Morgunblaðið - 08.10.2022, Qupperneq 56

Morgunblaðið - 08.10.2022, Qupperneq 56
Tónlistarhópurinn Gadus Morhua, sem þekktur er fyrir baðstofustemningu með söng, langspilsleik, selló og almennum þjóðlagausla, heldur tvenna tónleika um helgina. Þeir fyrri verða í Stokkseyrarkirkju í kvöld, laugardagskvöld, kl. 20 og þeir seinni í Mengi í Reykja- vík á morgun, sunnudag, kl. 16. Gadus Morhua hefur hingað til snúið eldri þjóðlögum bæði á réttuna og rönguna og tvinnað þau saman við barokktóna. Nú ræðst tríóið til atlögu við íslensku fjárlögin, söngva- safn Sigfúsar Einarssonar og Halldórs Jónassonar frá árunum 1915-1916. Söngvasafnið varð svo vinsælt að upp úr því var sungið á hverju heimili áratugum saman. Gadus Morhua glímir við fjárlögin LAUGARDAGUR 8. OKTÓBER 281. DAGUR ÁRSINS 2022 5 6 9 0 9 0 0 0 0 0 9 0 0 Í lausasölu 1.330 kr. Áskrift 8.383kr. Helgaráskrift 5.230 kr. PDF á mbl.is 7.430 kr. iPad-áskrift 7.430 kr. Sími: 569 1100 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is mbl.is: netfrett@mbl.is Harpa Þorsteinsdóttir, fyrrverandi landsliðskona í knattspyrnu, segir að íslenska landsliðið þurfi að vera vel á verði gegn frísku liði Portúgals í úrslitaleik þjóð- anna um sæti á HM næsta þriðjudag. „Þær portúgölsku líta hrikalega vel út og það er augljóslega einhver með- byr með þeim,“ segir Harpa. »49 Meðbyrinn með portúgalska liðinu ÍÞRÓTTIR MENNING ann. „Prófaðu að lesa óð Páls postula til kærleikans úr 1. Korintubréfi 13“ svaraði ég. Hann sagðist ekki geta lofað neinu, en hringdi nokkrum dög- um síðar og sagði að lestur kær- leiksóðsins hefði hjálpað og myndin væri tilbúin. Hann málaði kærleik- ann snilldarlega í líki konu og mér fannst þarna vera komin Móna Lísa Íslands.“ Í þessu sambandi minnir Gunnlaugur á að 18 verk eftir Louisu Matthíasdóttur verði sýnd í kirkj- unni alla listahátíðina. Verkin eru fengin að láni úr einkasafni frænda listakonunnar, Sigurðar Arngríms- sonar. „Þetta er sannarlega listrænn viðburður og verk eftir Louisu vekja alltaf athygli.“ Gunnlaugur segir að lesa megi helgi út úr myndum Lou- isu, helgi í náttúrunni, daglega lífinu og þeirri kyrrð og rósemd sem stafi af myndunum. Alla sunnudagsmorgna í október verða hefðbundin fræðsluerindi, sem hefjast klukkan 10, tengd meginefni hátíðarinnar. Í fyrramálið ræðir pró- fessor Ásdís Egilsdóttir um Þorlák biskup helga. Á morgun verða einsöngstónleikar en þá flytja Alexandra Chernyshova sópran og Lenka Matéóva, píanó- og orgelleikari, nokkur innlend og er- lend lög undir yfirskriftinni „Leitin að kærleikanum“ og hefst dagskráin klukkan 16. „Menn hafa alltaf haft þörf til að tjá lofgjörð sína og trú til Guðs með einhverjum listrænum hætti,“ leggur Gunnlaugur áherslu á. Aðgangur á alla viðburði hátíðarinnar er ókeypis. Steinþór Guðbjartsson steinthor@mbl.is Listahátíð Seltjarnarneskirkju var sett sl. sunnudag og stendur hún út mánuðinn, en viðamikil dagskrá verður nú um helgina. Hátíðin hefur verið haldin á tveggja ára fresti í 30 ár nema hvað hún féll niður 2020 vegna kórónuveirufaraldursins. „Listahátíðirnar hafa ávallt tengst ákveðnu þema, sem nú er helgi, helg- un og heilagleiki auk spurningar- innar um afhelgun,“ segir Gunn- laugur A. Jónsson, sem hefur verið formaður listahátíðarnefndar frá 1996. Seltjarnarneskirkja var vígð á Valhúsahæð 1989 og fyrsta lista- hátíðin var haldin 1992. Gunnlaugur bendir á að því megi með sanni segja að frá byrjun hafi systurnar trú og list verið samstiga í kirkjunni. „Þær hafa haldist í hendur í óvenjulega ríkum mæli,“ segir hann og vísar meðal annars til þess að listaverkið Trúarbrögðin eftir Ásmund Sveins- son hafi verið sett upp á Valhúsahæð 1975, Seltjarnarneskirkja sjálf sé listaverk, þar sem þríhyrnings- formið sé áberandi og hafi sterka trúarlega skírskotun, Listvinafélag kirkjunnar hafi verið stofnað 2004 og listviðburðir séu reglulega í kirkj- unni. Málþing Málþing um þema hátíðarinnar verður klukkan 14-16 í dag. Selkór- inn syngur nokkur lög tengd efninu og síðan flytja fræðimennirnir Ari Páll Kristinsson, Gunnar Jóh. Gunn- arsson, Kristrún Heimisdóttir, Rún- ar Vilhjálmsson og Sigurður J. Grét- arsson stutt erindi um helgi, heilag- leika og afhelgun og svara spurn- ingum. Þinginu stýrir Svana Helen Björnsdóttir, starfandi formaður sóknarnefndar. „Málþingið er helsti viðburðurinn, þar sem unnið er með þema hátíðarinnar,“ áréttar Gunn- laugur. Hann rifjar upp að 2006 hafi kærleikurinn verið þemað. Kjartan Guðjónsson hafi þá verið valinn list- málari hátíðarinnar og hafi Gunn- laugur spurt hann hvort hann gæti ekki málað sérstaka mynd um kær- leikann. Listamanninum hafi vafist tunga um tönn en síðan spurt bros- andi hvernig ætti að mála kærleik- Trú og list hönd í hönd - Viðamikil dagskrá á Listahátíð Seltjarnarneskirkju - Málverk eftir Louisu Matthíasdóttur sýnd út mánuðinn List Gunnlaugur A. Jónsson á sýningunni við sjálfsmynd eftir Louisu.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.