Morgunblaðið - 13.10.2022, Side 64

Morgunblaðið - 13.10.2022, Side 64
www.husgagnahollin.is Sími: 558 1100 *Verð og vöruupplýsingar í auglýsingunni eru birtar með fyrirvara um prentvillur. Taxfree tilboðið gildir af öllum sófum, sófaborðum, mottum, púðum og teppum nema sérpöntunum og jafngildir 19,35% afslætti. Að sjálfsögðu fær ríkissjóður virðisaukaskatt af söluverði. Afslátturinn er alfarið á kostnað Húsgagnahallarinnar. Tilboð gildir ekki af sérpöntunum. SÓFAVEISLA TAXFREEAFSLÁTTUR AF ÖLLUM SÓFUM, SÓFABORÐUM, PÚÐUM, TEPPUMOGMOTTUM CHARLIETOWN 3ja sæta sófi í dökkgráu sléttflaueli. 219×88×78 cm. 137.097 kr. 169.990 kr. PINTO U-sófi í Kentucky koníakslituðu bonded leðuráklæði. Hægri eða vinstri tunga. 349×206×85 cm. 338.722 kr. 419.990 kr. FRIÐUR Motta. 160×240 cm. 80.642 kr. 99.990 kr. Taxfree af öllum mottum SOLI Sófaborð. Guangxi hvít plata. Ø45,7×45 cm. 56.447 kr. 69.990 kr. DUNCAN Sófaborð. Ø80×45 cm. 32.252 kr. 39.990 kr. LIAM Tungusófimeð hægri eða vinstri tungu. 267×160×93 cm. 387.112 kr. 479.990 kr. MAX U-sófimeð hægri eða vinstri tungu. 286×200×87 cm. 161.292 kr. 199.990 kr. Lagkaka nefnist sýning sem teiknararnir og myndlist- arkonurnar Linda Ólafsdóttir og Lóa Hjálmtýsdóttir opna í Epal Galleríi á Laugavegi 7 í dag, fimmtudag, kl. 16. Á boðstólum verður úrval verka af vinnustofum Lindu og Lóu. Málverk, mæðradagsplattar og prent prýða veggi gallerísins og eru öll verkin til sölu. Sýn- ingin stendur til 25. október og á tímabilinu verður starfræktur einstakur passamyndakassi þar sem gestir geta setið fyrir og keypt handteiknaðar portrettmyndir og á sama tíma látið gott af sér leiða því hluti af ágóð- anum rennur til Stígamóta. Lagkaka opnuð í Epal Galleríi í dag FIMMTUDAGUR 13. OKTÓBER 286. DAGUR ÁRSINS 2022 Sími: 569 1100 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is mbl.is: netfrett@mbl.is Í lausasölu 776 kr. Áskrift 8.383 kr. Helgaráskrift 5.230 kr. PDF á mbl.is 7.430 kr. iPad-áskrift 7.430 kr. Mohamed Salah fór á kostum fyrir Liverpool þegar liðið vann stórsigur gegn Rangers í A-riðli Meistaradeildar karla í knattspyrnu í Glasgow í gær. Leiknum lauk með 7:1-sigri Liverpool en Mohamed Salah gerði sér lítið fyr- ir og skoraði þrennu í leiknum. »54 Liverpool skoraði sjö í Skotlandi ÍÞRÓTTIR MENNING Steinþór Guðbjartsson steinthor@mbl.is Boðið verður upp á fjölrétta máltíð á eldhúsborðinu á veitingastaðnum Tides á jarðhæð The Reykjavík Edi- tion-hótelsins í miðbænum á fimmtu- dags- og föstudagskvöldum frá og með í kvöld. „Við bjóðum upp á sér- stakt umhverfi með áherslu á Ísland og íslenskt hráefni og aðalatriði er að gestir upplifi það sem slíkt, ekki síst með tengingu við starfsfólkið í eld- húsinu,“ segir Georg Arnar Hall- dórsson, yfirmatreiðslumeistari á Tides. Hótelið var formlega opnað fyrir tæpu ári og frá byrjun var gert ráð fyrir svona veitingastað, þar sem ein- ungis átta gestir hverju sinni fylgjast með eldamennskunni. Þeir sitja við ílangt eldhúsborðið, spyrja spurninga og fá upplýsingar um allt sem við- kemur matnum og viðkomandi veig- um. „Það er gaman að elda fyrir gesti með þessum hætti og nándin er mik- il,“ segir Georg. Fjölbreyttir smáréttir Á matseðlinum verða 12 til 14 smá- réttir og tekur hann breytingum eftir því hvað er ferskast hverju sinni. Stór hluti grænmetisins kemur til dæmis með flugi frá Móður Jörð í Vallanesi skammt frá Egilsstöðum. „Við erum með ferskt íslenskt hráefni og sér- valið hráefni að utan,“ segir Georg. Á kynningarmatseðli í liðinni viku voru meðal annars á seðlinum skötusels- kinnar og wasabilauf; rófur, rifsber og skessujurt; skötuselur og kantar- ellur; graskersbrauð og ristað sjávar- þangssmjör; laukseyði; eggjarauða og kavíar; hreindýr, mosi, fura og jarðsveppir; 1.000 daga gamall óðals- ostur; fíkjur og múskat; geitaskyr og græn jarðarber; súrmjólk með brúnuðu smjöri og brenndum kanil; möndlukaka með flauelsblómi og sætir bitar. Nánari upplýsingar um matseðil- inn eru á veitingastaðnum og netinu (Dineout.is – Tides counter), en hann var skemmtilega settur saman og vandað til allra verka. Allir réttirnir vöktu sérstaka athygli blaðamanns, hver með sínum hætti, enda hugsað fyrir hverju smáatriði. „Ég hafði hugsað mér að opna eigin matstað með svona konsepti þegar Covid skall á og var því farinn að velta fyrir mér svona matseðli,“ segir Georg. Hann var áður yfirmatreiðslumaður á Michelin-staðnum Óx og Sumac við Laugaveg. Þar segist hann hafa feng- ið dýrmæta reynslu, sem hafi komið sér vel við uppbyggingu á matseðl- inum. „Ég eldaði sambærilega upp- lifun fyrir 11 gesti hverju sinni á Óx í þrjú ár og vissi því út í hvað ég var að fara hérna.“ Góður matur er gulls ígildi og ekki skemmir fyrir að fá tækifæri til að fylgjast með matreiðslu sérfræðinga og kitla þannig bragðlaukana fyrir það sem á eftir kemur. „Þessi góða tenging skiptir miklu máli í báðar átt- ir,“ segir Georg og leggur áherslu á að hann sé með mjög gott um tíu manna starfslið. „Þetta eru ekkert nema stjörnur. Ísak Darri Þorsteins- son og Micaela Alexandra Ajanpi, sem er frá Finnlandi, eru algjörir listamenn, nemarnir standa sig með prýði og Burkni Þór Bjarkarson er vaktstjórinn okkar.“ Fyrstu kynni Georgs af matreiðslu voru á pítsustað í Mosfellsbæ. Þegar hann var í listnámi vann hann á veit- ingastöðum með námi, fékk samning hjá Leifi Kolbeinssyni á Kolabraut- inni, útskrifaðist frá Hótel- og veit- ingaskólanum 2013, starfaði víða er- lendis og vann á Kolabrautinni áður en hann byrjaði á Sumac. Hann var í kokkalandsliðinu 2015-2018 og hefur fengið ýmsar viðurkenningar fyrir störf sín. „Það er alltaf gaman að fá klapp á bakið en aðalatriðið er að tengjast fólkinu og gera vel við það.“ Sérstök upplifun við eldhúsborðið - Boðið upp á fjölrétta máltíð í mikilli nánd á Tides Ljósmyndir/Gunnar Sverrisson Upplifun Georg Arnar Halldórsson sér vel um gesti sína á TIDES. Hreindýr Georg hugsar fyrir hverju smáatriði við gerð réttanna.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.