Morgunblaðið - 08.10.2022, Síða 36

Morgunblaðið - 08.10.2022, Síða 36
36 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 8. OKTÓBER 2022 ✝ Jóhanna fædd- ist í Kolsholts- helli í Villinga- holtshreppi 25. apríl 1944. Hún lést á Akureyri 26. september 2022. Foreldrar Jóhönnu voru Sigmar Ingi Torfason, f. á Hofi í Norðfirði 15.8. 1918, d. 4.2. 1997, prestur og bóndi á Skeggjastöðum og prófastur Norður-Múlaprófastsdæmis og síðar Múlaprófastsdæmis, og Guðríður Guðmundsdóttir, f. 8.4. 1921, d. 26.4. 2002, skóla- stjóri og oddviti á Skeggjastöð- um. Jóhanna giftist Kristmundi Magnúsi Skarphéðinssyni, f. 23.5. 1955, stýrimanni árið 1980. Þau slitu samvistum árið 1998 en hófu sambúð aftur árið 2022. Börn Jóhönnu og Krist- mundar Magnúsar eru María Ósk, f. 1981, þekkingarstjóri hjá Alcoa, búsett á Egilsstöð- um. Maður hennar er Þórir Björn Guðmundsson, véliðn- fræðingur, og eru börn þeirra Hanna Sólveig, f. 2009, Krist- mundur Karl, f. 2012, Vigdís Klara, f. 2016, og Sigmar Ingi, f. 1985, hugbúnaðarsérfræð- ingur hjá Landsbankanum, bú- Jóhanna var kennari við Barnaskólann á Laugarvatni 1966-’67, forfallakennari og skólaritari við Hlíðaskóla í Reykjavík 1967-’69, sum- arbúðastjóri í Reykjakoti í Ölf- usi og á Eiðum í Eiðaþinghá sumrin 1968-’73, kennari við Mýrarhúsaskóla á Seltjarn- arnesi 1969-’71 og 1972-’75. Jó- hanna var forstöðukona vist- heimilis Hrafnistu í Reykjavík 1975-’99. Jóhanna vígðist sem sókn- arprestur í Eiðaprestakalli 1999 og var skipuð sókn- arprestur í Egilsstaðapresta- kalli frá 2011. Hún var prófast- ur í Múlaprófastsdæmi 2005 til 2011. Eftir starfslok starfaði hún sem afleysingaprestur við íslenska söfnuðinn í Noregi og við Reykhólaprestakall. Jó- hanna hafði umsjón með Kirkjumiðstöð Austurlands frá árinu 1999 og til dauðadags, fyrst sem sóknarprestur og eft- ir starfslok sem gjaldkeri stjórnar. Jóhanna sat í stjórn Útivist- ar 1983-’95, sat í sóknarnefnd Áskirkju í Reykjavík 1993-’97, í stjórn Félags guðfræðinema 1995-’96, sat í stjórn Soroptim- istaklúbbs Reykjavíkur 1997- ’99, var stofnformaður Sorop- timistaklúbbs Austurlands 2003-2005, sat í varastjórn Prestafélags Íslands frá 2000- 2001 og var varaformaður fé- lagsins 2001-2003. Útför Jóhönnu fer fram frá Egilsstaðakirkju í dag, 8. októ- ber 2022, kl. 13. settur á Egils- stöðum. Kona hans er Helena Rós Hrafnkelsdóttir, starfsmaður sýslu- manns. Sonur hennar er Hjörtur Hilmar Benedikts- son Kjerúlf, f. 2003, en synir Sig- mars og Helenu eru Magnús Ingi, f. 2012, og Aron Ingi, f. 2015. Systkini Jóhönnu eru: Stef- anía Sigmarsdóttir, f. 1945, skrifstofumaður, búsett í Kópa- vogi; Valgerður Sigmarsdóttir, f. 1947, handavinnukennari í Reykjavík; Marta Kristín Sig- marsdóttir, f. 1949, sérkennari í Reykjavík; Aðalbjörg Sig- marsdóttir, f. 1952, forstöðu- maður Héraðsskjalasafnsins á Akureyri, og Guðmundur Sig- marsson, f. 1957, verk- efnastjóri hjá Reykjavíkurborg. Jóhanna ólst upp á Skeggja- stöðum og gekk í barnaskóla þar, lauk stúdentsprófi frá MA 1965, lauk kennaraprófi frá KÍ 1966, stundaði djáknanám við Samariterhemmet í Uppsölum 1971-’72, nám í guðfræði við HÍ 1972-’73 og frá 1992. Hún lauk embættisprófi í guðfræði 1998. Við andlát Jóhönnu, elstu systur minnar, streyma minn- ingarnar fram. Minningar um góða systur og vinkonu. Æsku- heimili okkar var á prestssetr- inu Skeggjastöðum, þar var einnig stundaður sveitabúskapur og rekinn heimavistarskóli fyrir börn. Allt frá unga aldri tók Jó- hanna virkan þátt í flestu sem gera þurfti í sveitinni, s.s. smalamennskum, sauðburði, ým- iss konar húsverkum og hey- skap. Ef hún gat valið tók hún gjarnan útiverkin fram yfir inni- verkin. Heimilið á Skeggjastöðum var mannmargt, líka oft mjög gestkvæmt. Snemma tók Jó- hanna virkan þátt í að taka á móti gestum foreldra okkar og einstök gestrisni og gjafmildi fylgdi henni alla tíð. Fjölskylda mín hefur notið gestrisni hennar í gegnum tíðina. Heimili hennar stóð okkur opið jafnt að nóttu sem degi og hvort sem um var að ræða næringu, gistingu eða bara góða samveru. Þegar við Ásgrímur vorum á leið austur fengum við ævinlega upphring- ingu frá Jóhönnu. Hún var þá að athuga hvar við værum stödd svo kaffið eða maturinn yrði nú tilbúið þegar við kæmum. Hún var virkilegur höfðingi heim að sækja. Ég veit að ég á eftir að sakna þessara símtala eins og svo margs annars varðandi syst- ur mína. Jóhanna var afskaplega fé- lagslynd. Hún tók þátt í margs konar félagsstörfum og var þar oftast í forystuhlutverkum. Hún naut þess að hafa margt fólk í kringum sig og vildi alltaf hafa „hreyfingu á lífinu“ eins og hún sagði sjálf þegar hún dauðvona þáði boð um að flytja frá Sjúkrahúsinu á Akureyri í að- hlynningarhúsið í Götu Sólarinn- ar þar sem fjölskylda hennar annaðist hana af einstakri natni og umhyggju síðustu vikurnar. Jóhanna hafði alla tíð yndi af bóklestri. Strax í barnæsku las hún mikið. Á heimili okkar var bókasafn hreppsins sem hún nýtti sér vel og „datt þar stund- um ofan í“ eins og sagt var þeg- ar hún gleymdi sér þar við lest- ur. Jóhanna bar hag og velferð Kirkjumiðstöðvar Austurlands fyrir brjósti. Þar vann hún mik- ið og óeigingjarnt starf, síðustu árin í sjálfboðavinnu alveg fram undir andlátið. Barnabörnunum sinnti Jó- hanna af mikilli alúð og naut þess að hafa þau nálægt sér. Hún sinnti „afkomendaþjónust- unni“ eins og við kölluðum það af miklum dugnaði, sótti í leik- skóla, keyrði í tómstundir, kenndi að lesa, aðstoðaði við heimanám, eldaði fyrir fjölskyld- urnar o.s.frv. Síðustu árin glímdi Jóhanna við krabbamein sem hún tókst á við af sama dugnaði og æðru- leysi og önnur störf og hafði lengi vel betur í þeirri baráttu. Síðustu vikurnar voru henni erf- iðar en allt til síðustu stundar hélt hún sínum karakter. Hún fylgdist með öllum fréttum og hvernig barnabörnunum gengi í skóla og tómstundum. Hún hlakkaði alltaf til þegar von var á gestum í Götu Sólarinnar, hringdi í vini og kunningja og hafði skoðun og áhrif á hvað fólkið hennar og gestir fengu að borða. Þegar ég heimsótti hana dauðvona og máttlitla bað hún mig að horfa með sér á uppá- haldsþáttinn hennar í sjónvarp- inu eins og við gerðum svo oft þegar við hittumst. Við Ásgrímur erum þakklát fyrir allar góðu samverustund- irnar og símtölin. Við eigum eft- ir að sakna þeirra, gestrisni hennar og umhyggju. Við minn- umst hennar með hlýhug og miklu þakklæti. Hver minning er dýrmæt. Kristmundur, Sigmar Ingi, María Ósk og fjölskyldur, Guð blessi ykkur og minningu Jó- hönnu. Megi allar góðu minning- arnar vera ykkur styrkur í sorg- inni. Marta Kristín Sigmarsdóttir. Við andlát sr. Jóhönnu Sig- marsdóttur rifjast upp góð kynni sem ná aftur á miðjan átt- unda áratug síðustu aldar. Þá var hún tiltölulega nýorðin for- stöðukona á Hrafnistu DAS í Reykjavík og fékk unglinga úr Kristilegum skólasamtökum (KSS) til að annast helgistundir á heimilinu um nokkurt skeið. Fáeinum árum síðar starfaði undirritaður í þrjú ár sem næt- urvörður á Hrafnistu og fetaði þannig í fótspor eldri guðfræði- nema sem Jóhanna hafði ráðið á næturvaktirnar. Aftur lágu leiðir okkar saman um miðjan tíunda áratuginn þegar ég sem starfandi sókn- arprestur í Laugarnespresta- kalli sinnti prestsþjónustu á Hrafnistu í sumarleyfi sóknar- prestsins í Ásprestakalli. Þá var Jóhanna langt komin með guð- fræðinámið og farin að hugsa sér til hreyfings eftir langa og dygga þjónustu við skjólstæð- inga sína á dvalarheimilinu. Stuttu eftir aldamót lágu leið- ir okkar enn saman, að þessu sinni í stjórnarstörfum fyrir Prestafélag Íslands. Heilindi og yfirvegun einkenndu störf Jó- hönnu á þeim vettvangi. Hún var málefnaleg og skynsöm og bar hag kirkjunnar sinnar fyrir brjósti. Hinu víðfeðma Eiða- prestakalli sinnti hún af mikilli kostgæfni og reyndist einnig mjög góður prófastur. Guð blessi minningu mætrar konu. Hún þjónaði af heilum hug skapara sínum og lausnara og hugsaði vel um skjólstæðinga sína. Ólafur Jóhannsson. Leiðir okkar Jóhönnu lágu fyrst saman haustið 1989 þegar við fluttum úr Önundarfirði aft- ur til Reykjavíkur á æskuheim- ili eiginmanns míns á Kambs- vegi 13. Jóhanna og Kristmundur bjuggu þá á efri hæðinni ásamt börnum sínum þeim Maríu Ósk og Sigmari en þau voru sem næst jafnaldra yngri börnum okkar þeim Jó- hönnu Lind og Ingólfi. Einnig bjó í þeirra skjóli um árabil Hrefna fóstursystir Jóhönnu. Með okkur Jóhönnu tókst góð vinátta sem skipti miklu máli þar sem mikill samgangur var á milli hæða en engan skugga bar á og átti Jóhanna þar drjúgan hlut með sínu einstaka jafnaðar- geði. Við deildum ekki bara sama húsi heldur líka vinnu- staðnum Hrafnistu þar sem við unnum, Jóhanna við stjórnun félagsstarfs aldraðra og ég við hjúkrun, Kristmundur sem gæslumaður, Hrefna að skúra og meira að segja krakkarnir okkar voru þar í sumarvinnu. Ekki má gleyma hápunktum þar eins og sjómannadeginum, jólaböllum og þorrablótum. Það má því segja að Hrafnista hafi verið yfir og undir og allt um kring í fjölskyldum okkar þau árin. Það var á Hrafnistuárun- um sem ég tók upp þráðinn og lét gamlan draum rætast og lauk stúdentsprófi úr öldunga- deildinni í MH. Jóhanna gerði líka draum sinn að veruleika og lauk guðfræðiprófi. Hún sagði mér síðar að það að ég fór í nám hafi hvatt hana til þess sama og mér var það gleðiefni. Það léku góðir straumar um tví- býlið á Kambsveginum á þeim árum. En svo skildi leiðir þegar Jóhanna vígðist til Eiðapresta- kalls á Héraði og var þá orðin séra Jóhanna og þar með komin heim á ættarslóðir. Með tím- anum sameinaðist svo öll fjöl- skyldan fyrir austan að loknu námi og ýmsum störfum hér syðra. Jóhanna hafði því að lok- um í kringum sig allt sitt fólk. Allt var það verðskuldað. Börn- in okkar voru æskufélagar, skólafélagar og vinir. Mér er alltaf minnisstæður fyrsti skóla- dagur drengjanna okkar þegar þeir trítluðu af stað með nýjar skólatöskur á bakinu, þó nokkur stærðarmunur á þeim og er enn. Þegar krakkarnir voru að leik, annaðhvort uppi eða niðri eins og við kölluðum það, þá var það til að létta okkur sporin að hóa í þau með gömlu innanhúss- bjöllunni frá þeim tíma að að- eins var einn sími í húsinu. Jó- hanna var þrekmikil útivistarkona og fór ófáar ferðir með Útivist og auðvitað var krökkunum okkar boðið með, annað kom ekki til greina. Jó- hanna var traust og eljusöm eins og lífshlaup hennar ber með sér og ósérhlífin í öllu sem hún tók sér fyrir hendur. Síð- ustu ár átti hún þó við veikindi að stríða sem hún tók með sínu jafnaðargeði og æðruleysi, sagð- ist bara fara reglulega í með- Jóhanna Ingibjörg Sigmarsdóttir HJARTAVERND Minningarkort 535 1800 www.hjarta.is Elskulegur eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir og afi, ÞORVALDUR BÚASON eðlisfræðingur, lést að morgni 6. október. Útförin fer fram í kyrrþey. Kristín Norðfjörð Agnar Búi Þorvaldsson Sverrir Örn Þorvaldsson Hrund Einarsdóttir Þorvaldur Arnar Þorvaldsson Guðrún Lilja Óladóttir Vífill Sverrisson Svala Sverrisdóttir Benedikt Flóki Þorvaldsson Kristín Fjóla Þorvaldsdóttir Ástkær faðir okkar, tengdafaðir og afi, BRYNJÓLFUR AÐALSTEINN BRYNJÓLFSSON lést á Landspítalanum í Fossvogi laugardaginn 1. október. Útför hans fer fram frá Guðríðarkirkju þriðjudaginn 18. október klukkan 13. Egill Darri Brynjólfsson Sóley Dögg Grétarsdóttir Lísa Sigríður Greipsson Rafn Hafberg Guðlaugsson Trine Løvik Aðalbjörg, Hákon Darri, Andrea Dögg, Greipur, Ingibjörg og Lars Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, ÁSRÚN HELGA KRISTINSDÓTTIR, lést á Skógarbæ föstudaginn 30. september. Útförin fer fram frá Guðríðarkirkju þriðjudaginn 11. október klukkan 13. Sigurbjörg Jónsdóttir Hilmar Þór Hauksson Sigmundur Jónsson Nanna Guðrún Yngvadóttir Reynir Jónsson Bentína Þórðardóttir barnabörn og barnabarnabörn Ástkær kona mín, móðir okkar, tengdamóðir og amma, GUÐBJÖRG SIGURÐARDÓTTIR, Skógarbraut 1104, Reykjanesbæ, sem lést laugardaginn 24. september, verður jarðsungin frá Lindakirkju miðvikudaginn 12. október klukkan 11. Valdimar Össurarson Jónína Eyvindsdóttir Eiríkur Stefán Einarsson Jóhann Eyvindsson Fanný Kristín Tryggvadóttir og barnabörn Útför elsku móður okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu, ÞÓRUNNAR M. INGIMARSDÓTTUR, fer fram frá Hafnarfjarðarkirkju miðvikudaginn 12. október klukkan 13. Hún lést á Torrevieja á Spáni 30. maí. Bálför fór fram þar í landi. Jarðsett verður í Kirkjugarði Hafnarfjarðar. Ingimar Friðrik Jóhannsson Kristín Hraundal Pálína Ósk Hraundal Ísak Einarsson barnabörn og barnabarnabörn Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, JÓNA MAGNEA JÓNSDÓTTIR bréfberi, lést á Hjúkrunarheimilinu Sóltúni þriðjudaginn 27. september. Útförin fer fram í Áskirkju þriðjudaginn 11. október klukkan 15. Jón Einarsson Erla Maria Nordgulen Aðalsteinn Einarsson Magnús Einarsson Andrea Steinarsdóttir Sigurður Einarsson Þorbjörg Markúsdóttir barnabörn og barnabarnabörn

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.