Morgunblaðið - 13.10.2022, Qupperneq 53

Morgunblaðið - 13.10.2022, Qupperneq 53
1928, d. 12.9. 2006. Foreldrar Sól- rúnar voru Þorbjörn Guðlaugur Bjarnason pípulagningameistari, f. 14.7. 1895 á Heiði á Síðu, V-Skaft., d. 8.11. 1971 og Guðríður Þórólfs- dóttir húsmóðir, f. 20.9. 1894 á Dalshöfða í Fljótshverfi, V-Skaft., d. 8.11. 1980. Þau hjónin Gísli og Sólrún hófu sinn búskap í sameiginlegu hús- næði fjölskyldu Sólrúnar sem faðir hennar hafði byggt í Drápuhlíð- inni. Eftir því sem fjölskyldan stækkaði hófust þau síðan handa við að byggja sitt eigið hús og fluttu inn á sitt framtíðarheimili í Aratúni 9 í Garðabæ árið 1963 þá komin með 6 börn. Yngsta barnið fæddist síðan 1969 en í húsinu í Aratúni á stórfjölskyldan margar minningar. Börn Gísla og Sólrúnar eru 1) Guðríður Valva, f. 12.5. 1954 og eru börn hennar þau Vincent Gísli og Elísabet Ásta Pálsbörn; 2) Kol- beinn, f. 16.12. 1955 og eru börn hans þau Sunneva, Gísli Ferdin- and, Sigtryggur og Sólrún Dís; 3) Ólafur Haukur, f. 13.9. 1957 og eru börn hans Birna Björk, Sandra Björk, Svavar Már og Agnes; 4) Magnea Auður, f. 4.10. 1959 og eru dætur hennar Erla Björk, Sif og Andrea Jónína Jóns- dætur; 5) Þorbjörn Reynir, f. 25.12. 1960 en dætur hans eru Unndís, Sólrún og Ariana; 6) Gísli, f. 12.2. 1963 en hans börn eru Snær, Gunnar, Sól Dís og Freyr; 7) Mattías Rúnar, f. 25.4. 1969 og börn hans eru Karen, Tara og Daníel Logi. Langafa- börnin eru nú orðin 23. Systkini Gísla: Vigdís, d. 2006, Gunnar, d. 2001, Eiríkur, d. 2008, Jón, d. 1996, Árni, d. 2020, ásamt Ferdinand Þóri, f. 17.8. 1936, sem ásamt Gísla er eftirlifandi. Foreldrar Gísla voru hjónin Ferdinand Róbert Eiríksson skó- smiður, f. 13.8. 1891 á Álftanesi, d. 12.2. 1978 og Magnea Guðný Ólafsdóttir húsmóðir, f. 4.4. 1895 á Eyrarbakka, d. 20.3. 1981. Gísli Ferdinandsson Guðný Hansdóttir húsfreyja í Stokkseyrarseli vestra Gísli Andrésson bóndi í Stokkseyrarseli vestra Guðrún Gísladóttir húsfreyja á Eyrarbakka og í Reykjavík Ólafur Árnason sjómaður á Eyrarbakka, síðast bús. í Rvík Magnea Guðný Ólafsdóttir húsfreyja í Reykjavík Margrét Gísladóttir húsfreyja í Þórðarkoti Árni Eiríksson bóndi í Þórðarkoti í Flóa Júlíana Hallbera Jónsdóttir ljósmóðir á Álftanesi Jón Gíslason útvegsbóndi og formaður í Sviðholti á Álftanesi og á Eyvindarstöðum Vigdís Jónsdóttir húsfreyja á Eyvindarstöðum Eiríkur Tómasson bóndi á Eyvindarstöðum á Álftanesi og verkamaður í Reykjavík Signý Eiríksdóttir húsfreyja í Ráðagerði Tómas Gíslason bóndi í Ráðagerði á Álftanesi Ætt Gísla Ferdinandssonar Ferdinand Róbert Eiríksson skósmíðameistari í Reykjavík DÆGRADVÖL 53 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 13. OKTÓBER 2022 „ÉG FANN ÞESSA FRAMMI Á GANGI. ÉG HELD AÐ ÞAÐ EIGI AÐ SKERA NIÐUR.“ „FYRRVERANDI ATVINNUVEITANDI ÞINN SAGÐI AÐ ÞÚ ÆTTIR ERFITT MEÐ AÐ AÐLAGAST AÐSTÆÐUM.“ Ferdinand Hrólfur hræðilegi Grettir ... að óska þér til hamingju með afmælið! Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim UngerHermann ÚÚÚÚ, SUSHI! HRÓLFUR VILL AÐ ÞÚ NOTIR ÞENNAN SÉRSTYRKTA HJÁLM Í ÁRÁS DAGSINS! VÁ! EN HUGUL- SAMT! VIÐ GLEYMDUM HURÐABRJÓTNUM! HAGNAÐUR Á Boðnarmiði yrkir Guðmundur Arnfinnsson „Eftir storminn“: Flýgur már um fjarðarál, fjallsins grár er hjúpur, hjalar sjár við hamrastál, himinn blár og djúpur. Enn yrkir Guðmundur og nú er það „Hríðarveður“: Kári flóa, klett og grund köldum lófa strýkur, yfir móa, mel og grund mjallarkófið rýkur. Í Fimmtu Davíðsbók segir, að „Sigrún taldi konur þurfa að eyða miklum tíma í viðhald til að líta sæmilega út“: Hún mælir og snittar og skrúfar og sker og skrapar og hugar að dampi, rörtöng hún sveiflar og ryðið af ber og reynir að þétta með hampi. Enn segir þar: „Borgarstjóri íhugaði framboð til Alþingis 2013, ekki var hann viss um hvað stjórn- málaflokkurinn héti en ætlaði að fylgja besta vini sínum“: Bráðum ég í framboð fer, finn þar góðra vina sveit, en fyrir hvaða flokk það er ég fjandankornið ekki veit. „Sjálfsleit“ eftir Þórarin Eldjárn: Í mér var einhver hundur, allt var að detta í sundur. En í sjálfum mér vann ég uns sjálfan mig fann ég. Þá varð aldeilis fagnaðarfundur. Kristján Karlsson orti: „Já, andartak ef ég hef tíma,“ sagði íslenskumaður í Lima. Það falaði hann stúlka sem lá breitt upp á búlka eða bekk, ef þú kannt ekki að ríma. Aftur eftir Kristján: „Gyðjan er hugsi, eftir Kristmann Guðmunds- son. (Þögn) Mun eiga að vera Gyðj- an er uxi.“ Úr tilkynningum í útvarpi fyrir mörgum árum. „Nú hættum við hórdómi og sluksi,“ mælti Hámundur, „gyðjan er uxi.“ Hann bíður um stund brýtur stól, lemur hund. Enn bíður hann. Gyðjan er hugsi. Á feisbók yrkir Anton Helgi Jónsson „Friðarsúluvísur“: Í kvöld á að kveikja ljósið sem kannski mun ekki sjást því móða er víða mikil og minnir á allt sem brást. Í kvöld getur vaknað vonin sem virðist oft sett á bið með trúnni að okkur takist að tryggja í heimi frið. Í kvöld munu opnast augu þótt ekki sé skyggnið neitt en verði í hjörtum heiðskírt skal heiminum öllum breytt. Halldór Blöndal halldorblondal@simnet.is Vísnahorn Ort eftir storminn duka.is Kringlan & Smáralind 14.990,- 3.990,- 4.990,- 5.990,-
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.