Morgunblaðið - 08.10.2022, Síða 29

Morgunblaðið - 08.10.2022, Síða 29
UMRÆÐAN 29 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 8. OKTÓBER 2022 S kákdeildir Breiðabliks og Fjölnis stóðu fyrir skák- ferðalagi 35 ungmenna á alþjóðlegt helgarskákmót í Gautaborg í Svíþjóð um síðustu helgi en þar var teflt í tveim styrk- leikaflokkum. Fyrirkomulag móts- ins var með þeim hætti að fyrst voru tefldar fjórar atskákir og síðan fjórar kappskákir. Það var því í nógu að snúast alla þrjá keppnis- dagana. Árangurinn var framar vonum því að alls hækkuðu íslensku þátttakendurnir samtals um 658 elo-stig. Í efri styrleikaflokknum var Vignir Vatnar Stefánsson nálægt því að bera sigur úr býtum en hann tapaði fyrir Johnny Hector í úrslita- skák lokaumferðar, hlaut 6 vinninga af átta mögulegum og varð í 6.-12. sæti, jafn Stephani Briem. Í neðri styrkleikaflokknum voru stúlkur úr skákdeild Fjölnis í miklum meiri- hluta meðal íslensku keppendanna og unnu marga eftirtektarverða sigra. Meðal keppenda í Gautaborg voru nokkrir þekktir norrænir meistarar. Þar fór fremstur Simen Agdestein. Hann háði mikla glímu við tvo af íslensku keppendunum; í atskákhlutanum tefldi hann bar- áttuskák við Birki Ísak Jóhannsson sem lauk með því að Simen féll á tíma eftir 47 leiki. Í 6. umferð mætti hann svo Stephani Briem. Er skemmst frá því að segja að Steph- an tefldi frábærlega vel gegn Norð- manninum og átti unnið tafl á löngum kafla. En Simen er harður keppnismaður og í tímahraki beggja tókst honum að bjarga sér fyrir horn og vinna að lokum. Síð- asta færi Stephans til að knýja fram vinning kom í þessari stöðu: Kvibergspelen 2022; 6. umferð: Simen Agdestein – Stephan Briem 36. … De7? Svarta staðan er ekki slæm eftir þennan leik en 36. … Df4 vinnur strax! Við hótuninni 37. … Hxe2 er engin vörn, t.d. 37. Rxb7 Hc3+ 38. Kd1 Re3+ 39. Ke1 Dg3 mát. Simen lék nú … 37. Bc4 … og þá var mesta hættan liðin hjá. Skákinni lauk svo eftir 55 leiki. Fimm íslensk lið á EM skák- félaga Frammistaða íslensku skákfélag- anna sem taka þátt í EM taflfélaga í Austurríki hefur verið að vonum en barátta Jóhanns Hjartarsonar, Margeirs Péturssonar og Guð- mundar Kjartanssonar við nokkra af fremstu stórmeisturum Indverja hefur vakið athygli. Skák Margeirs við hinn unga Nihal Sarin var afar viðburðarík. Nokkrir óvæntir leikir og endalok þar sem Indverjinn varð að láta drottningu sína af hendi eftir flókna byrjun: EM skákfélaga 2022; 2. umferð: Margeir Pétursson – Nihal Sarin Enskur leikur 1. c4 e5 2. g3 c6 3. Rf3 e4 4. Rd4 d5 5. cxd5 Dxd5 6. e3 Rf6 7. Bg2 Bg4 8. Dc2 Ra6 9. a3 Rc5 10. Rc3 Dh5 10. … Rd3+ hefði verið svarað með 11. Dxd3! exd3 12. Rxd5 og hvíta staðan er betri, en 10. … Dc4 var athyglisverður möguleiki. 11. h3 Kannski missti Margeir af besta tækifæri sínu í þessari stöðu, 11. Rxe4! Rfxe4 12. b4! o.s.frv. eða 11. … Rcxe4 12. Bxe4 og svartur hefur litlar bætur fyrir peðið. 11. … Bf3?! 12. Bxf3 exf3 13. b4 Re6 14. Rf5 g6 15. g4 Dg5 16. Rg3 Bg7 17. Bb2 Dh4 18. Rce4 O-O 19. Rxf6 Bxf6 20. Re4 Bxb2 21. Dxb2 Hfd8 22. Hg1 Rg5 23. Df6 Furðuleg staða. Næsti leikur Sar- ins kom eins og þruma úr heiðskíru lofti … 23. … Rxe4! 24. Dxh4 Hxd2 25. De7 He2+ 26. Kd1 Rxf2+ 27. Kc1 Rd3+ 28. Kd1 Rf2+ 29. Kc1 Rd3+ 30. Kd1 – og hér sömdu keppendur jafn- tefli. Það er ekkert meira að hafa úr stöðunni en þráskák. Glíman við Simen Agdestein Skák Helgi Ólafsson helol@simnet.is Morgunblaðið/Helgi Árnason. Gafst upp Svíinn Andreas Lundström tók tapinu fyrir hinni 10 ára gömlu Emilíu Emblu Berglindardóttur ekki illa. Alexander Stefánsson fædd- ist 6. október 1922 í Ólafsvík. Foreldrar hans voru hjónin Stefán Sumarliði Kristjánsson, f. 1884, d. 1968, og Svanborg María Jónsdóttir, f. 1891, d. 1978. Alexander lauk samvinnu- skólaprófi í Reykjavík árið 1943 og var síðan starfsmaður við kaupfélagið Dagsbrún í Ólafsvík og kaupfélagsstjóri þar frá 1947. Hann varð skrif- stofustjóri Ólafsvíkurhrepps 1962, oddviti og síðan sveitar- stjóri 1966-1978. Hann var for- maður sóknarnefndar Ólafsvík- ursöfnuðar í áratugi. Alexander var alþingis- maður fyrir Framsóknarflokk- inn 1978-1991 og félagsmála- ráðherra 1983-1987. Alexander var formaður Samtaka sveitarfélaga á Vest- urlandi frá stofnun þeirra 1969 til 1976, sat í stjórn Sambands íslenskra sveitarfélaga 1974- 1982 og varaformaður síðustu fjögur árin, í stjórn Hafnasam- bands sveitarfélaga 1969-1982 og stjórn Innheimtustofnunar sveitarfélaga frá upphafi 1971 til 1982. Í bankaráði Útvegs- banka Íslands sat hann 1976- 1983. Eiginkona Alexanders var Björg Hólmfríður Finnboga- dóttir, f. 1921, d. 2013. Þau eignuðust sex börn. Alexander lést 28. maí 2008. Merkir Íslendingar Alexander Stefánsson Árið 2001 ákváðu stjórnvöld að aðskilja opinbera stjórnsýslu minjamála á Íslandi frá safnareksti og rann- sóknarvinnu Þjóð- minjasafns Íslands. Í kjölfarið urðu til tvær nýjar stofnanir, Forn- leifavernd ríkisins og Húsafriðunarnefnd ríkisins sem síðar voru sameinaðar í eina stofnun, Minjastofnun Íslands, árið 2012. Með þessari nýskipan varð grundvallarbreyting á valdsviði og hlutverki þjóðminjavarðar frá því sem áður var. Engu að síður var hið gamla embættisheiti látið fylgja nýju starfi forstöðumanns (safnstjóra) Þjóð- minjasafnsins. Sú ákvörðun hefur alla tíð síðan valdið margháttuðum mis- skilningi, jafnt hjá lærðum sem leik- um, eins og ráða má af umræðum undanfarinna vikna um ráðningu nýs þjóðminjavarðar. Á Norðurlöndunum er starfsheitið ríkisminjavörður/þjóðminjavörður (rigsantikvar) notað til að lýsa starfi æðsta yfirmanns minjavörslu viðkom- andi lands sem er sambærilegt við starf forstöðumanns Minjastofnunar Íslands. Hlutverk hins íslenska þjóð- minjavarðar er að reka safn með öllu sem slíkri starfsemi fylgir. Þannig er því ekki háttað hjá hinum Norður- landaþjóðunum þar sem þjóð- eða rík- isminjaverðirnir stýra minjavörslu síns lands og safnstjórar ríkissöfn- unum. Þjóðminjasafnið er eitt þriggja höf- uðsafna landsins og er í forsvari fyrir önnur menningarminjasöfn. Þangað ber að skila jarðfundnum forngripum, með vitneskju og í sam- vinnu við Minjastofnun og þar enda skýrslur og gögn úr fornleifarann- sóknum, einnig með vit- neskju og í samvinnu við Minjastofnun. Minja- stofnun Íslands, hin eig- inlega þjóðminjavarsla á Íslandi, fer með fram- kvæmd laga um menn- ingarminjar. Í því felst meðal annars að veita leyfi, hafa eftirlit og gefa umsagnir um fornleifar, byggingar, mannvirki, menningar- landslag og flutning muna úr landi. Öll höfuðsöfnin þurfa heimild Minjastofn- unar til ýmissa verkefna sinna, eins og fornleifarannsókna og flutnings gripa og listaverka til sýninga erlendis. Starfsheitið þjóðminjavörður á ræt- ur að rekja til aðstæðna á fyrstu ára- tugum 20. aldar þegar einn embætt- ismaður stýrði minjasafni landsins og hafði á sama tíma eftirlit með allri minjavörslu á landsvísu. Vel færi á því að samræma starfsheiti forstöðu- manna höfuðsafnanna þriggja, þannig að þau verði lýsandi fyrir eðli starfsins í breyttum heimi. Hugleiðing um starfsheitið þjóðminjavörður Kristín Huld Sigurðardóttir Kristín Huld Sigurðardóttir »Heitið þjóðminja- vörður má rekja til upphafs 20. aldar þegar einn embættismaður stýrði Þjóðminjasafni og hafði eftirlit með minja- vörslu á landsvísu. Höfundur er forstöðumaður Minjastofnunar Íslands. kristinhuld@minjastofnun.is Nú finnur þú það sem þú leitar að á FINNA.is

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.