Morgunblaðið - 13.10.2022, Side 44

Morgunblaðið - 13.10.2022, Side 44
44 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 13. OKTÓBER 2022 ✝ Sveinn Ingi Garðarsson fæddist í Reykja- vík 8. mars 1963. Hann varð bráð- kvaddur á heimili sínu í Ósló 6. mars 2022. ForeldrarSveins eru Dagný Þ. Ell- ingsen, f. 7. janúar 1939, og Garðar V. Sigurgeirsson, f. 3. febrúar 1937. Bræður Sveins eru Óttar Rafn, f. 23. ágúst 1960, d. 17. ágúst 2010, og Benedikt Jón, f. 18. apríl 1971. Sveinn ólst upp hjá foreldrum sínum, lengst af í Aratúni í Garðabæ. Hann stundaði nám við skóla bæjarins og lauk stúdents- prófi frá Fjölbrautaskólanum þar árið 1983 og í viðskipta- fræðum frá Ohio University árið 1989. Á námsárunum vann hann á sumrin ýmis störf, m.a. í hvalveiðistöðinni í Hvalfirði og á tog- ara. Að loknu námi starfaði hann lengst af í ferðaþjónust- unni; nokkur ár í Stokkhólmi og síðan í Ósló. Árið 2000 kvæntist hann Cathrine Kristiansen frá Ósló, en þau skildu. Útför hans fór fram í Ósló 18. mars sl. og aska hans var flutt til Íslands. Minningarathöfn um Svein verður haldin í Fossvogskap- ellunni í dag, 13. október 2022, klukkan 15. Duftkeri hans verður síðar komið fyrir við hlið bróður hans, Óttars Rafns. Það er svo ótal margt sem kem- ur upp í hugann þegar við hugsum til baka um kynni okkar við Svein Garðarsson. Þetta var þegar við vorum ung, forvitin og hvatvís. Þetta voru góðir tímar. Það var sem sagt aldrei lognmolla í kring- um okkur vinina sem fylgdumst að á æskuslóðunum í Garðabæ. Kjallarinn í Aratúninu, partí eftir böll eða átta saman á leið í Hollý, á bremsulausri Volkswagen-bjöllu með bensíngjöfina tengda inn um gluggann í bandspotta. Sveinn lifði lífinu hratt, stund- um of hratt, og því fylgdi gjarnan smá vesen. Það var fátt sem stöðv- aði för Svenna nema kæruleysið eins og að missa þrisvar af flugvél á einum sólarhring. Hann fór þangað sem hann ætlaði sér og oft með miklum stæl. Svenni hafði einfaldan smekk á mat og vín, hann keypti það sem var dýrast á matseðlinum og vínið þurfti að vera rautt, gamalt og að minnsta kosti fjórtán prósent. Hann var feikilega góður á bók- ina og skoraði ávallt hátt í prófum, yfirleitt án þess að mæta í tíma. Háskólinn hentaði honum sér- staklega vel þar sem mætingar- skyldan var lítil. Það kom líka á daginn að það hentaði honum ekki að vinna hjá öðrum, nema þegar hann var á sjó, þar var erfitt að mæta ekki. Inn á við bjó alltaf góður dreng- ur og traustur vinur sem skilur eftir ótal margar minningar í hjörtum okkar. Við hefðum öll kosið að leiðir okkar hefðu legið oftar saman í gegnum tíðina. Fjar- lægðin milli okkar var orðin of mikil. Við söknum þín. Ólafur (Óli), Ragnheiður (Ragga) og Ársæll (Sæli). Fallinn er frá minn kæri vinur Svenni. Þrátt fyrir að vera fæddir á sama ári og ekki mörg húsin á milli okkar í Aratúninu kynntumst við ekki fyrr en við 12 ára aldur- inn. Bráðgerum drengnum lá á að hefja skólagöngu og var því ári á undan í grunnskóla. Við vissum vel hvor af öðrum, bæði sem ná- grannar og sem sendlar í miðborg Reykjavíkur. Það var þó ekki fyrr en við hittumst fyrir tilviljun í skíðaskála í Kerlingarfjöllum að við urðum vinir, og ævilöng vin- átta tókst með okkur. Aldrei var komið að tómum kofunum hjá honum þegar rökrætt var um heimspeki, pólitík eða trúmál eða annað sem varðaði mannlega til- veru. Stóran hluta menntaskólaár- anna varði Sveinn sem togarasjó- maður og tók sín próf milli túra. Ævintýraljómi var á togara- mennskunni þar sem oftast var landað í erlendum höfnum. Kjall- araíbúðin í Aratúninu breyttist í félagsmiðstöð milli túra og vel var tekið á tollinum. Að loknu stúd- entsprófi var stefnan tekin á há- skólanám í Bandaríkjunum. Með Óttari, eldri bróðir sínum, og fleiri vinum var haldið til Ohio þar sem fjöldinn allur af Íslendingum var við nám. Varð hann vinmargur á þeim tíma sem hentaði ágætlega samkvæmisþörfum piltsins. Eftir háskólapróf og stutt stopp á Ís- landi flutti hann til Svíþjóðar þar sem hann vann hjá frænda sínum sem seldi Íslandsferðir. Gekk það vel og ákvað fjölskyldan að stofna sambærilegt fyrirtæki um sölu á Íslandsferðum frá Noregi, þar sem foreldrar hans bjuggu. Gekk fyrirtækið afar vel til margra ára. Má segja að vendipunktur hafi orðið á lífi hans er hann lét af störfum í fjölskyldufyrirtækinu. Þúsundir Norðmanna komu til landsins á þeirra vegum og hann var tíður gestur í heimalandinu og gat haldið góðum tengslum við vini hér. Þjónustuaðilar báru hann gjarnan á höndum sér í þessum Íslandsferðum og fékk hann gjarnan að njóta velvilja þeirra til að viðhalda sambandi við gamla vini. Minnisstæðar eru margar minningar úr þessum heimsókn- um enda lítið sparað til af veislu- kostum, er hentaði Sveini vel því hann sætti sig ávallt aðeins við það allra besta í mat og drykk. Aldamótaárið 2000 gekk Svenni að eiga Cathrine Kristian- sen. Að hætti Sveins var slegið til veglegs víkingabrúðkaups í Al- mannagjá með veislu í Valhöll. Mér var það heiður að vera hans svaramaður í brúðkaupinu. Í ræðu við það tilefni fannst mér viðeig- andi að líkja honum við fæðingu og þróun Surtseyjar þar sem margt er sameiginlegt með þeim, eins og hvernig tímalína sköpunar og þróunar er áþekk. Eftir ára- langa ágjöf hverfa þessi tvö eintök og verða að forgengilegum minn- ingum okkar sem eftir lifum að- eins sekúndubrot á jarðsöguleg- um tíma. Eftir atvinnumissi og skilnað tók við allskrautlegt tímabil hjá vininum. Um tíma bjó hann í Gam- bíu þar sem hann tók múham- eðstrú og giftist þarlendri konu. Búseta þar hentaði á endanum illa heilsuleysinu og flutti hann aftur til Noregs. Far vel, kæri vinur. Megir þú finna friðinn hvort sem hann er á himnaríki, í Valhöll eða hjá meyj- unum sjötíu og tveim. Gísli Gíslason. Sveinn hefur kvatt okkur óvænt og langt um aldur fram, að- eins 59 ára að aldri. Það er þung- bært fyrir okkur sem hann þekkt- um og enn erfiðara fyrir hans nánustu að missa nú annan son og bróður á sviplegan hátt. Áður höfðu þau misst Óttar Rafn árið 2010 sem lést af slysför- um nokkrum dögum fyrir 50 ára afmæli sitt og var jarðsettur á 50 ára afmælisdegi sínum. Við kynntumst Sveini fyrst þegar að hann hóf nám í háskól- anum í Athens, Ohio University. Hann reyndist góður námsmaður enda vel gefinn og lauk námi sínu með sóma. Sveinn var góður félagi, örlátur við vini sína og greiðvikinn en nokkuð sérlundaður og átti það til að fyrtast við okkur félaga sína og á stundum einangra sig. En það stóð aldrei lengi og skildi aldrei eftir nokkur sár. Brúðkaup Sveins og Cathrine var líklega eitt eftirminnilegasta brúðkaup þeirra sem voru þeirrar gæfu aðnjótandi að upplifa það. Það var haldið á Þingvöllum í blíð- skaparveðri og að heiðnum sið. Að hjónavígslunni lokinni döns- uðu gestir og skemmtu sér fram undir morgun á Hótel Valhöll á Þingvöllum. Hús sem nú er horfið á braut eins og brúðguminn. Við vinir og fyrrverandi skóla- félagar Sveins hörmum skyndi- legt brotthvarf hans en þökkum honum fyrir þann tíma sem við áttum með honum. Við bræður sendum fjölskyldu Sveins, foreldrum og bróður okk- ar dýpstu samúðarkveðjur. Sigurður Bragi Guðmundsson, Gunnar Karl Guðmundsson, Ásgeir Heimir Guðmundsson. Sveinn Ingi Garðarsson ✝ Óskar Jón- atansson fædd- ist á Smáhömrum við Steingrímsfjörð 16. mars 1924. Hann lést á hjúkr- unarheimilinu Ísa- fold í Garðabæ 30. september 2022. Foreldrar hans voru Jónatan Hall- dór Benediktsson, kaupfélagsstjóri á Hólmavík, f. 26. júlí 1894, d. 5. mars 1983, og Þuríður Samúels- dóttir kona hans, f. 19. júní 1903, d. 2. ágúst 2008. Systkini Óskars eru Svavar, f. 3. júní 1931, kvæntur Mörtu Gunnlaugu Magnúsdóttur, f. 27. júní 1936; Ríkarður, f. 25. des- ember 1932, d. 28. júlí 2002, kvæntur Þóru Magnúsdóttur, f. 19. ágúst 1932, d. 17. ágúst 2007; Lára, f. 12. janúar 1936. Óskar lauk prófi frá Samvinnuskól- anum árið 1945. Hann starfaði sem bókari hjá Kaup- félagi Steingríms- fjarðar frá 1945 til 1955 og sem bókari hjá Sambandi ís- lenskra samvinnu- félaga frá 1955 og sem aðalbókari SÍS frá 1960 til 1990. Eftir starfslok hjá Sambandinu starfaði Óskar sem bókari í fyrir- tækinu Lyru í hartnær 20 ár. Óskar sat í stjórn Átthaga- félags Strandamanna og Lands- sambandi íslenskra frímerkja- safnara og kom auk þess að útgáfu Strandapóstsins. Útför hans fer fram frá Vída- línskirkju í Garðabæ í dag, 13. október 2022, og hefst hún kl. 13. Hann nafni minn hefur nú kvatt okkur í hinsta sinn. Ég var skírður í höfuðið á hon- um Óskari frænda, bróður pabba. Við höfum alltaf verið mjög nánir frændurnir, allt frá því að ég var lítið barn, og þær eru margar stundirnar sem rifjast upp þessa dagana. Þegar ég var í pössun á Rauðó, ungur að árum, var Óss alltaf til staðar fyrir mig og var óþreytandi að lesa fyrir mig hin ýmsu ævin- týri, jafnvel kvöld eftir kvöld. Stundum fékk ég að skoða frí- merkjasafnið hans og hann gaf mér bók til þess að safna frímerkj- um í, og safnið mitt samanstóð að- allega af flugvélafrímerkjum. Svo tókum við af og til eina skák sam- an eða spiluðum á spil. Seinna þegar Óss tók loksins bílpróf, um sextugt, þá fórum við oft saman í bíltúra. Eitt sinn alla leið upp að Henglinum. Þar löbb- uðum við upp á topp en þegar nið- ur kom var dregið fram tjald og úr varð þessi fína útilega. Síðustu árin sín dvaldi Óskar í góðu yfirlæti á hjúkrunarheim- ilinu Ísafold og áttum við þar oft og iðulega góð samtöl um daginn og veginn. Óskar fylgdist með fréttum og fylgdist af áhuga með öllum fréttum af vinnustaðnum mínum, Icelandair, og fylgdist gjarnan með gengi hlutabréfanna. Þar sem Óskar starfaði sem að- albókari og endurskoðaði marga ársreikninga má segja að hann hafi „valið“ brottfarardag við hæfi, síðasta dag septembermán- aðar og þar með lokadag þriðja ársfjórðungs. Ég á eftir að sakna hans nafna míns mikið. Hjartahlýrri, ráða- betri og ljúfari maður er vand- fundinn. Ég bið góðan Guð að taka vel á móti þér. Hvíl í friði. Óskar Tryggvi Svavarsson. Margs er að minnast, nú þegar látinn er tæplega tíræður Óskar Jónatansson, frændi minn, eða Óss, eins og hann var jafnan kall- aður í fjölskyldunni. Sagt er að menn gleymi því slæma en muni hið góða þegar ævi vina eða ætt- ingja er á enda runnin. Sjálfsagt er það oftast rétt, en það á þó ekki við um Óskar, því allar minningar mín- ar og okkar systkina um hann eru einfaldlega bjartar, ljúfar og góðar. Óskar var ræktarsamur og frændrækinn. Hann hringdi til mín nýlega að huga að líðan okkar systkina eftir að móðir okkar dó fyrr á árinu. Þá var hann árvakur í besta lagi og vel með á nótunum. Vinátta Óskars og föður okkar var löng og stóð í ein 85 ár, eða þar til faðir okkar systkina lést árið 2013. Faðir Óskars, Jónatan, og Elinborg, móðir föður míns, voru systkini og eftir að Björn afi minn lést frá fimm ungum börnum árið 1932 var amma mín undir vernd- arvæng Jónatans um nokkurt ára- bil. Þeir frændur voru því samtíða á barnsaldri á Smáhömrum við Steingrímsfjörð á þriðja áratug síðustu aldar og síðar á Hólmavík. Óskar hafði miklar taugar til Smá- hamra og fór þangað oft, einnig á meðan ég var í sveit þar á bæ á öndverðum 7. áratug síðustu aldar. Gott samband þeirra frænda fór ekki fram hjá okkur systkinum og það var spenna í lofti og eftirvænt- ing þegar von var á Óskari í heim- sókn. Þá var oftast spilaður lomber með Tryggva föðurbróður og Mar- gréti konu hans, einatt með mikl- um hlátrasköllum. Þeir félagar höfðu frá æskuárum komið sér upp afar sérstöku og stundum flóknu tungutaki þar sem þeir notuðu all- ar þekktar orðmyndunarreglur ís- lenskunnar, án þess að þekkja þær, og ófu þar hinn furðulegasta vef. Nú eru þau öll horfin úr „ver- aldar umsvifaþröng“, eins og segir í sálminum, en sem betur fer náðist að skrá þessa orðanotkun þeirra um síðir með hjálp föður míns. Kunnugt er mér um að Óskar var bókhneigður og hafði unun af lestri. Einhvern tíma fyrir löngu sagði hann mér að sér fyndust Ís- lendingasögur svo merkilegar að hann tímdi varla að lesa þær held- ur vildi treina sér þær til betri tíma. Ég er ekki frá því að ég sé sama sinnis. Vonandi hefur hann þó fundið góðar stundir til lestr- arins síðar meir. Þá gaf Óskar Sig- ríði systur minni eitt sinn hefti þar sem hann hafði vélritað nokkur kvæði eftir Davíð frá Fagraskógi. Faðir minn segir frá bernsku- brekum þeirra nyrðra í bók sinni Minningar af Ströndum. Meðal annars sagði faðir minn þegar hann var spurður með hverjum hann ætlaði að vera þegar hann kæmi til Hólmavíkur: „Ég verð bara einn eða tveinn með Óskari.“ Þegar hann lá banaleguna skrifaði Óskar honum einstaklega hjart- næmt bréf og þakkaði honum vin- áttuna traustu sem stóð alla þeirra ævi. Þetta bréf kunni faðir minn vel að meta þótt þróttlaus væri og gæti ekki svarað því. Nú kveðjum við systkinin, ég, Björn Valur og Sigríður, öndvegismanninn Óskar og þökkum þá blessun að hafa fengið að kynnast honum. Þorkell Örn Ólason. Kæri frændi og vinur, kallið er komið og þú hefur kvatt eftir langa og farsæla ævi. Það er erfitt að kveðja þann sem hefur alltaf verið til staðar, glaður, áhugasam- ur og skilningsríkur en þetta er samt hluti af lífinu. Þegar ég hugsa til baka þá varst þú alltaf með, hvort sem það var að bræður þínir voru að byggja hús, fjölskyldan að taka upp kartöflur eða farið var í ferðir. Minningarnar um þig á Rauða- læknum eru margar og góðar, það var alltaf notalegt að heimsækja ykkur Láru, afa og ömmu og spjalla saman yfir góðum kaffi- bolla og nýbökuðum kleinum. Þegar við Líney byrjuðum saman fyrir liðlega 40 árum þá urðuð þið strax góðir vinir og það hélst alla tíð, þú tókst henni með opnum örmum og þínu hlýja brosi. Þú sýndir áhuga öllu því sem við tókum okkur fyrir hendur og varst tilbúinn að hjálpa. Ein af þessum góðu minningum er frá þeim tíma þegar við byggð- um okkur hús í Krókamýrinni, þú komst og lagðir okkur lið og okkar vinir urðu að þínum. Í seinni tíð eftir að þið Lára fluttuð á Strikið breyttist margt en alltaf var jafn notalegt að koma til ykkar. Undir það síðasta áttir þú góðan tíma á Ísafold þar sem þér leið vel og þú naust góðrar að- hlynningar frábærs fólks sem þér fannst vænt um. Börnin okkar og barnabörn nutu þess að koma til þín og þú varst alltaf jafn glaður að sjá þau og naust þess að hafa þau hjá þér. Aðeins er tæpur mán- uður síðan þú fylgdist með af áhuga þegar smalað var á Smá- hömrum og hafðir gaman af því að fá símtöl og fréttir úr sveitinni en Smáhamrar áttu alltaf sérstakan stað í þínu hjarta. Við erum þakklát fyrir þann tíma sem við áttum saman og minningin um þig lifir. Líney og Jónatan. Óskar Jónatansson, eða Óss eins og hann var oftast kallaður, var hávaxni blíði frændinn sem virtist búa yfir óþrjótandi þolin- mæði, áhuga og kærleik gagnvart okkur frændsystkinunum sem og öðrum fjölskyldumeðlimum. Ég man ekki eftir Óss öðruvísi en brosandi sínu einlæga og stóra brosi. Ég líkt og svo mörg skyld- menni, gat ávallt treyst á hlýjar móttökur hjá langömmu Þuríði, Óss og systur hans Láru á Rauða- læknum. Minningarnar eru marg- ar og ná allt aftur í barndóm. Tröppurnar upp á þriðju hæðina voru leikvöllur og garðurinn sömu- leiðis, en skemmtilegast var að kíkja inn til Óss. Herbergið hans fól í sér kyrrð en sömuleiðis frum- leika, líkt og útvarpið sem var byggt inn í vegginn við rúmið, sér- staka málverkið eftir Kára Eiríks- son og óvenjulega löguð borðtölva. Mér fannst alltaf notalegt að vera í kringum Óss, og félagsskap- ur hans hafði róandi áhrif sama á hvaða aldri ég var. Ég átti heim- angengt á Rauðalækinn þegar ég vann í byggingarvinnu í Borgar- túni við síðustu aldamót og þykir vænt um minningar af notalegum kvöldverðum og morgunmat áður en ég fór í verkamannavinnu og Óss hélt til starfa sem bókari hjá Lyru, en áður hafði hann verið að- albókari Sambands Íslenskra samvinnufélaga (SÍS). Þó svo Óss hafi lengi verið stór- tækur frímerkjasafnari með tengsl víða um heim, voru það bækur sem fylgdu honum alla tíð. Upp á háa- lofti voru staflar af lesnum bókum, þar á meðal reyfurum, og var hann lengi áskrifandi að ýmsum bóka- flokkum. Bókasmekkur hans var fjölbreyttur allt fram á síðasta dag. Á seinni árum voru það hljóðbækur sem veittu honum aðgang að draumaheimi bókmenntanna með tilheyrandi ánægju, ég tala nú ekki um ef lesturinn var góður. Á tíræð- isaldri upplifði hann tímaleysi í gegnum skáldskap og sagnfræði inn á milli þess sem hann dreymdi skemmtilega drauma um liðna tíma. Þó hann væri rúmfastur und- ir lokin, sagði hann mér að í draum- um sínum hlypi hann um tún og endurlifði gleðitíma með vinum og frændum eins og Óla E, ávallt kall- aður Óli C, á Smáhömrum á Ströndum, uppeldisheimili þeirra beggja. Nær dagleg samvera með afa Svavari, bróður Óss, og Láru systur þeirra, hafa vafalaust aukið á lífsfyllingu og endurminningar langrar ævi. Að tala við Óss var alltaf samtal sem gat farið vítt og breitt sama hversu stutt það var. Ég mun sakna samtala sem og hlýrra faðm- laga frá Óss. Ég heyri enn óminn af stóru ljúfu röddinni sem ávallt yljaði mér um hjartaræturnar. Ég, Svavar litli, kveð góðhjart- aða stóra frænda minn hann Óss með þakklæti efst í huga. Svavar Jónatansson (Svavar yngri). Óskar Jónatansson Minningarkort á hjartaheill.is eða í síma 552 5744

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.