Morgunblaðið - 04.10.2022, Síða 26
26 ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 4. OKTÓBER 2022
BREIÐABLIK – STJARNAN 3:0
1:0 Dagur Dan Þórhallsson 12.
2:0 Gísli Eyjólfsson 69.
3:0 Jason Daði Svanþórsson 89.
M
Dagur Dan Þórhallsson (Breiðabliki)
Jason Daði Svanþórsson (Breiðabliki)
Gísli Eyjólfsson (Breiðabliki)
Höskuldur Gunnlaugsson (Breiðabliki)
Oliver Sigurjónsson (Breiðabliki)
Andri Rafn Yeoman (Breiðabliki)
Haraldur Björnsson (Stjörnunni)
Sindri Þ. Ingimundarson (Stjörnunni)
Dómari: Þorvaldur Árnason/Vilhjálm-
ur A. Þórarinsson – 8.
Áhorfendur: 1.226.
_ Liðsuppstillingar, gul spjöld, viðtöl
og grein – sjá mbl.is/sport/fotbolti.
BESTA DEILDIN
Jóhann Ingi Hafþórsson
johanningi@mbl.is
Leikmenn Breiðabliks geta farið að
huga að því í hvaða tegund af
kampavíni þeir ætla að skála þegar
Íslandsmeistaratitilinn er kominn í
höfn. Liðið vann sannfærandi 3:0-
sigur á Stjörnunni á Kópavogsvelli í
Bestu deild karla í fótbolta í gær-
kvöldi og náði fyrir vikið átta stiga
forskoti á toppnum, þegar aðeins
fjórar umferðir eru eftir.
Ótrúlegir á Kópavogsvelli
Breiðablik hefur verið langbesta
liðið í deildinni til þessa og nokkuð
ljóst að liðið tapar ekki niður góðu
forskoti, þegar skammt er eftir.
Árangur liðsins á heimavelli hefur
verið magnaður á leiktíðinni og var
sigurinn í gærkvöldi sá ellefti í tólf
deildarleikjum liðsins á Kópavogs-
velli. Ríkjandi Íslands- og bikar-
meistarar Víkings úr Reykjavík eru
eina liðið sem hefur farið með stig
heim af vellinum í sumar, en þar fyr-
ir utan hafa Blikar verið fullkomnir
á heimavelli.
Leikurinn í gærkvöldi var ójafn og
aldrei spurning hvort liðið færi með
sigur af hólmi, sérstaklega eftir að
Dagur Dan Þórhallsson skoraði
fyrsta markið á 12. mínútu. Gísli
Eyjólfsson og Jason Daði Svanþórs-
son gulltryggðu sannfærandi sigur í
seinni hálfleik.
_ Blikinn Andri Rafn Yeoman
spilaði sinn 400. keppnisleik fyrir
Breiðablik í gærkvöldi og varð í leið-
inni yngsti leikmaðurinn til að ná
þeim áfanga fyrir íslenskt félag.
_ Eftir að hafa leikið 17 leiki í röð
í öllum keppnum án þess að skora
hefur Jason Daði Svansson skorað
þrjú mörk í síðustu tveimur leikjum.
Fátt getur
komið í veg
fyrir sigur Blika
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Sprettur Blikinn Jason Daði Svanþórsson tekur á rás upp kantinn á Kópa-
vogsvelli í gær. Stjörnumaðurinn Eggert Aron Guðmundsson er til varnar.
- Breiðablik með átta stiga forskot
- Miklir yfirburðir í nágrannaslagnum
Besta deild karla
Efri hluti:
Breiðablik – Stjarnan............................... 3:0
Staðan:
Breiðablik 23 17 3 3 58:23 54
KA 23 14 4 5 46:26 46
Víkingur R. 22 12 7 3 58:32 43
Valur 22 9 5 8 38:32 32
KR 23 7 10 6 37:35 31
Stjarnan 23 8 7 8 40:45 31
Neðri hluti:
Staðan:
Keflavík 23 9 4 10 42:42 31
Fram 23 6 10 7 47:53 28
ÍBV 22 4 8 10 33:44 20
Leiknir R. 23 5 5 13 23:52 20
FH 22 4 7 11 27:35 19
ÍA 23 3 6 14 26:56 15
England
Leicester – Nottingham Forest.............. 4:0
Staðan:
Arsenal 8 7 0 1 20:8 21
Manchester City 8 6 2 0 29:9 20
Tottenham 8 5 2 1 19:10 17
Brighton 7 4 2 1 14:8 14
Chelsea 7 4 1 2 10:10 13
Manchester Utd 7 4 0 3 11:14 12
Newcastle 8 2 5 1 12:8 11
Fulham 8 3 2 3 13:15 11
Liverpool 7 2 4 1 18:9 10
Brentford 8 2 4 2 15:12 10
Everton 8 2 4 2 7:7 10
Leeds 7 2 3 2 10:10 9
Bournemouth 8 2 3 3 6:19 9
Aston Villa 8 2 2 4 6:10 8
West Ham 8 2 1 5 5:9 7
Southampton 8 2 1 5 8:13 7
Crystal Palace 7 1 3 3 8:11 6
Wolves 8 1 3 4 3:9 6
Leicester 8 1 1 6 14:22 4
Nottingham F. 8 1 1 6 6:21 4
Pólland
Slask Wroclaw – Warta Poznan ............ 0:2
- Daníel Leó Grétarsson lék allan leikinn
með Slask sem er í 14. sæti af átján liðum
með 13 stig úr 11 leikjum.
Svíþjóð
Gautaborg – Elfsborg ............................. 1:3
- Hákon Rafn Valdimarsson lék allan leik-
inn með Elfsborg. Sveinn Aron Guðjohnsen
kom inn á í uppbótartíma.
Staðan:
Djurgården 24 14 6 4 46:19 48
Häcken 24 13 9 2 53:31 48
Hammarby 24 12 7 5 44:21 43
Malmö FF 24 12 5 7 33:23 41
Kalmar 24 12 5 7 29:20 41
AIK 24 11 8 5 38:30 41
Elfsborg 24 9 9 6 45:31 36
Gautaborg 24 11 3 10 32:27 36
Mjällby 24 8 9 7 23:24 33
Värnamo 24 8 7 9 29:38 31
Norrköping 24 7 7 10 32:33 28
Sirius 24 7 5 12 23:36 26
Varberg 24 6 7 11 21:37 25
Degerfors 24 5 6 13 24:44 21
Helsingborg 24 4 5 15 20:38 17
Sundsvall 24 3 2 19 21:61 11
Noregur
B-deild:
Kongsvinger – Sogndal .......................... 0:0
- Hörður Ingi Gunnarsson og Valdimar
Þór Ingimundarson léku allan leikinn með
Sogndal. Jónatan Ingi Jónsson kom inn á
sem varamaður á 75. mínútu.
Start – KFUM Ósló .................................. 3:2
- Bjarni Mark Antonsson kom inn á hjá
Start á 57. mínútu.
_ Efstu lið: Brann 72, Stabæk 50, Start 45,
KFUM Ósló 45, Sandnes Ulf 43, Kongs-
vinger 40, Ranheim 40, Sogndal 37,
Mjöndalen 36, Raufoss 35.
Bandaríkin
Nashville – Houston Dynamo................. 1:2
- Þorleifur Úlfarsson kom inn á hjá Hou-
ston á 90. mínútu.
0-'**5746-'
Olísdeild karla
Valur – Fram ........................................ 34:27
Staðan:
Valur 5 5 0 0 156:125 10
ÍBV 4 2 2 0 152:119 6
Fram 5 2 2 1 137:135 6
Haukar 4 2 1 1 112:109 5
Grótta 4 2 0 2 112:105 4
Stjarnan 4 1 2 1 114:110 4
ÍR 4 2 0 2 116:137 4
Afturelding 4 1 1 2 104:103 3
Selfoss 4 1 1 2 111:118 3
KA 4 1 1 2 105:115 3
FH 4 0 2 2 106:116 2
Hörður 4 0 0 4 114:147 0
Noregur
Elverum – Drammen .......................... 32:26
- Orri Freyr Þorkelsson lék ekki með El-
verum.
- Óskar Ólafsson skoraði 5 mörk fyrir
Drammen.
Þýskaland
B-deild:
Balingen – Motor Zaporozhye........... 33:32
- Oddur Gretarsson skoraði 3 mörk fyrir
Balingen en Daníel Þór Ingason var ekki
með.
$'-39,/*"
Bandaríska knattspyrnukonan Murphy Agnew var besti leikmaðurinn í 18.
og síðustu umferð Bestu deildar kvenna í fótbolta að mati Morgunblaðsins.
Murphy fékk tvö M fyrir frammistöðu sína með Þrótti í óvæntum sigri
gegn Breiðabliki, 3:2, í lokaumferðinni á laugardaginn. Hún skoraði fyrsta
mark Þróttar og lagði upp annað markið fyrir Ólöfu Sigríði Kristinsdóttur.
Þær Ólöf og Danielle Marcano, samherjar Murphy, fengu líka 2 M fyrir
sína frammistöðu og þá einkunn fengu líka Olga Sevcova og Ameera Huss-
en, leikmenn ÍBV, eftir sigur á Aftureldingu, 3:0.
Þessar fimm eru allar í síðasta úrvalsliði umferðar á tímabilinu 2022 sem
má sjá hér fyrir ofan. vs@mbl.is
18. umferð
í Bestu deild kvenna 2022
Hversu oft leikmaður
hefur verið valinn í lið
umferðarinnar
23-4-3
Cornelia Sundelius
KR
Olga Sevcova
ÍBV
Katrín Ásbjörnsdóttir
Stjarnan
Murphy Agnew
Þróttur R.Aníta Ýr
Þorvaldsdóttir
Stjarnan
Ameera Hussen
ÍBV
Ólöf Sigríður
Kristinsdóttir
Þróttur R.
Áslaug Dóra
Sigurbjörnsdóttir
Selfoss
Anna María
Baldursdóttir
Stjarnan
Danielle Marcano
Þróttur R.
Anna Rakel Pétursdóttir
Valur
2
4
4
2 6
4
3
5
Murphy var best í 18. umferðÍslands- og bikarmeistarar Vals eru
enn með fullt hús stiga eftir fimm
leiki í Olísdeild karla í handbolta.
Hlíðarendaliðið vann 34:27-sigur á
grönnum sínum í Fram á heimavelli
í gærkvöldi. Staðan í hálfleik var
16:15, Val í vil, og voru heimamenn
sterkari í seinni hálfleik.
Valsmenn urðu meistarar með
afar sannfærandi hætti á síðustu
leiktíð og hafa haldið áfram á sömu
braut eftir sumarfrí.
Eina spurningarmerkið virðist
vera þátttaka Valsmanna í riðla-
keppni Evrópudeildarinnar og
hvaða áhrif aukið álag mun hafa á
hópinn.
Þorgils Jón Svölu Baldursson og
Róbert Aron Hostert voru marka-
hæstir hjá Val í gær með sex mörk
hvor og Kristófer Dagur Sigurðs-
son gerði slíkt hið sama fyrir Fram,
sem tapaði sínum fyrsta leik á tíma-
bilinu.
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Átök Valsmaðurinn Benedikt Gunnar Óskarsson sækir að marki Framara
og fær óblíðar móttökur í Origo-höllinni á Hlíðarenda í gærkvöldi.
Fær eitthvað
stöðvað Valsmenn?
Jasmín Erla Ingadóttir úr Stjörn-
unni var í gær valin í A-landsliðs-
hópinn í knattspyrnu fyrir úrslita-
leikinn um sæti í lokakeppni
heimsmeistaramóts kvenna gegn
Belgíu eða Portúgal. Hún kemur í
stað Elínar Mettu Jensen sem hefur
ákveðið að leggja skóna á hilluna.
Jasmín er 24 ára gömul og varð
markadrottning Bestu deildar
kvenna í ár með því að skora ellefu
mörk fyrir Stjörnuna. Hún hefur
leikið 110 leiki í efstu deild og skor-
að 28 mörk og lék áður 23 leiki með
yngri landsliðum Íslands.
Jasmín í lands-
liðshópinn
Morgunblaðið/Eggert
Nýliði Jasmín Erla Ingadóttir er
komin í landsliðshóp Íslands.
Elín Metta Jensen og Ásgerður
Stefanía Baldursdóttir sem báðar
fögnuðu Íslandsmeistaratitlinum í
knattspyrnu með Val á laugardag-
inn hafa báðar tilkynnt að þær séu
búnar að leggja skóna á hilluna. El-
ín Metta er tíunda markahæsta
konan í efstu deild frá upphafi með
132 mörk, öll fyrir Val, og Ásgerð-
ur er sú fjórða leikjahæsta í deild-
inni frá upphafi með 262 leiki, þar
af 218 fyrir Stjörnuna. Elín Metta
er 27 ára gömul og lék 62 landsleiki
en Ásgerður er 35 ára og lék 10
landsleiki.
Ásgerður og
Elín eru hættar
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Meistarar Ásgerður Stefanía Bald-
ursdóttir og Elín Metta Jensen.