Morgunblaðið - 08.10.2022, Page 2

Morgunblaðið - 08.10.2022, Page 2
2 FRÉTTIR Innlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 8. OKTÓBER 2022 www.kofaroghus.is - Sími 553 1545 TIL Á LAGER Ítarlegarupplýsingarog teikningarásamtýmsumöðrumfróðleik STAPI - 14,98 fm Tilboðsverð 779.000kr. 25% afsláttur BREKKA34 - 9 fm Tilboðsverð 489.000kr. 25% afsláttur NAUST - 14,44 fm Tilboðsverð 539.000kr. 30% afsláttur VANTAR ÞIGPLÁSS? Afar einfalt er að reisa húsin okkar. Uppsetning tekur aðeins einn dag TILBOÐÁGARÐHÚSUM! Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 569 1100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Andrés Magnússon andres@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is Viðskipti Gísli Freyr Valdórsson vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Winkel Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf. Helgi Bjarnason helgi@mbl.is „Það þarf að loka öllum dyrum og koma í skjól hlutum sem geta fokið þótt við séum ekki með nein trampólín hér. Svo tökum við lömb- in inn en ærnar fá að vera lengur úti,“ segir Gunnar Einarsson, bóndi á Daðastöðum í Núpasveit við Öxarfjörð, um undirbúning fyrir norðanstorm sem spáð er á Norður- og Norðausturlandi á morgun. Veðurstofan hefur gefið út við- varanir vegna norðanhvassviðris og storms um allt land, á sunnudag og fram á mánudag. Appelsínugul við- vörun er fyrir Norðurland og Norð- austurland en gul viðvörun fyrir aðra hluta landsins. Í slíkum óveðrum fer rafmagnið gjarnan af, eins og gerðist til að mynda í síðasta mánuði, í desember 2019 og september fyrir áratug. Rarik hefur gert átak í að end- urnýja dreifikerfi á viðkvæmum svæðum og lagt strengina í jörð. Samt er það oft rafmangsleysið sem kemur fólki verst, sérstaklega þar sem hús eru kynt með rafmagni, sem og á kúabúum, enda ganga mjaltatækin og mjaltaþjónarnir fyr- ir rafmagni. Landsnet, sem sér um megin- flutningskerfi raforku, hefur virkjað viðbragð vegna veðurspárinnar. Fundað hefur verið með almanna- vörnum og viðbragðsaðilum á svæð- um þar sem veðrið verður verst. Steinunn Þorsteinsdóttir upplýs- ingafulltrúi segir að einnig hafi ver- ið leitað ráða hjá veðurfræðingi um það hvar líklegast sé að áraunin á kerfið verði mest. Nú sé verið að skoða hvort mannskapur og tæki verði færð að þessum svæðum. Göngum á að vera lokið og allt fé komið niður af heiðum. Þó er enn verið að slátra. Gunnar á Daðastöð- um segir að reynslan hafi kennt honum að rétti tíminn til að taka lömb á hús sé í byrjun nóvember og ærnar fyrst í desember. Þá hafi reynslan kennt honum að ánum sé yfirleitt óhætt á láglendi. „Maður vonar það besta“ „Maður vonar það besta. Ekki ætti að vera hætta á miklum snjó þegar óveður gerir svona snemma og því ekki líkur á stórskaða. En vindurinn getur vissulega haft áhrif,“ segir Gunnar. Þingeyskir bændur voru í gær að safna búfénaði sínum heim að bæj- um til þess að geta hýst hann, ef þörf krefði. Þeir segja fréttaritara Morgunblaðsins að þetta velti mikið á hitastiginu og ef frysti geti sett niður mikinn snjó á skömmum tíma. Morgunblaðið/Atli Vigfússon Við öllu búinn Þráinn Ómar Sigtryggsson, bóndi á Litlu-Reykjum í Reykja- hverfi, náði í hrútana í gær. Bændur vona það besta fyrir komandi óveður. Bændur smala fé heim að húsum og hýsa lömbin - Viðbúnaður vegna slæmrar spár „Æfingin gekk mjög vel og allir fóru sáttir en lúnir heim,“ segir Ásgeir Guðjónsson, sprengjusérfræðingur hjá Landhelgisgæslunni, um æf- inguna Northern Challenge sem lauk sl. fimmtudag. Þar æfðu sprengjusérfræðingar frá 14 ríkjum NATO viðbrögð við hryðjuverkum en þetta var í 21. skiptið sem slík æf- ing fór fram hér á landi. Hún fór að mestu fram á öryggissvæðinu á Keflavíkurflugvelli. Að þessu sinni voru aftengdar um 400 sprengjur á tíu dögum. Æfingin er jafnan umfangsmikil og margvíslegur tækjabúnaður nýtt- ur til hennar. Hingað til lands voru fluttir tólf 20 feta gámar með frakt- skipi. Í þeim voru m.a. tveir bryn- varðir sprengjuleitarbílar frá hol- lenska og þýska hernum, sex óbrynvarðir bílar, málmleitartæki, köfunarbúnaður, sérstakir sprengjugallar, hjálmar og vesti, svo fátt eitt sé nefnt. Til landsins komu einnig átta herflutningavélar með mannskap og búnað. Hátt í 100 bílar voru teknir á leigu vegna æfingarinnar og um 350 manns gistu á hótelum á Suður- nesjum og höfuðborgarsvæðinu. Að sögn Ásgeirs eru brynvörðu drekarnir notaðir til að flytja mann- skap gegnum átaka- og sprengju- svæði. „Þeir eru ekki vopnum búnir en hugsaðir sem öryggishjúpur fyrir sprengjusérfræðingana,“ segir Ás- geir en stærri bryndrekinn, frá hol- lenska hernum, er um 12 tonn að þyngd. Ásgeir segir engin óhöpp hafa orðið en æfingin gefi sveitunum gott tækifæri til að yfirfara og bæta verkferla og vinnubrögð. Sveitir NATO aftengdu 400 sprengjur á 10 dögum - Æfðu viðbrögð við hryðjuverkum - Umfangið mikið Ljósmyndir/Landhelgisgæslan Bryndreki Öflugt tæki frá hollenska hernum var flutt hingað með skipi. Æfing Skotheldur sprengjuleitar- bíll frá þýska hernum. Reykjavíkurborg hefur samþykkt tillögu borgarstjóra um 321,2 millj- óna króna viðbótarframlag til Strætó fyrir 2022. Þá hefur Dagur B. Eggertsson borgarstjóri svarað bréfi Salvarar Nordal, umboðsmanns barna, frá því í september, þar sem umboðs- maður ræddi tugprósenta hækkun fargjalda ungmenna og spurði hvernig sveitarfélögin teldu hana samræmast bestu hagsmunum barna, en Morgunblaðið fjallaði ný- lega um hækkunina. Í svari sínu kvað borgarstjóri Strætó hafa glímt við ærinn rekstrarvanda eftir faraldurinn og ríkisvaldið lítt stutt við bakið á almenningssamgöngum. Þar sem umboðsmaður hefði sýnt málefnum almenningssamgangna mikla athygli væri hér með óskað eftir því að umboðsmaður talaði máli þeirra við stjórnvöld og Al- þingi í nafni barna og sameigin- legrar framtíðar allra kynslóða. Borgin veitir Strætó viðbótarframlag „Umræður dagsins hafa verið afar gagn- legar, enda var dagskráin og umræðuefnin fjölbreytt,“ segir Bóas Hallgrímsson, fram- kvæmdastjóri Hjallastefnunnar. Rösklega 500 manns komu saman í gær á árlegri haust- stefnu Hjallastefnunnar sem rekur 15 leik- skóla og þrjá grunnskóla í alls 11 sveitar- félögum, þar á meðal í Hafnarfirði þar sem haustráðstefnan var haldin. Hún hófst á því fólk myndaði kærleikshring á Víðistaðatúni. Þar var stofnandinn Margrét Pála Ólafsdóttir með gítarinn og saman tók fólk lagið. Morgunblaðið/Arnþór Birkisson Kærleikshringur myndaður á Víðistaðatúni

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.