Morgunblaðið - 08.10.2022, Qupperneq 22
BAKSVIÐ
Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
Vísbendingar eru um að viðskipta-
kjör þjóðarinnar hafi batnað á þriðja
ársfjórðungi í ár. Á því tímabili
hækkaði fiskverð sem hlutfall af olíu-
verði og ferðaþjónustan naut góðrar
eftirspurnar. Á móti kemur að álverð
lækkaði sem hlutfall af olíuverði.
Þetta má lesa úr greiningu Yngva
Harðarsonar, framkvæmdastjóra
Analytica, fyrir Morgunblaðið.
Niðurstaðan er sýnd á grafinu hér
til hliðar. Reiknað er út frá gögnum
Hagstofunnar og Seðlabankans.
Bláa línan sýnir viðskiptakjörin en
þau tóku að batna mikið eftir fyrsta
ársfjórðung 2021, þegar farsóttin gaf
eftir, og hafa þau ekki verið jafn góð
síðan þensluárið 2007.
Hefur olíuverð til hliðsjónar
Tölur um samanlögð viðskiptakjör
þjóðarinnar ná út annan ársfjórðung
í ár og áætlar Yngvi þróun þeirra á
þriðja fjórðungi út frá álverði og
fiskverði sem hlutfall af olíuverði.
Tölur um fiskverð liggja fyrir hjá
Hagstofunni en tölur um verð á olíu
og áli eru kauphallarverð. Vegna
vægis áls og fisks í útflutningi notar
Yngvi þessar vörur sem mælikvarða
á viðskiptakjörin.
Viðskiptakjörin sýna hlutfall verðs
á útfluttri vöru og þjónustu deilt með
verði á innfluttri vöru og þjónustu.
Eins og grafið sýnir er fylgni milli
raungengis og viðskiptakjara. Þegar
viðskiptakjörin styrkjast fylgir
gengið gjarnan með og öfugt.
Raungengið stendur nokkurn veg-
inn í stað milli annars og þriðja árs-
fjórðungs í ár en það gaf eftir í far-
sóttinni en
styrktist svo
smátt og smátt.
Hækki verð á
innfluttum vörum
og þjónustu um-
fram verð á út-
flutningi þá rýrna
viðskiptakjörin.
Þau batna hins
vegar þegar verð
á útfluttum
vörum og þjónustu hækkar umfram
innflutning.
Yngvi segir endurkomu ferðaþjón-
ustunnar eiga mikinn þátt í batnandi
viðskiptakjörum þjóðarinnar. Vís-
bendingar séu um að tekist hafi að fá
hærra verð en áður og auka þar með
arðsemi fyrirtækja í greininni. Það
vegi mun þyngra en sveiflur í olíu-
verði sem aftur skili sér út í við-
skiptakjör þjóðarinnar. Hins vegar
vanti góðan mælikvarða á verðlag til
ferðamanna og því eru þessi jákvæðu
áhrif áætluð óbeint út frá nokkrum
mælikvörðum.
Fiskverðið hækkaði
Samkvæmt greiningu Yngva
hækkaði fiskverð sem hlutfall af olíu-
verði á þriðja ársfjórðungi og bötn-
uðu viðskiptakjörin í sjávarútvegi
sem því nemur. Álverð hefur hins
vegar lækkað á sama mælikvarða en
það var sögulega hátt á fyrri hluta
ársins, í kjölfar innrásar Rússlands-
hers í Úkraínu, og var meðalverðið til
dæmis 3.538 dalir á tonnið í London í
mars. En meðalverð síðasta áratugar
var rétt yfir 1.900 dalir á tonnið.
Miðað er við verð á Norðursjávar-
olíu. Tunnan kostaði um 75 dali í
byrjun árs en kostar nú um 98 dali
sem er hækkun um hér um bil 31 pró-
sent.
Raungengið hins vegar lægra
Viðskiptakjörin eru sem fyrr segir
á svipuðum slóðum og 2007 (sjá graf).
Raungengið er hins vegar mun lægra
en þá. Það hefur engu að síður
styrkst og samkvæmt áætlun Analy-
tica er það nú komið í sama horf og í
árslok 2019. Raungengið náði hæstu
hæðum í júní 2017 en náði svo lág-
marki haustið 2020, í miðjum
faraldrinum, en tók svo að styrkjast.
Til upprifjunar er raungengi annað
en skráð nafngengi. Styrkist raun-
gengið er verðlag og/eða launa-
kostnaður að hækka hraðar innan-
lands en erlendis, mælt í sömu mynt.
Hátt verðlag í ferðaþjón-
ustu styrkir viðskiptakjörin
120
115
110
105
100
95
250
200
150
100
50
Viðskiptakjör
Álverð/olíuverð
Fiskverð/olíuverð
Raungengi m.v. verðlag
2010=100
Vísitölur viðskiptakjara ogverðhlutföll álverðs,fiskverðs ogolíuverðs
Frá 31. febrúar 2000 til 30. september 2022
'00 '01 '02 '03 '04 '05 '06 '07 '08 '09 '10 '11 '12 '13 '14 '15 '16 '17 '18 '19 '20 '21 '22
Viðskiptakjör Álverð/olíuverð,fiskverð/olíuverð og raungengi
Heimildir: Hagstofa Íslands, Seðlabanki Íslands og Analytica
- Álverð sem hlutfall af olíuverði hefur hins vegar farið lækkandi undanfarið
Yngvi
Harðarson
22 FRÉTTIR
Viðskipti | Atvinnulíf
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 8. OKTÓBER 2022
ELTAK sérhæfir sig
í sölu og þjónustu
á vogum
Bjóðum MESTA úrval
á Íslandi af smáum
og stórum vogum
8. október 2022
Gjaldmiðill Gengi
Dollari 141.66
Sterlingspund 159.57
Kanadadalur 103.69
Dönsk króna 18.78
Norsk króna 13.397
Sænsk króna 12.848
Svissn. franki 143.91
Japanskt jen 0.9791
SDR 182.16
Evra 139.7
Meðalgengi/Viðskiptavog þröng 173.5119
« Kaupfélag Skag-
firðinga og Hái
Klettur, sem er í
eigu Árna Péturs
Jónssonar, fyrrver-
andi forstjóra
Skeljungs, hafa
keypt Gleðipinna,
sem halda utan um
rekstur veitinga-
staðanna Aktu
Taktu, American
Style, Blackbox og Hamborgarafabrikk-
unnar.
Gleðipinnar eru umsvifamikið fyrir-
tæki í veitinga- og afþreyingarþjónustu
hér á landi og eiga fyrir utan fyrrnefnda
staði Keiluhöllina og Rush trampólín-
garðinn, veitingastaðina Saffran og
Pítuna og hlutdeild í Olifa – La Madre
Pizza og Icelandic Food Company.
Núverandi eigendur Gleðipinna munu
áfram eiga hlutdeild í síðarnefndu fé-
lögunum samkvæmt tilkynningu frá
ráðgjafarfyrirtækinu Deloitte, sem var
ráðgjafi félagsins í söluferlinu. Kaup-
verðið er ekki gefið upp en viðskiptin
eru gerð með fyrirvara um samþykki
Samkeppniseftirlitsins.
Jóhannes Ásbjörnsson er sem stend-
ur stærsti eigandi Gleðipinna. Sam-
kvæmt upplýsingum Morgunblaðsins
munu hann og aðrir í stjórnendarteymi
félagsins starfa áfram hjá Gleðipinnum.
Heildartekjur Gleðipinna námu í fyrra
um 3,1 milljarði króna og hagnaður um
130 milljónum króna, samanborið við
40 milljóna króna tap árið áður.
KS og Árni Pétur kaupa
Gleðipinna og valda staði
Jóhannes
Ásbjörnsson
STUTT
Bað- og líkams-
vörurnar frá
SPA of Iceland
hlutu í vikunni
gullverðlaun á
verðlaunahátíð-
inni Frontier
Awards 2022 í
Cannes í Frakk-
landi. Verð-
launahátíðin er
haldin árlega
meðal fyrirtækja sem tengjast
verslun og viðskiptum í flugstöðv-
um og fríhöfnum.
Hjónin Fjóla G. Friðriksdóttir og
Haraldur Jóhannsson, eigendur og
stofnendur félagsins, tóku við verð-
launum á hátíðinni.
Alþjóðleg dómnefnd valdi á milli
hundraða fyrirtækja og vöruteg-
unda í ýmsum flokkum alls staðar
að úr heiminum, og voru SPA of
Iceland-vörurnar valdar sem
snyrtivörulína ársins. Í öðru sæti
var nýja línan frá Jean Paul Gaul-
tiere.
Sem dæmi um aðra sigurvegara í
samkeppninni var Heathrow valinn
flugvöllur ársins, King Power valið
verslunarfyrirtæki ársins, Dubai-
fríhöfnin var fríhöfn ársins og
Lagardère teymi ársins.
Verðlaun-
uð í Cannes
- SPA of Iceland
snyrtivörulína ársins
Haraldur og Fjóla
frá SPA of Iceland.