Morgunblaðið - 13.10.2022, Side 58

Morgunblaðið - 13.10.2022, Side 58
58 MENNING MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 13. OKTÓBER 2022 Einar Falur Ingólfsson efi@mbl.is Norður og niður er heiti umfangs- mikillar myndlistarsýningar sem verður opnuð kl. 19.30 í kvöld, fimmtudag, í mörgum sölum Lista- safns Reykjavíkur – Hafnarhúss. Sýningin er unnin í samstarfi þriggja listasafna, Portland Mu- seum of Art í Maine-ríki Bandaríkj- anna, Bildmuseet í Umeå í Svíþjóð og Listasafns Reykjavíkur. Þetta er í fyrsta sinn sem samstarf samtíma- listamanna á norðurslóðum er mark- visst sett fram með slíkum hætti í al- þjóðlegu samhengi en á sýningunni er tekist á við þær breytingar sem eru að verða á samfélagi, náttúru og lífríki á norðurslóðum í upphafi 21. aldarinnar vegna loftslagsbreytinga. Sýningin var fyrst sett upp í Port- land-safninu og héðan fer hún í Bildmuseet í Svíþjóð. Víðfeðmt og stórt Listafólkið á það sammerkt að búa og starfa á svæðum í kringum Norðurpólinn, bæði upprennandi og þekktari núlifandi listamenn sem búsettir eru á norðvesturströnd Bandaríkjanna, á kanadískum strandsvæðum, á Norðurlöndunum auk listafólks af frumbyggjaættum frá öllu svæðinu, alls þrír tugir lista- manna og listamannahópa. Íslensku fulltrúarnir eru Ragnar Axelsson – RAX, Anna Líndal, Magnús Sigurð- arson, Bryndís Snæbjörnsdóttir & Mark Wilson og Arngunnur Ýr. Meðal annarra listamanna má nefna Joan Jonas, sem hefur verið fulltrúi Bandaríkjanna á Feneyjatvíær- ingnum og verk hennar verið á einkasýningum í söfnum hér, og hinn kunni danski listamannahópur Superflex. Sýningarstjórar koma frá öllum þremur söfnunum, Anders Jansson, Jaime DeSimone og Markús Þór Andrésson. Sá síðastnefndi leiddi blaðamann milli afar fjölbreytilegra verkanna á sýningunni. „Þessi sýning var lengi í bígerð og svo seinkaði henni um ár vegna Co- vid-faraldursins – við vorum í raun þakklát fyrir þann aukatíma sem við fengum í undirbúningnum því hann nýttist vel í rannsóknir og vefviðtöl við listamenn,“ segir Markús. Hann segir að markvisst hafi ver- ið fundnir og valdir listamenn sem eru „svo sannarlega á jaðrinum. Við sýnum verk eftir listamenn sem búa og starfa víða á norðurslóðum, alls ekki bara í borgum heldur einkum í dreifbýlinu.“ Hann nefnir sem dæmi að markvisst hafi verið skoðuð verk eftir Sama og fólk sem býr afskekt í Maine og í Kanada. „Viðfangsefnið er mjög víðfeðmt og stórt og það var ekki auðvelt að ná utan um það. Portland-safnið fór af stað með verkefnið og grunn- hugmyndin hjá þeim er að þetta sé þríæringur og þau leituðu til okkar með þátttöku í þessari fyrstu útgáfu. Svo kemur í ljós hvort framhald verði þar á.“ Umhverfislegar áskoranir Samhliða sýningunni kemur út vegleg bók með umfjöllun um norðr- ið og þá samtímalistamenn sem verk eiga á sýningunni. Sýningarstjór- arnir þrír skrifa hver sína greinina um meginþemu verkefnsins, nátt- úru, umhverfi og samfélög á norður- slóðum, og meðal annarra greinahöf- unda er Andri Snær Magnason sem skrifar um heimskautin. Sýningarstjórarnir segja að lista- menn séu landkönnuðir nútímans, þeir rannsaka áleitin efni og nýta sér tilfinningaleg áhrif listar og frá- sagnarmöguleika hennar sem hvata til breytinga. Loftslags- og umhverfisbreytingar, auk sárs- aukafullrar sögu nýlenduvæðingar innfæddra þjóða, hafa leitt til sköp- unar nýrra listaverka sem fást við þungan straum félags-, efnahags-, stjórnmála- og umhverfislegra áskorana um gjörvallt norðrið. Listafólkið á sýningunni tekst líka á við þá blekkingu sem oft er haldið fram að norðrið sé afskekkt auðn og skorar á hólm rómantíska tálmynd af ósnortnu landi og meintri eins- leitni samfélaganna. „Hér er aðallega fjallað um um- hverfismálin gegnum verk sem tengjast jöklunum og hafinu. Í um- fjöllun um lifandi náttúru vinna listamenn með lífríkið, gróður og dýralíf, og þá fjalla sumir hér um samfélagið. Í öllum verkunum er á einhvern hátt verið að skoða breyt- ingar og ferla sem eru í gangi,“ segir Markús. „Í sumum verkanna er skoðað hvort breytingar séu til góðs eða ills, sumir gagnrýna, aðrir benda okkur á eitthvað. Hér eru verk í allskyns miðla, nýmiðlar og vídeó en líka afturhvarf til handverksins í verkum listamanna sem vilja endurvekja handverkshefðir sem eiga rætur í menningarlegum bakgrunni til dæmis Inúíta, Sama og frumbyggja Norður-Ameríku. Þetta er mjög fjöl- breytileg sýning,“ segir Markús. Samtímamyndlist um norðurslóðir - Á sýningunni Norður og niður í Hafnarhúsinu eru verk 30 listamanna um breytingar og samfélög Morgunblaðið/Einar Falur Veggmynd Bandaríski listamaðurinn Peter Soriano, sem fæddist á Filippseyjum, vann í vikunni að því að móta með teikningu og akríllitum flennistórt verk í einn salinn í Hafnarhúsinu, byggt á grænlensku landslagi. Lýsisverk Magnús Sigurðarson: IN COD-liver WE TRUST inc. Skaftafell – Pia I Hluti eins verka Arngunnar Ýrar sem sýnd eru, málað 2021. Verkin á sýningunni eru afar fjölbreytileg, unnin í alls kyns miðla. Breska leikkonan Angela Lansbury, sem naut um árabil mikilla vinsælda í hlutverki Jessicu Fletcher í sjón- varpsþáttaröðinni Murder, She Wrote, er látin 96 ára að aldri. Á tólf ára tímabili lék Lansbury í alls 264 þáttum sjónvarpsþáttaraðarinnar, sem hefur verið sýnd víða um lönd og iðulega endursýnd. Hún var einn- ig atkvæðamikil leikkona á sviði og í kvikmyndum. Hún lék í sinni fyrstu kvikmynd, Gaslight, árið 1944 og þeim síðustu fyrir fjórum árum, fjöl- skyldumyndunum Buttons og Mary Poppins Returns. Leikferill hennar spannaði meira en sjö áratugi og ár- ið 2014 hlaut hún heiðurs-ósk- arsverðlaun fyrir ævistarf í kvik- myndum. Lansbury átti einnig gifturíkan feril á sviði, ekki síst á Broadway í New York, en þar tók hún iðulega þátt í uppsetningum verka Stephens Sondheims, við mikið lof. Hún hreppti fimm Tony-verðlaun og lék reglulega bæði á Broadway og í London fram yfir nírætt. Dáð Lansbury með Óskarsverðlaunin sem hún fékk fyrir ævistarfið árið 2013. Leikkonan Angela Lansbury látin AFP Frönsk þýðing skáldsögu Gyrðis Elíassonar, Sorgarmarsinn (2018), er á stutt- lista frönsku bókmenntaverð- launanna Prix Médicis yfir bestu erlendu þýddu skáldsög- urnar á frönsku, sem kynntur hefur verið. Í franskri þýðingu Catherine Eyj- ólfsson heitir sagan Requiem og er gefin út af forlaginu La Peuplade. Aðrar sögur á stuttlistanum eru eftir argentínska höfundinn Mariu Soniu Cristoff, hinn úkraínska And- reï Kourkov, sem á dögunum hlaut verðlaunin sem kennd eru við Hall- dór Laxness, ítalska höfundinn Nic- olu Lagioia, hina bandarísku Leilu Mottley, Rússann Mariu Stepanovu, Írann Colm Toibin og hinn banda- ríska Allen S. Weiss. Verðlaunin verða afhent 7. nóvember. Gagnrýnandi Morgunblaðsins lofaði Sorgarmarsinn á sínum tíma, gaf fimm stjörnur og sagði söguna vera heillandi, djúpa og marg- radda. Saga Gyrðis á stuttlista Prix Médicis Gyrðir Elíasson www.gilbert.is J S W AT CH CO .REYK JAV IK

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.