Morgunblaðið - 13.10.2022, Qupperneq 1

Morgunblaðið - 13.10.2022, Qupperneq 1
F I M M T U D A G U R 1 3. O K T Ó B E R 2 0 2 2 .Stofnað 1913 . 240. tölublað . 110. árgangur . BÝÐUR UPP Á PRJÓNAFERÐIR TIL LETTLANDS GEFUR ÚT NÝJA BÓK Í DAG RÝNT Í BARNA- OG UNGLINGABÆKUR EINAR KÁRASON 22 VERÐLAUN NORÐURLANDARÁÐS 2022 56DAGNÝ HERMANNS 12 Andrés Magnússon andres@mbl.is Jón Gunnarsson dómsmálaráðherra segir aðild Íslands að Schengen- samstarfinu geta verið í hættu ef ís- lensk stjórnvöld uppfylli ekki þær reglur, sem þar eru settar um með- ferð fólks, sem fær synjun um land- vist. Þetta kemur fram í viðtali Dag- mála, streymi Morgunblaðsins á netinu, sem opið er öllum áskrif- endum og birt er í dag. Þar segir hann breytingar á út- lendingalögum ekki þola neina bið vegna æ þyngri straums hælisleit- enda til landsins. Þar þurfi að líta bæði til fjöldans, kostnaðar og álags á innviði, sem séu kol- sprungnir. Þarf að virða Schengen Þá segir Jón bráðnauðsynlegt að landið standi við og uppfylli skyldur sínar gagnvart Schengen-samstarf- inu. Misbrestur á því valdi erfið- leikum í samskiptum við samstarfs- ríkin og geti sett aðild Íslands að því í uppnám. „Sérstaklega þegar kemur að þeim Schengen-reglum, sem okkur ber að fylgja varðandi brottvísun og úrræði á landamærunum,“ segir Jón. Hann nefnir þar sérstaklega móttökustöðvar og skilyrt búsetu- úrræði þegar fólk á að fara úr landi, sem allar aðrar þjóðir hafi. „Það er skylda okkar að koma þessu upp og við þurfum að bregð- ast við þeim skyldum, annars getur hreinlega samstarf okkar innan Schengen verið í hættu,“ segir dómsmálaráðherra. Hann segir nauðsynlegt að eiga gott samstarf við nágrannalönd í þessum efnum, ekki síst í ljósi þess að skipulögð glæpastarfsemi komi oft við sögu. Schengen sett í hættu - Breytt útlendingalög brýn til að uppfylla Schengen-reglur - Dómsmálaráðherra segir móttöku hælisleitenda við þolmörk M Innviðir þola ekki meira álag »4 _ Sala á Íseyjarskyri utan Íslands nam 20 þúsund tonnum á síðasta ári og hafði aukist um 10% frá árinu á undan. Veruleg aukning hefur orð- ið í ár, að sögn Einars Einarssonar framkvæmdastjóra, og er útlit fyrir að seld verði 24 þúsund tonn þegar upp verður staðið um áramót sem er 20% aukning á milli ára. Um þessar mundir er áherslan ekki síst í sókn á mörkuðum í fjölmennustu löndum Evrópu en einnig er unnið á fjarlægum mörkuðum. »6 Helsinki Íslenskt skyr hefur víða gott hillupláss en samkeppnin er hörð. Selja 24 þúsund tonn af Íseyjarskyri Kristján Þórður Snæbjarnarson, forseti Alþýðusambands Íslands (ASÍ), telur það hafa verið rétta ákvörðun að fresta þingi sambands- ins fram á næsta ár, enda hafi að- stæðurnar sem upp komu verið „fordæmalausar“. Vonast hann til að sátt náist innan ASÍ fyrir næsta þing. „Ég held að þetta hafi verið rétt- asta niðurstaðan á þessum tíma- punkti við þessar aðstæður. Ég tel að við hefðum illa getað gert eitt- hvað annað,“ sagði Kristján Þórður í samtali við mbl.is í gær. Greint var frá því um hádegisbil í gær að meirihluti þingfulltrúa hefði greitt atkvæði með því að fresta þinginu. Tillagan var borin upp í kjölfar uppákomu mánudags- ins. »2 Morgunblaðið/Eggert ASÍ Þingið heldur áframá næsta ári. Telur að rétt hafi verið að fresta þinginu Norski krónprinsinn Hákon Magnús leggur á brattann með þjóðlega klæddum forseta lýðveld- isins, Guðna Th. Jóhannessyni, og öðru föru- neyti. Göngunni var heitið að gosstöðvunum við Fagradalsfjall upp úr hádegi í gær. Prinsinn sit- ur Hringborð norðurslóða sem hefst í Hörpu í dag en í gærkvöldi naut hann gestrisni forseta- hjónanna og snæddi með þeim kvöldverð á Bessastöðum. Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Þar sem konungdæmið mætir lýðveldinu Sigraðu innkaupin 13.–16. október _ Engu fjár- magni var veitt í sérstakt hraða- og ölvunareftirlit lögreglunnar ár- ið 2021 og hefur ekki verið und- anfarin fimm ár. Þetta kemur fram í Fram- kvæmd umferð- aröryggisáætl- unar, ársskýrslu 2021. Þar segir einnig að ætla megi að hraðaeftirlit sé með allra minnsta móti á lands- vísu. Tölfræði um meðalhraða á þjóðvegi eitt gefi vísbendingar um að hann fari hækkandi ár frá ári. Sigríður Björk Guðjónsdóttir, rík- islögreglustjóri, ræðir umferðarör- yggismál og menntun lögreglu í viðtali við Morgunblaðið. »10 Hraða- og ölvunar- eftirliti ábótavant Sigríður Björk Guðjónsdóttir
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.