Morgunblaðið - 13.10.2022, Blaðsíða 29

Morgunblaðið - 13.10.2022, Blaðsíða 29
FRÉTTIR 29Erlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 13. OKTÓBER 2022 Annalena Baerbock utanríkisráð- herra Þýskalands sagði í gær að Þjóðverjar yrðu að sýna meiri var- færni gagnvart viðskiptum við Kína, og læra þannig af því sem farið hefði úrskeiðis í samskiptunum við Rúss- land. Baerbock sagði í viðtali við þýska dagblaðið Süddeutsche Zeitung að sá lærdómur fælist í því að Þjóð- verjar myndu ekki gera tilveru sína aftur háða nokkru ríki sem deilir ekki lýðræðislegum gildum þeirra, en Þjóðverjar glíma nú við orku- kreppu og hækkandi orkuverð vegna þess að Rússar hafa hætt að senda jarðgas til landsins. Kínverjar og Þjóðverjar eiga nú í miklum viðskiptum og treystir þýski bílaiðnaðurinn mjög á viðskiptin við Kína. Samskipti ríkjanna hafa hins vegar farið kólnandi á síðustu miss- erum, meðal annars vegna spenn- unnar á Taívansundi, sem og áhyggja Þjóðverja vegna meintra mannréttindabrota Kínverja á Úí- gúrum í Xinjiang-héraði. Olaf Scholz Þýskalandskanslari sagði á þriðjudaginn að hann teldi að Þjóðverjar ættu að reyna að við- halda viðskiptum sínum við Kína, en Scholz hyggst fara í opinbera heim- sókn til landsins í næsta mánuði. Baerbock tók fram að hún væri ekki að tala um að Þjóðverjar hættu viðskiptum við Kínverja, en að þeir myndu huga að opnun annarra markaða og áhættudreifingu. Þá gagnrýndi hún einnig fjárfest- ingu kínverska Cosco-flutninga- risans í gámamiðstöð í Hamborg. „Með hverri fjárfestingu [Kínverja] í mikilvægum þýskum innviðum þurf- um við að spyrja okkur hvað það gæti þýtt ef Kínverjar myndu snúast gegn okkur sem lýðræðisríki,“ sagði Baerbock. AFP/Ronny Hartmann Varkárni Annalena Baerbock á fundi með Þórdísi Kolbrúnu Gylfa- dóttur utanríkisráðherra í ágúst. Hvetur til varkárni gagnvart Kína - Þjóðverjar læri af mistökum sínum Stefán Gunnar Sveinsson sgs@mbl.is Varnarmálaráðherrar vesturveld- anna funduðu í gær í höfuðstöðvum Atlantshafsbandalagsins NATO í Brussel og ræddu um þörfina á að senda frekari loftvarnakerfi til Úkra- ínu í kjölfar hinna miklu eldflauga- árása Rússa á borgir og orkuinnviði landsins í upphafi vikunnar. Jens Stoltenberg framkvæmda- stjóri NATO sagði að hinar hryllilegu árásir Rússa gegn óbreyttum borg- urum hefðu sýnt fram á hina brýnu þörf á að senda frekari loftvarnakerfi til Úkraínu. Lloyd Austin varnar- málaráðherra Bandaríkjanna sagði sömuleiðis að heimsbyggðin hefði enn og aftur fengið að sjá þá grimmd og illvilja sem fylgdu stríði Pútíns Rússlandsforseta. „En nýjustu árásir Rússa hafa bara ýtt undir festu úkra- ínsku þjóðarinnar og sameinað frek- ar velunnara hennar,“ sagði Austin. Alls voru fulltrúar um fimmtíu ríkja á fundinum, og ræddu þeir ítar- lega um hvernig mætti best koma há- þróuðum loftvarnakerfum til Úkra- ínumanna, sér í lagi þar sem framboð á slíkum kerfum er ekki mikið. Þjóð- verjar kynntu í vikunni að þeir myndu hraða uppsetningu Iris-T- loftvarnakerfisins í Úkraínu, og er fyrsta kerfið af fjórum nú komið til landsins. Kerfið er af nýjustu gerð, og hafa Þjóðverjar sjálfir ekki tekið það í notkun. Þá ætlar Bandaríkjastjórn að senda tvö NASAMS-loftvarnakerfi, sem er sérhannað gegn eldflaugum og drónum, til Úkraínu á allra næstu vikum. Bandaríkjaher hyggst senda sex slík kerfi til viðbótar, en þau eru ennþá í framleiðslu, og hermdu heim- ildir AFP-fréttastofunnar að Banda- ríkjastjórn væri að skoða að senda loftvarnakerfi frá tímum kalda stríðs- ins til þess að brúa bilið þar til búið verður að framleiða NASAMS-kerfin nýju. Austin sagði að loftvarnakerfin yrðu send til Úkraínu eins fljótt og auðið væri, og að send yrðu þau kerfi sem væru tiltæk. Þá ætluðu Banda- ríkjamenn einnig að senda meiri skotfæri fyrir þau kerfi sem Úkra- ínumenn notuðu núna. Oleksí Resnikov varnarmála- ráðherra Úkraínu sagði á Twitter- síðu sinni eftir fundinn að hin nýju loftvarnakerfi mörkuðu „upphaf nýs tímabils loftvarna“ í Úkraínu, en hann fundaði einnig sérstaklega með Austin og Mark Milley, yfirmanni herforingjaráðs Bandaríkjahers, um hvernig hægt væri að styrkja bar- dagagetu Úkraínuhers enn frekar. Sagði Milley fyrir fund varnarmála- ráðherranna 50 að þeir myndu eink- um skoða stórskotalið auk loftvarna- kerfa. Þurfa að fylla á eigin birgðir Varnarmálaráðherrar bandalags- ríkjanna munu funda sérstaklega í dag um þörfina á að auka eigin vopnabirgðir í ljósi þess hversu mikið hefur þegar verið sent til Úkraínu. Stoltenberg sagði að bandalagsríkin hefðu þurft að senda Úkraínumönn- um sínar eigin skotfærabirgðir. „Þetta hefur verið það rétta til að gera, en að sjálfsögðu þurfum við að ræða hvernig eigi að fylla á þessar birgðir að nýju,“ sagði Stoltenberg en hann átti von á að ráðherrarnir myndu ræða það við hergagnaiðnað- inn í sínum eigin ríkjum. Hann bætti við að fundurinn í Brussel væri haldinn á mikilvægum tímapunkti í stríðinu í kjölfar innlim- unar Rússa á fjórum héruðum Úkra- ínu sem og lítt dulinna hótana rúss- neskra ráðamanna um að þeir væru tilbúnir að verja innlimuðu héruðin með kjarnorkuvopnum. „Við höfum að sjálfsögðu tekið eftir vangaveltum um notkun minni kjarn- orkuvopna í Úkraínu, og við höfum komið þeim skilaboðum skýrt áleiðis til Rússa að það myndi hafa í för með sér alvarlegar afleiðingar fyrir Rúss- land,“ sagði Stoltenberg, en vestur- veldin hafa ekki tekið eftir neinum breytingum á vígstöðu kjarnorku- vopnabúrs Rússa, þrátt fyrir hótan- irnar. Átta handteknir í Rússlandi Rússneska leyniþjónustan FSB lýsti því yfir í gær að hún hefði hand- tekið átta manns í tengslum við árás- ina á Kertsj-brúna á laugardaginn, og um leið að hún hefði komið í veg fyrir tvær meintar árásir, sem leyni- þjónusta Úkraínu hefði ætlað að fremja innan landamæra Rússlands. Í tilkynningu leyniþjónustunnar sagði að fimm Rússar hefðu verið meðal hinna handteknu, auk þriggja ríkisborgara frá Úkraínu og Armen- íu, en ekki var farið nánar út í þjóð- erni þremenninganna. Þá lýsti FSB því hvernig sprengi- efnunum hefði verið komið til Rúss- lands frá Úkraínu með viðkomu í Búlgaríu, Georgíu og Armeníu. Sagði í yfirlýsingu FSB að þau hefðu verið flutt í vörubíl með georgískum núm- eraplötum yfir landamærin og flutt svo yfir í vörubílinn sem notaður var til árásarinnar. Hefðu sprengiefnin verið falin í 22 plastrúllum, sem sam- tals vógu 22.770 kílógrömm. FSB lýsti því einnig yfir í gær að hún hefði komið í veg fyrir tvær árás- ir Úkraínumanna, og átti önnur árás- in að vera framin í nágrenni Moskvu- borgar og hin í Bríansk, borg rétt hjá landamærunum við Úkraínu. Voru tveir Úkraínumenn á sextugsaldri handteknir vegna málanna tveggja. Ná samkomulagi um herþjálfun Aðildarríki Evrópusambandsins samþykktu í gær verkefni um að nokkur ríkjanna tækju að sér her- þjálfun 15.000 Úkraínumanna. Náð- ist samkomulagið á fundi sendiherra aðildarríkjanna í Brussel, og verður það lagt fyrir utanríkisráðherra þeirra til staðfestingar þegar þeir funda í Lúxemborg eftir helgi. Pólland og Þýskaland hafa þegar lýst yfir vilja sínum til að taka þátt í herþjálfuninni, og er fyrirhugað að það verði fjármagnað úr sérstökum friðarsjóði Evrópusambandsins, European Peace Facility, en hann hefur þegar verið nýttur til að fjár- magna kaup Úkraínumanna á her- gögnum frá aðildarríkjum sambands- ins. Stefnt er að því að utanríkisráð- herrar ESB-ríkjanna samþykki aukafjárveitingu á mánudaginn upp á 500 milljónir evra, eða sem nemur um 70 milljörðum íslenskra króna. Þá til- kynntu Kanadamenn að þeir ætluðu að senda hergögn að verðmæti um 47 milljónir bandaríkjadala til Úkraínu, en Kanadaher hyggst einnig leggja til verkfræðinga til þess að aðstoða við herþjálfun Úkraínumanna í Pól- landi. Senda loftvarnakerfi til Úkraínu - Varnarmálaráðherrar frá fimmtíu ríkjum funduðu í höfuðstöðvum NATO - Engin merki um breytta vígstöðu kjarnorkusveita Rússlands - FSB segist hafa handtekið átta manns vegna Kertsj-brúarinnar AFP/Dave Clark Donetsk Úkraínskir hermenn sjást hér skjóta handsprengjum í átt að víglínunni í Donetsk-héraði. SKEIFAN 11 - 108 RVK - S:520-1000 - SPORTIS.IS SPORTÍS
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.