Morgunblaðið - 08.10.2022, Qupperneq 26

Morgunblaðið - 08.10.2022, Qupperneq 26
26 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 8. OKTÓBER 2022 Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á http://www.mbl.is/mogginn/leidarar/ Úkraínska lög- reglan hefur fundið lík 534 almennra borgara á því svæði, sem Úkra- ínuher hefur náð úr höndum Rússa síðan í byrjun sept- ember. Frá þessu greindi lögreglan í Karkív á fimmtudag. Þar af eru lík 226 kvenna og 19 barna. Lögreglan fann einnig 22 staði, sem talið er að Rússar hafi notað til pyntinga í Kar- kív-héraði. Safnar lögregla nú gögnum frá þessum stöð- um og leitar vitnisburða, þar á meðal hjá fólki, sem var í haldi hjá Rússum. Flest líkin, 447, fundust í fjöldagröf í borginni Ísjúm. Þar var Jón Gauti Jóhann- esson, fréttaritari Morgun- blaðsins, á ferð ásamt Oksönu Jóhannesson ljós- myndara eftir að borgin var frelsuð og er grein hans frá vettvangi í Sunnudagsblaði Morgunblaðsins, sem fylgir blaðinu í dag. Jón Gauti skrifar að mikla eyðileggingu megi sjá í mið- borg Ísjúm. Íbúðarhúsnæði, bæjarstjórnarskrifstofur og sjúkrahús hafi orðið fyrir þungum sprengjuárásum. Lögreglan sýndi honum pyntingarklefa í lögreglu- stöð í borginni. „Barefli og gasgrímur voru mikið not- aðar, gasgrímurnar til að kalla fram köfnunar- einkenni þegar fórnarlömb önduðu títt undir bar- smíðum,“ skrifar hann. „Einnig bera fórnarlömb því vitni að raflost hafi verið al- geng pyntingaraðferð hjá hernámsyfirvöldum. Lík úkraínskra hermanna í fjöldagröf í skógi skammt frá Ísjúm bera merki um enn hryllilegri pyntingar.“ Í greininni er rætt við fólk, sem lifði af hernámið. Þar má sjá lýsingar á glund- roðanum í rússneska hern- um og skipulagsleysi, þar sem eru í bland atvinnuher- menn, málaliðar og óbreytt- ir borgarar. „Allir stálu í einhverjum mæli og það virtist vera rígur og fjand- skapur á milli hinna ólíku sveita,“ segir einn viðmæl- andi. Viðmælendurnir í grein- inni tala ekki bara um fólskuverk. Ein kona lýsir því að til hennar hafi komið hermenn, kropið á kné og beðist afsökunar á hernáminu og eyðileggingunni. Þeir hefðu haldið að þeir væru að fara á heræfingu. Óhugnanleg- astar eru lýsingarnar og myndirnar frá fjöldagröf- inni í furuskógi skammt frá Ísjúm þar sem almanna- varnir Úkraínu grófu upp lík og fulltrúar stríðs- glæpasaksóknara landsins tóku myndir og unnu að frumrannsókn á vettvangi. Dánarorsakir eru ýmsar. Þegar fréttaritari Morgun- blaðsins var þarna höfðu úkraínsk stjórnvöld fundið ummerki pyntinga og af- töku á 30 líkanna. „Hendur bundnar fyrir aftan bak, reipi um hálsinn, brotnir út- limir og skotsár. Á nokkrum líkanna sé ljóst að kynfæri karlmanna hafi verið skorin af, merki um þann hrylling sem átti sér stað undir her- námi Rússa,“ skrifar Jón Gauti. Stríðið í Úkraínu hefur nú staðið síðan í febrúar. Inn- rás Rússa í Úkraínu var reiðarslag og fátt annað komst að í fjölmiðlum. Þeg- ar frá leið vék Úkraína fyrir öðrum fréttum. Víða í Evr- ópu var meira fjallað um hækkanir á orkuverði heima fyrir, en hremmingarnar í stríðinu. Úkraína hefur svo aftur komist í fréttirnar eft- ir að Úkraínuher sneri vörn í sókn í Karkív-héraði og tókst að hrekja Rússa frá hluta þess svæðis, sem þeir hyggjast sölsa undir sig í krafti fullkomlega mark- lausrar atkvæðagreiðslu. En þótt fréttaflutning- urinn af hildarleiknum í Úkraínu dvíni, heldur stríðsgnýrinn áfram. Rúss- ar hafa sett líf milljóna manna úr skorðum með hernaði, sem engin leið er að verja. Allt of margir hafa látið lífið, allt of margir hafa misst sína nánustu, allt of margir hafa glatað öllum sínum eigum. Það er því gott að fá frá- sögn af vettvangi beint í æð, vitnisburð íbúa um lífið á meðan á hernáminu stóð. Einn viðmælandi tárast yfir eyðileggingunni, en segir í næstu setningu að nú þurfi að bretta upp ermar og end- urbyggja. Þótt ástandið sé átakan- legt lifir vonin alltaf. Innrás Rússa hefur kallað átakanlegar hörmungar yfir Úkraínumenn} Fólskuverk í Úkraínu U mræða um fæðuöryggi á Íslandi hefur færst ofar á dagskrá stjórnvalda síðustu misseri. Bæði í heimsfaraldri kórónu- veiru og í kjölfar innrásar Rússa í Úkraínu hafa vaknað spurningar um öryggi flutninga til landsins og aðfangakeðjur. Forsætisráðherra skipaði starfshóp í mars á þessu ári sem fjallaði um nauðsynlegar birgðir til þess að tryggja lífsafkomu þjóðarinnar á hættutímum. Matvælaráðuneytið átti fulltrúa í þeim hópi, enda heyra mikilvægir þættir fæðu- öryggis undir matvælaráðuneytið. Orkuskipti eru forsenda fæðuöryggis Í skýrslunni er fjallað heildstætt um þá ör- yggisþætti sem þarf að treysta á Íslandi. Ætla má að birgðir af jarðefnaeldsneyti séu veikasti hlekkurinn en skv. skýrslunni eru oft ekki til meira en 3-5 vikna birgðir. Án jarðefnaeldsneytis flytjum við engin matvæli milli staða og togarar liggja bundnir við bryggju. Þá er einnig ljóst að landbúnaður er háður innflutningi á áburði og fóðurkorni. Án hnökralausra flutninga getur matvælaframleiðsla dregist hratt saman hérlendis. Við búum svo vel á Íslandi að eiga endurnýjanlega orku og því eru frekari orkuskipti augljóst næsta skref. Miðað við hraðar framfarir í orkumiðlun má ætla að innan einhverra ára verði raunhæft að knýja togara með rafeldsneyti og nú þegar eru til dráttarvélar sem ganga fyrir nýorku á borð við metan. Innviðir fyrir kornrækt eru öryggismál Samhliða því að halda áfram orkuskiptum, þurfum við að byggja upp nauðsynlega innviði til þess að efla kornrækt. Slíkir innviðir eru síst minna mikilvægir heldur en öruggir sam- gönguinnviðir, hafnir og flugvellir. Aðgerða- áætlun um að efla kornrækt er í vinnslu hjá Landbúnaðarháskóla Íslands og er væntanleg í mars á næsta ári. Ljóst er að til þess að korn- rækt geti vaxið á skynsamlegan hátt þarf að tryggja að hún byggist upp á þeim svæðum sem henta best til kornræktar. Við höfum ný- leg dæmi úr sögunni þar sem stjórnvöld hlut- uðust um að byggja upp búgreinar án þess að hugsa út í hvar slík uppbygging ætti helst að fara fram. Þá hef ég í hyggju að ræða við bændur um uppskerutryggingar á korni og hvernig megi útfæra þær við endurskoðun búvörusamn- inga. En eins og dæmin sanna úr Eyjafirði má ætla að áhættan við ræktun dragi úr áhuga bænda, sé engin leið að tryggja lágmarksafkomu. Slíkar tryggingar þekkjast, þótt þær séu ekki almennar í þeim löndum sem við berum okkur saman við. Ég hef mikla trú á tækifærunum sem felast í aukinni kornrækt á Íslandi. Til þess að grípa þau tækifæri er mik- ilvægt að ryðja úr vegi hindrunum sem felast í okkar eigin kerfum auk þess að byggja upp nauðsynlega innviði. Svandís Svavarsdóttir Pistill Fæðuöryggi í nýju ljósi Höfundur er matvælaráðherra svandis.svavarsdottir@mar.is STOFNAÐ 1913 Útgáfufélag: Árvakur hf., Reykjavík. Ritstjóri: Davíð Oddsson Aðstoðarritstjóri: Karl Blöndal Ritstjóri og framkvæmdastjóri: Haraldur Johannessen því fjarri að búið sé að draga allar vígtennur úr Belgorod því um borð má finna sex drónaskeyti af Pósei- don-gerð. Skeyti þessi eru engin smásmíði, 20 metrar á lengd, tveir metrar í þvermál og kjarnaknúin. Geta þau flutt bæði hefðbundna sprengihleðslu og kjarnaodd. Upplýsingum viljandi lekið Pentagon, varnarmálaráðuneyti Bandaríkjanna, telur sögu Pósei- dons ná aftur til septembermánaðar 2015. Tveimur mánuðum síðar var leynilegu skjali lekið til rússneskra fjölmiðla. Var þar talað um „háleyni- legt fjölþátta neðansjávarvopn“. CIA, leyniþjónusta Bandaríkjanna, telur víst að Moskvuvaldið hafi vilj- andi lekið skjalinu til að auka á áhyggjur Vesturlanda. Að sögn Pentagon fór fyrsta til- raun með Póseidon fram 27. nóv- ember 2016. Var skeyti þá skotið frá rússneska kafbátnum B-90 Sarov og fór tilraunin fram á norðurslóðum. Í janúar 2019 tilkynnti rússneski sjó- herinn svo um smíði minnst 30 Pó- seidon-drónaskeyta og skyldi þeim komið fyrir í fjórum kafbátum Norð- urflotans og Kyrrahafsflotans. Hernaðarsérfræðingar eru ekki vissir um getu Póseidon. Með kjarnaoddi er þó víst að dróna- skeytið getur valdið miklu tjóni. Eru þá hugsanleg skotmörk einkum flug- móðurskipafloti NATO og strand- borgir, en við vissar kringumstæður getur neðansjávarkjarnasprenging valdið mikilli flóðbylgju sem flutt getur geislandi efni langar leiðir. Sovéskur risi til æf- inga á norðurslóðum Ljósmynd/Varnarmálaráðuneyti Bandaríkjanna Hermáttur Sovéskur kjarnakafbátur af gerðinni Oscar á siglingu. Þótt stór sé þá er bátur þessi minni en risinn Belgorod sem nú er á norðurslóðum. SVIÐSLJÓS Kristján H. Johannessen khj@mbl.is R ússneski kjarnakafbát- urinn Belgorod K-329 hefur yfirgefið skipa- smíðastöðina Severó- dvinsk á Kólaskaga í norðaustur- hluta Rússlands. Er þetta í fyrsta skipti sem honum er siglt, utan styttri prófana. Gervitunglamyndir, sem teknar voru dagana 22. og 27. september sl., sýna Belgorod á sigl- ingu ofansjávar á Barentshafi, norð- ur af Kólaskaga. Telja hernaðarsér- fræðingar líklegt að kafbáturinn sé nú kominn enn norðar. Ekki er vitað um ástæðu siglingarinnar. Sumir segja Rússa einungis vera að minna á neðansjávarflota sinn en aðrir telja víst að til standi að prófa vopnabún- að Belgorods á norðurslóðum. Ber þar helst að nefna drónaskeyti sem kennd eru við gríska sjávarguðinn Póseidon. Skeytin bera kjarnaodd. Saga Belgorods nær aftur til árs- ins 1992 þegar smíði hans hófst. Í grunninn er um að ræða sovéskan kjarnakafbát af gerðinni Oscar II. Slíkir bátar voru sérstaklega hann- aðir til að granda flugmóðurskipa- flota Bandaríkjanna í kalda stríðinu. Í því skyni eru Oscar II-bátar vopn- aðir gríðaröflugum skipaflaugum af gerðinni P-700 Granít sem sovéski sjóherinn tók í notkun árið 1983. Sé vopni þessu beitt gegn flugmóður- skipi er nokkrum Granít-flaugum skotið samtímis og nálgast þær skot- mark sitt á tvöföldum hljóðhraða. Þessi mikli flughraði veldur því að erfitt er að beita gagnbúnaði. Stærsti kafbátur heims Belgorod er hins vegar ekki vopn- aður Granít-flaugum. Hann er einn sinnar gerðar og ólíkur öllum öðrum Oscar II-kjarnakafbátum Rússa. Ástæða þess er sú að smíði hans lauk ekki á tilsettum tíma vegna fjárskorts og var það ekki fyrr en ár- ið 2012 sem Moskvuvaldið ákvað að ljúka smíðinni. Samhliða því var tek- in ákvörðun um að lengja bátinn. Hann er alls 184 metrar og um 30 þúsund tonn. Þetta gerir hann að stærsta kafbáti heims. Eins var hlut- verki hans breytt. Er Belgorod nú hugsaður sem móðurskip fyrir minni séraðgerða- og njósnakafbát sem festa má á kvið bátsins. En þar með er ekki öll sagan sögð. Þótt engar séu Granít-flaugarnar fer Tilkynnt var um mikinn gasleka í Nord Stream-gasleiðslunni 26. september sl. Rannsókn á lek- anum hefur styrkt þær grun- semdir manna að þarna hafi verið um skemmdarverk að ræða og eru Rússar sagðir afar líklegir gerendur. Fjölmiðlar hafa bent á að til að valda eyðileggingu af þessu tagi gætu Rússar hafa nýtt Belgorod og þá einkum séraðgerðakafbátinn sem hann getur flutt á kviðnum. Það er þó afar ólíklegt að Belgorod hafi komið nálægt Nord Stream því vitað er að báturinn var á sigl- ingu í Barentshafi daginn eftir lekann. Belgorod var staddur fjarri NORD STREAM 2 AFP Gas Þessi mynd var tekin af lek- anum í Nord Stream 29. september.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.