Morgunblaðið - 13.10.2022, Side 52

Morgunblaðið - 13.10.2022, Side 52
Skósmiðurinn Gísli Ferdinandsson. af eldri félögum sem starfaði á breytingartímum hennar á árunum 1976-1980. Gísli var formaður sveitarinnar 1950-1951 og gegndi þar einnig mörgum ábyrgðar- störfum. Hann var ennfremur end- urskoðandi Svansins til fjölda ára og veitti gott aðhald hvað varðar fjárreiður félagsins. Félagar hans sem gerðu hann að heiðursfélaga Svansins og gáfu honum gullmerki félagsins árið 1989 lýstu honum sem góðum og dyggum félaga og að kynslóðabil hefði verið eitthvað sem Gísli hefði ekki skráð í sína orðabók. Enda naut hann þess alla tíð að kynnast og fá að spila með sér yngra fólki. G ísli Ferdinandsson fæddist í Reykjavík 13. október 1927 og ólst upp á Grettisgötu 19. Gísli gekk í Austurbæjarskóla sem barn og lauk síðar sveinsprófi í skósmíði frá Iðnskólanum í Reykjavík árið 1948. Hann lærði og vann á skósmíðaverkstæði föð- ur síns um tíma á Hverfisgötunni og stofnaði síðar sitt eigið verk- stæði í Lækjargötu 6. Mörgum er það minnisstætt að hafa farið með skóna sína í viðgerð til hans þang- að, tekið með honum eina skák jafnvel og fengið kaffisopa og skemmtilegt spjall enda var alltaf líf og fjör í kjallaranum í Lækjar- götunni. Með tímanum eignaðist Gísli húsið í heild sinni og bæði bjó þar og rak skóverslun og verkstæði ásamt börnum sínum um áratuga skeið auk þess sem tveir synir hans lærðu sérstaklega til þess að sérsmíða skó fyrir fólk sem af heilsufarslegum ástæðum þurfti á þeim að halda. Gísli var formaður Landssambands skósmiða 1960- 1972 og hlaut m.a. gullmerki Landssambandsins fyrir sitt fram- lag. Gísli lærði ungur flautuleik og var fyrstur Íslendinga til þess að ljúka einleikaraprófi frá Tónlist- arskólanum í Reykjavík árið 1950 en hann lærði hjá Árna Björns- syni tónskáldi á þeim tíma. Hann spilaði með Sinfóníuhljómsveit Ís- lands 1952-1955 en hafði áður gengið til liðs við Lúðrasveitina Svan árið 1947 og var þá fyrsti vel menntaði hljóðfæraleikarinn sem með henni spilaði. Gísli starf- aði óslitið með Svaninum til ársins 1998 eða í 51 ár og sló þar með öll met. Þrátt fyrir mikla hæfileika á tónlistarsviðinu valdi hann skó- smíðina fram yfir frekari frama með Sinfóníuhljómsveitinni enda hafði hann fyrir stórri fjölskyldu að sjá. Hann naut þess alltaf að spila með Svaninum og stóð af sér alla brotsjói sem yfir lúðrasveitina dundu í gegnum árin og er sá eini Áhugamál Gísli hefur í gegnum tíðina haft áhuga á mörgu og kannski allra helst á því að lifa lífinu lifandi. Hann hefur alltaf verið mjög virk- ur félagslega en líka þótt gott að hreyfa sig og hefur meðal annarra verið fastagestur í Laugardals- lauginni um áratugabil. Hann hafði líka á yngri árum ákaflega gaman af því að ganga fjöll og naut þess að vera úti í náttúrunni með sínu fólki. Gísli hefur alltaf verið sérlega áhugasamur um fugla og kann skil á fjöldanum öllum af mismunandi tegundum þeirra. Hann er vel les- inn í trúarbragðafræði og heim- speki og hefur alla tíð haft sér- stakan áhuga á því að læra utanbókar hin ýmsu kvæði og ljóð auk afmælisdaga barna og barna- barna. Hann hefur alltaf verið ákaflega hlýr og vandaður afi sem hefur haft gaman af því að hafa barnabörnin með sér í sund, boðið upp á ís, bakkelsi og skemmtilegar gönguferðir í fjörum. Þá hefur hann sérlega gaman af því að spila við ungviðið og alveg sérstaklega þegar hann vinnur. Fjölskylda Gísli var giftur Sólrúnu Þor- björnsdóttur húsmóður, f. 18.5. Gísli Ferdinandsson, skósmiður og flautuleikari – 95 ára Með börnunum Frá vinstri: Matti, Gísli, Reynir, Auður, Óli, Kolli, Valva og afmælisbarnið Gísli á ættarmóti. Starfaði með Svaninum í 51 ár Á áttræðisafmælinu Lúðrasveitin Svanur kom Gísla á óvart og mætti og spilaði fyrir hann í garðinum heima hjá honum í Garðabæ. 52 DÆGRADVÖL MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 13. OKTÓBER 2022 Stjörnuspá 21. mars - 19. apríl , Hrútur Þér er órótt því þér finnst þú ekki vita allan sannleikann. Fljótlega ættu hlut- irnir hins vegar að fara að komast í eðlilegt horf. 20. apríl - 20. maí + Naut Allt hefur sinn tíma. Ef þig langar til þess að gera eitthvað sem þarfnast leyfis frá öðrum er dagurinn í dag sá rétti til þess að spyrja. 21. maí - 20. júní 6 Tvíburar Nú væri ekki vitlaust að byrja á einhverju af þeim verkefnum sem eru á döfinni fyrir heimilið. Vertu sveigjanleg/ur í samningaviðræðum. 21. júní - 22. júlí 4 Krabbi Varastu öll gylliboð sem eiga að færa þér hamingju og auðæfi í einu vet- fangi. Hafðu það í huga að allir þurfa ein- hverja hvíld. 23. júlí - 22. ágúst Z Ljón Ekki bíða eftir fullkomnum aðstæðum til að halda áfram. Mundu að margir nota peninga til að reyna að stjórna öðrum. 23. ágúst - 22. sept. l Meyja Það er óþarfi að byrgja allt inni þeg- ar þú átt aðgang að góðum sálufélaga. Það er allt á uppleið í lífi þínu þessar vikurnar. 23. sept. - 22. okt. k Vog Þú þarft að taka á honum stóra þínum til þess að komast fram úr öllu því sem gera þarf. Ekki taka lífið of alvarlega. 23. okt. - 21. nóv. j Sporðdreki Staða þín er sterk á vinnu- staðnum. Ef þú ert óánægð/ur með eitt- hvað skaltu leita þér hjálpar, hvar sem hana er að finna. 22. nóv. - 21. des. h Bogmaður Það er engin ástæða til þess að fela allar sínar tilfinningar. Er ekki betra að fresta hlutunum en að gera þá hratt og illa? 22. des. - 19. janúar @ Steingeit Það er hægt að sjá hve mikla stjórn þú hefur á lífi þínu eftir því hvaða stjórn þú hefur á peningunum. Ástamálin taka kipp fljótlega. 20. jan. - 18. febr. ? Vatnsberi Líf þitt verður mun meira spennandi þegar þú ert nálægt ákveðinni manneskju. Mundu að sjaldan veldur einn þá tveir deila og að sættir byggjast á mála- miðlun. 19. feb. - 20. mars = Fiskar Þér finnst eins og veröldin sé orðin snælduvitalaus allt í kringum þig. Notaðu tækifærið til að einfalda líf þitt eins og kostur er. Hólmfríður Guðvarðardóttir er 100 ára í dag, fædd 13. október 1922. Hún ólst upp á Minni- Reykjum í Fljótum, Skagafirði. Foreldrar hennar voru hjónin María Ásgrímsdóttir, f. 1896, d. 1994 og Guðvarður Pétursson, 1895, d. 1987, bændur á Minni- Reykjum, síðar á Ökrum í sömu sveit. Hólmfríður, kölluð Fríða, er næstelst af ellefu systkinum. Hún giftist 1948 Hákoni Jó- hannssyni frá Vestmannaeyjum, f. 1913, d. 1967. Hann var leigu- bílstjóri og síðar garðyrkju- maður. Þau bjuggu á Grund í Mosfellsdal. Þau hjónin eign- uðust þrjú börn, Guðvarð, Maríu og Elsu. Barnabörnin eru sjö, barnabarnabörnin 16 og barna- barnabarnabörnin orðin fjögur. Fríða flutti svo til Reykjavíkur 1972 og býr þar enn. Síðustu ár- in hefur hún búið í þjónustuíbúð að Norðurbrún 1, en er nýflutt þaðan á hjúkrunarheimilið Skjól við Kleppsveg. Fríða vann á fjölskylduheim- ilum hjá Reykjavíkurborg til margra ára og var mjög iðin við prjónaskap og prjónaði lopa- peysur og seldi. Hún var mjög ern þar til í sumar að heilsan fór að dala og sjónin að dvína. Hennar aðalskemmtun var að taka í spil og fara í bingó í Vinabæ. Árnað heilla 100 ára www.danco.is Heildsöludreifing Fyrirtæki og verslanir Heildarlausnir í umbúðum Pakkaskraut Pappír Skreytingarefni Pokar Borðar Teyjur Bönd Kort Sellófan Kynntu þér úrval á vefverslun www.danco.is

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.