Morgunblaðið - 08.10.2022, Blaðsíða 49
Nýtt fyrirkomulag í Bestu
deild karla í fótbolta lofar góðu.
Þrátt fyrir að spennan í efri hlut-
anum sé ekki sérlega mikil, er
staðan í neðri hlutanum gott
dæmi um hversu spennandi efri
hlutinn gæti orðið á næstu árum.
Það er nokkuð ljóst að
Breiðablik verður Íslandsmeistari,
sem er gríðarlega verðskuldað
enda tímabil Breiðabliks búið að
vera magnað. Þá fá Víkingur og KA
verðskulduð Evrópusæti. Það er
gaman að sjá nýtt lið vera fulltrúa
Íslands í Evrópukeppni.
Vonandi verða til nýjar hetjur
á Norðurlandi í Evrópukeppni á
næsta ári, en Þór var einn fulltrúa
Íslands í Evrópukeppni árið 2012.
Þrátt fyrir að hafa fallið úr efstu
deild árið á undan og verið í 1.
deild, vann Þór 5:1-heimasigur á
Bohemians frá Írlandi í Evr-
ópudeildinni.
Sigurður Marinó Kristjánsson,
sem hefur skorað mark í 15. hverj-
um deildarleik sem hann hefur spil-
að á Íslandi, gerði sér lítið fyrir og
skoraði þrennu í leiknum. Fékk hann
viðurnefnið Evrópu-Siggi í kjölfarið.
En nóg um það. Neðri hlutinn í
Bestu deildinni er ótrúlega spenn-
andi og nánast hver leikur upp á líf
og dauða. ÍA tapaði fyrir Keflavík í
síðustu umferð og fer von Skaga-
manna, um að halda sér uppi, dvín-
andi. Með sigri hefði ÍA verið í miklu
betri stöðu. Hver einasti leikur er
svo mikilvægur.
ÍBV vann 2:1-sigur á FH á
heimavelli og sleit sig frá allra
mesta hættusvæðinu. Hefði FH
unnið væru FH-ingar komnir upp úr
fallsæti og hagur Eyjamanna verið
mun verri. Svona viljum við hafa
leikina í lok tímabils. Þar sem allt
er undir og lið sem eiga að vera
áþekk að styrkleika mætast í mik-
ilvægum leikjum, sem geta farið
hvernig sem er.
Í dag fær ÍA annað tækifæri til
að koma sér aftur inn í baráttuna
um að halda sér uppi er liðið mæt-
ir Fram. Fari svo að ÍA tapi, er út-
litið orðið afar svart og Skaga-
menn verða að fara að undirbúa
lífið í 1. deildinni. Á morgun mæt-
ast FH og Leiknir úr Reykjavík í
risastórum leik.
Með sigri fer FH úr fallsæti, en
fari svo að Leiknir fagni sigri er
FH allt einu fjórum stigum frá
öruggu sæti þegar þrír leikir eru
eftir. Það er svo ofboðslega mikið
undir og svo mikil spenna. Svona
viljum við hafa þetta og vonandi
verður efri hlutinn eins spennandi
á næstu árum.
BAKVÖRÐUR
Jóhann Ingi
Hafþórsson
johanningi@mbl.is
ÍÞRÓTTIR 49
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 8. OKTÓBER 2022
Olísdeild karla
Fram – Valur ........................................ 37:34
Staðan:
Valur 6 5 0 1 190:162 10
ÍBV 5 3 2 0 188:146 8
Fram 6 3 2 1 174:169 8
Haukar 4 2 1 1 112:109 5
KA 5 2 1 2 143:140 5
Grótta 5 2 0 3 139:135 4
Stjarnan 5 1 2 2 141:146 4
FH 5 1 2 2 136:143 4
ÍR 5 2 0 3 141:175 4
Afturelding 4 1 1 2 104:103 3
Selfoss 4 1 1 2 111:118 3
Hörður 4 0 0 4 114:147 0
Grill 66-deild karla
Víkingur – Fjölnir ................................ 25:25
HK – KA U............................................ 36:36
Haukar U – Kórdrengir....................... 30:22
Staðan:
HK 3 2 1 0 105:87 5
KA U 3 2 1 0 104:99 5
Valur U 2 2 0 0 59:53 4
Víkingur 3 1 1 1 92:89 3
Fjölnir 2 1 1 0 54:52 3
Haukar U 2 1 0 1 53:49 2
Þór Ak. 2 1 0 1 53:50 2
Fram U 2 0 0 2 52:58 0
Selfoss U 2 0 0 2 68:75 0
Kórdrengir 3 0 0 3 69:97 0
Grill 66-deild kvenna
Fjölnir/Fylkir – Grótta ........................ 20:29
Afturelding – ÍR ................................... 19:19
Staðan:
Grótta 2 2 0 0 58:41 4
ÍR 2 1 1 0 55:32 3
Víkingur 1 1 0 0 28:17 2
FH 1 1 0 0 26:20 2
Afturelding 1 0 1 0 19:19 1
Fram U 1 0 0 1 20:26 0
Valur U 1 0 0 1 21:29 0
Fjölnir/Fylkir 2 0 0 2 37:57 0
HK U 1 0 0 1 13:36 0
Evrópubikar kvenna
2. umferð, fyrri leikur:
Gjorche Petrov – KA/Þór .................... 20:20
_ Báðir leikir á Akureyri.
Danmörk
Ribe-Esbjerg – Bjerringbro/Silk ...... 31:31
- Elvar Ásgeirsson skoraði 2 mörk fyrir
Ribe-Esbjerg en Arnar Birkir Hálfdánsson
ekkert. Ágúst Elí Björgvinsson varði 9 skot
í marki liðsins.
Þýskaland
B-deild:
Wolfe Wolfsburg – Empor Rostock..... 27:3
- Hafþór Már Vignisson og Sveinn Andri
Sveinsson léku ekki með Empor Rostock
vegna meiðsla.
Frakkland
Séléstat – Cesson Rennes ................... 22:23
- Grétar Ari Guðjónsson varði 9 skot í
marki Séléstat.
E(;R&:=/D
KNATTSPYRNA
Besta deild karla:
Akranes: ÍA – Fram ............................... L14
Meistaravellir: KR – Valur .................... L14
KA-völlur: KA – Breiðablik ................... L14
Kaplakriki: FH – Leiknir R ................... S14
KÖRFUKNATTLEIKUR
1. deild kvenna:
Smárinn: Breiðablik b – Aþ/Lei/UM L17.15
Kennarahásk.: Ármann – Stjarnan.. L19.15
Sauðárkrókur: Tindastóll – Snæfell ...... S15
HANDKNATTLEIKUR
Úrvalsdeild kvenna, Olísdeildin:
Kórinn: HK – ÍBV .................................. L14
Ásvellir: Haukar – Selfoss ..................... L16
Úrvalsdeild karla, Olísdeildin:
Ísafjörður: Hörður – Selfoss ................. L16
Ásvellir: Haukar – Afturelding ............. L18
1. deild karla, Grill 66-deildin:
Dalvík: Þór – Fram U............................. L16
Selfoss: Selfoss U – Valur U .................. S16
1. deild kvenna, Grill 66-deildin:
Kórinn: HK U – Fram U ........................ S13
Evrópubikar kvenna, seinni leikur:
KA-heimilið: KA/Þór – Gjorche ....... L19.30
UM HELGINA!
Fram varð í gærkvöldi fyrsta liðið
til að fagna sigri á Val á leiktíðinni í
Olísdeild karla í handbolta, er liðin
mættust á heimavelli Fram í Úlfars-
árdal, 37:34.
Fram var með 20:14-forskot í
hálfleik, eftir magnaða spila-
mennsku. Valsmenn minnkuðu
muninn í seinni hálfleik en Fram-
arar sigldu glæsilegum sigri í höfn.
Eins og lokatölurnar gefa til
kynna, var sóknarleikurinn í aðal-
hlutverki í Úlfarsárdalnum í gær-
kvöldi og var leikurinn hraður og
skemmtilegur allan tímann.
Fram byrjar afar vel á nýjum
heimavelli sínum og hefur unnið
alla þrjá heimaleiki sína til þessa.
Sigurinn í gær var sérstakur, þar
sem Valsmenn hafa litið ótrúlega
vel út í upphafi móts.
Þorsteinn Gauti Hjálmarsson fór
á kostum fyrir Fram og skoraði 10
mörk. Luka Vukicevic, Marko
Coric og Ívar Logi Styrmisson
gerðu fimm hvor. Róbert Aron
Hostert og Benedikt Gunnar Ósk-
arsson gerðu fimm hvor fyrir Val.
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Tíu Framarinn Þorsteinn Gauti Hjálmarsson fór á kostum og skoraði tíu
mörk í glæsilegum sigri Framara á Valsmönnum í Úlfarsárdal í gærkvöldi.
Framarar fyrstir til
að vinna Valsmenn
Keflavík vann nauman 82:80-
heimasigur á Tindastóli í stór-
skemmtilegum lokaleik 1. umferðar
Subway-deildar karla í körfubolta í
gærkvöldi. Leikurinn var jafn og
spennandi nánast allan tímann og
fékk Tindastóll tækifæri til að
tryggja sér sigurinn með lokasókn-
inni, en hún gekk ekki upp. Keflvík-
ingar fögnuðu því vel í leikslok.
Margir spá báðum liðum topp-
baráttu í vetur og þau ollu ekki von-
brigðum í gær.
Eric Ayala skoraði 21 stig fyrir
Keflavík og Hörður Axel Vilhjálms-
son 15. Keyshawn Woods gerði 22
fyrir Tindastól.
Haukar höfðu betur gegn Hetti í
nýliðaslag á heimavelli, 98:92. Leik-
urinn var kaflaskiptur, því Hattar-
menn voru með 55:46-forskot í hálf-
leik. Haukar voru hins vegar mun
sterkara liðið í seinni hálfleik.
Norbertas Giga skoraði 24 stig
fyrir Hauka og þeir Darwin Davis
og Daniel Mortensen gerðu 19 stig
hvor. Matej Karlovic skoraði 25 stig
fyrir Hött.
Heimasigur eftir
háspennu í Keflavík
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Nýliðar Hilmar Smári Henningsson hjá Haukum sækir að körfu Hattar-
manna í gærkvöldi. David Ramos og Matej Karlovic eru til varnar.
arlega vel gert,“ sagði Harpa í sam-
tali við Morgunblaðið.
Spurð hverju íslenska liðið megi
eiga von á frá Portúgal sagði hún:
„Þær verða vel skipulagðar og
kraftmiklar. Það er spurning hvort
þær verði komnar niður á jörðina
eftir síðasta leik, það var greinilega
mikil gleði og auðvitað drama á loka-
mínútum leiksins. En það er ljóst að
þetta eru tvö jöfn lið og allir gera sér
grein fyrir því.“
Costa og Silva mikilvægar
En hvaða leikmönnum Portúgals
þarf helst að hafa gætur á?
„Carole Costa er gríðarlega mik-
ilvæg í þeirra leik, ef ekki mikilvæg-
asti leikmaðurinn. Sterk varnarkona
sem hefur líka nef fyrir því að setja
boltann í netið. Svo eru þær með
Diönu Silva í framlínunni sem er
sjóðheit, snögg og getur verið
hættuleg,“ sagði Harpa.
Silva, sem leikur með Sporting frá
Lissabon í heimalandinu, skoraði
einmitt fyrra mark Portúgals gegn
Belgíu og Costa, sem leikur með
Portúgalsmeisturum Benfica, það
síðara undir lok leiksins.
Mikill uppgangur
Portúgal hefur tekið þátt á síðustu
tveimur Evrópumótum, árið 2017 í
Hollandi og 2022 á Englandi, og eru
það fyrstu tvö stórmótin sem
kvennalandsliðið hefur komist á í
sögunni. Spurð hvort hún hafi fylgst
með uppgangi Portúgals undanfarin
ár sagði Harpa að lokum:
„Já og nei. Við höfum ekki verið
með þeim í riðli á þessum stórmót-
um en auðvitað hef ég tekið eftir því
að liðið er að nálgast sterkari þjóð-
irnar. Það er líka búinn að vera
mikill uppgangur í kvennabolt-
anum í Portúgal, líkt og á Spáni og
Ítalíu.
Bara munurinn frá því síðast á
EM [2017] og núna á EM [2022]. Í
sumar náði Portúgal til dæmis að
standa vel í Hollandi og gerði jafn-
tefli við Sviss. En svo er líka smá
óstöðugleiki í liðinu. Það hefur til
dæmis tapað stórt gegn Svíþjóð í
tvígang á árinu.“
Einhver meðbyr með þeim
- Portúgal lék vel á EM - Tvö jöfn lið
- Óstöðugleiki gæti gert vart við sig
Ljósmynd/KSÍ
Algarve Alexandra Jóhannsdóttir og Dagný Brynjarsdóttir á æfingu ís-
lenska landsliðsins á Algarve í Portúgal í gær. Þær spila á þriðjudag.
UMSPIL HM
Gunnar Egill Daníelsson
gunnaregill@mbl.is
Harpa Þorsteinsdóttir, fyrrverandi
landsliðskona í knattspyrnu og
sparkspekingur, segir íslenska liðið
þurfa vera vel á verði gegn hættu-
legu liði Portúgals þegar liðin mæt-
ast í umspili um laust sæti á HM
2023 í Ástralíu og Nýja-Sjálandi.
Leikurinn fer fram næstkomandi
þriðjudag í Pacos de Ferreira í
Portúgal.
Portúgalska liðið þurfti að leika
einum leik fleira en það íslenska í
umspilinu. Í 1. umferð umspilsins
vann það frábæran 2:1-sigur á Belg-
íu í Vizela í Portúgal á fimmtudag.
„Ég sá leikinn og þær portúgölsku
líta hrikalega vel út. Það sem meira
er, það er augljóst að það er einhver
meðbyr með þeim. Þær spiluðu vel á
EM og náðu góðum úrslitum þar
sem þær lentu til dæmis undir og
náðu að koma til baka.
Það er kraftur og orka í þeim og
þær náðu að nýta sér veikleika Belg-
anna í þessum leik, sem var gríð-