inn í
líf mitt í apríl 1997, örfáum dög-
um eftir að ég hafði kynnst dótt-
ur þinni, Ingibjörgu Kristínu.
Frá upphafi tókstu okkur Eddu
Laufeyju, dóttur minni, opnum
örmum og segir það mikið um
þinn karakter að sýna henni
jafnmikinn áhuga og þínum eigin
barnabörnum. Það var heldur
betur sjálfsagt mál fyrir okkur
hjónakornin og Róbert Orra að
fá að gista í Lykkju II, mánuðina
áður en við fluttum til Svíþjóðar
1999, sem segir margt um góð-
vild ykkar Ferdinands. Ég minn-
ist eftirminnilegra tíma í Lykkj-
unni ykkar, sérstaklega
jólaboðanna þar sem maður át á
sig gat af dýrindis jólamat á
hverju einasta ári. Maður á varla
orð yfir það hversu örlát þú varst
á tíma þinn gagnvart barnabörn-
unum, strákarnir okkar Róbert
Orri og Hafsteinn Hugi gistu í
svo ótalmörg skipti í Lykkju. Á
tímabili vildu þeir helst búa upp
á Kjalarnesi þar sem þeir nutu
samvista við ykkur Fedda ásamt
því að vera úti í náttúrunni og
leika. Ég gleymi aldrei fyrstu jól-
unum sem við áttum saman í
Lykkju árið 1997. Þú komst að
því að ég væri alinn upp við
rjúpu á jólunum en þið fjölskyld-
an höfðuð til siðs að vera með
hamborgarhrygg. Þú varst ekk-
ert að tvínóna við þetta heldur í
samkrulli með Fedda reddaðir
þessum fínu rjúpum og eldaðir
þær sérstaklega fyrir mig þessi
jól ásamt hamborgarhryggnum
fyrir restina af mannskapnum!
Þó að ég vissi að þér þætti vænt
um mig frá byrjun þá fékk ég
sannarlega sönnun þess í þetta
skiptið. Árið eftir lenti ég í að
vera beðinn af ritstýru Gestgjaf-
ans að upplýsa um uppskrift að
uppáhaldskökunni minni og varð
auðvitað fyrir valinu hin marg-
fræga ungverska kaka Bellu. Við
Ingibjörg vorum sveitt að baka
kvöldið og nóttina fyrir áætlaða
myndatöku og vorum búin að
klúðra líklega fimm kökum þeg-
ar við gáfumst upp og hringdum
í þig sem reddaðir málunum með
einni ungverskri sem þú áttir í
frystinum en sló þó öll met varð-
andi útlit í okkar augum.
Mér fannst þú alltaf vera
hreystin uppmáluð. Þú kvartaðir
aldrei þó meinið hafi leikið þig
grátt síðustu mánuðina. Barst
höfuðið hátt alveg fram undir
það síðasta og lofaðir okkur að
skilja ekki við fyrr en eftir af-
mælisdag Hafsteins sem þú og
gerðir. Ég vissi að þú varst ekk-
ert gefin fyrir að leita læknis-
hjálpar en fannst gaman að
stríða mér með því að leita til
annarra lækna varðandi kvilla
sem þér fannst ekki koma mér
við. Sýndir mér svo sigri hrós-
andi, og með þínum smitandi og
dillandi hlátri, pillurnar sem þér
voru skaffaðar til að lækna hin
ýmsu mein.
Þín verður sárt saknað á
mörgum vígstöðvum. Við börnin
lofum því að passa upp á hann
Fedda þinn og stytta honum
stundir því fyrir honum er lífið
tómlegt án þín. Ég minnist þín
með mikilli hlýju, elsku besta
Bella.
Hvíl í friði
Þinn tengdasonur,
Gauti.
Nú þegar móðursystir mín
Marsibil Jónsdóttir eða Bella
eins og hún var alltaf kölluð hef-
ur kvatt þetta jarðlíf þá minnist
ég allra góðu stundanna með
henni allt frá því ég var á barns-
aldri. Hún bjó hjá okkur fjöl-
skyldunni í Akurgerðinu árið
sem hún var í Húsmæðraskól-
anum í Reykjavík.
Þegar ég var ellefu ára vann
hún á Hótel Varðborg á Akur-
eyri þar sem ég fékk að dvelja
hjá henni í nokkrar vikur og hún
dró mig að landi með þumlana á
vettlingunum sem átti að prjóna í
handavinnu í gagnfræðaskóla.
Eftir að þau Ferdinand kynntust
voru þau tíðir gestir á heimilinu
hjá pabba og mömmu og ég pass-
aði oft aðallega eldri börn þeirra,
þau Nonna og Maggý, bæði þeg-
ar þau bjuggu á Lágafelli í Mos-
fellsbæ og uppi á Kjalarnesi. All-
ar þessar minningar eru góðar
og votta um þá hlýju, traust og
tryggð sem ávallt einkenndi
Bellu.
Þrátt fyrir aldursmuninn voru
þær mamma alltaf einstakar vin-
konur og hversu góð og rækt-
arsöm Bella og þau Ferdinand
bæði voru við mömmu eftir að
hún var orðin ein verð ég ævar-
andi þakklát fyrir.
Samverustundir okkar allra í
tvígang í Barcelona voru allar
sérlega ánægjulegar og sama er
með sanni sagt um heimsókn
þeirra þriggja til okkar Péturs í
Kína – og ferðalag mitt með
þeim þremur vítt og breitt um al-
þýðulýðveldið. Þau voru einstak-
lega góðir og skemmtilegir
ferðafélagar. Ferdinand sérstak-
lega fróðleiksfús og ræðinn hvar
sem fyrirfannst fólk sem talaði
ensku og þær Bella og mamma
líka áhugasamar og fóru á flug á
hvers konar mörkuðum sem við
heimsóttum. – Eitt sinn urðu
þær tvær viðskila við okkur
Ferdinand en ég hafði lagt ríka
áherslu á að við héldum ávallt
hópinn í hvers konar mann-
þröng. Mig minnir að það hafi
verð á Gulangyu og ég var orðin
verulega hrædd þegar við loks-
ins fundum þær sallarólegar að
skoða saman vöruúrval á einum
markaðsbásnum. Ég brást við
með að skamma þær fyrir að
vafra svona í burtu frá okkur –
og það lýsti þeim og þeirra sam-
bandi vel að eftir að þær náðu í
augnablik að setja upp skömm-
ustulegan svip flissuðu þær fyrst
og hristust síðan báðar af hlátri
– eins og tvær unglingsstelpur.
Já, það var mikið hlegið í
þessari ferð eins og ávallt þegar
þær tvær komu saman – og ein-
mitt þannig ætla ég að minnast
þeirra í faðmi almættisins með
öðrum ættingjum og vinum sem
þegar hafa kvatt þennan heim.
Ferdinand, börnum, barna-
börnum og öðrum nánum að-
standendum Bellu sendum við
Pétur innilegar samúðarkveðjur.
Jónína Bjartmarz.
Við skólasysturnar úr Hús-
mæðrakennaraskóla Íslands
höfum haldið hópinn og notið
órjúfanlegrar vináttu og
skemmtilegrar samveru í sex
áratugi. Við kynntumst og hóf-
um námið haustið 1960 undir
stjórn fröken Helgu Sigurðar-
dóttur í nýlegu húsnæði skólans
í Hamrahlíðinni. Við komum
hver úr sinni áttinni með ólíkan
bakgrunn og erum fæddar á átta
ára bili.
Nú er löngu komið að síðari
hluta ævinnar og við söknum
vinkonu í stað þegar maðurinn
með ljáinn reiðir til höggs þriðja
sinni í okkar hópi. Marsibil Jóns-
dóttir lést á líknardeildinni í
Kópavogi 14. september sl. Við
kölluðum hana ávallt Bellu. Hún
lést á sinn hljóðláta hátt í svefni
eftir baráttu við krabbamein og
við erum harmi slegnar. Við
kvöddum hana þar við upprifjun
góðu, gömlu daganna.
Við skólasysturnar vorum 13
talsins síðari annirnar, samrýnd-
ar eins og bestu systur, ekki síst
á Laugarvatni þar sem sumar-
námið 1961 var í húsmæðraskól-
anum við vatnið. Umhverfis
hann lærðum við garðyrkju-
störfin. Bjuggum í þröngum
heimavistarherbergjum þeirra
tíma. Önnur varð að fara upp í
rúm meðan hin klæddi sig. Við
undum því vel og nutum verunn-
ar í sveitinni og lentum í ýmsum
ævintýrum. Við fórum á grasa-
fjall til Hveravalla, upplifðum
fegurð náttúrunnar í ótal göngu-
ferðum og tókum jafnvel á móti
erlendum menntamálaráðherra.
Síðar gengum við um beina fyrir
Ólaf Noregskonung í fallegu
búningunum okkar.
Fljótt kom í ljós að Bella var
óvenju vel gerð og góð vinkona,
einlæg og glöð og hvers manns
hugljúfi. Hennar sterkasta hlið
var matreiðslan og töfraði hún
fram alls kyns rétti, bæði í skól-
anum og æ síðan. Hún var afar
notaleg við ungu nemendurna
okkar á Laugarvatni, yngis-
meyjarnar sem við kenndum og
gættum nótt og dag.
Strax að námi loknu fóru þær
Bella og Gunna austur á Hérað
en þar vantaði matreiðslukenn-
ara og forstöðukonu við Hús-
mæðraskólann á Hallormsstað.
Þær treystu hvor á aðra svona
ungar og óreyndar, rúmlega tví-
tugar og óvanar vetrardvöl úti á
landi. Þegar rafmagnið fór af
sveitinni í heila viku, skömmu
eftir komuna austur, lét Bella
stúlkurnar prjóna í olíulampa-
ljósinu á síðkvöldum við upplest-
ur framhaldssögunnar. Þetta
hljómar nú eins og fornar sagnir,
tíminn líður hratt. Hún Marsibil
var líka listamaður með prjón-
ana.
Húsmæðrakennaraskóli Ís-
lands tók til starfa fyrir 80 árum
en við hófum þar nám fyrir 62
árum. Á fimmtugsafmælinu fór-
um við til Frakklands ásamt
mökum en í ár verða engin hátíð-
arhöld. Við höfum átt góðar sam-
verustundir á heimilum okkar til
skiptis, u.þ.b. átta sinnum á ári
allan þennan tíma, og vináttan
eflst með stuttu ferðalagi að
hausti.
Elsku Bella okkar, takk fyrir
hlýjuna og gleðina. Við vottum
Ferdinandi, sem ávallt hefur
staðið þétt við hlið konu sinnar,
börnunum þeirra og allri stór-
fjölskyldunni innilega samúð.
Þeirra er söknuðurinn mestur.
Guð blessi ykkur öll.
Fyrir hönd skólasystranna,
Guðrún L. Ásgeirsdóttir.
Marsibil Jónsdóttir
Innilegar þakkir fyrir samúð og hlýhug
vegna andláts og útfarar ástkærs
eiginmanns, föður, tengdaföður, afa
og langafa,
EÐVARÐS INGÓLFSSONAR
Jötnaborgum 6,
Reykjavík.
Sérstakar þakkir til starfsfólks á deild 6A á Landspítalanum
Fossvogi fyrir góða aðhlynningu og ljúft viðmót.
Svanhildur María Ólafsdóttir
Ólafur Páll Eðvarðsson Jóna Hlín Guðjónsdóttir
Aðalheiður María Sigmarsd. Daníel Jónsson
Emelía Rán Sigmarsdóttir Gunnsteinn Lárusson
Sigmar Þór, Daníel Bergur og Lárus
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma
og langamma,
REGÍNA FRÍMANNSDÓTTIR
lést á Sjúkrahúsi Siglufjarðar laugardaginn
24. september.
Útförin fór fram í kyrrþey að hennar ósk.
Þökkum auðsýnda samúð og hlýhug.
Jósefína Benediktsdóttir Þorsteinn Jóhannsson
Hanna Þóra Benediktsdóttir Ingvar Kristinn Hreinsson
Berglind Svala Benediktsd. Ingþór Sigurðsson
Kristján Dúi Benediktsson
barnabörn og barnabarnabörn
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma
og langamma,
SESSELJA ÞÓRDÍS ÁSGEIRSDÓTTIR
Dísella,
húsmóðir,
verður jarðsungin frá Fossvogskirkju
fimmtudaginn 6. október klukkan 11.
Helgi Ásgeir Harðarson Margrét Sigmundsdóttir
Hörður Þór Harðarson Sólveig Grétarsdóttir
Þórdís Rós Harðardóttir Jón Vilhelmsson
Guðmundur A. Harðarson Linda Björk Sigmundsdóttir
Ingibjörg Rósa Harðardóttir Þór Ólafsson
ömmubörn og langömmubörn
Elsku hjartans eiginmaður minn, pabbi
okkar, tengdapabbi og afi,
GÍSLI J. FRIÐJÓNSSON,
Lundi 4, Kópavogi,
lést á Landspítalanum Fossvogi
laugardaginn 1. október.
Útför hans fer fram frá Fossvogskirkju þriðjudaginn 11. október
klukkan 15. Þeim sem vilja minnast hans er bent á
Alzheimersamtökin, https://www.alzheimer.is/minningarkort.
Hafdís Alexandersdóttir
Guðrún Gísladóttir Þórður Ágústsson
Kolbrún Edda Gísladóttir Jón Halldór Guðmundsson
Ragnhildur Edda Þórðard. Leonharð Þorgeir Harðarson
Hafdís Hera Arnþórsdóttir
Gísli Gottskálk Þórðarson
Aron Fannar Jónsson
Ástkær móðir, tengdamóðir, amma
og langamma,
UNNUR EINARSDÓTTIR
hjúkrunarfræðingur og ljósmóðir,
Smárahvammi 11, Hafnarfirði,
lést á deild 11G Landspítala, fimmtudaginn
29. september. Útförin fer fram frá Fríkirkjunni
í Hafnarfirði þriðjudaginn 11. október klukkan 13.
Blóm og kransar vinsamlegast afþakkaðir en þeim sem vildu
minnast hennar er bent á Einstök börn.
Jón Ragnar Guðmundsson Hulda Ólafsdóttir
Elín Guðmundsdóttir Kristinn Frímann Kristinsson
Lárus Jón Guðmundsson Aðalheiður Ó. Skarphéðinsd.
Hólmfríður Guðmundsdóttir
Einar Bjarki Guðmundsson Amanda Jean Guðmundsson
barnabörn og barnabarnabörn
Morgunblaðið birtir minningargreinar endurgjaldslaust alla
útgáfudaga.
Óheimilt er að taka efni úr minningargreinum til birtingar í
öðrum miðlum nema að fengnu samþykki.
Skil | Þeir sem vilja senda Morgunblaðinu greinar eru vinsamlega
beðnir að nota innsendikerfi blaðsins. Smellt á Morgunblaðslógóið í
hægra horninu efst og viðeigandi liður, „Senda inn minningargrein,“
valinn úr felliglugganum. Einnig er hægt að slá inn slóðina
www.mbl.is/sendagrein
Lengd | Minningargreinar sem birtast í Morgunblaðinu séu ekki
lengri en 3.000 slög. Ekki er unnt að senda lengri grein. Lengri grein-
ar eru eingöngu birtar á vefnum. Hægt er að senda örstutta kveðju,
HINSTU KVEÐJU, 5-15 línur.
Undirskrift | Minningargreinahöfundar eru beðnir að hafa skírn-
arnöfn sín en ekki stuttnefni undir greinunum.
Myndir | Hafi mynd birst í tilkynningu er hún sjálfkrafa notuð með
minningargrein nema beðið sé um annað. Ef nota á nýja mynd skal
senda hana með æviágripi í innsendikerfinu. Hafi æviágrip þegar verið
sent er ráðlegt að senda myndina á netfangið minning@mbl.is og láta
umsjónarmenn minningargreina vita.
Minningargreinar