Morgunblaðið - 08.10.2022, Síða 18

Morgunblaðið - 08.10.2022, Síða 18
18 FRÉTTIR Innlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 8. OKTÓBER 2022 Skeifunni 8 | Sími 588 0640 | casa.is Opið virka daga 10-18, laugardaga 11-15 ítölsk hönnun – ítölsk framleiðsla Casa býður upp á vaxtalausar raðgreiðslur (Visa / Euro) í allt að 6 mánuði. L 206 cm Áklæði ct. 86 Verð 759.000,- L 206 cm Leður ct. 25 Verð 899.000,- STAN Model 3035 rafmagn VIÐTAL Stefán Gunnar Sveinsson sgs@mbl.is „Það er svo augljóst að við verðum að hjálpa til, og það er erfitt að finna nokkra fjölskyldu í Póllandi sem er ekki að veita Úkraínumönnum að- stoð,“ segir dr. Arkady Rzegocki, yf- irmaður pólsku utanríkisþjónust- unnar og prófessor í stjórnmálafræði við Jagiellonian-háskólann í Kraká, en hann flutti fyrirlestur á fimmtu- daginn í Hátíðasal Háskóla Íslands um áherslur í utanríkisþjónustu Pól- lands, í ljósi þeirra áskorana sem al- þjóðasamfélagið stendur frammi fyr- ir. „Þetta er í fyrsta sinn sem ég heimsæki Ísland, en ekki það síð- asta,“ segir Rzegocki, spurður um kynni sín af landi og þjóð. „Svo marg- ir af vinum mínum og fjölskyldu hafa heimsótt Ísland, og allir voru mjög hrifnir,“ segir Rzegocki, sem bætir við að Ísland sé nú sífellt að verða vinsælli sem áfangastaður pólskra ferðamanna. Hann minnist að auki á þann mikla fjölda Pólverja, sem hafa fundið hér samastað, lagt hart að sér og aðlag- ast samfélaginu hér. „Við kunnum vel að meta það í Póllandi,“ segir Rzegocki. „En ég er viss um að við getum þrátt fyrir það gert meira til að kynnast betur sem þjóðir.“ –En hvað er hægt að gera til að láta þjóðir okkar kynnast betur? „Það eru margir fullir velvilja hjá báðum þjóðum, sem eru að reyna að gera meira til að bæta samskiptin, en eitt af því sem við ættum örugglega að gera er að gefa fólki meiri þekk- ingu um Pólland og Ísland, um pólska menningu, sögu og einnig um efnahag okkar,“ segir Rzegocki og bætir við að Alþjóðabankinn hafi mælt að á síðustu þrjátíu árum hafi hagkerfið vaxið mest í Kína, en að Pólland hefði verið í öðru sæti. „Þannig að við höfum stigið stór skref fram á við þar.“ Rzegocki segir að á hinn bóginn mætti kynna Pólverjum Ísland bet- ur, til dæmis í skólakerfinu og há- skólunum. Hann nefnir sem dæmi að í háskólanum þar sem hann kenni sé nú hægt að læra íslensku og íslensk fræði, og að hann sé á sama máta glaður að heyra að það verði boðið upp á pólsku og pólsk fræði í Háskóla Íslands bráðum, jafnvel strax á næsta skólaári. Mikilvægt að halda samstöðu Tal okkar berst að innrásinni í Úkraínu, þar sem Pólverjar hafa ver- ið í fararbroddi í stuðningi sínum við Úkraínumenn, ekki síst hvað varðar móttöku flóttamanna. „Við gerum okkar besta til að styðja Úkraínu því að við vitum að hver þjóð hefur rétt á að vera frjáls og fullvalda og að þróast með sínum eigin hætti,“ segir Rzegocki. Hann bætir við að önnur ástæða fyrir stuðningi Pólverja sé sú, að þegar staðið sé frammi fyrir heims- valdasinnaðri og ágengri pólitík Rússlands, þá sé einungis hægt að stöðva hana með því að sýna styrk og hindra að slík pólitík nái fram að ganga. „Því að ef við gerum það ekki, verða afleiðingarnar bara verri. Við sáum það 2008 eftir innrásina í Georgíu, þá brugðust Vesturlönd ekki nægilega við og það sama gilti í Úkraínu 2014, þannig að nú erum við á árinu 2022 í þeirri stöðu sem við er- um nú.“ Rzegocki segir að það sé því mjög brýnt að samstaða vesturveldanna haldi og að Rússar séu áfram beittir þrýstingi. „Við höfum því hvatt alla bandamenn okkar og almenning til að sjá hversu mikilvæg það sé að halda samstöðu og refsiaðgerðum gegn Rússum, því það er allsherjar- stríð í gangi gegn fólki, gegn börnum og óbreyttum borgurum og enginn getur samþykkt slíkt á 21. öld. En ef við stöndum ekki saman verða afleið- ingarnar verri.“ Úkraína hefur nú sótt um aðild að bæði Evrópusambandinu og Atlants- hafsbandalaginu. Rzegocki segir að Pólverjar styðji mjög við þær þjóðir sem vilji ganga til liðs við samstarf Evrópuríkja, hvort sem er í efna- hagsmálum eða öryggis- og varnar- málum. „Við áttum okkur nú á því að öryggi, ekki bara í varnarmálum heldur einnig orkumálum og öðru slíku, er grundvallaratriði fyrir þró- un ríkja.“ Líkt og fyrr sagði er Rzegocki pró- fessor í stjórnmálafræði. Spurður um kenningar svonefndra „raunsæis- manna“ um að stækkun Atlantshafs- bandalagsins hafi á einhvern hátt ýtt Rússum út í stríð segir hann að Pól- verjar og aðrar þjóðir Mið-Evrópu þekki vel hversu dýru verði frelsið sé keypt. „Við viðurkennum því rétt allra ríkja til frelsis og að skipuleggja sig á þann hátt sem þau vilja. Það er engin ógn sem steðjar að Rússum, og enginn sem þrengir að tækifærum þeirra til að þróast.“ Hann bætir við að það að hjálpa Úkraínumönnum sé besta leiðin til þess að hjálpa Rússum og Hvít- Rússum. „Því Úkraínumenn ákváðu að þeir vildu lifa í frjálsu samfélagi og vera sjálfstætt ríki, og við ættum að leyfa þeim það og það sama gildir um Rússa, ef þeir vilja vera frjálsir og byggja upp lýðræðisríki, þá myndu allir vilja hjálpa þeim til þess.“ Erfitt að taka upp fyrri háttu Rzegocki segir aðspurður að það verði erfitt að taka aftur upp sama samband við Rússa og ríkti fyrir stríð. „Við skulum segja að á síðustu tveimur til þremur áratugum hafi Pólland og önnur ríki Mið-Evrópu orðið fyrir vonbrigðum með það hversu „naíf“ sum ríki á Vestur- löndum hafa verið gagnvart Rúss- landi. Þau hafa til dæmis ekki viljað sjá að Rússar beita jarðgasi og olíu sem pólitískum vopnum,“ segir Rze- gocki og bætir við að það sé löngu kominn tími til þess að láta af slíkum barnaskap. „Ef við veitum þeim minnsta tækifæri munu þeir nota það til þess að undirbúa næsta stríð, eða næsta þrýsting á Vesturlönd.“ Talið berst að kjarnorkuhótunum Rússa. Rzegocki segir það ekkert nýtt að Rússar beiti alls kyns hót- unum til þess að reyna að koma í veg fyrir að vesturveldin styðji við Úkra- ínu. „En við verðum að gera það, það er lykilatriði fyrir framtíð Evrópu.“ –Hvað myndi gerast ef Rússar vinna stríðið? Munu þeir hefja land- vinningastríð gegn öðrum ríkjum? „Við erum handviss um það, það þyk- ir svo augljóst í ríkjum Mið-Evrópu. Árið 2008 sagði Lech Kaczynski, for- seti Póllands, í Tblisi, höfuðborg Georgíu, að nú væri það Georgía, en næst yrði það Úkraína, svo Eystra- saltsríkin og svo Pólland. Þannig að það er augljóst að Rússar munu ganga eins langt og þeir geta, og það er tími til kominn að við segjum stopp, og munum um leið hversu miklar hetjudáðir Úkraínumenn eru að vinna nú. Þeir þurfa okkar hjálp.“ Kominn tími til að spyrna við fótum - Dr. Arkady Rzegocki, yfirmaður pólsku utanríkisþjónustunnar, segir það Pólverjum mikilvægt að ríki Vesturlanda styðji áfram við Úkraínu - Rússar muni ellegar ganga eins langt og þeir geti Ljósmynd/Kristinn Ingvarsson Samstaða Arkady Rzegocki, yfirmaður pólsku utanríkisþjónustunnar, segir brýnt að standa saman gegn innrásinni. Langholtsskóli í Reykjavík er 70 ára um þessa mundir og því verður fagnað með afmælishátíð í skól- anum í dag, laugardag. Hátíðin hefst kl. 11 með skrúðgöngu um Langholtshverfið sem er í austan- verðum Laugardalnum. Í framhald- inu verður efnt til skemmtidagskrár á sal skólans. Þar sýna nemendur afrakstur þemavinnu sinnar að undanförnu, sem á að gefa innsýn í skólastarfið fyrr og nú. Allir eru boðnir velkomnir til þessarar hátíð- ar. Skólabyggingin var tekin í notk- un í október árið 1952, en hefur fjór- um sinnum síðan þá verið stækkuð. Síðasta stækkun var árið 2005 og í þeim hluta hússins eru nú hátíðar- salur og mötuneyti. Flestir voru nemendur skólans veturinn 1959- 1960 eða alls 1.190. Skólinn var þá þrísetinn, rétt eins og þurfti, en á þessum árum var Langholtshverfið helsta vaxtarsvæði borgarinnar. Í seinni tíð hafa nemendur í skólanum verið 520-600 talsins en eru nú 574. Núverandi skólastjóri, Hreiðar Sigtryggsson, kom að skól- anum 2001 og Sesselja Auður Eyj- ólfsdóttir aðstoðarskólastjóri árið eftir. Morgunblaðið/Sigurður Bogi Langholtsskóli Setur svip sinn á Laugardalinn í Reykjavík og starfið hefur mótað mannlíf og menningu í hverfinu, eins og minnst er á afmælinu. Afmælishátíð í Langholtsskóla - 70 ára starf - Nemendurnir nú 574

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.