Morgunblaðið - 13.10.2022, Side 32

Morgunblaðið - 13.10.2022, Side 32
32 UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 13. OKTÓBER 2022 KRINGLAN - SKÓR.ISKRINGLAN - SMÁRALIND - SKÓR.IS STEINAR WAAGE SP.1 LITE 11.995 kr. / St. 19 -26 URBAN SNOWBOARDER 14.995 kr. / St. 27-35 URBAN MINI 12.995 kr. / St. 20-27 EXOSTRIKE 19.995 kr. / St. 36-40 BIOM K2 17.995 kr. / St. 36-40 BIOM K2 17.995 kr. / St. 36-40 MIKIÐ ÚRVAL AF ECCO KULDASKÓM SP1 LITE 11.995 kr. / St. 19 -26 URBAN SNOWBOARDER 14.995 kr. / St. 27-35 URBAN MINI 12.995 kr. / St. 20-27 SNOW MOUNTAIN 21.995 kr. / St. 36-40 BIOM K2 - BOA 19.995 kr. / St. 27-35 BIOM K2 - BOA 19.995 kr. / St. 27-35 Við lifum áhuga- verða tíma. Tvær þversagnir í geðheil- brigðismálum blasa við. Önnur er sú að á sama tíma og við lof- um fjölbreytileika fólks í samfélaginu, og þar með samfé- lagsins, þá virðumst við hafa afar ríka þörf fyrir að steypa fólk í og skilgreina það út frá tilteknum römmum. Hin þversögnin er sú að á sama tíma og við teljum okkur búa við almenna framþróun í heilbrigðis- og læknavísindum hvað viðkemur viðleitni til bættrar geðheilsu, fjölgar örorkubótaþegum vegna geðraskana sex sinnum hraðar en þjóðinni, eða um 240% sl. 30 ár á meðan þjóðinni fjölgaði á sama tíma um ríflega 40%. Síðastliðið vor samþykkti Al- þingi Íslendinga nýja stefnu í geð- heilbrigðismálum og í sumar hafa tveir hóp- ar á vegum heilbrigð- isráðherra útfært að- gerðaáætlun til fjögurra ára í mála- flokknum. Hún er metin á u.þ.b. 6-8 ma. kr. í framkvæmd. Við í Geðhjálp munum vel eftir síðustu aðgerða- áætlun, áætlun ár- anna 2016-2020. Áætlun sem var metnaðarfull en lítill hluti nauðsynlegs fjármagns fékkst til að fylgja henni eftir. Að okkar mati þýðir lítt að eyða orku og tíma í áætl- anir ef „eldsneytið“ er lítið sem ekkert. Tölurnar 5/25 vísa til ójafns hlutfalls opinberra fjár- framlaga til geðheilbrigðismála sé horft til áætlaðs umfangs mála- flokksins innan heilbrigðiskerf- isins, 5/25. Í ljósi þessa og auk- innar umræðu og ákalla um úrbætur treystum við opinberum valdhöfum fyrir því að ný að- gerðaáætlun verði fullfjármögnuð til næstu fjögurra ára. Nýlega birtist í breska blaðinu „The Guardian“ grein eftir dr. Sönuh Ahsan, ungan sálfræðing sem starfar innan bresku heilbrigðisþjónustunnar NHS. Yf- irskrift greinarinnar var: „Ég er sálfræðingur og ég trúi því að það sem okkur hefur verið sagt um geðheilbrigði séu mikil ósannindi.“ Í undirfyrirsögn greinarinnar seg- ir svo: „Skilningur samfélags okk- ar er sá að orsakir geðraskana séu innra með okkur – en hunsar sam- félagslega orsakaþætti.“ Sanah segir að við séum að takast á við samfélagslegan og pólitískan vanda ójöfnuðar með greiningum og meðferð. Hún spyr hvort sex skipti af hugrænni atferlismeðferð sem hjálpar til við að koma auga á óuppbyggileg hugsanamynstur muni hjálpa einstaklingi sem á í erfiðleikum með að sjá fjölskyldu sinni fyrir mat. Á sömu for- sendum; hvort þunglyndislyf geti „læknað“ stöðugt áfall sem hör- undsdökkur maður verður fyrir á „eitruðum“ vinnustað, eða hvort gjörhygli geti orðið barni að liði sem býr við mikla fátækt? Sanah klykkir svo út með mynd- líkingu og spyr hvort við myndum greina visnandi plöntu með „plöntu-visnunar-heilkenni“ – eða reyna að breyta umhverfi plönt- unnar og aðstæðum. „Engu að síð- ur þjáist fólk í og við aðstæður sem eru ekki boðlegar og okkur er sagt að það sé eitthvað að okkur,“ segir hún. Grein Sönuh, rannsóknir pró- fessorsins Joönnu Moncrieff, sem kollvörpuðu hugmyndum um efna- fræðilegt ójafnvægi í heila þegar um þunglyndi er að ræða, auk „endurreisnartímabils“ hugvíkk- andi efna sem virðist vera hafið, eru einungis fáein dæmi um það hversu nauðsynlegt er orðið að endurskoða aðferða- og hug- myndafræði okkar í geðheilbrigð- ismálum. Endalausri sjúkdóms- væðingu meintra raskana þarf að snúa við. Við þurfum að horfa vandlega á samfélög okkar sem eru lituð af samanburði, sam- keppni og einstaklingshyggju og nærast á aldagamalli meinloku um að staða einstaklings í samfélagi ráðist nær eingöngu út frá efn- islegu „virði“. En þetta er gamalt stef sem kapítalisminn hefur löngu kveðið í kútinn, ekki satt? Meira er jú betra og við ættum ekki einungis að huga að því að sinna þörfum okkar heldur gefa löngunum okk- ar einnig góðan tíma og leitast við að elta þann endalausa hring, því meira verður jú aldrei nóg. Hvað þarf til að gera samfélög okkar geðheilsuvænni? Hvað þarf til að við séum sátt? Hvernig getum við rofið þær neikvæðu tilfinningar sem við færum á milli kynslóða okkar, þá skömm sem oft flyst og fleytir kellingar öldum saman inn- an fjölskyldna? Við sitjum enn við eldinn, viljum hlusta á sögur, tengjast öðrum, upplifa nánd og forðast rof. Við virðumst þó vera fjarlægari, fjar- verur, en við viljum vera nær, vera nærverur – mannverur. Ein- kennir „aðskilnaðarorðræðan“ tíð- arandann? Rafmagnið og tæknin hafi valdið ákveðnu rofi um leið og þau hafa bætt, lengt og breytt til- veru okkar, aukið lífsgæði – eða hvað? Við sitjum við eldinn, eldurinn logar í húsi hvers og eins, í síma hvers og eins, langt á milli okkar. Erum við að skilja okkur í aukn- um mæli hvert frá öðru af því að við setjum eigin mannréttindi ofar hinni sameiginlegu mennsku? Flestir eru sammála um að sam- félög okkar taki á svo margan hátt framförum. Við endurskoðum við- horf okkar, reynum að breyta stöðnuðum hugmyndum og afstöðu sem byggist oft á hugtökum eins og valdi. Valdi sem við nú, í opin- berum skilningi, erum flest sam- mála um að „breyta“ í þjónustu þar sem við getum. Að allt opin- bert vald verði opinber þjónusta. Getum við breytt orðræðunni fyrst og vonast svo til að afstaða okkar til þekkingarfræðilegs skilnings á tungumálinu og upplifun breytist hægt og bítandi? Það er víst, samkvæmt fræð- unum, eitt sem er ótta yfirsterk- ara. Von. Við þurfum von. Tíðar- andi okkar virðist um of litast af sundrungu, fjarveru og rofi. Við þurfum aukna nánd á tímum þar sem aldrei virðist vera erfiðara að veita hana, upplifa hana í fjarver- unni. Við þurfum eldinn – aukin tengsl við náttúruna, aukin tengsl við okkar innri veru, okkar eigin nærveru. Héðinn Unnsteinsson » Það er víst, sam- kvæmt fræðunum, eitt sem er ótta yfir- sterkara. Von. Við þurf- um von. Héðinn Unnsteinsson Höfundur er formaður Landssamtakanna Geðhjálpar. Nærvera ÞÚ FINNUR ALLT Á FINNA.IS HVAR ER NÆSTA VERKSTÆÐI?

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.