Morgunblaðið - 15.11.2022, Side 8
FRÉTTIR
Innlent8
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 15. NÓVEMBER 2022
Holtagörðum | Sími 568 0708 | www.fako.is
STAKSTEINAR
Tilraun til að
kaupa ráðherra
Ríkar tilfinningar hafa
blossað upp í umræðu um
landvist og brottvísanir hæl-
isleitenda, jafnvel þannig að
sumir skilja vart hvernig aðrir
geti verið á
öndverðum
meiði. Einn
þeirra er Har-
aldur Þorleifs-
son, sem hefur
efnast vel og
haft forgöngu
um uppsetn-
ingu rampa í
miðbænum og
ýmis þjóðþrifa-
mál önnur.
Á dögunum
bauðst hann til
þess að borga
flugmiða og
gistingu fyrir
Jón Gunnars-
son dómsmála-
ráðherra til
Grikklands
ef hann kæmi
með sér að skoða aðstöðu flótta-
fólks þar í landi.
Að þessu var gerður góður
rómur, þó tilboðið gangi í
berhögg við ýmis lög og samn-
ing SÞ gegn spillingu, þar sem
kveðið er á ummútutilraunir og
áhrifakaup. Þarna var gagngert
verið að reyna í krafti auðs að
hafa áhrif á afstöðu og embætt-
isfærslu með ólöglegri boðsferð.
Af því að hann skildi málið ekki
nógu vel, ekki nógu rétt.
Skrýtið að sjá þá sem hæst
hafa talað um siðferði í
íslenskum stjórnmálum klappa
hugmyndina upp. Sjálfsagt
af því að bjóðandi er góður
drengur og málstaðurinn fagur.
En þegar menn láta tilganginn
helga meðölin þá blasir við sið-
ferðisleg tómhyggja, umburðar-
lyndi gagnvart spillingu, bara ef
hún kemur úr „réttri“ átt.
Haraldur
Þorleifsson
Jón
Gunnarsson
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
www.mbl.is/mogginn/leidarar
Vilja aðÁrbæjarlón verði fyllt
lBorgarfulltrúar Sjálfstæðisflokks vísa
í nýlegan úrskurð úrskurðarnefndar
Borgarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins
munu leggja til á fundi borgarstjórn-
ar Reykjavíkur í dag að þeim tilmæl-
um verði beint til stjórnar Orkuveitu
Reykjavíkur að hún hlutist til um
að Orkuveita Reykjavíkur fylli án
tafar í Árbæjarlón í kjölfar úrskurð-
ar úrskurðarnefndar umhverfis- og
auðlindamála um ólögmæti þeirrar
framkvæmdar að tæma lónið var-
anlega.
Björn Gíslason borgarfulltrúi er
fyrsti flutningsmaður tillögunnar.
Í greinargerð segir að í úrskurði
úrskurðarnefndar umhverfis- og
auðlindamála sem kveðinn var upp
í október komi fram skýr og afdrátt-
arlaus niðurstaða um að í tæmingu
Árbæjarlóns hafi falist meiri háttar
framkvæmd sem hafði áhrif á um-
hverfið og breytti ásýnd þess og að
samkvæmt því hefði borið að afla
framkvæmdaleyfis vegna hennar.
Jafnframt komi fram í úrskurðinum
skýr niðurstaða nefndarinnar um að
af þessum ástæðum hafi skipulags-
fulltrúa Reykjavíkurborgar borið að
stöðva hina ólögmætu framkvæmd
tafarlaust og leita staðfestingar
sveitarstjórnar í samræmi við
skipulagslög. Feli úrskurðurinn í
sér bindandi fullnaðarúrskurð sem
sé endanleg niðurstaða málsins á
stjórnsýslustigi. Því beri að hlíta
úrskurðinum og eigi það sérstaklega
við um Reykjavíkurborg og félög í
hennar eigu.
Morgunblaðið/Eggert
Árbæjarlón Stíflulón ofan við Ár-
bæjarstíflu var tæmt árið 2020.
Virti ekki skyldu um
bið á gatnamótum
lKona lést af völdumáverka
Rannsóknarnefnd samgönguslysa
hefur komist að þeirri niðurstöðu
að ökumaður strætisvagns hafi
ekki virt skyldu um bið á gatnamót-
um Gnoðarvogs og Skeiðarvogs í
Reykjavík í nóvember á síðasta ári
og ekið á konu á sjötugsaldri sem
var á leið yfir gangbraut á grænu
ljósi. Hún lést af völdum áverka.
Strætisvagninum var ekið í víðri
hægribeygju frá Skeiðarvogi inn
á Gnoðarvog, einnig á grænu ljósi,
þegar slysið varð en ökumaður ber
fyrir sig að hafa ekki séð vegfar-
andann.
Slysið varð klukkan 8:31 að
morgni til en úti var myrkur og
rigning. Niðurstöður úr ljósmæl-
ingum sem framkvæmdar voru við
gatnamótin benda til að birta hafi
verið undir viðmiðum Reykjavíkur-
borgar á gönguleiðinni við slysstað.
Lýsingin beint yfir slysstaðnum var
þó á mörkum viðmiða.
Öryggisgler hafi valdið áreiti
Í skýrslunni kemur fram að mögu-
legt sé að öryggisgler í vagninum,
sem var komið fyrir í heimsfaraldri
Covid-19 til að aðskilja ökumann og
farþega, hafi valdið bílstjóranum
auknu áreiti við aksturinn. Með
glerinu er möguleiki á endurspegl-
un fjölþætts ljóss í umhverfinu inn í
rými bílstjóra. Tekið er þó fram að
mikilvægt sé að ökumenn og aðrir
vegfarendur sem um gatnamót fara
sýni sérstaka aðgæslu og séu ávallt
viðbúnir að bregðast við óvæntri
hættu.
Í skýrslunni beinir rann-
sóknarnefndin því einnig til veg-
haldara að framkvæma öryggisút-
tekt á slysstað og vinna að úrbótum
til að auka öryggi. Staðsetning
bæði biðstöðvar og gangbrautar á
slysstað sé varhugaverð.
Morgunblaðið/Eggert
Strætisvagn Kona lést þegar hún
varð fyrir strætisvagni í fyrra.