Morgunblaðið - 13.10.2022, Page 16
Framkvæmdir við gerð göngustígs
að Kvernufossi við Skóga undir Eyja-
fjöllum eru langt komnar. Verkið
hófst fyrir fjórum árum og er tekið í
áföngum. „Þetta var aðkallandi til
þess að draga úr álagi á umhverfið.
Eins er stígurinn nýi á hentugri stað
en áður með tilliti til slysahættu, en
þarna hafa orðið allmörg óhöpp,“ seg-
ir Þorsteinn Jóns-
son, verktaki á
Hvolsvelli, sem
hefur sinnt verk-
inu.
Áin Kverna á
upptök sín á
Skógaheiði og þar
sem hún fellur
fram af hamra-
belti í dalkvos
niðri í byggð er 30
metra hár foss. Um fimm ár eru síðan
fossinn komst á kortið, þegar myndir
af honum birtust á fjölsóttu leiðsö-
guappi. Í kjölfar þess fór fólk að
flykkjast að hinum falda fossi, eins og
staðurinn var kynntur, og hefur sú
aðsókn haldist. Aðeins eru um 700
metrar frá byggðasafninu í Skógum
og nýta ferðalangar sem á svæðið
koma bílastæði þar. Umhverfi fossins
er sérstakt, því hægt er að ganga á
bak við hann og horfa þar fram kvos-
ina.
Með berum höndum
„Frá safninu að fossinum voru
troðningar eða villustígar, sem voru
orðnir fimm þegar verst lét. Alls tóku
þeir sjö metra breitt belti, en sá eini
stígur sem nú hefur verið útbúinn er
aðeins einn og hálfur metri á breidd,“
segir Þorsteinn og bætir við að fram-
kvæmd þessi hafi verið krefjandi.
„Þetta hefur að stórum hluta verið
unnið með berum höndum, því vinnu-
vélar komast ekki þarna að svo auð-
veldlega. Því hef ég tekið þetta í
áföngum og sennilega lýkur verki á
næsta ári,“ segir Þorsteinn. Á síðasta
ári fékk verkefni þetta sjö milljóna
króna framlag úr framkvæmdsjóði
ferðamannastaða en hefur að öðru
leyti verið kostað af sveitarsjóði
Rangárþings eystra. sbs@mbl.is
Náttúruperla Áin Kverna rennur fram Skógaheiði og fram af um það bil 30 metra háu hamrabelti. Í einstigi undir klettum hefur verið torleiði að fossinum
en með framkvæmdum þeim sem senn lýkur er kominn að honum góður göngustígur með plastgrindum sem styrkja brautina til mikilla muna.
Ljósmyndir/Þorsteinn Jónsson
Göngustígur lagður að Kvernufossi
- Framkvæmdir við Skóga undir Eyjafjöllum - Fallegur foss úr felum sem fólk flykkist nú að
- Stígur á hentugum stað dragi úr slysahættu - Verkið verið unnið í áföngum á fjórum árum
Þorsteinn Jónsson
16 FRÉTTIR
Innlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 13. OKTÓBER 2022
Sesann
www.vest.is • Ármúli 17 • Sími: 620 7200
Stofnmæling
botnfiska að
haustlagi, svo-
nefnt haustrall,
hófst 1. október
síðastliðinn og
stendur yfir
næstu vikurnar.
Samkvæmt
upplýsingum frá
Hafrannsókna-
stofnun taka
tveir togarar, Breki VE og Múla-
berg SI, þátt í verkefninu auk rann-
sóknaskipsins Árna Friðrikssonar.
Togað verður á rúmlega 370
stöðvum umhverfis landið og Árni
Friðriksson hefur einnig varið
tveimur sólarhringum á Dohrn-
banka til þorskmerkinga.
Frá 1996
Verkefnið hefur verið fram-
kvæmt með sambærilegum hætti ár
hvert síðan 1996. Helsta markmið
verkefnisins er að styrkja mat á
stofnstærð helstu botnlægra nytja-
stofna á Íslandsmiðum sem stofn-
mæling botnfiska á Íslandsmiðum
nær yfir og fer fram síðla vetrar á
hverju ári. Mælingin er þó skipu-
lögð með sérstakri áherslu á lífs-
hætti og stofnstærð grálúðu og
djúpkarfa og auk annarra djúp-
fiska.
Um borð í skipunum þremur eru
15 vísindamenn auk áhafna.
Haustrallið
stendur yfir
Rannsóknaskipið
Árni Friðriksson.
ÞÚ FINNUR ALLT Á FINNA.IS
VANTAR ÞIG
PÍPARA?