Morgunblaðið - 04.10.2022, Síða 24

Morgunblaðið - 04.10.2022, Síða 24
24 DÆGRADVÖL MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 4. OKTÓBER 2022 40 ÁRA Þorbergur er Norðfirðingur en býr á Akureyri. Hann er vél- og orkutækni- fræðingur að mennt frá HR og starfar sem vélhönnuður hjá Marel. Hann er formaður fjallahlaupsins Súlna Vertical. Ahugamál Þorbergs eru almenn útivera í náttúrunni, m.a. fjallahlaup og fjallaskíði. FJÖLSKYLDA Maki Þorbergs er Eva Birgisdóttir, f. 1989, master í íþrótta- og heilsufræði, er í fæðingarorlofi og þjálfar fjallahlaupara ásamt Þorbergi. Dætur þeirra eru Kristín Eva, f. 2018, og Berglind Lilja, f. 2021. Foreldrar Þorbergs eru hjón- in Jón Valgeir Jónsson, f. 1954, véliðnfræð- ingur og kennari í Verkmenntaskóla Aust- urlands, og Berglind Þorbergsdóttir, f. 1961, bókari. Þau eru búsett á Akureyri. Þorbergur Ingi Jónsson Stjörnuspá 21. mars - 19. apríl , Hrútur Vertu ekki að ergja þig yfir því sem þú getur ekki breytt. Mundu að sókn er besta vörnin og sigurinn er þinn ef þú held- ur rétt á spöðunum. 20. apríl - 20. maí + Naut Gerðu ráð fyrir að kynnast nýrri manneskju í dag. Nú er rétti tíminn til þess, því fólk er vingjarnlegra en ella í annarra garð. 21. maí - 20. júní 6 Tvíburar Láttu það eftir þér að sletta svo- lítið úr klaufunum en gættu allrar háttvísi. Sýndu umburðarlyndi í umgengni við aðra. 21. júní - 22. júlí 4 Krabbi Þvert á það sem þú hélst þá er ekk- ert stórt samsæri í gangi til að hindra þig í að stunda þitt helsta áhugamál. Haltu bara þínu striki og þá fer allt á besta veg. 23. júlí - 22. ágúst Z Ljón Þið þurfið að gaumgæfa hvert skref áður en þið haldið áfram því ykkur hættir um of til þess að ana áfram að óathuguðu máli. 23. ágúst - 22. sept. l Meyja Finnist þér að gengið hafi verið á rétt þinn skaltu sýna festu og rétta þinn hlut. Það er engin ástæða til þess að láta hugfallast, þótt á móti blási um stund. 23. sept. - 22. okt. k Vog Ef þú lætur í ljós óskir þínar verður lit- ið á það sem kvörtun nema þú gerir það mjög glæsilega. Láttu það þó ekki slá þig út af laginu og haltu þínu striki. 23. okt. - 21. nóv. j Sporðdreki Það getur verið gaman að fara ótroðnar slóðir en til þess þarf bæði kjark og þrautseigju. Skilningsríkt fólk býðst til að hjálpa þér og það kemur þér á óvart. 22. nóv. - 21. des. h Bogmaður Sinntu þínum nánustu sérstak- lega, því þú hefur satt að segja látið þá sitja á hakanum að undanförnu. Hlúðu líka að sjálfum þér og innri friði. 22. des. - 19. janúar @ Steingeit Það er engin ástæða til að láta sem himinn og jörð séu að farast þótt allir hlutir gangi ekki upp. Varastu að láta til- finningarnar hlaupa með þig í gönur. 20. jan. - 18. febr. ? Vatnsberi Þú hefur einbeitt þér um of að andlegri líðan þinni og um leið vanrækt lík- amann. Stutt hugleiðsla, sundsprettur eða nokkrar jógaæfingar geta skipt sköpum. 19. feb. - 20. mars = Fiskar Nú verður þú að bretta upp erm- arnar og kippa þeim mörgu hlutum í liðinn sem þú hefur látið danka alltof lengi. Nyvig, sem var dönsk ráðgjafarstofa á sviði samgönguskipulags. Ég þurfti að forrita hluta af reiknilíkaninu áður en unnt var að nota það til að gera umferðarspár.“ Samhliða starfinu á Skipulagsstofunni var Þórarinn arsvæðisins, þar sem hann vann ýmis tæknistörf á sviði skipulags. „Einna eftirminnilegast var að Skipulags- stofan tók við svokölluðu reiknilíkani umferðar fyrir höfuðborgarsvæðið. Reiknilíkanið var áður hjá Anders Þ órarinn Hjaltason er fæddur 4. október 1947 í Reykjavík. Hann ólst upp í Reykjavík fyrstu þrjá mánuði ævi sinnar og flutti síðan til Akureyrar og bjó þar hjá móðurömmu sinni og móður- afa til tíu ára aldurs. Frá sjö ára aldri til tólf ára aldurs var Þórarinn í sveit á sumrin á Hjaltabakka á Ásum í Húnavatnssýslu hjá föðurbróður sín- um. „Þegar ég var tíu ára gekk ég í flest sveitastörf. Þetta var mikil vinna en skemmtileg og ég tel mig hafa haft gott af þessu.“ Þórarinn var fyrstu árin í Barna- skóla Jennu og Hreiðars á Akureyri og síðan Barnaskóla Akureyrar. Eftir að hann flutti til Reykjavíkur gekk hann fyrst í Austurbæjarskólann og síðan í Gagnfræðaskóla Austurbæjar, þaðan sem hann lauk landsprófi. Þá lá leiðin í Menntaskólann í Reykjavík og lauk hann stúdentsprófi þaðan 1967. „Ég hef alltaf átt auðvelt með nám og var dúx á stúdentsprófi.“ Eftir stúdentspróf hélt Þórarinn til Cambridge (Trinity College) í Eng- landi og lauk þaðan Bachelorprófi í byggingarverkfræði 1970. „Ég var á góðum námsstyrk frá Trinity College öll þrjú árin. Karl Bretakonungur var skólabróðir minn, en ég kynntist hon- um reyndar ekki.“ Að námi loknu höf Þórarinn störf hjá gatnamálastjóranum í Reykjavík og vann þar við hönnun gatna og hol- ræsa. Árið 1974 flutti Þórarinn sig um set til Þróunarstofnunar Reykja- víkur (síðar Borgarskipulags) þar sem hann vann við umferðarskipulag. „Á Þróunarstofnun fann ég mína réttu hillu. Ég kom að umferðar- skipulagsþættinum í aðalskipulagi Reykjavíkur 1975-1995, sem var sam- þykkt af borgaryfirvöldum en var aldrei staðfest. Í þessu skipulagi var í fyrsta skipti gert ráð fyrir Sunda- braut.“ Árið 1977 hóf Þórarinn nám í umferðartækni við Danmarks Tekn- iske Højskole og lauk meistaranámi þaðan 1979. Er Þórarinn kom heim til Íslands árið 1979, vann hann eitt ár sem verk- fræðingur hjá Ístaki á Grundartanga í Hvalfirði. Árið 1980 var Þórarinn ráðinn til Skipulagsstofu höfuðborg- stundakennari í samgöngutækni við Háskóla Íslands. Árið 1986 var Þórarinn ráðinn yfir- verkfræðingur á umferðardeild borg- arverkfræðings í Reykjavík og starf- aði þar til ársloka 1991. „Í þessu starfi fékk ég dýrmæta reynslu sem hefur komið að góðum notum. Veiga- mikill hluti af starfinu var að gera frumdrög að breytingum á gatna- skipulagi borgarinnar. Ég var einnig ráðgjafi Borgarskipulags við umferð- arskipulag á ýmsum stigum, alveg upp í endurskoðun aðalskipulags.“ Í ársbyrjun 1992 var Þórarinn ráð- inn bæjarverkfræðingur í Kópavogi og starfaði hann þar til ársloka 2006. „Bæjarverkfræðingsstarfið var mjög viðamikið. Íbúum bæjarins fjölgaði að jafnaði um 700 á ári og fram- kvæmdir við ný hverfi voru miklar og endurgerð eldri gatna var á fullu all- an tímann. Þetta voru spennandi tímar.“ 2004-2005 fékk Þórarinn námsleyfi og fór til Durham Univers- ity í Englandi, þaðan sem hann lauk MBA-námi. Í kringum aldamótin var hann annar af tveim fulltrúum Kópa- vogsbæjar í samvinnunefnd um svæðisskipulag höfuðborgarsvæð- isins. Í ársbyrjun 2007 hóf Þórarinn störf á Almennu verkfræðistofunni sem sviðsstjóri umferðar- og skipulags- sviðs. „Það er óvenjulegt að verk- fræðingar, sem hafa lengi verið í stjórnunarstöðum hjá því opinbera, fari undir lok starfsferils að vinna sem ráðgjafar á verkfræðistofu. Ég hefði ekki lagt í það ef ég hefði ekki farið í MBA-námið.“ Eftir hrunið 2008 drógust hönnunarverkefni á Ís- landsmarkaði verulega saman og var Þórarinn einn af frumkvöðlum þess að sækjast eftir hönnunarverkefnum í Noregi. „Það gekk svo vel að fá norsk verkefni að ég varð verkefna- stjóri í allt að 15 verkum á endanum.“ Árið 2013 sameinuðust verkfræði- stofurnar Almenna og Verkís undir nafninu Verkís. Eftir sameininguna starfaði Þórarinn aðallega sem verk- efnastjóri í norskum veghönnunar- verkefnum. Þórarinn var í prófnefnd mann- virkjahönnuða í allmörg ár. Þá var hann í nokkur ár fulltrúi Verkfræð- Þórarinn Hjaltason samgönguverkfræðingur – 75 ára Stórfjölskyldan Þórarinn og Halla ásamt börnum, tengdabörnum og barnabörnum á háskólasvæði University of Washington í Seattle. Skólabróðir Karls Bretakonungs Hjónin Þórarinn og Halla. Til hamingju með daginn Akureyri Berglind Lilja Þorbergs- dóttir fæddist 2. nóvember 2021 kl. 22.05 á Fjórðungssjúkrahúsinu á Akureyri. Hún vó 3.872 g og var 53 cm löng. Foreldrar hennar eru Þorbergur Ingi Jónsson og Eva Birgisdóttir. Nýr borgari Þín upplifun skiptir okkur máli Kringlan ... alltaf næg bílastæði Borðabókanir á www.finnssonbistro.is eða info@finnssonbistro.is Við tökum vel á móti þér Fjölbreyttur og spennandi matseðill þar sem allir finna eitthvað við sitt hæfi Skoðið matseðilinn á finnssonbistro.is

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.