Morgunblaðið - 13.10.2022, Page 40

Morgunblaðið - 13.10.2022, Page 40
40 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 13. OKTÓBER 2022 Ástkær eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir, bróðir og afi, ALEXANDER KRISTJÁNSSON, lést þriðjudaginn 4. október. Útförin fer fram frá Egilsstaðakirkju mánudaginn 17. október klukkan 14. Streymt verður frá athöfninni, www.egilsstadakirkja.is. Lembi Seia Sangla Katrín Lembi Alexandersd. Ísak Tómasson Írena Lembi Ísaksdóttir Monika Lembi Alexandersd. Siguróli Jónsson Sindri Freyr Alexandersson Alexander Leó Söndruson Nadia Rós Sindradóttir Alexandra K. Alexandersd. Birkir Fannar Smárason Þórður Kristjánsson Petrína Haraldsdóttir Svanfríður Kristjánsdóttir Magnús Gunnarsson ættingjar og vinir Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma, langamma og langalangamma, BRYNDÍS ELSA SIGURÐARDÓTTIR, Hraunvangi 7, Hafnarfirði, lést á Hrafnistu í Hafnarfirði 16. september. Útförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu. Steinþór Einarsson Sylvie Primel Guðný Elísabet Einarsdóttir Einar Eyjólfsson og ömmubörn Stapahrauni 5, Hafnarfirði Sími: 565 9775 www.uth.is - uth@uth.is Frímann 897 2468 Hálfdán 898 5765 Ólöf 898 3075 Kristín 699 0512 Elskuleg móðir okkar, INGA GUÐMUNDSDÓTTIR, Lækjasmára 2, Kópavogi, er látin. Útförin fer fram frá Bústaðakirkju fimmtudaginn 20. október klukkan 13. Kristín Arnardóttir Steinn Kárason Ragnheiður Inga Arnardóttir Benedikt Benediktsson Ingólfur Örn Arnarson Dagbjört Lára Ottósdóttir barnabörn og barnabarnabörn Elskulegur stjúpfaðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, RAGNAR GUÐMUNDUR ARASON frá Borg á Mýrum, Hornafirði, lést á Hjúkrunarheimilinu Skjólgarði Hornafirði laugardaginn 8. október. Útför hans fer fram frá Hafnarkirkju mánudaginn 17. október klukkan 13. Guðbjörg Signý Gísladóttir Stefán Bjarni Finnbogason Magnhildur Björk Gísladóttir Þorvaldur Jón Viktorsson Magnús S. Aðalsteinsson barnabörn og barnabarnabörn Ástkær móðir, tengdamóðir, amma og langamma, SJÖFN KRISTÍNARDÓTTIR, Ísafold, lést föstudaginn 7. október. Útför hennar verður gerð frá Kópavogskirkju miðvikudaginn 19. október klukkan 13. Hlekk á streymi má nálgast á mbl.is/andlat. Sigmar Jónsson Fríða Eyjólfsdóttir Pálmi Jónsson Hulda Jónsdóttir Jóna Hrund Jónsdóttir Egill Jónsson Hekla Aðalsteinsdóttir barnabörn og barnabarnabörn Faðir okkar, tengdafaðir, afi, langafi og langalangafi, ÞÓRÐUR B. SIGURÐSSON fv. forstjóri Reiknistofu bankanna, lést á heimili sínu að Hömrum í Mosfellsbæ 6. október. Útför hans fer fram frá Langholtskirkju fimmtudaginn 20. október klukkan 13. Helga Þorvarðardóttir Björn Þ. Þórðarson Sigurveig Sigurðardóttir Sigurður Þ. Þórðarson Anna Lísa Sigurjónsdóttir Anna S. Þórðardóttir Gunnar Þorsteinsson Ingveldur L. Þórðardóttir Jan Murtomaa Ólafur Þ. Þórðarson Margrét S. Sævarsdóttir Katrín Þ. Þórðard. Hjorth Peter Hjorth og fjölskyldur ✝ Dagbjört Erla Magnúsdóttir fæddist í Hafnar- firði 14. desember 1950. Hún lést á krabbameinsdeild Landspítalans 30. september 2022. Foreldrar henn- ar voru hjónin Sús- anna Kristjánsdótt- ir, f. 1924, d. 2013, og Magnús Bjarna- son, f. 1924, d. 2021. Systkini Dagbjartar Erlu eru: Dröfn Guð- mundsdóttir, f. 1946, Magnús Magnússon, f. 1954, d. 2017, og Stefán Örn Magnússon, f. 1958. Dagbjört Erla gekk að eiga Stanislas Bohic (f. 1948, d. 2012) í Frakklandi 1972 en þau skildu árið 1995. Hún átti með honum tvo syni: 1) Friðrik Bohic, f. 1973, maki Ásthildur Björgvinsdóttir, sínum þar til 1978. Þaðan lá leið- in aftur heim til Íslands, þar sem við tóku ýmis verkefni. Erla var sannkallaður þúsund- þjalasmiður. 1978-1980 vann hún á skrifstofu Sinfóníuhljómsveitar Íslands. 1980-1986 vann hún við stofnun og uppbyggingu Kvennaathvarfsins. Stór partur þessara ára fór einnig í upp- byggingu á Bergþórugötunni, sem var heimili þeirra hjóna og drengja. Erla hafði ómælda ánægju af blómum og lá leið hennar aftur út til Danmerkur í Beder Gart- ner skole, þaðan sem hún út- skrifaðist sem blómaskreyt- ingameistari árið 1991. Eftir það starfaði hún lengi vel hjá Blóma- vali við blómaskreytingar. Jafn- framt fór listahjarta Erlu að slá örar og ryðja sér til rúms, þar sem grímugerð og önnur list fékk sitt andrými. Eftir Erlu liggja ýmsar einkasýningar ásamt þremur samsýningum. Minningarathöfn um Erlu verður haldin í Fossvogskirkju í dag, 13. október 2022, klukkan 15. f. 1980. Börn: Petra Sylvie, f. 1999, Elíana, f. 2007. 2) Arnór Stefán Bohic, f. 1976, maki Paola Cardenas Bohic, f. 1977. Börn: Líf Ísa- bel, f. 2002, Sebast- ian, f. 2009, Gabriel, f. 2012. Ung að aldri fékk Erla mikinn áhuga á ferðalögum og heillaðist af menningu framandi landa. Að loknu gagnfræðaprófi fór hún út á vit ævintýranna sem au pair til Danmerkur og Banda- ríkjanna. Um tvítugt hóf hún störf sem flugfreyja hjá Loftleið- um á árunum 1970-1972. Á þeirri vegferð kynntist hún fyrrver- andi eiginmanni sínum, Stanislas Bohic. Þau giftu sig í Frakklandi 1972 og bjuggu þar ásamt sonum Elsku Erla okkar! Þetta átti ekki að gerast strax og alls ekki núna. Við vorum með plan um að hittast í Noregi næsta sumar. Það var svo margt annað á döfinni hjá okkur Kópavogsvinkonum sem við ræddum þegar við hittumst í lautarferðinni góðu í ágúst sl. Þá vorum við allar saman, þú Erla mín, Gugga, Beppa, Hildur, Lí- ney, Elísabet, Gerður frá Svíþjóð, Sigga frá Danmörku og Maggý frá Noregi. Einnig bauðstu okkur Siggu, Guggu og Maggý til Drafn- ar systur þinnar í yndislega heim- sókn í Hafnarfjörðinn. Stundum hittumst við í smærri hópum hér og þar, eftir því sem tímataflan leyfði hverri og einni okkar. Árið 2019 tókst okkur öllum Kópa- vogsvinkonunum að hittast í Alic- ante þar sem við dvöldum í flottri íbúð Drafnar og Ásgeirs. Yndis- legur tími og frábærar minningar. Margs er að minnast síðan við hittumst sex ára gamlar á Kópa- vogsbrautinni, þú í húsi númer 14, Gugga í númer 11 og við Sigga í númer 12. Það var vinsælt að leika við sílapollinn þar sem við veiddum gjarnan síli í krukkur. Við þurftum bara að fara yfir götuna til þess að tína ber eða blóm og oft tókum við með okkur nesti að „skeifunni góðu“, þar var alltaf logn í minn- ingunni. Við minnumst einnig allra útileikjanna á Skjólbraut. Allir krakkarnir í nágrenninu voru með í leikjum. Við fórum ósjaldan í búð- arferðir fyrir mömmur okkar í Steinabúð á Skjólbrautinni. Þetta voru góðir tímar. Við sömdum oft leikrit og lék- um uppi á háalofti heima hjá þér Erla mín undir stjórn Drafnar og seldum inn á til vina og systkina. Mikill metnaður var lagður í beðin í skólagörðunum sem voru hinum megin við veginn og við minnumst þess þegar þú fékkst verðlaun fyr- ir fallegasta beðið. Við minnumst einnig allra skemmtilegu tjald- ferðalaganna, bíóferðanna og ball- anna á Borginni. En árin liðu og leitin mikla að framtíðinni hófst. Ferðalöngun þín og þörfin til að upplifa menn- ingu annarra þjóða kom snemma í ljós. Ung að aldri ferðaðist þú sem au-pair til Kaliforníu. Flugfreyj- ustarfið heillaði þig og vannstu við það um tíma. Síðan lá leiðin til Danmerkur þar sem þú gerðist „børnepige“ fyrir Kirsten og þið hélduð sambandi í mörg ár á eftir. Í ferð þinni til Sviss hittir þú Stan og urðuð þið svo hjón. Fyrstu árin ykkar bjugguð þið í Frakklandi en heimþráin tók að lokum yfir og fluttuð þið til Íslands með Friðrik og Arnór. Stan var landslagsarki- tekt og saman stofnuðuð þið fyrir- tæki sem gerði marga garðana af- ar listræna og fallega. Gestrisni þín var með eindæmum og þú stóðst yfirleitt fyrir hittingi okkar allra, bæði með mönnum okkar eða bara okkur vinkonunum. Listrænir hæfileikar þínir voru einstakir. Árið 1991 fórstu í nám í garðyrkjuskóla rétt fyrir utan År- hus í Danmörku, þar sem áhersla var meðal annars lögð á blóma- skreytingar. Sú kunnátta átti svo eftir að nýtast þér vel þegar þú vannst hjá Blómavali um tíma og víðar. Þú bjóst til svo mörg skemmtileg listaverk eins og t.d. grímurnar sem hengdar voru upp sem veggskreyting sem sýndu húmor þinn og hve hugmyndarík þú varst. Framtakssemi þín kom því til leiðar að íbúar í blokkinni þinni við Kleppsveg geti ræktað ýmiskonar grænmeti. Þar var garðyrkjukon- an Erla úrræðagóð og athafna- söm. Við minnumst þín með söknuði og þakklæti fyrir öll árin okkar. Gulli og perlum að safna sér, sumir endalaust reyna. Vita ekki að vináttan er verðmætust eðalsteina Gull á ég ekki að gefa þér og gimsteina ekki neina. En viltu muna að vináttan er verðmætust eðalsteina. (Hjálmar Freysteinsson) Guðlaug Maggý, Guð- björg Jóna og Sigríður. Það var á haustmánuðum 1993, á fyrstu dögum landssöfnunar Kvennaathvarfsins, sem ég hafði tekið að mér að stýra, að kona nokkur kom og bauð sig fram sem sjálfboðaliði. Hún var fyrst á stað- inn, og hafði að sögn áður lagt hönd á plóg varðandi málefnið, enda eins og ég kynntist síðar haldin ríkri réttlætiskennd og andúð á misrétti og ofbeldi af öllu tagi. Við höfðum ekki hist áður en áttum sameiginlegar vinkonur og bjuggum um tíma við sömu götu. Með árunum kynntumst við betur, hún hafði um tíma verið búsett í Frakklandi og þekkti vel til franskrar matargerðarlistar og menningar. Innan skamms var boðið í vegleg matarboð þar sem fjölbreyttar matarkræsingar voru á boðstólum, svo sem sniglar í hvítlaukssmjöri, sem vart höfðu áður sést á borðum landans og ekki skorti umræðuefnin. Sköpunargáfuna hafði hún í ríkum mæli og dugnaðinn og dag nokkurn tókum við þátt í sam- keppni um minjagripi ásamt Ragnheiði Ragnarsdóttur. Hefð- bundin verðlaun fengum við þó ekki fyrir framtakið, þótt hug- mynd okkar hafi að okkar áliti vitaskuld verið best! Eiginlegu verðlaunin voru skemmtilegur fé- lagsskapur sem hefur haldist gegnum árin, þótt fundum hafi fækkað á kóvid-tímanum, a.m.k. hvað mig varðar, en til stóð að bæta úr því. Elsku Erla, takk fyrir allar samverustundirnar, bið góðan guð og alla góða vætti að vernda þig í nýjum heimkynnum, þótt þú hafir ekki haft trú á slíku. Með friðar- og þakklætis- kveðju, Valgerður Katrín Jónsdóttir. Hverjum hefði dottið í hug að klippt yrði á þráð Dagbjartar Erlu svona snögglega? Tíðindin komu sem högg. Framtíðin ónothæf. Í bígerð var að halda myndarlega upp á sjötugsafmælið, þó nokkuð væri um liðið, með ferð til Suður- Ítalíu næsta vor og njóta þar lífs- ins í faðmi fjölskyldunnar – baða sig í menningu og listum, kræs- ingum og kostum bestum. Ver- andi meistarakokkur sjálf, list- unnandi og sólardýrkandi með nef fyrir framandi freistingum, var þetta gulrótin sem haldið skyldi á lofti eftir afspyrnulélegt sumar og í gegnum vetur komanda. Minnisstæð eru fyrstu kynnin, fyrir um áratug, er ég var hátíð- lega kynnt fyrir Erlu og Valgerði vinkonu hennar. Fór það fram á Café París í Reykjavík. Skömmu seinna fékk ég formlegt heimboð til Erlu, sem þá bjó í glæsiíbúð við Háteigsveg. Ég var hikandi og fremur „krítísk“ á ný vinasam- bönd miðaldra kvenna. Lét þó slag standa og greip með mér litla aug- lýsingu. Þegar til kom réð þessi auglýsing úrslitum um vináttu okkur. Í henni var auglýst sam- keppni um gerð minjagrips. Lagði ég þennan miða á borð fyrir vin- konurnar og ekki varð aftur snúið. Við fórum strax á flug og að skipu- leggja rannsóknartúra um ná- grennið, nærliggjandi hraun og fjörur. Þetta var glimrandi aðferð til að hafa eitthvað annað að tala um en náungann, heilsufarið eða skandalana. Erla varð driffjöðrin, áköfust í að við kláruðum dæmið. Endaði hún með að skila sjálf inn aukatillögu. Saman sendum við inn framúrskarandi lausn. Árang- ur þessa verkefnis skilaði sér í tíð- um hittingum, aðallega yfir dýr- indis veigum úr búri Erlu, eða á víxl, skemmtisögum og bollalegg- ingum um úrvinnslu hugmynda, hlátrasköllum og trúnaðar- tengslum. Óx þessi vinskapur og dafnaði og hafa ýmsar snjallar hugdettur verið hentar á lofti síð- an. Erla var mikill skipuleggjandi. Merki þess eru t.a.m. matjurta- reitir sem hún lagði til að komið yrði upp á lóðinni í blokkinni sinni við Kleppsveginn. Þarna gafst tækifæri til að rækta sinn eigin garðskika, að auki tókst henni að fá smiðinn, son sinn, til að smíða borð og bekki sem nú prýða svæð- ið. Þetta frumkvæði er algjörlega til fyrirmyndar. Ósjaldan átti hún til að að stinga upp á, að við kæmum bara til sín, og það ekki að tómum kof- unum. Hún lagði mikla rækt við að halda í hefðir og gera sér glaðan dag með fjölskyldunni. Var hún nýlega búin að slá upp einni slíkri fjölskylduveislu þegar kallið kom. Fundum okkar bar síðast saman á Menningarnótt. Þegar ég mæti á stefnumótið, sem var að sjálfsögðu á Selva, situr hún úti við lítið borð, Bergstaðastrætismegin, böðuð í síðsumarsólinni. Sjaldan hefur hún litið betur út, glæsileg til fara, í björtum litklæðum, nýklippt og vandlega snyrt. Hélt hún á gylltum bikar barmafullum af glóandi vökva, einum af eðalfordrykkjum staðarins, blönduðum með suð- rænni sveiflu. Stemningin var töfrandi og áttum við eftirminni- lega nótt saman. Hún hafði lag á að toppa hlutina – þannig mun ég varðveita myndina af henni. Samúðarkveðjur til ykkar, kæra fjölskylda og aðstandendur. Ragnheiður Ragnarsdóttir. Það er alltaf sárt að sjá á eftir góðri vinkonu. Hver á nú að vera framkvæmdastjóri í hópnum okk- ar Kópavogsvinkvenna, halda ut- an um hópinn og sjá til þess að við drífum í hittingum og veislum? Erla var alltaf tilbúin í skemmti- legheit, umræður og samveru. Hver á núna að brýna okkur og skamma fyrir að vera of linar við að segja meiningu okkar? Brenn- andi áhugi Erlu á heimsmálum og baráttuvilji var einkennandi fyrir hana. Stríð og óréttlæti lá henni þungt á hjarta. Hennar verður sárt saknað. Samúðarkveðjur til Friðriks, Arnórs og fjölskyldna. Biðjum um frið horfumst í augu horfumst í augu gegnum fjarlægðirnar horfumst í augu gegnum aldirnar biðjum um frið (Jóhannes úr Kötlum) Elísabet Berta Bjarnadóttir, Gerður Helena Gunnarsdóttir, Hildur Sigurðardóttir, Iðunn Anna Valgarðsdóttir, Líney Helgadóttir. Dagbjört Erla Magnúsdóttir

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.