Morgunblaðið - 08.10.2022, Qupperneq 27
27
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 8. OKTÓBER 2022
Reykjavík Þegar sólin lýsir upp þessa nyrstu höfuðborg jarðarkringlunnar getur verið gott að fá sér göngutúr um miðbæinn og jafnvel sporðrenna einni með öllu ásamt kóki, að gömlum sið.
Arnþór Birkisson
Veiðiráðgjöf Haf-
rannsóknastofnunar er
grundvöllur þeirra
tekna sem við höfum af
sjávarútvegi og því er
mikið í húfi. Veiðiráð-
gjöf er byggð á viða-
miklum rannsóknum
Hafrannsóknastofn-
unar og gögnum um
sögu fiskistofna síðustu
áratugi. Vistkerfarann-
sóknir eru ung vísinda-
grein en hafa ekki þróast eins hratt og
mikið og við höfum séð innan annarra
geira.
Reglulega heyrum við sjómenn full-
yrða að meiri fiskur sé í sjónum en
veiðiráðgjöfin segir til um en fisk-
veiðistjórnunarkerfið byggist á því að
treysta vísindum Hafrannsóknastofn-
unar sem aftur eiga að byggjast á
traustum gögnum og úrvinnslu þeirra.
Þess mikilvægra er að það starf sé eflt
og styrkt, sérstaklega þar sem við er-
um stöðugt minnt á að óvissan er mik-
il. Hér skulu nefnd nokk-
ur dæmi.
Nú hefur Alþjóða-
hafrannsóknaráðið
(ICES) lagt til að veiðar á
kolmunna verði auknar
um 81% á næsta ári.
Sannarlega jákvæðar
fréttir en vekja um leið
undrun. Gunnþór Ingva-
son, framkvæmdastjóri
Síldarvinnslunnar, bendir
á það í samtali við Morg-
unblaðið að þrátt fyrir já-
kvæðar fréttir komi þessi
aukning í kolmunna á
óvart þar sem veiðin úr þessum stofn-
um hefur verið meiri en tillögur vís-
indamanna undanfarin ár. Gunnþór
bendir á að kolmunnastofninn hafi
stækkað um rúm 80% þrátt fyrir of
mikla veiði, vel að merkja, sú veiði er
umfram ráðgjöf vísindamanna. Hægt
er að taka undir með Gunnþóri um að
það þurfi að auka vísindalega þekk-
ingu á þessum stofnum til að veiðiráð-
gjöfin fái undirstöðu í rannsóknum og
útgerðin hafi meiri öryggi um að ráð-
gjöfin sé rétt og fyrirsjáanleg.
Rannsóknir á humri
En það er ekki aðeins að það þurfi
að efla rannsóknir á kolmunna. Nauð-
synlegt er að styrkja rannsóknir á
humri sem hefur lengi verið mikil-
vægur nytjastofn hér við land. Út-
flutningsverðmæti humars fór yfir
3,5 milljarða króna fyrir tíu árum en
er ekkert núna.
Undanfarin ár hefur humarkvótinn
farið niður á við og núna hafa humar-
veiðar verið stöðvaðar með öllu næstu
tvö árin. Það er sem gefur að skilja
mikið áfall fyrir þau fyrirtæki sem
treyst hafa á humarveiðar eins og
kom fram í viðtali við Viðar Elíasson,
útgerðarmann og fiskverkanda í
Vestmannaeyjum, í liðinni viku. En á
sama tíma og veiðar eru aflagðar
kemur í ljós að það eru litlar rann-
sóknir stundaðar á humri. Útgerðar-
félögin Skinney, Vinnslustöðin og
Rammi tóku sig því til og kostuðu
Hafrannsóknastofnun til rannsókna á
humri til að fá einhverja innsýn í
ástandið. Gerðu félögin þetta þar sem
ekki voru nægir fjármunir til þess hjá
stofnuninni.
Endurmat á karfastofninum
Við hjá Bláa hagkerfinu erum þátt-
takendur í stofnun félagsins Maris
optimum sem hefur það meðal annars
að markmiði að leggja sjálfstætt mat
á stærð stofna. Maris optimum hefur
til dæmis lagt mat á stofnstærð gull-
karfa hér við land á grunni gagna frá
Hafrannsóknastofnun, enda er karf-
inn mikilvæg tegund og margt óljóst
um vistfræði hans og stofnstærð. Við
þær athuganir komu fram aðrar nið-
urstöður um fjölda fiska í stofninum
sem eru áhugaverðar. Lítið hefur
breyst varðandi aðferðafræði útreikn-
inga á síðustu árum og mikilvægt að
meira sé lagt í þá vinnu.
Þeir sem koma að sjávarútvegi
hafa ítrekað bent á nauðsyn þess að
efla rannsóknir hér við land og um
leið styrkja sjálfstætt rannsóknar-
starf til að hleypa fleiri sjónarmiðum
að og auka umræðu, sem er jú for-
senda alls vísindaleg starfs. Þessi
dæmi sem hér hafa verið tínd til sýna
mikilvægi þess að efla og styrkja
rannsóknir á hafi, lífríki og stofn-
stærð nytjafiska hér við land.
Útflutningsverðmæti sjávarafurða
fer yfir 300 milljarða króna í ár og er
sjávarútvegurinn einn af okkar mikil-
vægustu atvinnuvegum. Út frá lestri
fjárlaga og skoðun á verksviði Haf-
rannsóknastofnunar má ætla að vel
innan við tveir milljarðar króna fari til
rannsókna á nytjastofnum okkar. Það
er vel innan við prósent af útflutnings-
verðmæti sjávarafurða. Það væri góð
leið til sátta um sjávarútveginn ef við
efldum hann með rannsóknum og
bættum við þekkingu okkar á hafinu.
Þannig skilum við auðlindunum í enn
betra ástandi til næstu kynslóða.
Svanur
Guðmundsson » Það er mikilvægt að
efla rannsóknir á
nytjastofnum því óviss-
an er mikil um stærð
stofna og framtíð veiða
því óljós.
Svanur
Guðmundsson
Höfundur er framkvæmdastjóri
Bláa hagkerfisins ehf. og
sjávarútvegsfræðingur.
svanur@arcticeconomy.com
Veruleikinn og veiðiráðgjöf byggð á vísindum
Ég hef heimsótt og
kynnt mér þær að-
stæður sem hælisleit-
endur á Íslandi búa við.
Kveikjan að þessari
grein var heimsókn mín
í blokkir í húnæði á veg-
um Útlendingastofn-
unar þar sem hælisleit-
endur búa. Aðstæður
þeirra eru óboðlegar en
í einu húsinu búa um 140
manns í 50 herbergjum. Nýjustu
fréttir eru af skrifstofuhúsnæði þar
sem hundrað manns eiga að sofa á
hermannabeddum og sækja salern-
isaðstöðu í gáma úti á plani. Mér er
sagt að aðbúnaður hælisleitenda í
Grikklandi sé á pari eða betri en á Ís-
landi þótt öðru sé haldið fram.
Íbúafjöldi Grindavíkur
á hverju ári
Nú fer sá tími í hönd að reikna
megi með að hælisleitendum sem
koma til landsins fjölgi. Verulega. Út-
lendingastofnun hefur 20 hótel og
íbúðablokkir á leigu. Til að mæta
fjölgun hælisleitenda til áramóta þarf
3-4 blokkir til að hýsa þann viðbótar-
fjölda sem er á leiðinni. Svo kemur
nýtt ár með yfir 3.000 hælisleitend-
um, sem er sambærilegur heildar-
fjölda íbúa í Grindavík.
Hér er rauðglóandi hús-
næðismarkaður og fátt
eftir af húsnæði nema
íþróttahús, safnaðar-
heimili og kirkjur fyrir
þetta fólk að búa í. Hug-
myndir eru uppi um að
flytja inn gámaeiningar
og búa til sérstök hverfi
fyrir hælisleitendur. Í
Svíþjóð hefur reynslan
af slíkum hverfum ekki
verið góð, svo ekki sé nú
meira sagt.
Félagsþjónustan og húsnæðis-
markaðurinn sprungin
Samkvæmt samningi við ríkið taka
Reykjanesbær, Hafnarfjörður,
Reykjavíkurborg, Akureyri og Ár-
borg á móti hælisleitendum og tvö
þau fyrstnefndu bera höfuð og herðar
yfir önnur sveitarfélög þegar kemur
að fjölda hælisleitenda í þjónustu. Þar
eru félagsþjónustan og húsnæð-
ismarkaðurinn sprungin. Grunn-
skólakerfið og heilsugæslan eru
sömuleiðis komin að þolmörkum. Í
Hafnarfirði áttu tveir starfsmenn að
vinna að málefnum hælisleitenda en
þeir eru nú 16 og umfangið allt í sam-
ræmi við þessar tölur. Sveitarfélögin
vilja, skiljanlega, að aukinni þjónustu
fylgi aukið fjármagn. Þau eru að
kikna undan álaginu.
Íslenskt skattfé fjármagnar
hryðjuverk
Útlendingastofnun og úrskurð-
arnefnd útlendingamála hafa veitt
hælisleitendum frá Venesúela for-
gangsafgreiðslu við landamærin. Í
dag er talið að sex milljónir íbúa frá
Venesúela séu að flýja bág kjör og
slæmt stjórnarfar í heimalandinu.
Þeir sem þekkja gleggst til þessara
mála telja að einn daginn muni sú
staðreynd skapa algert ófremdar-
ástand við landamærin. Allt bendir til
þess að stór hluti hælisleitenda frá
Venesúela greiði glæpahringjum til að
komast til Íslands. Þegar hælisleit-
andinn er kominn til Íslands og fer á
framfærslu ríkissjóðs koma krumlur
glæpahringjanna á ný og krefjast
hærri greiðslu. Glæpahringirnir hafa
umboðsmenn hér á landi sem halda
áfram að innheimta og beita fólkið
harðræði við innheimtuna. Þannig
lendir fjármagn frá íslenskum skatt-
greiðendum í höndum glæpahringja.
Glæpahringja sem nota íslenska
skattpeninga til að fjármagna mansal
og hryðjuverk.
Raunveruleikinn á Íslandi er annar
en fólk heldur. Umræðan hefur leitast
við að kæfa þá sem reynt hafa að
sporna við fótum. En þeir sem virða
engin landamæri og skilja ekki að
hverri krónu verður ekki eytt nema
einu sinni telja að Ísland geti tekið á
móti t.d. milljónum hælisleitenda frá
Venesúela. Þetta fólk vill ekki sjá að
hér eru allir innviðir sprungnir, það
vantar margar blokkir undir hælisleit-
endur bara til næstu áramóta. Og á
næsta ári má reikna með að þúsundir
bætist í hópinn að öðru óbreyttu. Á
það fólk að búa í gámahverfum þar
sem skólar og félagsþjónusta eru
löngu sprungin? Reynsla annarra
þjóða er að slík gettómyndun er stór-
hættuleg hverju samfélagi.
Fyrir hverja er
hælisleitendakerfið?
Fólkið sem hælisleitendakerfið var
búið til fyrir hefur gleymst. Fólk sem
er að flýja stríð og ofsóknir gegn
minnihlutahópum og er á flótta til að
bjarga eigin lífi og limum. Í staðinn
tökum við á móti stærstum hluta hæl-
isleitenda sem þegar hafa fengið
vernd í öðrum löndum Evrópu og inn-
an Schengen. Allt að 50% hælisleit-
enda sem fá hér vernd hafa þegar
fengið landvistarleyfi í öðrum löndum
Evrópu. Það fólk er ekki að flýja stríð
eða bjarga eigin lífi og limum. Það er
að flýja fjárhagslega afkomu í löndum
Evrópu. Hælisleitendakerfið er ekki
hugsað fyrir fólk sem er að flýja efna-
hagslega erfiðleika. Hér er fram-
færsla hælisleitenda betri en víðast
annars staðar og straumurinn liggur
til betra lífs á Íslandi. Sú staðreynd
birtist í því að 4-6 sinnum fleiri hæl-
isleitendur koma til Íslands en sækja
til Svíþjóðar miðað við höfðatölu. Í
samanburði við hinar Norður-
landaþjóðirnar sækja hér hlutfallslega
flestir um hæli og hlutfallslega lang-
flestir fá hér hæli.
Við erum að missa tökin og gröfum
þannig skipulega undan möguleikum
okkar Íslendinga til að standa sóma-
samlega að móttöku hælisleitenda
sem eiga ekki í önnur hús að venda.
Íslensk stjórnvöld þurfa að móta
heildstæða stefnu í þessum málaflokki
og halda sig við hana. Búa til kerfi,
byggt á því að málsmeðferð og nið-
urstaða byggist á jafnræði og
gagnsæi, og innleiða sambærilegar
reglur og gilda í nágrannalöndum
okkar. Ekki kerfi sem laðar að sér
starfsemi glæpahringja og þar sem
tafir á málsmeðferð verða að keppi-
kefli.
Ásmundur
Friðriksson » „Fjármagn frá ís-
lenskum skattgreið-
endum lendir í höndum
glæpahringja sem nota
íslenska skattpeninga til
að fjármagna mansal og
hryðjuverk.“
Ásmundur Friðriksson
Höfundur er alþingismaður.
asmundurf@althingi.is
Er Ísland uppselt?