Morgunblaðið - 04.10.2022, Qupperneq 29
MENNING 29
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 4. OKTÓBER 2022
Nánari upplýsingar um sýningartíma á sambio.is
TRYGGÐU ÞÉR
MIÐA INNÁ
Indie wire
UPPLIFÐU STÆRSTU MYND ALLRA TÍMA Í
STÓRKOSTLEGUM 4K MYNDGÆÐUM OG
UPPFÆRÐRI ÞRÍVÍDD.
SÝND Í 3D Í SAMBÍÓUNUM EGILSHÖLL
SÝND Í TAKMARKAÐAN TÍMASÁLFRÆÐITRYLLIR SEM SÍFELLT KEMUR Á ÓVART
EKKI MISSA AF ÞESSARI Í BÍÓ
Telegraph
Fjölmargir og ólíkir fjölmiðlar út
um heimsbyggðina hafa að vanda
fjallað um nýjustu plötu Bjarkar
Guðmundsdóttur en Fossora er sú
tíunda sem hún sendir frá sér. Orð-
ið fossora er nýyrði úr hugarheimi
Bjarkar og er kvenkynsmynd lat-
neska orðsins fossore sem þýðir
grafari. Fossora er hugleiðing um
rætur, jarðtengingu, ást og fjöl-
skyldu sett í samhengi við neðan-
jarðarheim sveppa. Björk er upp-
tökustjóri á plötunni og Bergur
Þórisson sá um upptöku. Meðal
þeirra sem komu að upptökum eru
börn Bjarkar, Sindri og Ísadóra,
klarinettusextettinn Murmuri,
Hamrahlíðarkórinn, Emilie Nicol-
as, og Kasimyn; í hljóðheiminum
eru áberandi bassaklarinettur,
strengir og básúnur. Platan fjallar
talsvert um arfleifð en tvö laganna
eru samin í minningu móður Bjark-
ar, Hildar Rúnu Hauksdóttur, sem
lést 2018.
Í umsögn aðalgagnrýnanda dæg-
urtónlistar The New York Times,
Jons Pareles, segir að Fossora geti
verið þung plata, þyrnótt og áköf,
en það að dýfa sér í verkið sé þess
virði. Plötunni er ekki ætlað að
vera við alþýðuskap, skrifar Pere-
les, og það sé erfitt að sjá þennan
hugarspuna Bjarkar fyrir sér á
sviði, þótt hún kunni mögulega að
finna leið til þess, en innri heimar
Bjarkar séu æði víðáttumiklir.
„Hljóðrænt ævintýr“
Í vali NPR, National Public Rad-
io, í Bandaríkjum á dögunum, á
bestu útgáfunum um þessar mund-
ir, segir að platan samræmist vel
því sem aðdáendur Bjarkar þekki
og elski hana fyrir: „Hún er braut-
ryðjandi í því að leiða hlustendur
inn í hljóðrænt ævintýr.“ Þá er
platan sögð í senn opinská en horfa
inn á við.
Í Pitchfork er Björk sögð „aftur
jarðtengd, leitar eftir von í myrkr-
inu, sveppum og mæðraveldi, sem
hún finnur í bassaklarínettum og
gabber-bítum“. Þá segir í Rolling
Stone-tímaritinu að á Fossora sé
„Björk eins Bjarkarleg og hægt er,
og það er jákvætt“. Platan er sögð
„yfirgripsmikil, krefjandi og fallega
mannleg“ og að hljóðrænt lands-
lagið sé ennþá risastórt og ógn-
vekjandi, „bæði framandlegt og
kunnuglegt, uppfullt af útsetn-
ingum frá öðrum heimi, jarð-
skorpu-bítum og hrjúfum laglínum
sem kalla fram heimaland hennar,
Ísland“.
Í The Atlantic segir að platan sé
„hlý, seðjandi og jafnvel ávanabind-
andi“, hún sé að hluta til „sjálfs-
ævisaga söngvaskálds, að hluta
heimspekileg ritgerð og að hluta
dansævintýr, platan skipar sess
meðal hennar mest gefandi verka“.
Loks segir í Consequence að
Fossora sé „uppfull af pottþéttri,
glæsilegri hljóðfæraskipan og ljóð-
rænu“ og sé líka „fallegt kaos“.
Ljósmynd/Viðar Logi
Tónskáldið Erlendir rýnar segja
plötu Bjarkar meðal annars þyrn-
ótta, ákafa og glæsilega.
„Eins Bjarkar-
leg og hægt er“
- Jákvæð umfjöllun erlendra miðla um
nýja plötu Bjarkar, Fossora, hennar 10.
» Leopoldstadt, eftir breska
leikskáldið Tom Stoppard í
leikstjórn Patricks Marber, var
frumsýnt í Longacre-leikhúsinu á
Broadway um helgina. Leikritið
hlaut bresku Olivier-leiklistar-
verðlaunin sem besta nýja leikrit
árins 2020 en Stoppard hefur á
löngum og farsælum ferli skrifað
yfir 30 verk. Leopoldstadt þykir
persónulegasta leikrit hans þar
sem hann skoðar uppruna sinn,
en hann er gyðingaættar.
Leopoldstadt eftir Tom Stoppard frumsýnt á Broadway
Leikskáldið Steven Spielberg leikstjóri og Tom
Stoppard, höfundur leikritsins, létu sig ekki vanta.
Ekki benda á mig! Breski tónlistarmaðurinn Mick Jagger var
mögulega að biðjast undan athyglinni á rauða dreglinum.
AFP/Roy Rochlin
Glæsileg Bandaríska leikonan Christine Baranski mætti glöð.
Reffilegur Bandaríski leikarinn Ethan
Hawke var reffilegur á frumsýningunni.
Skapandi hjón Tina Fey og Jeff Richmond eru bæði starf-
andi leikarar og framleiðendur í skemmtanaheiminum.