Morgunblaðið - 13.10.2022, Blaðsíða 30

Morgunblaðið - 13.10.2022, Blaðsíða 30
30 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 13. OKTÓBER 2022 Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á http://www.mbl.is/mogginn/leidarar/ Þeir sem fögnuðu frelsi Breta undan ESB eru ekki allir sammála um hvaða ein- staklingi skuli helst þakka að sá slagur var tekinn og vannst. Reyndar er ólíklegt að nokkrum einum verði þakkaður sá sigur. Þó virðist þörf vera fyrir hendi til að úthluta persónulegum bikar fyrir sigurinn. Margur telur Boris Johnson helst eiga slíkan sigur skilinn. Hann gerði vissulega sitt, en var þó einatt fullhikandi í baráttunni. Fleiri í Íhalds- flokknum hafa verið nefndir til þessarar sögu. En margur telur þó augljóst að Nigel Farage, þingmaður á Evr- ópuþinginu, eigi ríkast tilkall til þakklætis. Hann reyndi nokkrum sinnum að vinna sæti á breska þinginu en tókst aldrei og réð kosningafyrirkomulag þar sjálfsagt mestu. Í vikunni sló Farage því föstu í grein í Telegraph að næstu þing- kosningar væru þegar tap- aðar Íhaldsflokknum. Ekki vegna tímabundins vand- ræðagangs ríkisstjórnar nýs forsætisráðherra, sem fipað- ist illa á fyrsta spretti sínum. „Nei,“ segir Farage, „Íhalds- flokkurinn mun gjalda af- hroð í næstu kosningum vegna innflytjendastraums- ins, sem er vita stjórnlaus.“ Síðastliðinn sunnudag fóru 1.065 innflytjendur yfir Ermarsundið í smábátum og ólöglega inn í Bretland! Og það sem af er ári segja opin- berar tölur að 35.000 manns hafi komist þá leið. Þá er ein- göngu átt við þá sem hið opinbera náði að skrá, en enginn neitar því að fjöldinn er mun meiri, því ekki næst í alla til skráningar. Flestir úr þessum hópi eru nú hýstir í fjögurra stjörnu hótelum sem yfirvöld leigja. Fyrir hvern og einn eru greidd 4.500 pund á mánuði, segir Farage, en það er 50% meira en hjúkrunarfræðingur á Landspítala hefur í laun. Einhver kynni að telja það grófa og harla ósennilega spá hjá Farage að Íhalds- flokkurinn muni fá slíkt afhroð og eigi sér engrar bjargar von. Flokkurinn er nú með 70 þingsæta meiri- hluta, þann sem Boris tryggði honum í desember 2019, og var sá mesti sem flokkurinn hafði fengið um árabil. „En frá hvaða óhugnaði voru þessi rúm- lega eitt þúsund „flóttamenn“ að flýja síðasta sunnudag,“ spyr Farage. Þeir flúðu úr því öryggi sem Frakkland tryggir! Hann bendir á að þetta hafi verið fjórði sunnudagur- inn af sjö þar sem „flótta- menn“ urðu fleiri en þúsund. Ekki er lengur um það deilt að glæpasveitir frá Albaníu stjórna flutningunum yfir sundið, hlakkandi yfir auð- fundnu fé. Og Farage bætir við að meira en helmingur flóttamannanna „flýi“ frá Albaníu, sem er aðildarríki Nató! Nigel Farage segir að það séu hrein ósannindi að þarna séu flóttamenn á ferð. Þeir séu í besta falli innflytjendur í leit að hagfelldari lífs- kjörum. Og hann spyr: „Hver er eina lausnin sem Truss og stjórn hennar hafa á hinu brjálæðislega óefni sem Bretland er komið í? Eina tillagan er að greiða stjórninni í París svo sem fimm milljarða í viðbót svo að hún treysti sér til að herða eftirlit á ströndum Frakk- lands svo fækka megi bát- skriflunum á norðurleið.“ Þeim peningum er betur varið segir Farage með því að hella þeim strax niður í skolpræsið enda sé hið svo- nefnda eftirlit látalæti sem enginn tekur alvarlega. Og eftir því sem innflytjendum fjölgar svellur þeim reiðin sem létu sig hafa að kjósa Íhaldsflokkinn í síðustu kosningum í þakklæti fyrir að ríkisstjórn Borisar kom Brexit loks í höfn þótt mikið væri reynt til að eyðileggja þjóðarviljann. Þeir horfa upp á að straumur innflytjenda gengur á land í Dover og hafa þá margir þeirra eytt vegabréfum og öðrum skil- ríkjum þegar ljóst var að þeir næðu yfir. Sá leikur er raunar vel kunnur hér á landi. Og það sem hleypir ekki síst illu blóði í breska kjósendur eru áhrifin sem þessi flóðbylgja óboðinna innflytjenda hefur á bæi og byggðarlög vítt um landið, þar sem 750 milljónum, í krónum talið, er mokað úr ríkissjóði á degi hverjum, til þess að svæðin fallist á að annast móttöku hinna óboðnu þykjustuflótta- manna. Farage er ekki í vafa um að Íhaldsflokk- urinn hafi þegar eyðilagt næstu kosningar fyrir sér} Pólitískt heimaskítsmát A ð fá þær upplýsingar frá fötluðum einstaklingi í hjólastól að hann fái ekki lífsnauðsynleg lyf sín og lyfjaskorturinn sé farinn að stór- skaða hann verður maður orðlaus og spyr: Hvað er að lyfjakerfinu hér á Íslandi og hver ber ábyrgðina? Þótt Ísland sé lítill markaður koma samt sem áður upp hér sjaldgæfir sjúkdómar og margvíslegir efnaskiptasjúkdómar í börnum og fötluðum sem eru lífshættulegir. Hvernig getum við leyft okkur að börn og fatlað fólk fái ekki lyfin sín á Íslandi í dag? Við erum með fólk sem hefur ekki til hnífs og skeiðar. Við erum með mikinn fjölda fólks á biðlistum. En núna erum við komnir í nýja stöðu sem hlýtur að vera eitt það versta sem við höfum lent í, að segja við fatlað fólk og börn: þið fáið ekki lyfin ykkar vegna þess að kerfið sofnaði á verðinum. Það vill enginn bera ábyrgðina á þessu og/eða þeim skaða sem þetta getur valdið veiku fólki. Ég segi fyrir mitt leyti að ríkisstjórn sem getur ekki komið þessum hlutum í lag á að segja af sér á stundinni. Það er lág- markskrafa að við séum ekki að skaða fólk, fatlað fólk og börn, vegna þess að lífsnauðsynleg lyf sem þau þurfa á að halda eru ekki til í landinu. Árið 1988 voru lífeyrislaun ekki bara skattlaus heldur var afgangur af persónuafslættinum upp í lífeyris- greiðslur og/eða aðrar tekjur. Það sýnir okkur svart á hvítu hvernig skattkerfið á undanförnum áratugum hefur farið með þá sem verst hafa það hér á landi. Við getum rétt ímyndað okkur stöðu þessa fólks í dag ef lífeyririnn væri skattlaus og að auk hefði það afgang af persónuafslættinum upp í aðrar tekjur, svo sem lífeyrissjóðstekjur. Ef rétt væri gefið væru skattleysismörk sennilega í kringum 350-400.000 krónur á mánuði í dag og enginn fengi minna en það. Í dag eru mánaðarleg lífeyrislaun sköttuð um eða yfir 60.000 krónur, en voru áður skattlaus. Það verður að segjast eins og er að þetta sýnir svart á hvítu hversu stórlega skattheimtan hefur aukist á þá sem síst skyldi. Síðan koma skerðingar og keðjuverkandi skerðingar sem fara út um allt kerfið. Þá hef- ur einnig verið vakinn upp að nýju óskapnað- urinn krónu-á-móti-krónu-skerðing hjá þeim sem eru í búsetuskerðingu og setur þau í sárafátækt í boði ríkisstjórnarinnar. Króna-á-móti-krónu-skerðingin, sem er núna 65 aurar á móti krónu, ásamt öðrum skerðingum í kerfinu, veldur viðvarandi fátækt og þá hlaupa skerðing- arnar einnig yfir í félagsbótakerfi sveitarfélaga með til- heyrandi eymd og fátækt barna. Gleymum því ekki að það veit enginn hver þarf næst að reiða sig á mánaðarlegan örorkulífeyri almannatrygg- inga. Það vill enginn vera þar á lægstu greiðslunum og þar með haldið í sárafátækt lífið á enda. Hversu lengi á fólk að þurfa að bíða eftir réttlætinu og nauðsynlegum lyfjum? gudmundurk@althingi.is Guðmundur Ingi Kristinsson Pistill Lyf og lifa Höfundur er þingflokksformaður Flokks fólksins. STOFNAÐ 1913 Útgáfufélag: Árvakur hf., Reykjavík. Ritstjóri: Davíð Oddsson Aðstoðarritstjóri: Karl Blöndal Ritstjóri og framkvæmdastjóri: Haraldur Johannessen SVIÐSLJÓS Guðni Einarsson gudni@mbl.is Ú tlendingastofnun segir að í allnokkrum fjölda mála umsækjenda frá Venesúela um vernd hér á landi hafi komið fram að þeir hafi verið búsettir um langt skeið í Sýr- landi. „Langflestir þeirra eru tví- tyngdir á spænsku og arabísku og koma frá borginni As-Suwayda í Sýrlandi þar sem stór hluti íbúa er með tengsl við Venesúela. Það ligg- ur þó fyrir að sumir þessara um- sækjenda hafa ekki mikil tengsl við Venesúela þrátt fyrir að hafa þaðan vegabréf. Í mun færri tilvikum hafa umsækjendur frá Venesúela einnig haft ríkisfang í Líbanon og nokkrir í Kólumbíu,“ segir í skriflegu svari. „Umsækjendur um vernd sem skráðir eru ríkisborgarar Venesúela hafa með örfáum undantekningum lagt fram venesúelsk vegabréf. Í nokkrum tilvikum hefur Útlend- ingastofnun sent venesúelsk vega- bréf í áreiðanleikakönnun til lög- reglunnar og hefur niðurstaðan verið sú að ekki væri neina fölsun að sjá en jafnframt að ekki væri hægt að ábyrgjast hvort þau hefðu verið gefin út á grundvelli réttra gagna. Til þessa hafa allir sem lagt hafa fram vegabréf frá Venesúela fengið málsmeðferð hjá Útlendingastofnun á grundvelli þess ríkisfangs.“ Útlendingastofnun segir að í flóttamannasamningi Sameinuðu þjóðanna komi fram að þeir sem hafa ríkisfang í tveimur eða fleiri löndum skuli ekki fá réttarstöðu flóttamanns ef þeir geta fært sér í nyt vernd í einhverju þeirra ríkja þar sem þeir hafa ríkisfang. Standi innlend vernd til boða er hún rétt- hærri en alþjóðleg vernd. Því hefur t.d. umsækjendum með ríkisföng bæði í Venesúela og Kólumbíu verið synjað um vernd hér á landi því þeir geta notið verndar í Kólumbíu. „Einstaklingum með ríkisföng bæði í Venesúela og Sýrlandi hefur hins vegar verið veitt vernd hér, þar sem það hefur verið metið sem svo að hvorugt landið bjóði viðkomandi einstaklingum upp á vernd en ákvarðanir um veitingu verndar byggjast alltaf á einstaklings- bundnu mati á aðstæðum umsækj- enda.“ Umsækjendur frá Venesúela sem kveðast einnig vera frá Sýr- landi, en hafa engin gögn til að sýna fram á sýrlenskt ríkisfang, eru sendir í tungumála- og staðhátta- próf til að kanna hvort þeir séu frá öðru landi en Sýrlandi. Ef svo væri gætu þeir mögulega nýtt sér vernd þess lands. Þeir sem hafa tekið próf- in hafa fengið staðfestingu á sýr- lenskum uppruna. Útlendingastofnun segir að í kjölfar innrásarinnar í Úkraínu hafi dómsmálaráðherra virkjað sérstakt ákvæði í lögum um útlendinga, sem kveður á um sameiginlega vernd vegna fjöldaflótta. Úkraínumenn sem voru búsettir í Úkraínu 24. febrúar fá því dvalarleyfi hér af mannúðarástæðum án þess að ein- staklingsbundnar ástæður séu skoð- aðar. Dvalarleyfið gildir í eitt ár og er endurnýjanlegt. Því fylgir ekki atvinnuleyfi heldur þarf að sækja sérstaklega um það til Vinnu- málastofnunar. Umsóknir frá ríkisborgurum Venesúela eru almennt teknar til efnislegrar meðferðar á grundvelli einstaklingsbundinna ástæðna. Sé vernd þeirra ekki trygg í heimalandi fá þeir viðbótarvernd hér á landi í samræmi við úrskurði kærunefndar útlendingamála. Dvalarleyfi á grundvelli viðbótarverndar gildir í fjögur ár og er endurnýjanlegt. Því fylgir undanþága frá að þurfa at- vinnuleyfi til að mega vinna hér. Frá Sýrlandi með venesúelsk vegabréf Skráning upplýsinga í tengslum við umsækjendur um alþjóðlega vernd hér á landi grundvallast fyrst og fremst á framlögðum gögnum, að því er segir í skriflegu svari frá Útlendingastofnun. „Í þeim tilvikum þegar ekki eru lögð fram nein gögn byggjast skráningar á frásögn umsækjenda. Rannsókn Útlendingastofnunar við afgreiðslu um- sókna um vernd byggist síðan á framlögðum gögnum, frásögn umsækj- enda, og eftir atvikum áreiðanleikakönnun skilríkja og/eða tungumála- og staðháttaprófum, ásamt fyrirliggjandi landaupplýsingum.“ Frá ársbyrjun og til 10. október síðastliðins höfðu borist 3.140 umsóknir um vernd hér á landi. Gögn eða frásögn UMSÆKJENDUR UM VERND AFP/Danilo Gomez Venesúela Straumur flóttafólks er frá landinu. Flóttamenn voru í Kól- umbíu og ætluðu að fara með báti til Panama og áfram til Bandaríkjanna.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.