Morgunblaðið - 13.10.2022, Side 6

Morgunblaðið - 13.10.2022, Side 6
6 FRÉTTIR Innlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 13. OKTÓBER 2022 Helgi Bjarnason helgi@mbl.is Mikil tækifæri eru til að auka söluna á Íseyjarskyri á mörkuðum í fjöl- mennum löndum Evrópu, að mati Einars Einarssonar, framkvæmda- stjóra Íseyjar útflutnings ehf. Segir hann að áherslan um þessar mundir sé á þessa markaði en einnig að fylgja eftir sókn inn á nýja markaði í fjarlægum löndum. „Þrátt fyrir miklar áskoranir við markaðssetningu á nýjum vörum í kórónuveirufaraldrinum og vegna aukins kostnaðar við aðföng hefur salan gengið vel,“ segir Einar og bætir við að fyrirtækið og sam- starfsfyrirtæki finni mikinn meðbyr á mörkuðum nú þegar heimsfarald- urinn er að baki. „Fólk hugsar nú enn meira um heilsusamlegt líferni og mataræði. Það er góður jarð- vegur fyrir íslenska skyrið.“ Ísey útflutningur, sem er systur- félag Mjólkursamsölunnar, er með starfsemi á 20 markaðssvæðum, ut- an Íslands, í flestum tilvikum með samningum við fyrirtæki úti á mörk- uðunum um notkun vörumerkisins með svokölluðum vörumerkja- og einkaleyfissamningum en einnig með beinum útflutningi frá Íslandi. Bandaríkin eru með sérstöðu. Þar er skyrið framleitt og selt undir eigin vörumerki, Icelandic Provisions, af fyrirtæki sem Ísey á hlut í. Aukning í Evrópu Skyrsalan utan Íslands nam 20 þúsund tonnum á síðasta ári og hafði aukist um 10% frá árinu á undan. Veruleg aukning hefur orðið í ár, að sögn Einars, og er útlit fyrir að seld verði 24 þúsund tonn þegar upp verður staðið um áramót, sem er 20% aukning á milli ára. Aukning hefur orðið í fjölmennum ríkjum Evrópu. Einar nefnir sem dæmi að sala hafi hafist í Frakklandi á síðasta ári og nú sé gert ráð fyrir að 1.000 tonn verði seld þar í ár. Ís- eyjarskyr hefur einnig fengið mjög góðar viðtökur í Hollandi og fékk þar viðurkenningu virts fagtímarits sem besta vörunýjungin á árinu 2021. Reiknað er með að salan tvö- faldist á milli ára og verði 1.600 tonn í ár. „Við erum að horfa til þess að fara inn á markaði í fjölmennum Evrópu- löndum. Hófum tilraun í Þýskalandi, erum byrjuð á Spáni og erum að prófa okkur áfram á Ítalíu. Það búa 200 milljónir manna á þessum mörk- uðum. Við erum að selja 20 þúsund tonn af skyri, þar af er helmingurinn seldur í Noregi, Danmörku og Finn- landi sem er 16-17 milljóna manna markaður. Við teljum að miklir möguleikar séu í Evrópu því þar er mikil hefð fyrir jógúrtneyslu og því góður jarðvegur fyrir skyrið, en á þessum mörkuðum ríkir jafnframt gríðarleg samkeppni,“ segir Einar. Skyrið sem selt er á þessum stóra markaði í Evrópusambandinu er framleitt í Danmörku í einu verk- smiðjunni innan ESB sem Ísey hef- ur aðgang að. Ísey útflutningur flyt- ur þó nokkuð af skyri frá Íslandi á þennan markað, aðallega til Dan- merkur og Þýskalands, einnig til Sviss og Færeyja. Einar segir að áhugi sé á að auka útflutning á fram- leiðslu frá Íslandi, eins og kostur er á. Framleiðsla á sex stöðum Íseyjarskyr er nú framleitt í sex mjólkurbúum utan Íslands. Tvær nýjar verksmiðjur hófu starfsemi í ár. Mjólkurbú sem KS og samstarfs- aðilar byggðu upp í Wales hóf fram- leiðslu í mars á þessu ári eftir miklar tafir vegna faraldursins. Hún er hugsuð fyrir markaðinn á Bret- landseyjum. Þar eru nú seld um 1.000 tonn af Íseyjarskyri á ári en Einar segir að mikil tækifæri séu til markaðssóknar með því að fjölga sölustöðum. Hægt er að framleiða 5-6 þúsund tonn í mjólkurbúinu. Í mars hófst einnig framleiðsla á Nýja-Sjálandi. Íseyjarskyr er nú komið í 200 verslanir þar í landi. Einar segir að skyrið hafi fengið mikilvæga viðurkenningu heilbrigðisyfirvalda sem valkostur í skólanesti grunnskólabarna. Ekki síður er horft til útflutnings til ná- grannalandsins Ástralíu. Þótt ekki sé langt á milli landanna hafa erf- iðleikar í flutningskerfinu tafið markaðsstarf þar. Framleiðsla á Ís- eyjarskyri hófst í Japan fyrir tveim- ur árum. Einar segir að heimsfar- aldurinn hafi sett strik í reikninginn þar. Miklar takmarkanir voru settar á í Japan sem drógu mjög úr mögu- leikum á að kynna og markaðssetja nýja vöru. Nú sé samstarfsfyrir- tækið að setja mikinn kraft í mark- aðsstarf á nýjan leik. Vonast er til að seld verði 1.000 tonn í ár. Verið er að undirbúa verksmiðju til að framleiða skyr í Kína með til- heyrandi markaðsstarfi. Nú er stefnt að því að hefja starfið þar á árinu 2024. Lögð áhersla á markaði í fjöl- mennum löndum Evrópu - Sala á Íseyjarskyri eykst í ár um 20% - Finna áfram meðbyr á mörkuðum Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Útrás Einar Einarsson tók við sem framkvæmdastjóri Íseyjar útflutnings í byrjun árs og stýrir markaðssókn erlendis. Samstarfsaðilar Ísey Framleiðendur Bandaríkin* Danmörk Ísland Noregur Japan Nýja-Sjáland Wales Aðrir samstarfsaðilar Austurríki Ástralía Belgía Bretland Finnland Frakkland Færeyjar Holland Lúxemborg Slóvenía Spánn Sviss Þýskaland Heimild: Ísey útflutningur ehf. *Icelandic Provisions Guðni Einarsson gudni@mbl.is „Við þurfum að bæta í baráttuna gegn skipulagðri brotastarfsemi og stýra mannaflanum og fjármagninu þangað sem brýnast er hverju sinni. Skipulögð brotastarfsemi er þar of- arlega á blaði,“ segir Sigríður Björk Guðjónsdóttir, ríkislögreglustjóri. Hún var spurð út í dökka mynd sem Úlfar Lúðvíksson lögreglustjóri dró upp í Morgunblaðinu í gær af álaginu á lögregluna á Suðurnesjum, annars vegar vegna hælisleitenda og hins vegar vegna fíkniefnasmygls. „Fíkniefnainnflutningurinn er skipulögð brotastarfsemi sem við höfum reynt að vekja athygli á síð- astliðin ár. Skipulögð brotastarfsemi er talin mikil ógn hér á landi,“ segir Sigríður. Hún segir að dómsmála- ráðherra sé að vinna að því að veita auknu fé til málaflokksins og fyrri dómsmálaráðherra hafi einnig aukið framlög til lögreglunnar. Sigríður segir að lögreglan hafi lýst yfir áhyggjum vegna skipulagðr- ar glæpastarfsemi í kringum hælis- leitendur. „Flóttamenn eru við- kvæmur hópur gagnvart skipulagðri glæpastarfsemi. Evrópulögreglan hefur lýst því að hópar sem eru flutt- ir á milli landa af alls konar smygl- urum séu útsettir fyrir alls kyns of- beldi og misnotkun. Þess vegna ber okkur að gæta vel að þessum hópi,“ segir Sigríður. Hún bendir á að ÖSE sé þessa dagana með vinnustofur hér á landi um stöðu mansalsmála í kjöl- far innrásar Rússlands í Úkraínu. T.d. hefur fjölgað í hópi þeirra sem leita á netinu eftir kynferðislegri þjónustu hjá fólki frá Úkraínu. Sigríður minnir á að viðbún- aðarstig á landamærunum hafi verið fært á hættustig 16. september sl. Hún segir húsnæðisþörfina hafa veg- ið þungt í þeirri ákvörðun og einnig séum við skuldbundin til að veita hælisleitendum þjónustu. »10 Bæta þarf í baráttuna gegn skipulagðri brotastarfsemi - Flóttamenn viðkvæmur hópur gagnvart glæpastarfsemi Menningar- og viðskiptaráðu- neytið birti fyrir mistök kynningu á máli er varðar breytingu á ákvæðum fjöl- miðlalaga um stuðning til einkarekinna fjölmiðla, þ.e. framlengingu gildistíma og endurskoðun ein- stakra ákvæða. Var mál þetta gert opinbert í Samráðsgáttinni í fyrradag og sent hagsmunaaðilum með boði um sam- ráð. Stuttu síðar var kynningin horfin út af vefsíðu gáttarinnar. Skýringin er sögð sú að málið eigi eftir að fara í lokayfirlestur innan ráðuneytisins. Þetta staðfesti Hafþór Eide Hafþórsson, aðstoðar- maður Lilju Alfreðsdóttur, mennta- og viðskiptaráðherra, og sagði að gera mætti ráð fyrir að boðið yrði upp á samráð á ný að tveimur vik- um liðnum. Breytt fjölmiðlalög birt of snemma Lilja Dögg Alfreðsdóttir Um 19 þúsund manns þáðu bólu- setningu þegar íbúum höfuðborg- arsvæðisins, 60 ára og eldri, var boðin bólusetning í sérstöku átaki í Laugardalshöll undanfarnar tvær vikur. Bólusett var við inflúensu og Covid-19 og gat fólk þegið bólu- setningu við öðru hvoru eða hvoru tveggja. Alls voru gefnir 13.125 skammt- ar við Covid-19, en aðeins var boðið upp á örvunarskammt fyrir þá sem höfðu áður þegið grunnbólusetn- ingu. Þá voru gefnir 15.259 skamm- taf af bóluefni við innflúensu. Eftir að átakinu lauk hafa yfir 80 prósent landsmanna yfir 50 ára aldri fengið að minnsta kosti þrjá skammta af bóluefni og vel rúmur helmingur fólks á aldrinum 16 til 50 ára. Um helmingur landsmanna 70 ára og eldri hefur fengið fjóra skammta og þriðjungur fólks á aldrinum 60 til 69 ára. Nítján þúsund þáðu bólusetningu í átaki Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Bólusett Tvenns konar sprautur voru í boði í bólusetningarátaki fyrir 60+. það byrjar allt með fjórum fræjum ENN HOLLARI OLÍA OMEGA 3 & 6 + D- & E-VÍTAMÍN

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.