Morgunblaðið - 04.10.2022, Síða 28

Morgunblaðið - 04.10.2022, Síða 28
28 MENNING MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 4. OKTÓBER 2022 Ljósmyndir Rutar og Silju Skipholti 31 • 105 Reykjavík • Sími 568 0150 Opið virka daga 10-17 • www.rut.is • Ljósmyndir Rutar og Silju Einstök minning Karlakór Reykjavíkur hefur 96. starfsár sitt í kvöld kl. 20 með fyrstu tónleikum af fernum í Háteigs- kirkju. Þeir næstu verða haldnir annað kvöld kl. 20, þeir þriðju fimmtudaginn 6. október kl. 20 og þeir síðustu laugardaginn 8. október kl. 15. Vegna samkomutakmarkana undanfarinna ára hefur ekki verið haldinn viðburður á vegum kórsins frá því á aðventu árið 2019 og því afar hátíðleg stund fyrir kór- inn að geta loks sungið aftur á tónleikum. Haft er eftir Friðriki S. Krist- inssyni, stjórn- anda kórsins til 32 ára, í tilkynn- ingu, að frábært verði að halda í fyrsta sinn tónleika í Háteigskirkju, sem sé bæði hljóm- fögur og kirkjuskipið einkar fallegt. Er þess getið til gamans að í kring- um árið 1970 hafi allar hljómplötur kórsins, sem SG gaf út, verið hljóð- ritaðar í kirkjunni. Vor að hausti Hefðbundið starf karlakórsins snýst að mestu um undirbúning fyr- ir aðventutónleika í Hallgrímskirkju og vortónleika en kórinn syngur einnig reglulega á landsbyggðinni og erlendis. Segir í tilkynningu að ekki hafi tekist að halda tónleika í vor og því megi líta á tónleikaröðina, sem hefst í dag, sem „vortónleika að hausti“. Þá hafi nýliðun í kórnum verið góð undanfarin ár, þrátt fyrir hömlur á starfseminni. Samkvæmt lögum kórsins telst söngmaður ekki fullgildur félagi fyrr en hann hefur sungið á vortónleikum og má því reikna með að nokkrir kórmenn geri sig fullgilda með þess- um vortónleikum að hausti. Jóna aðalgestur Aðalgestur kórsins að þessu sinni er Jóna G. Kolbrúnardóttir sópran en hún útskrifaðist með meistara- gráðu frá Óperuakademíunni við Konunglegu óperuna í Kaupmanna- höfn og hefur komið víða fram, þrátt fyrir ungan aldur. Af einstaka tónleikum sem hún hefur komið fram á má nefna Klass- íkina okkar í fyrra á RÚV og hlut- verk hennar sem Papagena í Töfra- flautunni sem sett var upp í Kaupmannahafnaróperunni fyrir tveimur árum. „Karlakór Reykja- víkur er sannur heiður að samstarfi við þessa ungu listakonu í fjórum fal- legum einsöngslögum,“ segir í til- kynningu um þennan raddfagra aðalgest. Kórinn hefur einnig á að skipa mörgum góðum tenórum og einn, Ari Jóhann Sigurðsson, mun syngja einsöng í tveimur lögum. Peter Maté, margverðlaunaður píanóleik- ari og prófessor við Listaháskóla Íslands, mun leika á flygilinn í kirkj- unni við söng kórsins. Fjölbreytt og spennandi Efnisskrá tónleikanna er sögð bæði fjölbreytt og spennandi og byggð á þekktum íslenskum perlum í bland við norræn sönglög og útúr- dúra til Eystrasaltsríkja og suður- ríkja Bandaríkjanna. „Óneitanlega litast hún af vor- komu og hækkandi sól, enda er það sígilt viðfangsefni sem á alltaf við,“ segir í tilkynningu. Að tónleikaröð lokinni taki við undirbúningur fyrir næsta verkefni. „Í ár erum við afar spenntir fyrir samstarfi við frændur okkar í Tórshavnar Manskór. Við stefnum að því að syngja inn aðvent- una með þeim í Færeyjum og taka á móti þeim 10.-11. desember á sam- eiginlegum aðventutónleikum í Hall- grímskirkju,“ segir í tilkynningu. Nánari upplýsingar um viðburð- inn má finna á fésbókarsíðu kórsins og á miðasöluvefnum Tix.is. Einnig verða seldir miðar í kirkjunni. Vortónleikar að hausti - Karlakór Reykjavíkur heldur ferna tónleika - Sópransöngkonan Jóna G. Kolbrúnardóttir er aðalgestur - Vortónleikar sem ekki voru haldnir eru nú haldnir að hausti og efnisskráin litast af því Fjölmennur Karlakór Reykjavíkur hefur á að skipa miklum fjölda karla, eins og sjá má. Hér má sjá kórinn fyrir aðventutónleika í Hallgrímskirkju. Friðrik S. Kristinsson Kvikmyndaleikstjórarnir Albert Serra og Alexandre O. Philippe hlutu á föstudaginn var heiðurs- verðlaun Alþjóðlegrar kvikmynda- hátíðar í Reykjavík, RIFF, fyrir framúrskarandi listræna sýn, í Húsi máls og menningar. Vigdís Finn- bogadóttir, fyrrverandi forseti Ís- lands, veitti þeim verðlaunin. Phil- ippe er svissneskur og Serra spænskur og hafa báðir hlotið mikla viðurkenningu fyrir störf sín á er- lendum vettvangi. Nokkrar myndir þeirra eru sýndar á RIFF, sem hófst á fimmtudaginn var, þeirra á meðal ný mynd Philippes sem nefnist Lynch/Oz og var frumsýnd á Tri- beca-kvikmyndahátíðinni í sumar. Dagskrá RIFF má finna á riff.is. Morgunblaðið/Eggert Heiður Kvikmyndaleikstjórarnir Alexandre O. Philippe, lengst til vinstri, og Albert Serra, lengst til hægri, með Vigdísi Finnbogadóttur, fyrrverandi forseta Íslands, og Hrönn Marinósdóttur, stjórnanda RIFF. Serra og Philippe heiðraðir Ítalskar Leikstjórinn Tizza Covi og ítalska leikkonan Vera Gemma. Fjölbreytileiki er yfirskrift sýningar sem Ninný – Jónína Magnúsdóttir opnar í Gallerí Gróttu við Bókasafn Seltjarnarness á Eiðistorgi í dag, þriðjudag, kl. 17. Ninný nam við Myndlista- og handíðaskóla Íslands og hefur að auki sótt sér menntun hjá listamönn- um á Íslandi, Ítalíu, Bandaríkjunum, Danmörku og Svíþjóð. Hún sat í stjórn Norræna vatnslitafélagsins í fimm ár sem fulltrúi Íslands. Hún hefur haldið margar einkasýningar og tekið þátt í samsýningum á Íslandi og erlendis. Í tilkynningu segir að Ninný hafi gaman af fjölbreytni í verkum sínum og vinni í ýmsa miðla, olíu, vatnsliti og blandaða tækni. Í verkunum finnst henni skipta máli litaflæðið, ljósið og andstæðurnar. Hún málar fígúratíf málverk og abstrakt. Ninný sýnir myndverk í Gallerí Gróttu Fígúratíft Hluti eins af myndverkum Ninnýjar á sýningunni í Gallerí Gróttu.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.