Morgunblaðið - 08.10.2022, Page 10
10 FRÉTTIR
Innlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 8. OKTÓBER 2022
IB ehf | Fossnes A | 800 Selfoss | ib.is
Nánari upplýsingar ib.is
Ábyrgð og þjónusta fylgir öllum nýjum bílum frá IB
Sími 4 80 80 80
25 ára reynsla
JEPPABREYTINGAR
VERKSTÆÐI
VARAHLUTIR
SÉRPANTANIR
RYÐVÖRN
að eru ekki allir
mjólkursýrugerlar eins!
ÞARMAFLÓRAN
ER LYKILLINN AÐ HEILSUNNI
PROBI® vörurnar fást í apótekum, heilsuverslunum og stórmörkuðum.
Helgi Bjarnason
helgi@mbl.is
Fyrirtækið Grænir skátar verður
fyrir miklu tekjutapi ef áform um
óbreytt skilagjald fyrir einnota
umbúðir drykkjarvara verða að
veruleika. Jafnframt skerðir þetta
verulega þann fjárhagslega stuðn-
ing sem skátahreyfingin á Íslandi
nýtur af rekstri Grænna skáta.
Grænir skátar safna flöskum og
dósum af 140 grenndarstöðvum á
höfuðborgarsvæðinu og Suður-
landi, reka móttökustöð fyrir End-
urvinnsluna og þjónusta hótel,
veitingastaði og fleiri fyrirtæki.
Umbúðir sem þar falla til eru sótt-
ar og flokkaðar gegn því að Græn-
ir skátar fái hluta af skilagjaldinu.
Verða af 15-20 milljónum
Kristinn Ólafsson, framkvæmda-
stjóri Grænna skáta, segir að
fyrirtækið sé með í vinnu 35 ein-
staklinga með skerta starfsgetu í
verkefni Vinnumálastofnunar, at-
vinnu með stuðningi. „Þetta er of-
boðslega gott verkefni þar sem
fólk, sem fær ekki vinnu á almenn-
um vinnumarkaði vegna fötlunar
sinnar, kemur í vinnu og skjól hjá
okkur, fær greidd full laun og er
þátttakendur á vinnumarkaði,“
segir Kristinn.
Alls eru 40 starfsmenn hjá
Grænum skátum. Kristinn segir að
sú stefna sem boðuð er í laga-
frumvarpi, að hækka ekki skila-
gjaldið til samræmis við verð-
lagsþróun eins og Endurvinnslan
hefur lagt til, úr 18 krónum í 20,
hafi mikil áhrif á starfsemina.
Fyrirtækið verði af 15-20 milljón-
um króna á ári. Á sama tíma
hækki allur kostnaður við að reka
vinnustaðinn og þjónustuna, laun,
rekstrarkostnaður bíla og annað.
Fleiri reka dósasöfnun af þessu
tagi, svo sem Dósasel í Reykja-
nesbæ, og félög úti á landi safna
einnig umbúðum í fjáröflunar-
skyni.
Grænir skátar reka jafnframt
móttökustöð fyrir Endurvinnsluna
þar sem fólk getur komið með dós-
ir og fengið skilagjaldið greitt.
Kristinn segist sjá að þessar
tekjur skipti fjölmarga máli. Til
dæmis komi margir í lok mánaðar
til að reyna að láta enda ná saman
í heimilisrekstrinum.
Allur hagnaður af rekstri
Grænna skáta fer til eigandans,
Bandalags íslenskra skáta, og
nýtist þannig til að byggja upp
skátastarf í landinu. Segir Krist-
inn að hreyfingin hafi orðið fyrir
áföllum í kórónuveirufaraldrinum.
Svo vel hafi viljað til að flestir Ís-
lendingar hafi verið á landinu og
mikið af umbúðum því fallið til.
Það hafi bjargað fjárhag Banda-
lagsins.
„Við viljum halda áfram að skila
10-20 milljónum á ári til skáta-
starfsins. Til þess að það geti
gerst þarf skilagjaldið að fylgja
verðlagsþróun. Við höfum trú á að
þetta sé skilningsleysi hjá stjórn-
völdum og þegar menn átti sig á
heildarmyndinni muni viðhorfið
breytast. Skilagjald, sem lagt er á
umbúðir og neytendur fá síðan
endurgreitt þegar þeir skila um-
búðunum, er ekki ástæða verð-
bólgunnar,“ segir Kristinn.
Mikilvægt umhverfismál
Hann bætir því við að skila-
gjaldið sé mikilvægt umhverfis-
mál. Það þurfi að fylgja verð-
lagsþróun til þess að hvati til
endurvinnslu umbúðanna verði
áfram til staðar og Íslendingar
verji þá einstöku stöðu sem þeir
hafi náð í því efni.
Skátar verða af miklum tekjum
- Ríkið vill ekki hækka skilagjald á dósum og flöskum en kostnaður við söfnun og flokkun hækkar
- Grænir skátar og fleiri reka fjölmenna vinnustaði við flokkun fyrir fólk með skerta starfsgetu
Morgunblaðið/Eggert
Flokkunarstöð Margir fá vinnu við að flokka dósir og flöskur fyrir Græna skáta. Hér er færibandavinnan á fullu.
„Alþýðusamband Íslands er eitt það
dýrmætasta sem launafólk á Íslandi
á. Að setja það baráttulaust í hend-
ur fólks sem lætur eigin valdahags-
muni ganga fyrir hagsmunum al-
menns félagsfólks væri
ámælisvert,“ segir Ólöf Helga
Adolfsdóttir, ritari Eflingar, í yfir-
lýsingu þar sem hún boðar framboð
til forseta ASÍ á þingi sambandsins
sem hefst á mánudag.
Ólöf Helga fer
ekki fögrum orð-
um um núverandi
formann Efling-
ar, Sólveigu
Önnu Jónsdóttur.
Segir hana ekki
lengur styðja við
bakið á sér í
málaferlum
vegna uppsagnar
sem hlaðmaður á Reykjavíkurflug-
velli, en þar var Ólöf jafnframt trún-
aðarmaður.
„Nú vill Sólveig Anna, í valda-
bandalagi við Ragnar Þór Ingólfs-
son og Vilhjálm Birgisson, taka yfir
Alþýðusamband Íslands. Í gegnum
hópuppsagnir á skrifstofu Eflingar
fórnuðu þau trúverðugleika verka-
lýðshreyfingarinnar og félagsfólki
fyrir eigin valdahagsmuni.“
Vill verða forseti ASÍ
Ólöf Helga
Adolfsdóttir
- Gagnrýnir Sólveigu Önnu, Ragnar Þór og Vilhjálm harðlega