Morgunblaðið - 15.11.2022, Síða 26

Morgunblaðið - 15.11.2022, Síða 26
ÍÞRÓTTIR26 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 15. NÓVEMBER 2022 Unnu riðilinn sannfærandi Íslenska kvennalandsliðið skipað leikmönnum 19 ára og yngri vann Litáen 3:0 í lokaleik sínum í B-deild undankeppni Evrópumótsins í Vilníus í gær. Íslensku stúlkurnar höfðu þegar tryggt sér efsta sætið eftir tvo sigra í fyrstu tveimur leikjunum og leikur í A-deild í seinni hluta undankeppninnar næsta vor, en þá verður leikið um sæti í loka- keppninni í Belgíu. Ísland fékk níu stig úr þremur leikjum og lauk keppni með markatöluna 15:0. Ljósmynd/KSÍ U19 Hluti landsliðsins stillir sér upp fyrir leikinn í Litáen í gær. Alexander Örn ekki í leikbann Alexander Örn Júlíusson, fyrir- liði karlaliðs Vals í handknattleik, fær ekki leikbann í kjölfar útilokunar sem hann hlaut í fyrri hálfleik í leik Benidorm og Vals í Evrópudeildinni í upphafi mánað- arins. Valur sendi frá sér greinar- gerð vegna hins yfirvofandi banns þar sem hann var ekki sá brotlegi og nú hefur aganefnd EHF fallist á sjónarmið Vals. Alexander Örn verður því gjaldgengur í leikn- um mikilvæga gegn þýska liðinu Flensburg í næstu viku. Morgunblaðið/Eggert Evrópa Alexander Örn getur spilað gegn Flensburg í næstu viku. Hollendingar sigurstranglegir AFP/John Thys Mikilvægur Virgil van Dijk er fyrirliði og lykilmaður í hollenska liðinu. Hann verður að eiga gott mót ætli Hollendingar sér langt í Katar. lSenegal og Ekvador ætla sér áfram A-RIÐILL Jóhann Ingi Hafþórsson johanningi@mbl.is Upphafsleikur HM karla í fót- bolta verður leikinn næstkomandi sunnudag er gestgjafarnir í Katar mæta Ekvador á Al Bayt-vellinum í Al Khor. Er leikurinn liður í A-riðli, en Senegal og Holland eru einnig í riðlinum. Morgunblaðið mun frá og með deginum í dag fara yfir hvern riðil fyrir sig á mótinu og verður byrjað á A-riðli og svo farið eftir stafrófsröð. Katar Gestgjafarnir í Katar ætla að nýta sér þátttökuréttinn til hins ýtrasta, en Katarar eru með á lokamóti HM í fyrsta skipti. Deildarkeppnin í Katar fór í frí um miðjan september, svo landsliðið gæti hafið undirbúning sinn fyrir HM á heimavelli. Síðan þá hefur liðið leikið eina níu vináttuleiki, m.a. við Kanada, Síle, Níkaragva og Gvatemala. Heimamenn geta því ekki kennt litlum undirbúningi um ef illa fer. Katar hefur verið vaxandi í fótboltanum að undanförnu. Liðið varð Asíumeistari árið 2019 og stóð sig vel sem gestaþjóð á Suður-Am- eríkumótinu sama ár. Þá fór liðið alla leið í undanúrslit í Gullbikarn- um árið 2020. Katar hefur gengið upp og ofan í vináttuleikjum sínum. Liðið átti litla möguleika í Serbíu, Portúgal og Írlandi á síðasta ári, en 2:2-jafntefli gegn Síle í vináttuleik í september gaf stuðningsmönnum liðsins aukna trú. Andstæðingar heimamanna þurfa að hafa gætur á hinum tekníska Akram Afif og markaskoraranum Alomoez Ali. Þá er kantmaðurinn Homan al-Amin sprækur. Líkam- legur styrkur Katara er hins vegar veikleiki og gæti liðið lent í vand- ræðum gegn líkamlega sterkum liðum. Hinn spænski Félix Sánchez er þjálfari Katar, en hann hefur starfað í katörskum fótbolta frá árinu 2006. Hann tók við A-lands- liðinu 2017 og hefur náð fínum árangri með liðið, þrátt fyrir að hafa mistekist að koma því á HM í Rússlandi fyrir fjórum árum. Þrátt fyrir vöxt hjá katarska liðinu eiga fáir von á að liðið fari áfram úr riðlinum, en Katar getur orðið önnur gestgjafaþjóðin frá upphafi til að komast ekki upp úr sínum riðli. Suður-Afríka á þann vafasama heiður að vera sú eina, en Afríkuþjóðin komst ekki upp úr sínum riðli á heimavelli árið 2010. Ekvador Ekvador er á meðal þátttöku- þjóða á HM í fjórða skipti og í fyrsta sinn frá árinu 2014. Ekvador- ar hafa einu sinni komist upp úr sínum riðli, er liðið fór í 16-liða úrslit á HM í Þýskalandi árið 2006. Ekvadorska liðið hefur gengið í gegnum endurnýjun lífdaga eftir að Argentínumaðurinn Gustavo Alfaro tók við eftir slakt gengi undir stjórn Hernáns Gómez, Jorges Célicos og Jordis Cruyffs. HM í Katar var fjarlægur draumur þegar Alfaro tók við fyrir tveimur árum, en hann hefur gjörbreytt gengi liðsins. Alfaro losaði sig við „gamla geng- ið“ því Antonio Valencia, Christian Noboa og Felipe Caicedo eru ekki lengur í hópnum. Í stað þeirra hafa ungir og skemmtilegir leikmenn á borð við Piero Hincapié, Moisés Caicedo og Gonzalo Plata blómstr- að. Ekvador er með yngsta leik- mannahópinn af þeim Suður-Am- eríkuþjóðum sem tryggðu sér sæti á HM, en meðalaldur byrjunarliðs Ekvadora í undankeppninni var rétt rúmlega 25 ár. Ekvador hafnaði í fjórða sæti hinnar geysisterku undankeppni Suður-Ameríku, tveimur stigum á undan Perú, sem er ekki með að þessu sinni. Moisés Caicedo er skærasta stjarna Ekvadora, en hann leikur með Brighton í ensku úrvalsdeildinni. Roberto De Zerbi, knattspyrnustjóri Brighton, kallaði Caicedo einn besta miðju- mann ensku úrvalsdeildarinnar á dögunum. Þá er fyrirliðinn Ángel Mena ávallt hættulegur á kantin- um, þrátt fyrir að vera orðinn 34 ára. Ekvador ætlar sér að berjast um tvö efstu sætin við Holland og Senegal. Senegal Senegal er á sínu öðru heimsmeistaramóti í röð og þriðja alls. Liðið féll úr leik í riðlakeppn- inni í Rússlandi fyrir fjórum árum en fór alla leið í átta liða úrslit í Suður-Kóreu og Japan árið 2002. Miklar vonir eru bundnar við senegalska liðið. Ef allt gengur upp gæti Senegal náð bestum árangri Afríkuþjóðar frá upphafi, en engin Afríkuþjóð hefur komist lengra en í átta liða úrslit í sögu HM. Senegal varð Afríkumeistari í fyrsta skipti í febrúar og hefur liðinu vegnað vel að undanförnu. Babacar Ndaw Faye, blaðamað- ur Emedia Senegal, segir algjört HM-æði hafa tekið yfir senegölsku þjóðina. Þar eru væntingarnar gríðarlegar og telja margir heima- menn að Senegal gæti jafnvel farið alla leið og orðið heimsmeistari. Hvort það sé raunhæft markmið verður að koma í ljós. Senegalska liðið tryggði sér sæti á HM með því að enda í efsta sæti síns riðils í undankeppninni í Afríku. Þá vann Senegal sigur á Egyptalandi í umspili. Senegal á nokkra afar sterka leikmenn og spila nokkrir þeirra í ensku úrvals- deildinni. Stjarnan er Sadio Mané, leikmað- ur Bayern München og fyrrverandi leikmaður Liverpool. Þátttaka hans er hins vegar í óvissu vegna meiðsla. Nái hann að beita sér að fullu í Katar gæti það breytt öllu fyrir senegalska liðið. Senegal er með fleiri sterka leikmenn. Nampalys Mendy leikur með Leicester, Pape Sarr með Tottenham og Idrissa Gueye með Everton. Aliou Cissé hefur stýrt Senegal frá árinu 2015. Hann á mjög stóran þátt í velgengni liðsins, en hann lék stórt hlutverk í liðinu sem sló í gegn í Suður-Kóreu og Japan 2002. Cisse var snöggur að losa sig við leikmenn á borð við Demba Ba, Papiss Cissé og Papy Djilobodji. Cissé er harður í horn að taka og fljótur að losa sig við leikmenn sem fara ekki eftir hans reglum. Sú harðstjórn hefur gefið góða raun og er andinn í senegalska liðinu afar góður. Þótt senegalska þjóðin vilji verða heimsmeistari er best að byrja á því að reyna að komast upp úr riðlinum. Senegal hefur alla burði til þess að, í það minnsta, enda í öðru sæti. Holland Flestir eru sammála um að Holland sé með sigurstrangleg- asta liðið í A-riðli. Holland hefur í þrígang endað í öðru sæti á loka- móti HM og alltaf komist upp úr riðlinum í tíu tilraunum. Hollenska liðið er hungrað, eftir að hafa misst af HM í Rússlandi fyrir fjórum árum og fallið óvænt úr leik gegn Tékklandi í 16-liða úrslitum EM síðasta sumar. Undir stjórn hins skrautlega og 71 árs gamla Louis van Gaals hefur hollenska liðið leikið 15 leiki í röð án þess að tapa. Van Gaal er öllu vanur á hliðarlínunni. Hann stýrði hollenska liðinu til undanúrslita í Brasilíu 2014 og endaði í þriðja sæti. Van Gaal hefur alla tíð verið mik- ill aðdáandi 4-3-3-kerfisins, en hef- ur að undanförnu skipt yfir í 5-3-2 og árangurinn leynir sér ekki, þrátt fyrir að lykilmenn eins og Virgil van Dijk séu ekki endilega sann- færðir. Fyrirliðinn van Dijk sagði á blaðamannafundi á dögunum að hann væri ekki sérlega hrifinn af 5-3-2-kerfinu, en viðurkenndi að úrslitin töluðu sínu máli og því væri lítið hægt að deila við van Gaal. Byrjunarlið Hollendinga er gríðarlega sterkt, en lykilmenn á borð við Frenkie de Jong og Memp- his Depay hafa verið tæpir vegna meiðsla. Þá er breiddin ekki sú mesta og gæti hollenska liðið lent í eilitlum vandræðum, komist það langt í keppninni. Van Dijk er fyrirliði liðsins og stjarna þess, en hann hefur verið einn besti varnarmaður heims undanfarin ár, eins og stuðnings- menn Liverpool þekkja vel. Cody Gakpo, sem hefur spilað gríðarlega vel með PSV Eindhoven á leiktíð- inni, gæti sprungið út á HM. Gakpo hefur verið orðaður við stórlið á borð við Manchester United og er ljóst að hann verður ekki lengur leikmaður PSV næsta sumar, ef hann slær í gegn á stærsta sviðinu. Hollendingar ætla sér ekki aðeins að vinna A-riðilinn, heldur ætla þeir sér langt í keppninni. Fáir bú- ast við að Holland muni berjast um heimsmeistaratitilinn sjálfan, en það gæti reynst liðinu vel að vera ekki í mesta sviðsljósinu. Undankeppni EM U19 kvenna Riðill í Litháen: Ísland – Litháen............................................3:0 Sædís Rún Heiðarsdóttir 64., sjálfsmark 67., Amelía Rún Fjeldsted 73. Lokastaðan: Ísland 9, Færeyjar 6, Litháen 1, Liechtenstein 1. Grikkland OFI Krít – Levadiakos............................ 2:1⚫Guðmundur Þórarinsson lék allan leikinn fyrir Krít og lagði upp mark. Danmörk B-deild: SönderjyskE – Vejle ...............................0:1⚫Atli Barkarson lék allan leikinn fyrir Sönd- erjyskE. Holland B-deild: Jong Ajax – Den Bosch.......................... 4:4⚫Kristian Nökkvi Hlynsson lék fyrstu 87 mínúturnar fyrir Jong Ajax. Olísdeild karla Haukar – Valur..........................................32:34 ÍR – Afturelding.........................................31:31 Staðan: Valur 9 8 0 1 297:252 16 Fram 9 5 3 1 269:261 13 Afturelding 9 5 2 2 263:244 12 FH 9 5 2 2 258:255 12 Stjarnan 9 4 3 2 266:250 11 ÍBV 8 4 2 2 276:237 10 Selfoss 9 4 1 4 270:273 9 KA 9 2 2 5 252:267 6 Grótta 7 2 1 4 199:198 5 Haukar 8 2 1 5 228:231 5 ÍR 9 2 1 6 251:309 5 Hörður 9 0 0 9 262:314 0 EM kvenna Milliriðill 1 í Ljúblíana: Noregur – Slóvenía ........................... 26:23 Þórir Hergeirsson er þjálfari Noregs. Ungverjaland – Svíþjóð .......................... 25:30 Staðan: Noregur 8, Danmörk 6, Svíþjóð 4, Slóvenía 4, Króatía 2, Ungverjaland 0. 1. deild karla Álftanes – ÍA .............................................82:77 Staðan: Álftanes 8 8 0 725:677 16 Sindri 8 6 2 733:645 12 Hamar 7 5 2 654:606 10 Selfoss 8 5 3 757:641 10 Hrunamenn 8 4 4 768:785 8 Ármann 7 4 3 640:622 8 Skallagrímur 8 3 5 730:707 6 ÍA 8 3 5 646:724 6 Fjölnir 8 1 7 682:735 2 Þór Ak. 8 0 8 575:768 0 Undankeppni HM karla L-riðill: Úkraína – Ísland .......................................79:72 Georgía – Ítalía ........................................ 84:85 Spánn – Holland .......................................84:72 Staðan: Spánn 14, Ítalía 12, Georgía 8, Ísland 8, Úkraína 6, Holland 0. I-riðill: Lettland – Bretland..................................79:63 Serbía – Tyrkland..................................... 77:76 Belgía – Grikkland....................................70:72 Staðan: Lettland 14, Serbía 10, Grikkland 10, Tyrkland 6, Belgía 6, Bretland 2. J-riðill: Finnland – Eistland...................................91:71 Slóvenía – Þýskaland............................... 81:75 Svíþjóð – Ísrael ......................................... 71:68 Staðan: Þýskaland 16, Finnland 16, Slóvenía 14, Svíþjóð 10, Ísrael 6, Eistland 4. K-riðill: Svartfjallaland – Litháen ....................... 56:65 Ungverjaland – Tékkland ...................... 83:69 Frakkland – Bosnía ..................................92:56 Staðan: Frakkland 16, Litháen 16, Svart- fjallaland 12, Bosnía 10, Ungverjaland 10, Tékkland 6. NBA New York – Oklahoma City .................135:143 Cleveland - Minnesota..........................124:129 Washington – Memphis.........................102:92 Philadelphia – Utah................................105:98 Chicago – Denver ................................. 103:126 Sacramento – Golden State ................ 122:115 L.A. Lakers – Brooklyn ........................116:103 HANDKNATTLEIKUR Coca Cola-bikar kvenna, 1. umferð: Skógarsel: ÍR – HK.................................... 19.15 Kaplakriki: FH – Selfoss ......................... 19.30 Seltjarnarnes: Grótta – Haukar ............ 19.30 Varmá: Afturelding – Stjarnan.............. 19.30 KÖRFUKNATTLEIKUR 1. deild kvenna: Stykkish.: Snæfell – Breiðablik B........... 19.15

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.