Morgunblaðið - 08.10.2022, Side 39

Morgunblaðið - 08.10.2022, Side 39
MINNINGAR 39 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 8. OKTÓBER 2022 ✝ Þóra Hólm Hinds, fædd Ill- ugadóttir, fæddist í Vestmannaeyjum 2. mars 1928. Hún andaðist í faðmi fjölskyldunnar, 94 ára að aldri, 3. september 2022, á heimili sínu í Clov- is, Kaliforníu, Bandaríkjunum. Foreldrar hennar voru þau Margrét Eyjólfsdóttir (1883-1945) og Illugi Hjörtþórs- son (1886-1930). Þóra var yngst sjö alsystkina en þau voru Elías herþjónustu á Íslandi. Gengu þau í hjónaband árið 1944. Þau eignuðust fimm börn og þrjú þeirra lifa móður sína, þau Margret Ora (Hinds) Voss, Linda Marie (Hinds) Grant og Michael Anthony Hinds en látnir eru Samuel Russell Hinds og Thomas Odin Hinds. Barna- börnin eru 14, langömmubörnin eru 29 og langa-langömmu- börnin eru þrjú. Minningarathöfn verður haldin í dag 8. október 2022. Að henni lokinni verður Þóra jarð- sett í San Joaquin Valley Nat- ional kirkjugarðinum í Santa Nella, Kaliforníu. Þar mun hún hvíla við hlið ástkærs eigin- manns síns og sameinast honum í eilífðinni. Óskar (1909-1975), Einar Sölvi (1911- 1972), Gréta Vil- borg (1912-1999), Gunnlaugur Sæ- mundur (1914- 1916), Gunnlaugur Hólm (1917-1918) og Guðný Inga (1920-2001). Sam- feðra var Jóna Alda Illugadóttir (1918- 1992). Þóra kynntist eiginmanni sín- um, Russell Hammond Hinds yngri, f. 21. mars 1924, d. 28. júní 2007, þegar hann gegndi Þóra og Russell fluttu til Bandaríkjanna í apríl 1945 ásamt Margret, kornungri dótt- ur þeirra. Þau hjónin áttu heimili víða vegna atvinnu Russells og um skeið bjuggu þau í Hollandi en lengst af áttu þau heimili í Fresno, Kaliforníu, þar sem Russell lést 28. júní 2007. Þóra sinnti börnum sínum og heimili af alúð alla sína búskap- artíð og átti hún mörg áhugamál. Þar má helst nefna elda- mennsku, hannyrðir og garð- yrkju. Hún var einnig mjög list- ræn í sér. Hennar verður ávallt minnst fyrir íslenska bakkelsið og góðgætið sem hún bjó til handa fjölskyldumeðlimum. Tón- list átti einnig stóran sess í lífi Þóru og naut hún þess að syngja fyrir börnin sín þegar þau voru lítil og seinna meir söng hún fyr- ir ömmubörnin með sinni fallegu röddu. Hún var virk í kórastarfi alla sína tíð. Þóra var mjög trúuð og var hún virkur safnaðarmeð- limur í Biskupakirkjunni þar sem hún tók reglulegan þátt í starfi kirkjunnar. Þóra hafði Biblíuna ávallt innan handar á meðan hún lifði. Þóra var glaðlynd kona sem fékk fólk til að brosa og syngja og hennar gleði fólst í því að gleðja aðra. Eitt af hennar uppá- haldsorðtökum var: „Elska þig meira“ og með þeim orðum kveður fjölskyldan ömmu Þóru í hinsta sinn en hennar verður sárt saknað af fjölskyldu og vin- um. Hvíl í friði. Margret Ora (Hinds) Voss og fjölskylda. Þóra Hólm Hinds ✝ Regína Frí- mannsdóttir fæddist á Austari- Hóli í Flókadal í Skagafirði 16. júlí 1936. Hún lést á Sjúkrahúsi Siglu- fjarðar 24. sept- ember 2022. Foreldrar henn- ar voru Frímann Viktor Guðbrands- son, f. 12. janúar 1892, d. 5. maí 1972, og Jósefína Jósefsdóttir, f. 18. janúar 1893, d. 6. október 1957. Regína átti 15 systkini sem öll eru látin. Regína giftist hinn 5. október 1958 Benedikt Sigurjónssyni frá Steinavöllum í Fljótum, f. 17.9. 1934, d. 15.4. 2002. Foreldrar hans voru Sigurjón Gíslason og Ingibjörg Þorgrímsdóttir. Regína og Benedikt eign- uðust fimm börn, 16 barnabörn og barnabarnabörnin eru 32. Börn Regínu og Benedikts eru: 1) Þórhallur Jón, f. 1955, en hann lést árið 2015. Hann eign- aðist þrjú börn og sex barnabörn. 2) Ingibjörg Jósefína, f. 1958, maki Þor- steinn Jóhannsson. Þau eiga þrjú börn og fimm barna- börn. 3) Hanna Þóra, f. 1960, maki Ingvar Kristinn Hreinsson. Þau eiga fjögur börn og 10 barnabörn. 4) Berglind Svala, f. 1963, maki Ingþór Sigurðsson. Þau eiga fjögur börn og 10 barnabörn. 5) Kristján Dúi, f. 1965, hann á tvö börn og eitt barnabarn. Regína ólst upp á heimili for- eldra sinna á Austari-Hóli. Reg- ína og Benedikt fluttu til Siglu- fjarðar 1959 og bjuggu þar alla tíð. Regína var heimavinnandi húsmóðir fyrstu árin, en þegar hún fór út á vinnumarkaðinn starfaði hún lengst af við fisk- vinnslu og heimilishjálp. Útförin fór fram í kyrrþey að hennar ósk. Nú kveðjum við elsku ömmu Reggu í hinsta sinn og um leið eru ótal margar góðar minningar sem koma upp í hugann þegar hennar er minnst. Fyrstu minningarnar okkar með henni eru frá því að við vorum kornung, þegar hún faðm- aði okkur þétt að sér, ruggaði okkur á lærinu á sér og söng vögguvísur með sinni fallegu rödd. Öll barnabörnin sóttu mikið í ömmu vegna þess að hún gaf sér alltaf tíma fyrir okkur, hvort sem það var spjall, spil eða einhver annar hversdaglegur atburður. Amma hafði alltaf einlægan áhuga á að ræða við barnabörnin sín, og voru stundirnar saman við eldhúsborðið alltaf skemmtilegar, s.s. að spila, spjalla um daginn og veginn og hlusta á sögur sem allt- af voru sagðar af mikilli snilld. Hún hafði einstakan húmor og smitandi hlátur og maður naut alltaf nærveru hennar. Amma naut þessara stunda ekki síður en börnin enda var hún einstaklega barngóð manneskja. Amma var snillingur í bakstri og var annáluð fyrir kleinurnar sínar sem voru þær bestu í heimi. Hún átti alltaf kleinupoka í fryst- inum sem gestir fengu að njóta í heimsóknum hjá henni. Þá voru kleinurnar hitaðar og svo var spjallað á meðan nokkrir kleinu- pokar voru tæmdir. Amma var einstaklega hand- lagin, hvort sem það var við slát- urgerð, verkun á fiski eftir veiði hjá afa eða við það að prjóna sokka og vettlinga á afkomendur sína. Hún var ótrúlega dugleg og vandvirk við allt sem hún tók sér fyrir hendur enda bar heimili hennar þess ávallt merki. Amma lifði fyrir börnin sín og afkomendur. Barngæska hennar fylgdi henni alla ævi og þegar við sjálf urðum eldri og eignuðumst okkar eigin börn, þá rétti hún allt- af út faðminn með einlægum gleðisvip þegar hún tók á móti yngstu afkomendum sínum sem skynjuðu strax hlýja nærveru frá ömmu og hlupu strax í faðminn hennar. Amma átti í góðu sambandi við afkomendur sína alla tíð. Hún hringdi reglulega í þá sem bjuggu fjær henni og var hún því vel upp- lýst um líðan allra í fjölskyldunni auk þess sem henni voru færðar fréttir af langömmubörnunum sem henni fannst svo mikilvægt að vita um. Amma gleymdi aldrei afmælisdegi hjá nokkrum afkom- anda og notaði alltaf tækifærið til að heyra í þeim á afmælisdaginn. Við kveðjum ömmu með djúp- um söknuði og sorg í hjarta en er- um í leiðinni glöð og ánægð yfir því að hafa fengið tækifæri til að njóta vináttu og einstakrar hlýju hennar allt til æviloka. Við erum þakklát fyrir það veganesti sem hún gaf okkur út í lífið og á því munum við lifa og koma áfram til afkomenda okkar. Blessuð sé minning elsku ömmu Reggu. Við vottum fjölskyldu og öllum að- standendum ömmu samúð okkar. Andri Ísak, Lárus, Eva María og fjölskyldur. Jæja nú eru þau farin öll systk- inin 16, Frímannsbörn og Jósef- ínu, frá Austari-Hóli í Flókadal. Yngsta systkinið, Regína, er fallin frá. Okkur sem til þekkjum finnst eins og nú sé endanlega kvaddur gamli tíminn eins og hann var í Flókadalnum. Regína og Benni byrjuðu sína búskapartíð hjá afa og ömmu í syðri-bænum á Aust- ari-Hóli, í þessu litla húsi á land- lítilli jörð. En svona var þetta í dalnum blómlega, það var sleginn hver blettur og allir undu glaðir við sitt. Það var gestkvæmt heima. Börnin nýtrúlofuð eða –gift og ástin og rómantíkin blómstraði úti í náttúrunni á hverri þúfu má segja. Áin óbrúuð og herrarnir báru sínar dömur yfir ána, ann- aðhvort í fanginu aða á bakinu. Austari-Hóll var ævintýraheimur fyrir okkur börnin, ekki síst Smiðjumórinn þar sem smáfólkið átti sín bú. Og einmitt þegar fólk- ið var sem flest á Austari-Hóli komu kýrnar frá Sigríðarstöðum með nautið í broddi fylkingar brjálaðar og öskrandi yfir ána. Greip um sig mikil skelfing en allt fór vel. En svo dó amma og fljótlega flutti fólkið úr syðri-bænum til Siglufjarðar. Óskaplega var þá tómlegt. Táknrænt fyrir þennan tómleika fannst mér að sjá annan flókaskóinn afa í stofunni. Það var það eina sem varð eftir, en allt svo stórt og tómt í minningunni. Meira að segja litla eldhúsið í hús- kveðjunni þegar amma var jörð- uð. Þegar ég stóð ofan á koffort- inu í horninu undir útvarpshillunni og horfði yfir skarann að mér fannst. Það var spennandi að koma í fyrsta skiptið í heimsókn til Siglu- fjarðar, í kaupstaðinn. Þá bjuggu Regga og Benni í litlu húsi við Túngötuna. Nokkru seinna var ég staddur í Neskoti þegar Benni kemur í heimsókn og færir þær fréttir að þau Regína séu búin að kaupa annað húsnæði. Ég sé ennþá Ingibjörgu, hún geislaði gamla konan af gleði og stolti yfir syninum og tengdadótturinni frá Austari-Hóli. Þau voru sannar- lega ungt fólk á uppleið. Það var gaman að heimsækja Reggu og Benna. Benni ávallt með sögur á takteinum og hermdi eftir manni og öðrum. Stundum fannst reynd- ar Reggu nóg um og þá var sussað en hlegið í leiðinni. Ég hélt reglulegum tengslum við Regínu um tíðina. Það var öll- um ljóst að henni varð mikið áfall og missir þegar Benni dó. Ekki bætti úr skák þegar hún missti líka Þórhall sinn fyrir rúmum sjö árum. En hún var sú manneskja sem bar ekki sínar sorgir á torg. Í mínum huga var Regína sterk, hlý og skemmtileg frænka. Hún hefur áreiðanlega stutt margan um tíðina, hennar er nú sárt sakn- að af nánustu skyldmennum og vinum. Tifar tímans hjól og fólk safn- ast á fund feðranna. Ekki eru nema nokkrar vikur síðan Pálína Frímanndóttir kvaddi. Það var stutt á milli þeirra systra. Fyrir skömmu kvöddum við Guðnýju Erlu Guðmundsdóttur með fal- legri athöfn í Akureyrarkirkju. Blessuð sé minning Pálínu og Erlu. Það er því orðið nokkuð fjöl- mennt á ættarmótinu fólksins frá Austari-Hóli í Sumarlandinu og nú bætist Regína í þann hóp. Um leið og við Halla sendum börnum og öðru venslafólki Regínu sam- úðarkveðjur biðjum við góðan Guð að blessa minningu Regínu Frímannsdóttur. Þórhallur Ásmundsson. Elsku fallega amma mín. Nú ertu komin í sumarlandið eftir erfiða síðustu mánuði. Það má segja að þú hafir ekki náð þér al- mennilega á strik eftir að veiran skæða náði í skottið á þér snemma á þessu ári. „Ert þetta þú, fallega ömmustelpan mín?“ hljómar í eyrum mínum þegar ég hugsa um þig. Þú varst alltaf svo dugleg að hrósa mér fyrir alls- kyns hluti sem enginn veitti at- hygli nema þú. Þú varst dugleg að spyrja um námið mitt og hvattir mig stöðugt áfram – reyndar var það þín skoðun að ég ætti sko að verða læknir en ekki sjúkraliði, því ég væri sko með allt uppá 10. Ég elska þig svo innilega, svo ljúf og góð amma sem allir vildu eiga. Þú lést manni alltaf líða vel og reglulega skýtur upp minningu síðan ég var pínupons og var í fanginu þínu, þú ruggaðir mér og söngst fyrir mig Siggi var úti með ærnar í haga, þarna leið mér vel. Mér finnst ég vera einstaklega heppin að hafa byrjað að vinna á sjúkrahúsinu og þannig fengið að eyða miklum tíma í þinni návist. Þér leist ekki alltaf vel á það þeg- ar voru frí framundan hjá mér, en þú áttir stað í hjarta allra þeirra sem vinna með mér, svo að þú vissir alveg að þú varst í góðum höndum þó svo að ég væri í fríi. Þú vildir bara helst hafa mig alla daga og ég fann það svo sterkt hvað þér fannst gott að hafa mig innan handar. Það var í maí sem að kallaður var til prestur og mín kona var skírð og fermd tæplega 86 ára gömul, þú ljómaðir af gleði að hafa loksins látið skíra þig og áttir þú góðan dag með nokkrum af þínum nánustu. Ég er nokkuð viss um það að þú hafir vitað að það væri ekki svo langt eftir og það hafi verið þess vegna sem þú vild- ir ganga frá þessum málum. Ó, þetta var svo góður dagur. Ég veit að þér líður betur núna, komin í sumarlandið til afa og Tóta sem ég veit að hafa tekið á móti þér fagnandi ásamt auðvitað öllum hinum. Ég mun sakna þín innilega elsku amma mín, ég minnist þín með bros á vör og ylja mér við all- ar minningarnar. Elska þig að eilífu. Þín ömmustelpa, Bryndís. Regína Frímannsdóttir ✝ Reynald Þrá- inn Jónsson fæddist á Dalvík 3. febrúar 1938. Hann lést á hjúkrunar- heimilinu Ísafold í Garðabæ 24. sept- ember 2022. Reynald var son- ur hjónanna Jóns Sigurðssonar húsa- smíðameistara, f. 16.12. 1897, d. 16.11. 1980, og Hólmfríðar Magnúsdóttur húsfreyju, f. 26.5. 1910, d. 10.9. 1995. Reynald er fyrstur til að kveðja úr stórum systkinahópi, eftirlifandi eru: Ósk, Sigurður, María, Sigríður, Filippía og Kristín Jóna. Reynald kvæntist 5.4. 1959 Sesselju Guðmundsdóttur, f. 8. ágúst 1940, d. 9. janúar 1987, og eignuðust þau þrjú börn; Sigríði Ósk, Sigurð og Guðmund Þór. Sambýliskona Reynalds frá 1987 var Katrín Árnadóttir fiðlukennari, f. 30.5. 1942, sonur Katrínar og stjúp- sonur Reynalds er Árni Jón Eggerts- son. Reynald lærði húsasmíði hjá föður sínum, lauk sveins- prófi 1960 og lauk BS-prófi í bygging- artæknifræði frá Odense Teknikum í Danmörku 1965. Hann var bæj- artæknifræðingur og bygging- arfulltrúi á Húsavík 1966-71, sinnti jafnframt stundakennslu við Iðnskólann þar. Þá vann hann hjá Landsvirkjun við und- irbúning og eftirlit með Sigöldu- virkjun og Hrauneyjafoss- virkjun 1971-79. Starfrækti eigin teiknistofu, rak verslunina Alno eldhús og endaði sinn feril svo í byggingarframkvæmdum víða um land. Útför Reynalds fór fram í kyrrþey. Við andlát Reynalds Þ. Jóns- sonar rifjast upp ýmsar góðar minningar frá kynnum okkar sem hófust í Óðinsvéum í Dan- mörku um miðjan sjöunda ára- tug síðustu aldar. Þar vorum við samtímis við nám í tæknifræði við Odense Teknikum, virtan og vinsælan skóla, hann í bygginga- tæknifræði og ég í rekstrar- tæknifræði. Lauk hann námi ári á undan mér, 1965. Nokkur hóp- ur Íslendinga var við skólann á þessum tíma og talsverður sam- gangur á milli okkar landanna. Okkur Reynald varð fljótt vel til vina og heimsóttum við hvor annan reglulega með konum okkar. Hann var á þeim tíma kvæntur Sesselju Guðmunds- dóttir, mikilli ágætiskonu, og var dóttir þeirra Sigríður Ósk, þá 5-6 ára gömul, með þeim. Sesselja lést í hörmulegu bílslysi í ársbyrjun 1987. Við Reynald héldum sam- bandi eftir að heim var komið þó að hann væri fluttur norður á Húsavík þar sem hann gegndi starfi bæjartæknifræðings í nokkur ár. Mér er kunnugt um hve vel hann stóð sig þegar hita- veitan var lögð í bænum, en hún var tekin í notkun haustið 1970. Var lögð nær 20 km löng leiðsla frá Hveravöllum í Reykjahverfi til Húsavíkur. Þessi framkvæmd kallaði á náið samráð þeirra Reynalds og Björns Friðfinns- sonar, þáverandi bæjarstjóra, við bændur á þessari löngu leið. Heimsóttu þeir félagar hvern og einn bónda til að fá samþykki fyrir framkvæmdinni. „Já, þetta tókst bara vel,“ sagði Reynald við mig þegar ég hrósaði þeim fyrir árangurinn, en bætti við brosmildur: „En það tók mag- ann svolítinn tíma jafna sig!“ Þeir Björn höfðu auðvitað þurft að þiggja kaffi og veitingar á öll- um bæjunum. Á þessum tíma stóð Laxárdeilan fræga yfir en þar hafði mönnum láðst að eiga nauðsynlegt samráð við íbúa áð- ur en ákvörðun var tekin um virkjun. Reynald var síðar með ýmiss konar rekstur á sviði bygginga- framkvæmda og nutum við Edda, kona mín, hjálpar hans þegar unnið var að lagfæringu á húsi okkar á Einimel. Einkennd- ust öll þau vinnubrögð af vand- virkni. Við Edda sendum fjöl- skyldunni samúðarkveðjur. Blessuð sé minning Reynalds Þ. Jónssonar. Edda og Magnús Gústafsson. Reynald Þráinn Jónsson Innilegar þakkir fyrir samúð og hlýhug vegna andláts og útfarar elskulegrar eiginkonu minnar, móður, tengdamóður og ömmu, MARGRÉTAR JÓHANNSDÓTTUR. Þorgeir Ólafsson Jóhann Þorgeirsson Beatriz Rosario Steingrímur Þorgeirsson Sigrún Anna Ólafsdóttir og barnabörn Ástkær sonur okkar, bróðir, mágur, sonarsonur, frændi og vinur, ANDRI HARÐARSON, Geislatúni 1, Akureyri, lést á heimili sínu miðvikudaginn 28. september. Útför hans fer fram frá Grafarvogskirkju mánudaginn 17. október klukkan 13. Lilja Stefánsdóttir Hörður Hafsteinsson Davíð Rúdólfsson Eyrún Anna Einarsdóttir Björk Harðardóttir Heiðrún Harðardóttir Martin Wilson Hafsteinn Flórentsson Amanda Lind, Aron Ingi, Ásdís Eva, Aníta Mist, Kristófer Nökkvi, Axel Anthony, Elias Michael, Isak James starfsfólk og íbúar Geislatúni 1

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.