Morgunblaðið - 08.10.2022, Side 16
16 FRÉTTIR
Innlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 8. OKTÓBER 2022
Hinn dáfallegi og litríki regnbogi
hefur löngum vakið spurningar,
enda hefur þessi loftkenndi rönd-
ótti hálf- eða kvarthringur yfir sér
ævintýrablæ. Hver man ekki eftir
því að hafa á barnsaldri freistað
þess að komast undir regnbogann,
því sagt er að þar sé hægt að óska
sér. Hinn óhöndlanlegi regnbogi
færir sig jafnharðan undan og læt-
ur ekki svo glatt góma sig. Sama er
að segja um svarið við spurning-
unni: Hvað er handan regnbogans?
Enginn getur hlaupið eða keyrt
nógu hratt til að komast þangað, til
að finna svarið. Ástæðan fyrir því
að regnbogi birtist okkur er veður-
fræðileg: Hann sýnir sig þegar
staðbundið skúraveður og sólskin
fara saman, og þá oftast þegar við
erum sjálf á uppstyttusvæði, eins og
segir á Vísindavefnum. Ljósmynd-
arar Morgunblaðsins náðu að fanga
töfrastundir leiks ljóss og vætu,
augnablik þar sem óhöndlanlegir
regnbogar birtast á hausthimni.
Morgunblaðið/Eggert
Tilgangslaust að reyna Sama hversu hratt er ekið eftir þessum vegi á Holtavörðuheiði, þá er lífsins ómögulegt að komst undir glottandi regnbogann og óska sér. Hann færist æ undan.
Morgunblaðið/Eggert
Ást og friður Er kross sem baðaður er regnboga ekki hamingjutákn?
Morgunblaðið/Eggert
Tvöfaldur Á Klambratúni elti einn regnbogi annan, líkt og stríðnispúki.
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Skraut Mildur regnbogi gerði sér lítið fyrir og skreytti Viðey með gleði litanna, eins og girnilegt kökukrem.
Hvað er við enda
regnbogans?
SKVÍSAÐU ÞIG UPP
FYRIR SUMARIÐ
STÆRÐIR 1428
Sjáðu úrvalið í netverslun Curvy.is eða kíktu í verslun Curvy við Grensásveg
Verslunin CURVY | Fellsmúla 26 við Grensásveg, 108 RVK | Sími 581-1552 | www.curvy.is