Morgunblaðið - 15.11.2022, Blaðsíða 20

Morgunblaðið - 15.11.2022, Blaðsíða 20
20 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 15. NÓVEMBER 2022 ✝ Birna G. Bjarnleifs- dóttir fæddist á Ísafirði 14. sept- ember 1934. Hún lést á Hrafnistu, Skógarbæ, 31. október 2022. Foreldrar Birnu voru hjónin Anna Sólveig Veturliða- dóttir, f. 1911, d. 1980, húsfreyja á Ísafirði og í Reykjavík, og Bjarnleifur Hjálmarsson, f. 1907, d. 1982, vélstjóri á Ísa- firði, síðar starfsmaður véla- miðstöðvar Reykjavíkurborgar. Birna giftist árið 1956 Árna H. Bjarnasyni bankaútibús- stjóra, f. 1933, d. 2020. Dætur þeirra eru: 1) Erla Svanhvít, f. 1959, hæstarétt- arlögmaður, gift Jóni Finn- björnssyni, fv. landsréttardóm- ara. Dætur þeirra eru a) Guð- rún Hrönn, f. 1986, gift Ragn- ari Steini Ólafssyni, börn þeirra eru Emilía Kristbjörg, f. 2011, og Árni Gunnar, f. 2014; b) Birna, f. 1990, í sambúð með Einari Inga Davíðssyni; 2) Anna Sólveig, f. 1967, bankastarfs- maður, gift Þorkeli Jóhanns- syni flugstjóra. Synir þeirra eru a) Jóhann Árni, f. 1993, í sambúð með Önnu Lóu Gunn- arsdóttur, sonur þeirra er Þor- Félagsblaðs leiðsögumanna á árunum 1974 til 1983. Sótti hún fjölda námskeiða á vegum fé- lagsins og tók þátt í ráðstefnum víða um heim á vegum nor- rænna og alþjóðlegra samtaka leiðsögumanna. Birna var alla tíð ötull talsmaður löggildingar starfsheitisins leiðsögumaður. Hún var fulltrúi leiðsögumanna í Ferðamálaráði 1976-1993, átti sæti í umhverfisnefnd ráðsins 1984-1993, var fulltrúi í Nátt- úruverndarráði 1984-1987 og varaformaður 1990-1993. Á árunum 1979 til 1983 hafði Birna umsjón með útvarps- þáttum um ferðamál á RÚV og sá einnig um útvarpsþætti Um- ferðarráðs. Hún vann einnig texta fyrir ferðabæklinga og ferðabækur. Birna tók saman mikið magn kennsluefnis fyrir leiðsögu- nema og gaf m.a. út Handbók leiðsögumanna. Hún var sæmd riddarakrossi hinnar íslensku fálkaorðu árið 2000 fyrir fræðslustörf í þágu ferðamála. Birna hafði forgöngu um stofnun Kvenfélags Breiðholts árið 1970 og var lengi formað- ur félagsins. Einnig átti hún sæti í byggingarnefnd Breið- holtskirkju. Hún var félagi í Soroptimistaklúbbi Bakka og Selja á árunum 1980 til 1994, var formaður klúbbsins 1984- 1986. Frá árinu 2019 naut Birna umönnunar á hjúkrunarheim- ilinu Skógarbæ. Útför hennar verður gerð frá Breiðholtskirkju í dag, 15. nóv- ember 2022, kl. 13. kell Máni, f. 2020; b) Bjarnleifur Þór, f. 2000, í sambandi með Söru Dögg Sveinbjörnsdóttur. Birna lauk gagn- fræðaprófi frá Gagnfræðaskól- anum á Ísafirði ár- ið 1949 og versl- unarprófi frá Verzlunarskóla Ís- lands árið 1953. Hún starfaði við skrifstofustörf hjá H. Ben. hf. á árunum 1953 til 1958. Með heimilisstörfum næstu árin tók hún að sér þýð- ingar, forfallakennslu og kennslu í vélritun. Birna lauk leiðsögunámskeiðum Ferða- skrifstofu ríkisins á árunum 1965 til 1970. Birna starfaði sem leiðsögu- maður erlendra ferðamanna í dagsferðum á árunum 1969- 1982. Hún var forstöðumaður Leiðsöguskóla Ferðamálaráðs frá árinu 1976 en tók svo að sér frá árinu 1987 að byggja upp og hafa umsjón með ferðamála- námskeiðum MK, sem síðar varð Leiðsöguskólinn. Hún lauk störfum þar á árinu 2002. Birna vann lengi að hags- munamálum leiðsögumanna, hún var formaður Félags leið- sögumanna á árunum 1973- 1979 og ritstjóri og í ritnefnd Elsku amma. Það er svo óraunverulegt að hugsa til þess að þú hafir nú kvatt þennan heim. Minningarnar eru svo margar og verður aldrei öllu komið fyrir hér. Brúnastekkur- inn er ef til vill það fyrsta sem kemur upp í hugann enda leit ég á hann sem mitt annað heimili í tæp 20 ár. Þangað vorum við barnabörnin alltaf velkomin til ykkar afa og áttum öruggt skjól. Engu skipti þótt við skildum eftir okkur merki hér og þar, hvort sem það var að rústa sófunum með því að búa til hús úr sófap- úðunum eða spila á yamaha- skemmtarann með tilheyrandi látum. Ef eitthvað var munaði þig ekkert um að fíflast aðeins með okkur og einnig að spila við okkur. Lísa var líka alltaf vel- komin enda var hún eitt af barna- börnunum. Þú sýndir öllu í kringum þig mikinn áhuga, hvort sem það var skóli og tómstundir hjá okkur barnabörnunum, annað fólk eða eitthvað allt annað. Eins og þú sagðir sjálf varstu svo forvitin, enda komstu í heiminn um mán- uði fyrir tímann til að geta fylgst með. Þú vildir líka alltaf skilja allt 100% og ég er ekki frá því að ég sé eins. Til að mynda rannsak- aðirðu tómt geitungabú úr garð- inum og sendir fyrirspurn til Ör- nefnanefndar til að kanna hvers vegna Gunnlaugsskarðið í Esj- unni héti Gunnlaugsskarð. Sem leiðsögumaður varstu algjör haf- sjór af fróðleik og þér leiddist ekki að kenna okkur landafræði og sögu. Þótt okkur hafi stundum þótt nóg um þakkaði ég þér ald- eilis fyrir allt saman þegar ég fór í próf í menntaskóla þar sem ég þurfti að kunna skil á öllum jökl- um, fjörðum og fleiri kennileitum á landinu. Við fórum einnig í þó nokkur styttri og lengri ferðalög innanlands sem eru öll mjög eft- irminnileg. Til dæmis kom ég á Vestfirðina í fyrsta skiptið þegar við fórum þangað öll saman þeg- ar ég var 12 ára. Þar sýndirðu okkur m.a. æskuheimilin á Ísa- firði. Síðustu ár hafa ekki alltaf ver- ið auðveld og það hefur gengið á ýmsu. Þú gekkst meðal annars í gegnum mikla erfiðleika með afa þegar hann veiktist og náði aldrei fyrri heilsu. Þrátt fyrir allt var jafnaðargeð þitt og jákvæðni ríkjandi alveg til síðasta dags. Þótt við nöfnurnar höfum átt ým- islegt sameiginlegt er ýmislegt sem ég hef alltaf dáðst að í þínu fari. Ég minnist þess til dæmis aldrei að hafa séð þig skipta skapi eða tala illa um nokkurn mann. Einnig má nefna þolin- mæði en hún var endalaus gagn- vart okkur barnabörnunum og aldrei skammaðirðu okkur. Þú hafðir einstakt lag á skynsamleg- um fortölum og að ræða við okk- ur í rólegheitum ef eitthvað bját- aði á. Ekki má gleyma hversu hagsýn og nýtin þú varst og kenndir okkur unga fólkinu hvernig hægt er að nýta hlutina og fara skynsamlega með pen- inga. Langömmubörnin þín þrjú, Emilía Kristbjörg, Árni Gunnar og Þorkell Máni, voru einnig lán- söm að eiga þig að þótt þau hafi vissulega fengið mislangan tíma með þér. Ég veit samt að þú varst stolt af þeim og vildir hag þeirra sem bestan, rétt eins og fyrir alla í kringum þig. Þannig minnumst við þín. Hvíldu í friði amma mín og takk fyrir allt. Nú hittist þið afi eftir tveggja ára að- skilnað, laus undan öllum veik- indum. Þín nafna, Birna. Það var Birna sem kastaði mér út í djúpu laugina sumarið 1978 þegar hún stuðlaði að því að ég færi sem leiðsögumaður norður Sprengisand og suður Kjöl. Ég hafði aldrei farið hvorki yfir Sprengisand né Kjöl þegar hún stakk upp á þessu. Ég fékk fimm sólarhringa fyrirvara, sem ég notaði til að lesa Árbækur Ferða- félags Íslands um þessar leiðir. Svo endaði með að ég fór þrettán hringi í kringum Hofsjökul þetta sumar! Þar með var leiðsögu- mannsferill minn hafinn – og varð farsæll, en er nú kirfilega að baki. Ég á Birnu G. Bjarnleifsdóttur margt að þakka. Blessuð veri minning hennar. Trausti Steinsson. Fréttin af andláti Birnu G. Bjarnleifsdóttur vekur margar minningar frá síðasta fjórðungi liðinnar aldar. Aðeins ár skildi okkur að í aldri, en við ólumst upp hvort á sínu landshorni. Leiðir okkar lágu saman upp úr 1970, hún sem talsmaður virkrar leiðsagnar í ferðamennsku, und- irritaður á kafi í náttúruvernd- arstarfi eystra og á landsvísu. Birna var ötul og óþreytandi að byggja upp félagsstarf leiðsögu- manna með áherslu á fræðslu um íslenska náttúru. Vinnubrögð hennar og skilningur á þekkingu á landi okkar sem undirstöðu fyr- ir farsæla ferðaþjónustu vöktu athygli margra, m.a. Náttúru- verndarráðs og félagasamtaka um náttúruvernd sem stofnuð voru á 8. áratugnum í öllum landshlutum. Við Birna hittumst öðru hvoru hér syðra eftir að hún var orðin formaður í Félagi leiðsögu- manna. Ég færði henni 1976 fyrstu gönguleiðakortin sem gef- in voru út hérlendis að frum- kvæði ÚÍA, Ungmenna- og íþróttasambands Austurlands. Sjálf var hún vakandi fyrir fræðslu um landið sem undir- stöðu náttúruverndar og samdi sjálf margháttað efni um ferða- mál fyrir leiðsögumenn og al- menning. Fátt hefur tekið jafnmiklum breytingum hérlendis síðustu hálfa öld og ferðalög um landið og þjónusta á því sviði. Sá grunn- ur upplýsinga og fræðslu sem Birna Bjarnleifsdóttir átti stóran þátt í að byggja upp hefur komið að góðu haldi, þótt enn sé brýnt að hlúa að því starfi sem hún helgaði sig í forystu fyrir samtök leiðsögumanna. Hjörleifur Guttormsson. Félag leiðsögumanna, sem nú nefnist Leiðsögn, fagnar á þessu ári hálfrar aldar afmæli. Það hef- ur verið vettvangur faglegs starfs við leiðsögn erlendra ferðamanna um Ísland. Birna G. Bjarnleifsdóttir stýrði lengi Leiðsöguskóla Ís- lands, sem er á háskólastigi, þó hann sé til húsa í Menntaskól- anum í Kópavogi. Ég var nem- andi í Leiðsöguskólanum vetur- inn 1991-1992 og fyrir mig var þetta mjög góður skóli. Þar var lögð áhersla á faglega þekkingu sem hver góður leiðsögumaður ætti að hafa. Margt í kennslunni var góð upprifjun frá námi í menntaskóla. Birna var mjög eftirminnileg- ur kennari sem þótti mjög vænt um nemendur sína. Hún lagði of- urkapp á að við segðum ferða- fólkinu rétt og satt frá. Þá ætti einnig að hafa öryggi ferðafólks- ins í huga enda leynast hættur víða í náttúru landsins. Kvað Birna jafnvel góða leiðsögn einskis virði ef slakað væri á við- vörunum á hættum á vinsælum ferðamannastöðum. Þá lagði hún mikla áherslu á að starf okkar væri þjónustustarf. Henni var mjög illa við að ferðaþjónustan væri nefnd iðnaður enda er enska orðinu industry oft ranglega snarað á íslenska tungu. Orð eiga það til að hafa margar merking- ar. Birna hvatti til gagnrýninnar hugsunar og tel ég hana fyrir vik- ið vera með allra bestu kennur- um af tugum annarra ólastaðra sem ég hef numið af alla mína skólagöngu. Eftir útskrift vorið 1992 átti ég oft samskipti við Birnu. Ég hef í 40 ár verið þátttakandi í íslensku samfélagi með ritun greina í blöð og tímarit sem Birna fylgdist augljóslega vel með. Hún var gagnrýnin ef henni þótti ástæða til en hvetjandi, benti auk þess á mörg viðfangsefni sem mætti skoða betur. Ég var um tíma í stjórn Félags leiðsögumanna og síðar við ritstjórn félagsblaðs okkar ásamt Friðriki Brekkan. Fyrir kom að hún hringdi í mig og urðu þar oft góðar samræður. Hún tók lengi vel þátt í fundum félagsins meðan heilsan leyfði en oft vilja aðalfundir verða býsna langir. Þá reynir á að félagar séu gagnorðir og komi sjónarmiðum sínum vel til skila og rökstyðji þau vandlega. Birna var einstakur kennari sem átti gott samstarf við aðra frábæra kennara Leiðsöguskól- ans eins og Ingvar Birgi Frið- leifsson jarðfræðing og Krist- björgu Þórhallsdóttur. Með góðri undirstöðumenntun vildu þessir kennarar stuðla að því við yrðum sem bestir leiðsögumenn og gæt- um ætíð staðist samkeppni við erlenda starfsfélaga. Blessuð sé minning hennar. Fjölskyldu, ættingjum og vinum eru vottuð innileg samúð á kveðjustund. Við leiðsögufólkið eigum góðar minningar um frá- bæran kennara sem vildi öllum vel. Guðjón Jensson. Birna G. Bjarnleifsdóttir var einn af frumkvöðlunum á sviði leiðsagnar hér á landi og vann af- ar ötullega og af miklum eldmóði að aukinni menntun leiðsögu- manna og bættum kjörum þeirra. Tengsl hennar við leiðsögu- mannsstarfið hófust þegar hún fór á leiðsögunámskeið Ferða- skrifstofu ríkisins sem þá hafði með höndum menntun leiðsögu- manna. Þaðan lauk hún prófum, fyrst 1965 og síðan 1969, og hóf eftir það starf sem leiðsögumað- ur með erlenda ferðamenn. En henni fannst ekki nóg að sækja sér þekkingu hér innan- lands heldur sótti Birna fjölda námskeiða og ráðstefna um leið- sögumál sem erlend samtök leið- sögumanna hafa haldið. Og Birna miðlaði síðan þekkingu sinni áfram til starfandi og verðandi leiðsögumanna hérlendis. Hún var forstöðumaður Leiðsögu- skóla Ferðamálaráðs á árunum 1976 til 1991 og síðan fagstjóri Leiðsöguskóla Íslands í MK frá 1991 til 2002. Hún var formaður Félags leiðsögumanna 1973- 1979, auk þess sem hún gegndi ýmsum öðrum trúnaðarstörfum fyrir félagið. Eins og sést á þess- ari stuttu upptalningu lagði Birna gríðarmikið af mörkum til að efla starf leiðsögumanna, lyk- ilfólksins í ferðaþjónustunni. Ég vil fyrir hönd Leiðsagnar, félags leiðsögumanna, þakka Birnu fyrir óeigingjarnt og ómet- anlegt starf í þágu leiðsögu- manna og sendi aðstandendum hennar innilegar samúðarkveðj- ur. Friðrik Rafnsson, formaður Leiðsagnar, félags leiðsögumanna. Birna G. Bjarnleifsdóttir Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, GUÐMUNDUR KRISTJÁN KRISTJÓNSSON, Ytri-Bug, Ólafsvík, lést á Heilbrigðisstofnun Vesturlands, Akranesi, laugardaginn 12. október. Útför hans verður auglýst síðar. Arnar Guðmundsson Elín Guðmundsdóttir Kristjón Guðmundsson Guðlaug Lúðvíksdóttir Guðmundur Guðmundsson Heiðrún Kristjánsdóttir Stefán Guðmundsson Þórdís Soffíudóttir barnabörn og langafabörn Yndislega eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir og amma, ÁSTA BJÖRK FRIÐBERTSDÓTTIR frá Botni, Súgandafirði, lést á Landspítalanum laugardaginn 12. nóvember. Útför hennar verður auglýst síðar. Kjartan Þór Kjartansson Ægir Kjartansson Sandra Kjartansdóttir Halldór Karl Þórisson og barnabörn Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi, HÖRÐUR VILHJÁLMSSON, fyrrverandi fjármálastjóri Ríkisútvarpsins, Hegranesi 30, Garðabæ, lést á Landspítalanum sunnudaginn 6. nóvember. Útför fer fram í Garðakirkju þriðjudaginn 22. nóvember klukkan 13. Hólmfríður B. Friðbjörnsdóttir Hjördís Harðardóttir Örn Sveinsson Margrét Harðardóttir Steve Christer Ragnheiður Harðardóttir Jón Scheving Thorsteinsson Sigrún Harðardóttir Andrew Clarke Hildur Harðardóttir Þórður Orri Pétursson og barnabörn Elskuleg móðir okkar, amma og langamma, INGVELDUR BJÖRNSDÓTTIR frá Kílakoti, Kelduhverfi, verður jarðsungin frá Grensáskirkju mánudaginn 21. nóvember klukkan 13. Blóm og kransar eru vinsamlega afþakkaðir en þeim sem vilja minnast hennar er bent á að láta SOS Barnaþorpin njóta þess. Bergþór Ingi Leifsson Guðrún Birna Guðmundsdóttir Agnar Bragi Guðmundsson Hulda Lilja Guðmundsdóttir Björn Rúnar Guðmundsson makar, barnabörn og barnabarnabörn Elsku besta mamma okkar, tengdamamma, amma og langamma, ÞÓRDÍS JÓNA ÓSKARSDÓTTIR, Árstíg 7, Seyðisfirði, lést á Fjórðungssjúkrahúsinu á Neskaupstað miðvikudaginn 9. nóvember. Útförin fer fram frá Seyðisfjarðarkirkju laugardaginn 19. nóvember klukkan 14. Ósk Traustadóttir Jóhann Viðar Jóhannsson Magnús Traustason Hrafnhildur Ólafsdóttir Sigrún Traustadóttir Guðmundur Gylfason Hafrún Traustadóttir Kristján Birgir Skaftason Vignir Traustason Aldis María Karlsdóttir Guðrún María Traustadóttir Eymundur Björnsson ömmu- og langömmubörn

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.