Morgunblaðið - 13.10.2022, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 13.10.2022, Blaðsíða 12
og gerðum ýmislegt saman tengt prjónaskap, enda er skemmtileg stemning og mikil samheldni í prjónaheiminum.“ Prjónað í bjálkakofa í skógi Dagný segir að prjónaferðirnar til Lettlands á vegum Mundo gangi út á að læra um prjónaaðferðir, gera Kristín Heiða Kristinsdóttir khk@mbl.is É g fór í prjónaferð til Lettlands með vinkon- um sem ég ef verið með í saumaklúbbi í 30 ár og það var hrika- lega gaman. Þegar ég sagði frá því á fésbók hafði Margrét hjá ferðaskrif- stofunni Mundo samband og stakk upp á að ég mundi skipuleggja og vera fararstjóri í prjónaferðum hjá henni. Ég sló til og þetta hefur verið mjög gaman,“ segir Dagný Her- mannsdóttir, handavinnukennari og forfallin handavinnukona, en hún fór í sumar og haust sem fararstjóri í fyrstu tvær prjónaferðirnar til Lett- lands á vegum Mundo. „Ég skipu- lagði þessar ferðir í samstarfi við lettneska konu sem ég kynntist í fyrstu ferðinni, en hún er sérfræð- ingur í þjóðbúningum, vettlingum og öðru slíku. Hún var í heimsókn hjá mér hér á Íslandi í haust og við fór- um saman á Ullarviku á Suðurlandi prufur og læra alls konar trix. „Til dæmis að gera öðruvísi uppfit, alls konar kanta í stað stroffs, prjóna fléttur, kögur og fleira. Prjónaferðirnar ganga líka út á að kynnast menningu Letta, borða þjóðlegan mat og prjóna í bjálkahúsi úti í skógi. Við prjónum á nýjum stað á hverjum degi og fáum daglega nýja kennara eða meistara eins og þeir eru kallaðir, en í Lettlandi er mikil virðing borin fyrir þessari kunnáttu. Þar er mikið um bæði handverks- og prjónahópa þar sem konur kenna hver annarri og prjóna saman. Sum- ar prjóna til að selja en aðrar prjóna einvörðungu fyrir ánægjuna og til að læra hefðirnar. Við förum líka á söfn, menningarmiðstöðvar, heimsækjum handverksfólk á vinnustofur og kaupum handverk milliliðalaust beint frá þeim sem skapa. Við vorum tvo daga í Riga þar sem ég gekk með hópana milli prjóna- og handverks- búða annan daginn, en hinn daginn fórum við á geggjaðan markað sem er algjör þjóðhátíð handverksfólks í Lettlandi. Þetta er stærsti hand- verksmarkaður á árinu, en svo er annar markaður í september og við miðum dagsetningar ferðanna tveggja við þessa markaði.“ Rauður litur vernd gegn illu Dagný segir að lettnesk prjóna- hefð í vettlingum sé afar áhugaverð. „Til dæmis er hefð fyrir því að í prjónamunstrum þeirra felist ýmis ævagömul tákn. Þessi tákn bera í sér óskir um vernd, gæfu og gott gengi. Einnig er rauður litur í vettlingum sagður vernda gegn illu. Í gegnum aldirnar hafa lettneskir vettlingar orðið eitthvað annað og meira en bara vettlingar. Hér áður fyrr þurftu ungar konur að prjóna að lágmarki 50 pör af vönduðum og fögrum vett- lingum í kistil sinn, til að geta státað af almennilegum heimanmundi við eigið brúðkaup. Helst áttu þetta að vera tvö til þrjú hundruð vettlinga- pör, stúlkurnar hafa því eytt öllum sínum frístundum í að prjóna vett- Annað og meira en bara vettlingar „Fram eftir síðustu öld var sá siður viðhafður í brúðkaupum í Lettlandi að brúðurin þurfti að gefa allri tengdafjölskyld- unni, prestinum og öllum sem sáu um brúðkaups- veisluna fagra vettlinga að launum sem hún hafði prjónað sjálf,“ segir Dagný Hermannsdóttir, fararstjóri í prjónaferð- um til Lettlands. Morgunblaði/Arnþór Birkisson Handanna skraut Dagný með nokkur sýnishorn af lettneskum, gullfallegum og litríkum vettlingum. N Ý F O R M H Ú S G A G N A V E R S L U N Klassísk gæða húsgögn á góðu verði Strandgötu 24 | 220 Hafnarfjörður | Sími 565 4100 | nyform.is Komið og skoðið úrvalið GLOBL V Hvíldarst KRAGELUND Aya K 129 Casö 701 langborð Stólar Sófasett Borðstofuborð Skenkar/skápar Hvíldarstólar o.m.fl. Borstofuhúsgön frá Casö Mikið úrval af hvíldarstólum með og án rafmagns. Rimme frá Casö, raðau saman þinni samstæðu Casö 230 viðartegundir nature eik og reykt eik IKTOR óll KRAGELUND Handrup 12 DAGLEGT LÍF MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 13. OKTÓBER 2022
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.