Morgunblaðið - 15.11.2022, Blaðsíða 12
FRÉTTIR
Viðskipti | Atvinnulíf12
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 15. NÓVEMBER 2022
IB ehf | Fossnes A | 800 Selfoss | ib.is
Ábyrgð og þjónusta fylgir öllum nýjum bílum frá IB
Nýir bílar
á lager
Sími 4 80 80 80
Litur: Onyx black/svartur að innan. 10 gíra skipting, auto track millikassi, multipro
opnun á afturhlera, flottasta myndavélakerfið á markaðnum ásamt mörgu fleira.
Heithúðaður pallur með gúmmimottu,
sóllúga, toppljós.
2023 GMC Denali 2500HD
VERÐ
16.730.000 m.vsk
Án vsk. 13.492.000
Litur: Iconic Silver/svartur að innan. 475 hö, 1050 pund tog og 10 gíra sjálfskipting.
Innifalið í TREMOR-pakki. Topplúga, Quad Beam LED ljós, heithúðaður pallur, húdd-
hlíf. Lariat Sport útlitspakki með meðal annars samlitað grill. Ultimate pakki sem
innheldur meðal annars lyklalaust aðgengi, start og fjarstart og tröppu í hlera.
Heithúðaður pallur, quad beam LED aðalljós,
360 myndavélakerfi með back up assist.
2022 Ford F-350 Tremor Lariat Sport
VERÐ
18.490.000 m.vsk
Án vsk. 14.900.000
15. nóvember 2022
Gjaldmiðill Gengi
Dollari 144.26
Sterlingspund 169.87
Kanadadalur 108.56
Dönsk króna 19.991
Norsk króna 14.488
Sænsk króna 13.866
Svissn. franki 151.06
Japanskt jen 1.0334
SDR 189.08
Evra 148.7
Meðalgengi/Viðskiptavog þröng 177.0008
STUTT
Deilt um verð, en þó ekki
Í skýrslu ríkisendurskoðunar er
nokkuð fjallað um það sem kallað er
afsláttur, en er yfirleitt vísað til sem
fráviks frá markaðsverði, og fjall-
að um það gengi sem hlutirnir eru
seldir á. Fram kemur í skýrslunni að
Bankasýslan og fjármálaráðuneytið
hafi verið sammála um að stefna að
því að frávikið gæti verið á bilinu
3-5%. Við framkvæmd sölunnar nam
frávikið 4,1% frá lokagengi bréfa í Ís-
landsbanka á þeim degi sem salan
fór fram. Það eru, eins og áður hefur
verið bent á, nokkru minni frávik en
í sambærilegum sölum með sömu
aðferð í öðrum ríkjum.
Sem kunnugt er nam verðið á hlut
117 kr. við söluna og rakið er í skýrsl-
unni hvernig það verð varð til. Í stuttu
máli má segja að það hafi verið hæsta
verð sem í boði var til að fá erlenda
aðila að borðinu. Í skýrslunni er látið
að því liggja að hægt hefði verið að
fá hærra verð, en ekki fullyrt með
beinum hætti að hægt hefði verið að
fá hærra verð og á sama tíma uppfylla
það markmið, sem sett hafði verið af
ríkinu; að tryggja dreift eignarhald á
bankanum að útboði loknu.
Bankasýslan segir í athugasemd-
um sínum að ákvörðun um lokaverð
hafi byggst á heildstæðu mati þeirra
upplýsinga sem lágu fyrir auk þess
sem verðið hafi tryggt fjárhagslega
hagsmuni íslenska ríkisins með til-
liti til verðþróunar hlutabréfa í Ís-
landsbanka á eftirmarkaði. Þá segir
Bankasýslan að umsjónaraðilar út-
boðsins hafi allir verið sammála um
að lokaverð skyldi vera 117 kr. á hlut.
Söluráðgjafar til skoðunar
Í skýrslunni kemur fram að ekki
hafi verið gerðar tilhlýðilegar kröf-
ur til umsjónaraðila, söluráðgjafa
og söluaðila í útboðinu. Þá hafi ekki
verið tekið nægjanlegt tillit til mögu-
legrar orðsporsáhættu né gætt eins
vel og mögulegt var að meginreglum
um gagnsæi og hlutlægni. Þá telur
Ríkisendurskoðun að Bankasýslan
hafi vanrækt að tryggja að vinna um-
sjónaraðila, söluráðgjafa og söluaðila
væri samstillt og skilvirk.
Fyrir liggur að Fjármálaeftirlit
Seðlabankans er með ýmsa þætti til
athugunar, sem helst snúa að sölu-
ráðgjöfum sem störfuðu við söluna.
Samkvæmt upplýsingum sem fengust
frá Seðlabankanum í gær stendur sú
athugun enn yfir og óvíst er hvenær
henni lýkur. Samkvæmt heimildum
Morgunblaðsins hefur eftirlitið kallað
eftir upplýsingum frá söluaðilum og
ráðgjöfum og enn er verið að vinna
úr þeim upplýsingum.
Ekki náðist í Jón Gunnar Jónsson
framkvæmdastjóra Bankasýslunnar
þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir.
Það er ljóst að stjórnsýsluúttekt Rík-
isendurskoðunar um sölu á 22,5%
hlut ríkisins í Íslandsbanka í mars
sl. er ekki til þess fallin að binda
enda á þau deilumál sem risið hafa
í kjölfar sölunnar. Það má merkja af
viðbrögðum stjórnmálamanna sem
sumir hverjir gera kröfu um frekari
rannsókn málsins, en ekki síður af
viðbrögðum Bankasýslu ríkisins, sem
hafði umsjón með sölunni, sem í gær
sendi fjölmiðlum athugasemdir vegna
úttektarinnar og tilkynnti um leið að
frekari athugasemdir við skýrsluna
yrðu birtar á næstu dögum. Hvort
frekari rannsókn verður gerð á mál-
inu er í höndum Alþingis.
Almennt hagfelld niðurstaða
Stjórnsýsluúttekt, sem vísað er til
sem skýrslu, Ríkisendurskoðunar er
ítarleg, rúmlega 70 blaðsíður. Almenn
niðurstaða er sú að fjárhagsleg niður-
staða af sölunni hafi verið ríkinu hag-
felld og ekki koma fram afdráttarlaus
dæmi um að farið hafi verið á svig við
lög eða stjórnsýslureglur.
Þó er rétt að ítreka að í skýrslunni
er bent á ýmsa þætti sem Ríkis-
endurskoðun telur ýmist að betur
hefðu mátt fara eða misbrestur á
(þótt ekki sé talað um lögbrot).
Í skýrslunni er meðal annars nefnt
að kynna hefði mátt ferlið og fyrir-
komulag þess betur í ljósi þess að um
lítið þekkta aðferðafræði var að ræða
hérlendis og að framkvæmdin tek-
ur stuttan tíma. Þó má geta þess að
sama aðferð var notuð við sölu á hlut
ríkisins í Arion banka sumarið 2018.
Bankasýslan gengst við því að betur
hefði mátt standa að kynningu gagn-
vart almenningi, en tekur þó fram að
framkvæmdin hafi verið kynnt fyrir
ráðherra og tveimur þingnefndum.
Þar er um að ræða fjárlaganefnd og
viðskipta- og efnahagsnefnd. Eins og
greint hefur verið frá hér í Morgun-
blaðinu og í ViðskiptaMogga gerðu
nefndirnar – sem fengu hvor um sig
nokkrar kynningar auk þess sem þær
fengu til sín sérfróða aðila til að varpa
ljósi á kosti og galla útboðsleiðarinn-
ar og áhrif sölunnar á samkeppni –
gerðu ekki efnislegar athugasemdir
við sölufyrirkomulagið sjálft.
lSkýrsla ríkisendurskoðunar liggur birt eftir sex mánaða vinnu
Ólík sjónarmiðmilli
ríkisstofnananna
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Banki Ríkið á enn 42,5% hlut í Íslandsbanka. Þótt enn sé stefnt að sölu þess hlutar er óvíst hvenær það verður.
FRÉTTASKÝRING
Gísli Freyr Valdórsson
gislifreyr@mbl.is
SÍÐASTAVERKEFNI BANKASÝSLUNNAR?
Bankasýslan verði lögð niður
Í skýrslunni kemur fram að Ríkis-
endurskoðun telji að Bankasýslan
hafi verið vanmáttug til að sinna
verkefninu, meðal annars með
þeim rökum að starfsmenn séu of
fáir og skorti reynslu af verkefn-
um sem þessu. Þó liggur fyrir að
stofnunin naut aðstoðar bæði inn-
lendra og erlendra ráðgjafa, sem
bæði hafa reynslu og þekkingu
á þessu sviði. Engin umræða um
reynslu- eða þekkingarleysi starfs-
manna Bankasýslunnar kom fram
við sölu ríkisins á hlutum sínum í
Arion banka eða í frumútboðinu í
Íslandsbanka sumarið 2021, þegar
ríkið seldi 35% hlut í bankanum.
Ábyrgðarskipting á milli fjár-
málaráðuneytisins og Bankasýsl-
unnar byggist á lögum sem sett
voru í tíð ríkisstjórnar Jóhönnu
Sigurðardóttur. Fyrir þeim lögum
mælti þv. fjármálaráðherra, Oddný
Harðardóttir, nú þingmaður Sam-
fylkingarinnar. Vörn Bankasýsl-
unnar nú kann þó að verða hennar
síðasta verkefni, því núverandi
ríkisstjórn stefnir að því að leggja
stofnunina niður. Unnið er að
frumvarpi þess efnis í fjármála-
ráðuneytinu þar sem jafnframt
verður lagt til nýtt fyrirkomulag
til að halda utan um eignarhlut
ríkisins í fjármálafyrirtækjum.
Tap Reita tæpar 300
milljónir á 3F 2022
Tap fasteignafélagsins Reita nam á
þriðja ársfórðungi þessa árs um 270
milljónum króna, samanborið við hagn-
að upp á 2,8 milljarða króna á sama
tímabili í fyrra. Hagnaður félagsins á
fyrstu níu mánuðum ársins nemur þó
rúmum 3,7 milljörðum króna en dregst
saman um tæpar 900 milljónir króna á
milli ára. Leigutekjur félagsins námu á
þriðja ársfjórðungi um 3,4 milljörðum
króna og hækka um 300milljónir króna
á milli ára. Fram kemur í árshlutaupp-
gjöri félagsins að fjármagnsgjöld fyrstu
níu mánuði ársins hafi nær tvöfaldast á
milli ára. Þá kemur fram í kynningu með
uppgjörinu að félagið áætli að tekjur
ársins verði á bilinu 13,2-13,4 milljarðar
króna, sem eru lítillega hærri tekjur en
áður var gert ráð fyrir í bókum félagsins.
Tekjur Bílaleigu Flugleiða ehf., Hertz
á Íslandi, námu í fyrra um þremur millj-
örðum króna og jukust um rúmar 900
milljónir króna á milli ára. Þó ber að hafa
í huga að þá höfðu tekjur félagsins dreg-
ist saman um rúma 1,6 milljarða króna
frá árinu 2019.Tekjur af reglulegri starf-
semi voru um 2,4 milljarðar króna og
nærri tvöfölduðust á milli ára. Hagnaður
í fyrra nam tæpum 370milljónum króna,
samanborið við tap upp á 314 milljónir
króna árið áður. Eigið fé félagsins var í
árslok tæpir 1,9 milljarðar króna. Launa-
kostnaður félagsins nam tæpum 650
milljónum króna og hækkaði um tæpar
50milljónir króna á milli ára.Athygli
vekur að bókfærður hlutur Hertz í
Pallaleigunni Stoð er tæpar 530m.kr. en
var aðeins 2,4 m.kr. árið áður. Í skýrslu
stjórnar kemur fram að horfurnar fyrir
2022 séumjög góðar og vænta megi
„framúrskarandi“ afkomu á árinu.
Tekjur Hertz jukust til
muna eftir faraldur
Hertz hagnaðist um 370m.kr. í fyrra.