Morgunblaðið - 13.10.2022, Page 60

Morgunblaðið - 13.10.2022, Page 60
60 MENNING MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 13. OKTÓBER 2022 S káldsagan Vængjalaus eftir Árna Árnason er saga um þær spurningar sem hefj- ast á orðunum „hvað ef“ og leitina að svörunum við þeim. Árni hefur gefið út tvær barna- bækur en Vængjalaus er hans fyrsta skáldsaga fyrir fullorðna. Vængjalaus gerist á tveimur tímaskeiðum. Aðalpersónan Baldur horfir yfir farinn veg og rifjar upp nótt eina á Akureyri. Rétt fyrir aldamótin er hann rétt skrið- inn upp úr tví- tugu, vinnur sem sundlaugar- vörður en hyggst halda til náms á Englandi innan skamms. Hann á líka kærustu en er farinn að efast um sambandið. Baldur fer í jarðarför, fyrst ranga og svo rétta, og síðan út á lífið og verður það til þess að hann kynnist Auði sem er ellefu árum eldri en hann, gift kona úr Reykjavík. Tuttugu árum síðar hefur hann náð langt í auglýsingabransanum en ástalífið hefur ekki gengið jafn vel og tvö hjónabönd að baki. Hann hittir gamlan vinnufélaga, Elsu, í Leifsstöð þar sem þau eru bæði á leið til Feneyja í ólíkum erinda- gjörðum. Hann rekur atburði þess- arar nætur á Akureyri fyrir Elsu og ljóst er að kynnin af Auði hafa snert hann djúpt. Árni er tækni- lega mjög fær og textinn flæðir vel. Hann skiptir milli sögusviða af mikilli kostgæfni og byggir verkið svolítið upp eins og um spennusögu sé að ræða. Í sögunni er einhver ráðgáta sem lesandinn þarf að komast til botns í og þannig heldur hann lesandanum við efnið. Höfundurinn leggur mikið upp úr því að byggja upp söguheiminn sem helmingur bókarinnar til- heyrir, Akureyri árið 1996. Þótt það geti verið skemmtilegt fyrir þá lesendur sem voru nýskriðnir á þrítugsaldurinn á þeim tíma og þekkja þennan heim er óþarflega mikil áhersla lögð á smáatriðin og þau flækjast fyrir sjálfri sögunni. Þegar söguhetjan ferðast til Fen- eyja þrjátíu árum síðar er fram- setningin á sögusviðinu mun eðli- legri. Það eru þessar „hvað ef“- spurningar sem flækjast fyrir aðal- persónunni og verða drifkraftur á þessu ferðalagi til Feneyja. Baldur, sem sjálfur segir söguna, stendur á krossgötum og er svolítið upptek- inn af því hvað lífið getur tekið ólíkar stefnur. Og hann þráir að komast til botns í því hvaða stefna hefði verið best. Vangaveltur sögupersónanna um lífið og tilveruna eru fyrirferðar- miklar og fara verkinu oft ágæt- lega, sérstaklega samtöl Baldurs við Elsu. En það er stundum eins og sögumaðurinn missi aðeins þráðinn og vilji koma að ýmsum vangaveltum sem eiga ekki mikið erindi við söguna sem sögð er í verkinu. Til dæmis er miklu púðri eytt í samtal nokkurra manna í heitum potti sem litlu bætir við söguna. Þótt verkið sé vel uppbyggt allt á enda kemst það ekki almennilega á flug. Lesandinn rennur auðveld- lega í gegnum verkið enda um hug- ljúfa afþreyingu að ræða og tækni- leg færni höfundar er greinileg. En einhverra hluta vegna situr lítið eftir. Efniviðinn skortir einhverja dýpt eða kannski eitthvað óvænt sem hreyfir við lesandanum og lyftir þessu vel smíðaða verki á enn hærra plan. Staðið á krossgötum Skipti Vængjalaus er fyrsta skáldsagan sem Árni Árnason skrifar fyrir full- orðna. Rýnir segir hann skipta milli sögusviða af mikilli kostgæfni. Skáldsaga Vængjalaus bbbmn Eftir Árna Árnason. Bjartur, 2022. Kilja, 212 bls. RAGNHEIÐUR BIRGISDÓTTIR BÆKUR Starfsstyrkjum Hagþenkis – félags höfunda fræðirita og kennslugagna til ritstarfa hefur verið úthlutað og var tilkynnt um úthlutanir í Borgar- bókasafninu í Grófinni í gær. Til út- hlutunar voru 18 milljónir. Alls bár- ust 54 umsóknir til 46 verkefna og af þeim hljóta 30 verkefni styrk, en að þeim standa 35 höfundar. Í úthlut- unarráði voru að þessu sinni Eggert Lárusson, Hilma Gunnarsdóttir og Jóhannes B. Sigtryggsson. Þrjú verkefni hlutu hæsta styrk- inn, 900 þúsund krónur. Þetta eru Bragi Halldórsson, Elín Gunnlaugs- dóttir, Guðrún Laufey Guðmunds- dóttir, Jón Torfason, Karl Sigur- björnsson og Kristján Eiríksson fyrir Sálmabækur 16. aldar; Gunnar Þorri Pétursson fyrir Bakhtínski búmm: Um ris og fall Míkhaíls Bakhtíns í fræðilegri umræðu á Ís- landi og Marín Árnadóttir fyrir Of- beldi gegn lítilmögnum í íslenskri menningu fyrri alda. Næsthæstu styrkupphæðina, 800 þúsund krónur, hlaut Sigrún Páls- dóttir fyrir Ég skrifa. Yfirlýsingar í vestrænni bókmenntasögu. Sex verkefni hlutu 700 þúsund krónur. Þetta eru Björg Hjartar- dóttir fyrir Róttæk Freyja í Vestur- heimi (1898-1910); Erla Dóris Hall- dórsdóttir fyrir Berklar á Íslandi; Gylfi Gunnlaugsson fyrir Íslensk fornrit og þverþjóðlegar sjálfs- myndir; Sólrún Harðardóttir fyrir Ó, Reykjavík, vefur um náttúru Reykjavíkur fyrir grunnskólanem- endur; Sæunn Kjartansdóttir fyrir Gáfaða dýrið og Tinna Guðmunds- dóttir fyrir Skaftfell – ræktun mynd- listar á jaðarsvæði. Níu verkefni hlutu 600 þúsund krónur. Þetta eru Arnþór Gunnars- son fyrir Ferðamannalandið Ísland. Erlendir ferðamenn og ferða- mennska 1919-1939; Bjarki Bjarna- son fyrir Tónlist á Íslandi – frá torf- bæjum til tölvualdar; Guðfinna Ey- dal og Anna Ingólfsdóttir fyrir Makamissi; Helgi Máni Sigurðsson fyrir Fornbátar á Íslandi; Jakob Þór Kristjánsson fyrir Ísland 1939-1944 í ljósi danskra heimilda; Jón Hjalta- son fyrir Austurvöllur; Linda Ólafs- dóttir fyrir Ég þori! Ég get! Ég vil!; Sigrún Alba Sigurðardóttir fyrir Anna Schiöth og Engel Jensen og Þórunn Elín Valdimarsdóttir fyrir Íslensk fyndni. Rannsókn á smárit- um Gunnars Sigurðssonar. Sjö verkefni hlutu 500 þúsund krónur. Þetta eru Arthúr Björgvin Bollason fyrir Náttúrusýn í ljóðum þriggja skálda; Axel Kristinsson fyrir Skapandi ættfræði; Ásdís Jóelsdóttir fyrir Orðasafn og skýr- ingar fyrir fatagerð og fatasaum; Ásmundur G. Vilhjálmsson fyrir Skattur á menn; Birgir Hermanns- son fyrir Íslensk málstefna; Sævar Helgi Bragason fyrir Úps! Mistök, klúður og óvæntar uppgötvanir sem breyttu heiminum og Þórir Óskars- son fyrir Tvær greinar um Grím Thomsen. Þrjú verkefni hlutu 400 þúsund krónur. Þetta eru Árni Daníel Júl- íusson fyrir A new look at climate and Agriculture in 15th Century Ice- land; Halldór Hauksson fyrir Fjór- radda sálmalagaútsetningar Bachs með íslenskum söngtexta og Rann- veig Lund fyrir Sagan um Víólu, Sæsa og illskeyttu nornina Elvíru. Loks hlaut Ivana Golanova 200 þúsund kr. fyrir verkefnið Listland. Starfsstyrkir Hagþenkis 2022 - Alls var 18 milljónum króna úthlutað - Samtals bárust 54 umsóknir fyrir 46 verkefni - Alls 30 verkefni hljóta styrk - Að þeim standa 35 höfundar Morgunblaðið/Árni Sæberg Gleði Styrkþegar voru að vonum ánægðir í Borgarbókasafninu í Grófinni í gær þegar tilkynnt var um styrkina. Það ferskasta í norrænni tónlist verður í boði á tónleikum Sinfóníu- hljómsveitar Íslands í Eldborg Hörpu í kvöld kl. 19.30 undir stjórn Önnu-Mariu Helsing. Tónskáldin sem eiga verk á efnisskrá kvöldsins voru valin „inn í hátíðardagskrá Norrænna músíkdaga“, eins og seg- ir í tilkynningu frá sveitinni. Á efnisskránni eru The Ring of Fire and Love eftir finnska tón- skáldið Outi Tarkiainen; Zurvan eftir Idin Samimi Mofakham sem býr í Noregi en er upprunninn frá Íran; Segel eftir sænska tónskáldið Lisu Streich; Grisaille eftir íslenska tónskáldið Gunnar Karel Másson og Ärr eftir sænska tónskáldið Jesper Nordin. Í tilkynningu á vef sveit- arinnar kemur fram að The Ring of Fire and Love vísi m.a. til fæðingar- reynslu kvenna; tónheimur Zurvan sé frá Íran; Segel er lýst sem kóreó- grafísku; Grisaille þyki óvanalegt fyrir Gunnar sem hafi einkum feng- ist við kammertónlist á ferli sínum og Ärr sæki innblástur í lag þunga- rokkssveitarinnar Meshuggah. Ljósmynd/Kasper Dalkarl Tónsproti Anna-Maria Helsing stjórnar tónleikum kvöldsins. Nýtt og nor- rænt hjá Sinfóníunni RVK Feminist Film Festival (RVK FFF) verður haldin í fjórða sinn 12.-15. janúar 2023. „Sýndar verða myndir eftir kvenkyns leikstjóra og eins og áður leggur hátíðin áherslu á að fjalla um hinseg- in málefni, málefni litaðra kvenna og annarra jað- arsettra hópa,“ segir í tilkynningu frá Sólrúnu Freyju Sen, framkvæmdastjóra hátíðarinnar. Fjórða hátíðin verður með sérstöku hryllings- myndaþema, en að sögn Sólrúnar verður lögð „áhersla á að sýna kvikmyndir eftir eldri konur, sem eru nær ósýnilegar í hópi kvikmyndagerð- armanna,“ segir Sólrún. Opnunarmyndin er kín- verska myndin Hi, mom eftir Ling Jia, sem fjallar um konu sem ferðast aftur í tímann til að vingast við móður sína í þeim tilgangi að gera líf hennar auðveldara. „Eins og áður verða veitt verðlaun á hátíðinni í stuttmynda- keppninni Systir. Öllum sem skilgreina sig sem konur eða kynsegin er velkomið að senda mynd í keppnina. Keppt verður um bestu tilrauna- kenndu myndina, bestu heimildarmyndina, bestu leiknu myndina og bestu teiknimyndina.“ Opnað var fyrir umsóknir 1. september og hægt að senda inn mynd til 10. desember á vefnum: filmfreeway.com/ RVKFemFilmFest. RVK Feminist Film Festival í fjórða sinn Hátíðarplakat RVK Fem- inist Film Festival 2023. RELMENT PELMO St. 41- 47,5 / 19.995 kr. 3 LITIR KRINGLAN - SMÁRALIND - SKÓR.IS HERRA GÖNGUSKÓR VATNSHELDIR SKÓR MEÐ STÖMUM BOTNI

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.