Morgunblaðið - 08.10.2022, Síða 1
Þakklátur þjóðinni
Fellur ekkiverk úr
hendi
Helgi Björnsson
9. OKTÓBER 2022
SUNNUDAGUR
Fasisti eða pópúlisti?Kosningasigur GiorgiuMeloni á Ítalíu hefur víðavakið hörð viðbrögð. 20
Hann er sann-kallaður þúsund-þjalasmiður,Sigmundur V.Kjartansson,sem smíðar ogtálgar alla
daga. 22
Hryllileg
aðkoma
Mikill hryllingur og eyði-legging blasa við í borginniÍsjúm, sem Úkraínuher hefurfrelsað úr klóm Rússa. Frétta-ritari Morgunblaðsins og ljós-myndari voru þar á ferð. 10
L A U G A R D A G U R 8. O K T Ó B E R 2 0 2 2
.Stofnað 1913 . 236. tölublað . 110. árgangur .
Laugavegi 174, 105 Rvk. www.hekla.is/id5
Alrafmagnaður
Fjórhjóladrifinn fjölskyldubíll
Verð frá 7.690.000 kr.
ER BARA
FARVEGUR
FYRIR LISTINA
DÍANA ORÐIN
FYRIRLIÐI
Í ÞÝSKALANDI
ÞRIÐJA TÍMABILIÐ 48ROSSY DE PALMA 50
Lögreglan í Úkraínu hefur fundið
lík 534 almennra borgara á svæðinu
sem úkraínski herinn hefur náð úr
höndum Rússa frá því í byrjun
september. Serhí Bolvínov, aðstoð-
arlögreglustjóri í Karkív-héraði,
sagði á blaðamannafundi að þar á
meðal væru lík 226 kvenna og 19
barna.
Flest fundust líkin, 447, í fjölda-
gröf við borgina Ísjúm. Jón Gauti
Jóhannesson, fréttaritari Morgun-
blaðsins, var ásamt Oksönu Jóhann-
esson ljósmyndara í Ísjúm og fór að
fjöldagröfinni. Frásögn þeirra birt-
ist í máli og myndum í Sunnudags-
blaðinu, sem fylgir Morgunblaðinu í
dag.
Lögregla kveðst hafa fundið 22
staði sem grunur leiki á að hafi ver-
ið notaðir til pyntinga í Karkív-hér-
aði. Í greininni er lýsing á heimsókn
í fylgd lögreglu í pyntingarklefa í
lögreglustöð í borginni Ísjúm: „Bar-
efli og gasgrímur voru mikið not-
aðar, gasgrímurnar til að kalla fram
köfnunareinkenni þegar fórnarlömb
anda títt undir barsmíðum. Einnig
bera fórnarlömb því vitni að raflost
hafi verið algeng pyntingaraðferð
hjá hernámsyfirvöldum.“
Í furuskógi skammt frá borginni
komu Jón Gauti og Oksana að
fjöldagröf þar sem almannavarnir
Úkraínu voru að grafa upp lík. Þau
spurðu yfirmann lögreglunnar á
svæðinu hvaða sjón hefði verið erf-
iðust í uppgreftrinum: „Við opnuð-
um gröf í gær. Það voru einungis
líkamshlutar þar. Fótur af korna-
barni er það hryllilegasta sem ég
hef séð til þessa.“
Brýnt að samstaðan haldi
Arkady Rzegocki, yfirmaður
pólsku utanríkisþjónustunnar, segir
í samtali við Morgunblaðið í dag að
það sé mjög brýnt að samstaða
vesturveldanna haldi og að Rússar
séu áfram beittir þrýstingi því það
sé allsherjarstríð í gangi gegn fólki,
gegn börnum og óbreyttum borg-
urum, og enginn geti samþykkt
slíkt á 21. öld. »18, 24 og 26
Fleiri hundruð lík
- Mikil eyðilegging á svæðum sem náðst hafa aftur í Úkraínu
- Fjöldi staða fundist þar sem Rússar sæta grun um pyntingar
Ellefu þingmenn fóru nýlega til
Danmerkur og Noregs þar sem þeir
kynntu sér meðal annars málefni
flóttamanna.
Málaflokkurinn úr böndunum
Eyjólfur Ármannsson, 1. varafor-
maður allsherjar- og menntamála-
nefndar, segir málaflokkinn virðast
hafa farið úr böndunum hér á landi.
„Við þurfum að standa við okkar
alþjóðlegu skuldbindingar, líkt og
þessar þjóðir gera, og tryggja að fólk
sem sækir um vernd fái réttláta
málsmeðferð og uppfylli alþjóðleg
skilyrði til að fá verndina,“ segir
Eyjólfur í samtali við Morgunblaðið.
»4 og 11
Helgi Bjarnason
Guðni Einarsson
Íbúum höfuðborgarsvæðisins hefur
fjölgað um tæplega fimm þúsund á
síðustu tíu mánuðum. Þrátt fyrir það
er fjölgunin á höfuðborgarsvæðinu
undir meðaltali landsins, eða 2,1% á
móti 2,8% á landsvísu. Alls fjölgaði
íbúum landsins um 9.021 síðustu tíu
mánuði samkvæmt samantekt Þjóð-
skrár. Íbúar eru nú 385 þúsund alls.
Rekja má hluta þessarar fjölgunar
til flóttafólks en eins og fjallað var
um í Morgunblaðinu í gær hefur
2.121 umsókn um alþjóðlega vernd
hér á landi verið samþykkt á fyrstu
átta mánuðum ársins.
Fjölgar um níu
þúsund á landsvísu
- Straumur flóttafólks ofan á fólksfjölgun
Starfsfólk Fiskfélagsins dó ekki ráðalaust í
rafmagnsleysi í gær og kveikti á kertum til að
sjá handa skil. Gekk á ýmsu í atvinnulífi sem
svo tæknivætt er orðið að rafmagn er frum-
forsenda. Ringulreið myndaðist við Lækjar-
götu þegar umferðarljósa naut ekki við og
rafræn greiðslukerfi gengu annaðhvort á
vararafmagni eða alls ekki. Til að mynda
hlóðu kaupmenn posa í bifreiðum sínum og
Ólafur Rúnar Þórhallsson hjá Krónunni sagði
mbl.is hvernig kaupin gengju fyrir sig á eyr-
inni þegar rafmagnið færi þar á bænum.
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Kertaljós og
klæðin svört